Morgunblaðið - 24.08.1988, Page 25

Morgunblaðið - 24.08.1988, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1988 25 Allar stéttir taki á og* færi fórnir - segir Guðjón Oddsson formaður Kaupmannasamtaka íslands „Auðvitað höfum við margt við lögbundna niðurfærslu verðlags og launa að athuga en okkur er Ijóst að til ákveðinna aðgerða þarf að grípa, hin hefðbundna leið, gengisfellingin, er úr sér gengin,“ sagði Guðjón Oddsson, formaður Kaupmannasamtaka íslands. „Til þess að aðgerðir beri árang- ur þurfa allar stéttir landsmanna að taka á og færa fórnir og þar munum við ekki láta okkar hlut eftir liggja," sagði hann. Guðjón sagði að stjóm og stofnanir Kaup- mannasamtakanna hefðu ekki fundað eða ályktað um niðufærslu- leiðina sérstaklega. „Við áttum fund með ráðgjafanefnd ríkisstjórn- arinnar og fylgdumst með störfum hennar en höfum ekki talið ástæðu til að álykta um eina leið umfram aðra.“ Oheppilegt að aftur- kalla kauphækkun - segir Asmundur Stefánsson „Slík tillögusamsetning endur- speglar þann hóp sem tillögurnar ‘hækk- parnað ur Blöndal heimtu yrðu miklar. Vega þær rök- semdir þyngra að gæta eigi sam- ræmis og meðhöndla vexti eins og aðrar tekjur. „Skattur á vexti miðað við núver- andi aðstæður ylli vaxtahækkun. Hann drægi úr sparnaði og þeir sem leggja fé í slíkt hlytu að krefjast hærri vaxta til þess að bæta sér tapið eða nota féð í eyðslu þar sem aðrir kostir era ekki fyrir hendi eins og stendur," sagði Gunnar Helgi Hálfdanarson framkvæmdastjóri Fjárfestingarfélagsins. gerir. Þetta eru menn sem sjá engar aðrar úrlausnir en kaup- skerðingu. Það er að mínu viti gjörsamlega út í bláinn að ætla sér að lækka launin og vona að eitthvað gerist með verðlagið," sagði Ásmundur Stefánsson for- seti ASÍ. Um þá hugmynd að fella niður kauphækkunina 1. septembgr sagði Ásmundur að það yrði óheppilegur inngangur að frekari efnahagsráð- stöfunum. „Þetta era tillögur frá nefnd og maður verður að vona að þeir sem taka ákvörðun hafi vit til þess að leita annarra leiða." Varðandi til- Iögur nefndarinnar um hækkun vaxta af húsnæðismálalánum sagði Ásmundur sagði að þar væri verið að ráðast á þá sem væra að koma sér upp þaki yfir höfuðið. Hann taldi að ef þessar tillögur næðu fram að ganga væra forsendur fyr- ir þáttöku lífeyrissjóðanna í hús- næðiskerfinu orðnar hæpnar og all- ar líkur væra á því að slíkar aðgerð- ir væra ákvörðun um að leggja húsnæðiskerfið niður. riði er aðtaka guna af fóðrum * Egilsson stjóri Verzlunarráðs. „Fóðrið er fyrst og fremst innstreymi á er- lendu lánsfé, sem heldur uppi umframeyðslu, þenslu og launa- skriði í þjóðfélaginu. Þessir er- lendu peningar búa til eftirspurn eftir vörum og þjónustu og eru í raun og veru ávísun á verðmæti sem ekki eru framleidd af íslensk- um atvinnuvegum." „Til að stöðva þetta innstreymi þarf fyrst og fremst að gera eins og nefndin leggur til, að ríkið og stofnanir, fjárfestingalánasjóðimir og viðskiptabankarnir taki ekki er- lend lán umfram afborganir. Einnig þarf að ná ríkisbúskapnum á þurrt til þess að hann sé rekinn hallalaus og hafi ekki áhrif á lánsfjármarkað- inn," sagði Vilhjálmur. „Það er skil- yrði þess að hægt sé að halda vöxt- um niðri og mikilvægt til að auð- velda aðlögun að því að hætta er- lendum lántökum. Þessir tveir þætt- ir era í mínum huga lykilatriði að því að vel takist til og að þeim frá- gengnum tel ég að ekki skipti höfuð- máli hver þessarra þriggja leiða, sem nefndar hafa verið, verður farin." „Það eru ýmsir vankantar á því að framkvæma niðurfærsluna, þótt það sé í eðli sínu rökrétt að skera niður tilkostnað þegar þjóðfélagið er búið að auka hann umfram við- ráðanleg mörk. Slíkar handaflsað- gerðir era vel nothæfar við skipu- lagsbreytingar innan fyrirtækja. En