Morgunblaðið - 24.08.1988, Síða 23

Morgunblaðið - 24.08.1988, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1988 23 Hættur hungurverkfalli CESAR Chavez, leiðtogi samtaka land- búnaðarverkamanna í Bandaríkjunum, hætti á mánudag mótmælasvelti og hafði hann þá ekki neytt matar í 36 daga. Með aðgerðum sínum vildi hann mótmæla notkun skordýraeiturs á vínekruin í Kali- forníu. Chavez sagði að fimm tegundum banvæns skorýraeiturs væri úðað á vínekrur í Kaliforníu. Stafaði bæði verkamönnum og neytendum berjanna hætta af þeim. Chavez hætti föstunni við athöfn i borginni Delano í Kaliforniu. Hann er 61 árs og léttist að sögn lækna um 14 kíló meðan á föstunni stóð, en þann tíma neytti hann aðeins vatns. Hann hefur tvisvar áður farið í hungurverk- fall til þess að leggja áherzlu á baráttu- mál sín. Á myndinni neytir Chavez matar síns og við hlið hans situr Ethel Kennedy, ekkja Roberts Kennedys, forsetabróður og fyrrum dómsmálaráðherra. Reuter Búrúndi: 5.000 manns sagðir hafa fallið í ættbálkaerjum Kigali í Rwanda. Reuter. HERMENN af Tutsi-ættbálkinum, sem ræður ríkjum i Mið-Afrikurík- inu Búrúndí, hafa beitt nútimavopnum Búrúndi-hers gegn óvopnuð- um erkifjendum sínum af Hutu-ættbálkinum, að sögn flóttamanna sem hafa streymt til nágrannaríkisins Rwanda. Talsmenn hersins segja að um 5.000 manns hafi fallið og talið er að 40.000 manns hafi flúið frá átakasvæðunum til Rwanda. Skotland: Dýravinir vilja friða selastofna London. Reuter. BRESKU dýraverndarsamtökin „Animal Concern" hvöttu á mánudag yfirvöld til að banna seladráp við strendur Skotlands. Visindamenn segja að veirusjúk- dómur, sem lagt hefur að velli þúsundir sela við strendur Norð- ursjávarlanda, hafi nú borist til Bretlands. „Animal Concem" heldur því fram að a.m.k. 2.000 selir séu skotnir eða drukkrii í vamametum umhverfis fiskeldisstöðvar á hveiju ári í Skotlandi. Að auki drepist sel- ir af völdum ýmissa veiðarfæra. Verði þeir ekki friðaðir geti svo farið að þeim verði útrýmt. Mörg þúsund selir hafa að undan- fömu orðið veimsjúkdómnum að bráð við strendur Hollands, Vest- ur-Þýskalands, Danmerkur, Sví- þjóðar og Noregs. Talið er að 40% dýranna í sumum selalátrum hafí drepist. Sovétríkin: Sjötugur grafaræn- iiigi dæmdur Moskva. Reuter. Ellilífeyrisþegi, sem stal gulli úr gröfum fómarlamba nas- ista, hefur verið dæmdur í fangelsi, að sögn Prövdu, mál- gagns sovéska kommúnista- flokksins. Lögregla í sovétlýðveldinu By- elorussia fann 27 gullpeninga og 56 gulltennur í fómm þremenn- inganna. Lífeyrisþeginn, Yasep Mezhals, var dæmdur til tveggja ára fangavistar ,að sögn Prövdu, vegna aldurs síns. Samverkamenn hans eiga yfír höfði sér þriggja ára dóm. Mannskæðir bardagar hafa átt sér stað milli ættbálkanna í Norð- ur-Búrúndí í rúma viku. Talsmaður Rwanda-hers sagði í gær að svo virtist sem átökin hefðu breiðst út á mánudag. Ekki er vitað með vissu hvenær eða hvemig ættbálkaeijumar hóf- ust. Sumir flóttamannanna í Rwanda segja að þær hafí hafíst 4. ágúst þegar Hutu-menn hengdu Tutsi-mann, fyrmm hermann, sem gmnaður var um að hafa myrt tvo Hutu-menn. Aðrir segja að eijumar hafí hafíst 13. eða 14. ágúst, þegar hermenn hafí