Morgunblaðið - 24.08.1988, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 24.08.1988, Qupperneq 20
'7 20 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1988 Grænland: Erlend fiskvinnslu- skip skortir hráefni Nuuk, frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins. GRÆNLENSKA heimastjórnin taldi síðastliðið vor að þorskafli í sumar yrði meiri en svo fisk- vinnsluhús i landi gætu annað honum vegna skorts á starfsfólki. Mandela aðhressast Höfðaborg. Reuter. NELSON Mandela, hinn fangels- aði leiðtogi Afríska þjóðarráðsins (ANC) í Suður-Afríku, hefur að sögn lækna tekið miklum fram- förum. Mandela er berklaveikur. J.G. Strauss, yfírlæknir á Tyger- berg sjúkrahúsinu, skýrði frá því í gær að Mandela sæti uppi í rúminu, læsi blöð og hlustaði á útvarp. Óljóst væri hvenær hann yrði útskrifaður. P.W Botha, forseti Suður-Afríku, sagði á fundi með stjóm landsins í síðustu viku að hann teldi ekki ráð- legt að halda Mandela lengur föngn- um. Hann yrði þó að ganga að viss- um skilyrðum áður en hægt yrði að veita honum frelsi. Hún brá því á það ráð að taka á leigu átta erlend fiskvinnsluskip. Spá heimastjómarinnar reyndist ekki rétt og hafa skipin ekki ver- ið fullnýtt í sumar. Skipin átta, tvö vestur-þýsk og sex portúgölsk, hafa fram til þessa að- eins unnið helming þess afla sem þau eru fær um þar sem lítið veiðist nú af þorski á Grænlandsmiðum. Ef afli glæðist ekki á næstunni þykir sýnt að skipin verði ekki leigð aftur næsta sumar, a.m.k. ekki þau portúgölsku. Eitt þeirra, 2000 tonn að stærð, hefur einungis fengið 500 tonn af fiski til vinnslu. Skipið tók um hríð við hlutverki fískvinnslu- hússins í Eredriksháab á vestur- ströndinni en því hafði heimastjómin látið loka til að portúgalska skipið fengi nægilegt hráefni. Betur hefur gengið hjá vestur- þýska skipinu Mond sem haft hefur bækistöð í Nuuk (Godthaab). Það hélt á brott með fullfermi um miðjan þennan mánuð og hóf þá fískvinnslu- stöðin „Godthaabs Fiskeindustri" aftur að vinna físk frá grænlenskum fískiskipum. Annað vestur-þýskt fískvinnsluskip er í Julianehaab. Reuter Ölympíueldur kveiktur Ólympíueldurinn var kveiktur í gær á hinum fornfræga stað, Ólympiu, í Alfeios-dalnum i Grikklandi, þar sem Ólympíuleikimir fóm fram til forna. Athöfnin var með hefðbundnu sniði. Leikkona i hefðbundnum klæðum griskrar hof- gyðju bar kyndilinn að holspegli þannig að geisli sólar kveikti eldinn. Að vörmu spori hófst 25 daga ferðalag með kyndilinin til Suður-Kóreu. Þar fer fram 4.186 kílómetra kyndilboðhlaup áður en eldinum verður borinn á sinn stað við setningu Ólympiuleikanna í Seoul 17. september næstkomandi. f Mt íNÝJA HERRAHÚSINU LAUGAVEGI47 fpAKR0'4-900- 30 - 50% AFSLÁTTUR flDom LAUGAVEGUR47 Eistlending- ar krefjast sjálfstæðis Tallinn. Reuter. Eistlendingar kröfðust sjálf- stæðis í gær á fjöldafundi sem haldinn var til að minnast samn- ingsins sem Þjóðveijar og Sovét- menn gerðu árið 1939, en hann kvað á um að Eistland lyti stjórn Sovétmanna. Pundurinn fór fram með sam- þykki stjómvalda á Hirve-torgi í Tallinn. Um 2.000 manns voru á fundinum og veifuðu fundarmenn eistlenska fánanum. Stjómvöld heimiluðu ennfremur fundahöld í Lattlandi og Litháen, sem urðu einnig hluti Sovétríkjanna árið 1940 samkvæmt samningnum sem gerð- ur var við nasista árið 1939. Fyrirhugað var að efna til fundar í ráðhúsinu í Tallinn í gærkvöldi. Klukkustund áður en fundurinn hófst vom um 5.000 manns komnir í ráðhúsið og mikill fjöldi manna hafði safnast saman fyrir utan það til að hlusta á ræðurnar úr hátalara- kerfí. A Irakar not- uðu efnavopn Sameinuðu þjóðunum. Reuter. Sérfræðingar Sameinuðu þjóð- anna sögðu i gær að írakar hefðu varpað efnasprengjum í loftárás- um á borgina Oshnaviyeh í Iran 2. ágúst síðastliðinn. Hefði borgin ekki verið búin vörnum gegn árás- um af þessu tagi. í yfírlýsingu S.Þ. sagði að ítarleg- ar rannsóknir hefðu leitt í ljós að írakar hefðu varpað sprengjum með sinnepsgasi á Oshnaviyeh. Þettu hefðu þeir gert þrátt fyrir ítrekaðar áskoranir samtakanna um að þeir létu vopna af þessu tagi ónotuð í árásum gegn óbreyttum borgumm í íran. Sérfræðingar samtakanna sögðu að um sams konar efnavopn hefði verið að ræða og írakar hefðu varpað á íranska bæi 1984, 1986, 1987 og einnig fyrr á þessu ári. íranir og Irakar sökuðu hvorir aðra um að hafa brotið vopnahlés- samkomulag ríkjanna. írakar sögðu írani hafa skotið fímm sprengjum á einum stað á átakasvæðinu. íranir sögðu íraka hafa iaumast inn á yfírr- áðasvæði sitt á tveimur stöðum í skjóli náttmyrkurs, reist þar tjöld og lagt gaddavírsgirðingar. Á einum stað hefðu frakar rænt sjúkrabifreið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.