þegar verið er að stjórna heilu þjóð- félagi, 200 þúsund manns sem taka sjálfstæðar ákvarðanir, dugir hand- aflið miklu síður. Landsstjórn felst í því að skapa skilyrði fyrir þær ákvarðanir sem menn vilja að séu teknar, stjóma óbeint en ekki með handafli. Þess vegna hefði niður- færsluleiðin ýmsa vankanta í för með sér. Gengisfelling, hin hefð- bundna leið, má segja að sé uppgjöf fyrir stöðunni eins og hún er. Þó gæti verið búið að ná verðbólguhol- skeflunni, sem óhjákvæmilega fylgir í kjölfar gengisfellingar, niður eftir 6 mánuði ef nauðsynlegar hliðarráð- stafanir eru gerðar," sagði hann. „Skynsamlegasta leiðin held ég þó að væri sú að hætta við launa- hækkanir 1. september, þær era augljóslega innistæðulausar, og að fella gengið eins lítið og hægt er. Það væri millileið, sem er kannski ekki eins rökrétt og niðurfærsluleið- in, en er mun auðveldari í fram- kvæmd en hún. En ég vil ítreka að það sem sker úr um það hvort að- gerðimar era trúverðugar, sama hvaða leið verður farin, er það hvort tekið verður myndarlega á peninga- málunum og ríkisfjármálunum. Ef menn treysta sér ekki til að lækka ríkisútgjöldin og ekki til að taka á lántökunum, þá hef ég enga trú á þessum aðgerðum sama hveijar þær eru,“ sagði Vilhjálmur. AF ERLENDUM VETTVANGI eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR Búrma skortir forystumann og átökin gætu því staðið lengi enn ÞRÁTT fyrir herlög, neyðarlög og útgöngubann halda búrmískir námsmenn og múnkar áfram mótmælaaðgerðum. f fréttum í gær, þriðjudag, sagði frá því að mörg hundruð þúsund hefðu tekið þátt í mótmælafundum í öllum borgum og bæjum. Menn voru sem fyrr ósparir á að láta í ljós andúð á stjórn Sósíalista- flokks landsins og kröfðust þess að lýðræði yrði komið á, efnt til kosninga og Maung Maung hæstráðandi léti tafarlaust af völd- Það leikur ekki á tveimur tungum að alvarlegasta vandamál Búrma er að þar er enginn augljós leiðtogi sem stúd- entar og búddamunkar gætu sætt sig við. Leiðtogi sem gæti ráðið við það flókna verk að lægja öld- urnar og leiða Búrma inn á lýð- ræðisbrautir. Maung Maung hefur það helst og eitt á móti sér að menn tengja hann Ne Win fyrram einvaldi. Hatrið í garð Ne Wins virðist svo djúpstætt að það er engu líkara en Búrmar sjái rautt þegar þeir heyra einhvem þann nefndan sem á einhvern hátt minnir á stjóm Nes. En auðvitað verður ekki hjá því komist en finna einhvern þann sem menn treystu til að taka við þó ekki væri nema til bráðabirgða. Þá kemur oftast upp nafn Aung Gyis, fyrverandi háttsetts for- ingja. Aung Gyi skrifaði nokkur opin bréf til Ne Wins á síðasta vori. Þá höfðu leiðir þeirra skilið fyrir æði löngu. Í bréfiinum hvatti Áung Gyi hann óspart til þess að gefa gaum að því hvert hann væri að leiða land og þjóð. Og bað hann hugleiða afleiðingar stefnu sinnar í 26 ár. Hann var ómyrkur í máli og þessi bréf lét hann fjöl- rita eftir að þau höfðu verið send Ne Win. Þeim var síðan dreift manna á meðal, einkum í Rango- on. Fljótlega spurðist efni þeirra út og Aung Gyi var settur í fang- elsi. Aung Gyi hafði verið náinn samstarfsmaður Ne Wins fyrst eftir sjálfstæðið eins og komið hefur fram. Hann þótti útsjónar- samur og snjall í að skipuleggja efnahagsstefnuna og stjarna hans fór hækkandi. Skömmu eftir valdaránið 1962 kom upp deila milli hans og Tin Pe hershöfð- ingja og var Aung Gyi hnepptur í fangelsi. Hann var þó látinn laus og fór út í viðskipti, í Rangoon rekur hann te- og kökubúðir við góðan orðstír. Óumdeilt var að Aung Gyi sýndi mikið hugrekki þegar hann fór að dreifa umræddum bréfum sl. vor. Margir staðhæfa að þá hafi fyrir alvöra rannið upp fyrir Búrmum, að þeir yrðu að láta til skarar skríða. Ástandið var ekki aðeins óbærilegt, það var ekki þeim sæmandi að