reynt að safna saman menntamönnum af Hutu-ættbálk- inum í Marangara-héraði. Hutu- menn, sem hafí óttast að herinn fyrirhugaði ný fjöldamorð, hafi þá ráðist á Tutsi-menn og orðið mörg- um þeirra að bana. Margir Tutsi-menn flúðu til Rwanda fyrstu dagana ( síðustu viku en síðan tóku Hutu-menn að streyma til landsins. Þeir síðar- nefndu sögðu að Búrúndí-her, þar sem Tutsi-menn ráða lögum og lof- um, hefði hafið hefndaraðgerðir gegn Hutu-ættbálkinum á miðviku- dag í síðustu viku. Þeir hefðu með- al annars beitt þyrlum, brynvörðum bílum og vélbyssum í árásum sínum á óvopnaða kotbændur. Einn Hutu-mannanna sem flúðu til Rwanda sagði í samtali við fréttamann Reuters að herinn hefði boðað íbúa Marangara-svæðisins í Ngozi-héraði á fund og hermenn hefðu fylgst með íbúunum safnast saraan við skrifstofu héraðsstjóm- arinnar. „Hermennimir hófu skothríð á hópinn. Síðan var þeim sem tóku til fótanna veitt eftirför á þyrlum og þeir skotnir,“ sagði Hutu-maðurinn, sem varð viðskila við konu sfna og fímm böm og veit ekki hvár þau eru niðurkomin. Talsmenn Búrúndí-hers vísa þó slíkum ásökunum á bug og segja að markmið hersins sé „að koma á friði, ekki að myrða þegnana." Þeir Cossiga gagn- rýndur fyrir að hætta við ferð til Suður-Týról Róm. Reuter. FRANCESCO Cossiga, forseti ít- alíu, hefur verið gagnrýndur rnjög fyrir að hætta við ferð sína til Álto Adige i Norður-ítaliu, þar sem undanfarnar vikur hafa verið framin hryðjuverk er beinast gegn ferðamönnum frá öðrum hlutum ítaliu. Hóteleigendur í Alto Adige óttast að ofbeldi og skemmdarverk geti haft slæmar afleiðingar fyrir ferða- mannaþjónustu á svæðinu. Aðskilnaðarsinnar, sem beijast fyrir því að Alto Adige, eða Suður- Týról, verði sameinað Austurríki á ný, hafa gert um sextán sprengjuár- ásir á fímm vikum. Svæðið hefur til- heyrt Ítalíu frá lokum fyrri heims- styijaldar en um 60 prósent íbúanna tala þýsku. segja að herinn sé að bæla niður uppreisn fyrrum útlaga, sem snúið hafí heim til að eggja Hutu-menn til að myrða menn af Tutsi-ætt- bálkinum. Fulltrúi flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna í Rwanda sagði í gær að 40.000 flóttamenn hefðu komið til landsins frá Búr- úndí og alþjóðlegar hjálparstofnanir þyrftu að bregðast skjótt við til hjálpar flóttamönnunum. Þrír fímmtu flóttamannanna eru sagðir yngri en tíu ára. Tutsi-ættbálkurinn hefur drottn- að yfír Hutu-ættbálkinum frá því á nýlendutímunum, þrátt fyrir að Tutsi-menn séu aðeins 15 prósent landsmanna. Mannskæðar eijur brutust út á milli þeirra árið 1972 og talið er að Tutsi-menn hafi þá myrt um 100.000 Hutu-menn. CjOSta delSol öagflug, W^ÖGUF ARPEG A í SEPTEMBER 1/9- SÖGUHOPP. (6 dagar). Verð frá 24.500 kr. 1/9- STUTT FERÐ. (11 dagar). Verð frá 32.600 kr. 1/9- FERÐ ALDRAÐRA. (27 dagar). Verð frá 48.000 kr. 6/9-. STUTT FERÐ. (13 dagar). Verð frá 34.400 kr. 6/9- 3 VIKUR. (21 dagur). Verð frá 52.800 kr. 27/9- GOLFFERÐ. (1-3 vikur). Verð frá 30.900 kr. Barnaafsláttur í leiguflugi 17.000 kr. Barnaafsláttur í áætlunarflugi 8.000 kr. g FERDASKRIFSTOFAN öll verð miðast við 4 í íbúð. Suðurgötu 7 S. 624040 £(ár sníu/loJanJJéTi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.