aðhafast ekki neitt. Sumir spáðu að Aung Gyi ætti að verða sá sem við tæki. Hann hafði verið settur í fangelsi í nokkrar vikur en var látinn laus eftir flokksþingið í júlí. Stúdent- amir neita því eindregið. „Hann er bandamaður okkar en ekki leið- togi,“ segja þeir og bæta við að fyrst og fremst vilji þeir lýðræði og kosningar. En viðurkenna að kannski dragi úr spennu ef Aung Gyi taki við valdastöðu. Til bráða- birgða. Þegar talað er um ókyrrðina í Búrma benda fréttamenn jafnan á að Búrmar séu með afbrigðum seinþreyttir til vandræða. Upplag þeirra og trú bjóði þeim að taka með stillingu því sem að höndum ber. En fyrst þeir hafi nú risið upp sé sannarlega ekki séð fyrir endann á því. Það er augljóst að stúdenta- hreyfingin sem stendur að mót- mælaaðgerðunum um gervallt landið er býsna vel skipulögð. Til að forðast að svikarar komi sér inn í innstu raðimar er reynt að láta sem fæsta vita um upp- byggingu hreyfingarinnar og stjómendur. Það er eftirtektarvert að stúdentar virðast ekki kæra sig hætishót um að hafa samvinnu við kommúnistaflokk Búrma sem er bannaður. Þeir vísa á bug sam- starfi við skæraliða sem hafa bar- ist gegn Rangoon-stjóminni á ýmsum stöðum í landinu. Einn Aung Gyi Ung stúlka ávarpar hópfund við aðalsjúkrahúsið í Rangoon. forystumaður stúdenta sagði í við- tali við Bertil Lintner, sérfræðing ritsins Far Eastem Economic Review, að þeir sæju í hendi sér að slík samvinna hefði aðeins í för með sér óeðlilegar skuldbindingar. Þar sem ýmis erlend ríki hafi séð skæraliðahópunum fyrir vopnum, leiddi það til að þeir gætu síðan orðið háðir viðkomandi ríkjum. Því væri viturlegra að reyna að komast yfir vopn frá búrmískum hermönnum og það hefur raunar tekist eins og fram hefur komið í fréttum. Að vísu er vopnabúnaður Búrmahers ekki upp á marga fiska, úr sér genginn og gamal- dags. Meðal annars þess vegna er líka að vænta að hermenn muni eiga fullt í fangi með að hafa hemil á uppreisnaröflunum ef þau halda áfram að láta til sín taka. Fram að þessu hefur herinn haft nóg með að reyna að beija á fjallaskæraliðunum sem áður era nefndir og ólíklegt að þeir ráði við öllu meira nema einhver stórbreyting verði og Sósíalista- flokkurinn sjái sig tilneyddan að leita til erlendra ríkja um vopna- kaup. Enn bætist það við að allmarg- ir hermenn hafa gerst liðhlaupar 'og gengið í lið með stúdentunum. Sjónarvottar segja að einatt hafi það gerst síðustu daga og vikur að hermenn við gæslu og borgar- ar í mótmælum tylli sér niður og deili með sér matarskammti og drykkjarföngum í bróðemi. Enda fullyrðir einn ónafngreindur tals- maður stúdentanna að hermenn- imir geri sér mæta vel grein fyrir óreiðunni og kjósi flestir ekkert fremur en ástandið færist í betra horf. Það er ekkert grín á ferðinni. Það verður að hafa hugfast. Hundrað og sennilega þúsundir hafa verið skotnir til bana. Upp- lausn er hvert sem litið er. Sendi- ráðunautar benda á að Maung Maung hafi ekki fengið neitt tæki- færi til góðra verka; stúdentar og múnkar hafi einfaldlega slegið því föstu, að hann væri ekkert skárri en fyrirrennararnir tveir. Þessir ónafngreindu sendiráðs- menn segja að þrátt fyrir grimmd og upplausn sé eins konar kamev- alstemmning í landinu. Fólk sé uppfullt af fögnuði og von. Engu sé líkara en menn hafi losnað úr álögum. Og allir vilji lýðræði. Það er auðvitað gott og blessað að halda kameval. Og vilja lýð- ræði. En allra best væri þó ef Búrmar kæmu sér saman um for- ystumann sem gæti leitt þessa ljúfu þjóð á braut til framfara og betra mannlífs. Á þeim foringja bólar ekki. Því er nú verr og mið- ur og á meðan er hætt við að Búrmar haldi áfram kamevalinu og afleiðingar gætu orðið hörmu- legri en tárum taki.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.