Morgunblaðið - 24.08.1988, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1988
31
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna —
Sendistarf
Morgunblaðið óskar eftir að ráða röskan og
samviskusaman ungling til sendistarfa.
Vinnutími frá kl. 9-17.
Upplýsingar á ritstjórn Morgunblaðsins,
Aðalstræti 6, 2. hæð.
Htagmi&Ififeifr
Staða
hjúkrunarforstjóra
Hrafnistu, Reykjavík
Staða hjúkrunarforstjóra Hrafnistu í
Reykjavík er laus til umsóknar. Hrafnista,
dvalarheimili aldraðra sjómanna, skiptist í
vistheimili og hjúkrunardeildir. Hjúkrunarfor-
stjórastarfið er gefandi og jafnframt krefj-
andi starf sem m.a. felur í sér: Stjórnun og
ráðningu starfsmanna, yfirumsjón hjúkrunar-
deilda ásamt vörslu og umsjón efnislegra
verðmæta. Hæfniskröfur eru: Víðtæk fagleg
þekking ásamt stjórnunarmenntun. Viðkom-
andi þarf að hafa reynslu í hjúkrunar- og
stjórnunarstörfum.
Umsóknarfrestur er til 1. október 1988.
Upplýsingar um nám og fyrri störf skulu
sendar til forstjóra Hrafnistu, Laugarási,
Reykjavík.
Snyrtivöruafgreiðsla
Okkur vantar nú þegar eða fljótlega starfs-
manneskju, ekki yngri en 24-25 ára, í snyrti-
vörudeild okkar, Thorellu, Laugavegi 16.
Upplýsingar hjá verslunarstjóra snyrtivöru-
deildarinnar alla opnunardaga frá kl. 4-6.
Laugavegs Apótek,
Laugavegi 16.
Verslunarstörf
Starfsfólk óskast til framtíðarstarfa á eftir-
töldum stöðum:
Skeifan 15
1. Afgreiðslustörf á kassa.
2. Afgreiðsla og uppfylling í matvöru- og
sérvörudeildum.
3. Störf við verðmerkingar á sérvörulager.
Kringlan
1. Afgreiðslustörf á kassa.
2. Afgreiðsla og uppfylling í sérvöru- og
matvöruverslun.
Kjörgarður, Laugavegi 59
Afgreiðslustörf í matvörudeild.
Eiðistorg, Seltjarnarnesi
1. Afgreiðslustörf á kassa.
2. Afgreiðsla og uppfylling í matvöruverslun.
Lager í Hafnarfirði
Lagermenn í heilsdagsstörf.
Margskonar hlutastörf koma til greina.
Nánari upplýsingar hjá starfsmannahaldi alla
virka daga frá kl. 13-17.30. Sími 686566.
Umsóknareyðublöð á skrifstofu.
HAGKAUP
starfsmannahald, Skeifunni 15.
Hressandi
morgunvinna
Mbl. óskar eftir fólki á öllum aldri til blað-
burðarstarfa víðsvegar um borgina.
Ath.: Hentar ekki síður fullorðnu fólki.
Upplýsingar í síma 35408 og 83033.
Frá menntamálaráðuneytinu
Lausar stöður við
framhaldsskóla
Að Fjölbrautaskólanum í Breiðholti vantar
stundakennara í íslensku, líffræði og hand-
menntum (handavinnukennari eða fatahönn-
uður). Þá vantar einnig ritara.
Nánari upplýsingar veitir skólameistari í síma
91-75600.
Umsóknarfrestur um áður auglýstar kenn-
arastöður í dönsku og þýsku við Framhalds-
skóla Austur-Skaftafellssýslu framlengist
til 26. ágúst næstkomandi.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist menntamálaráðuneyt-
inu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 26.
ágúst nk.
Umsóknir um stundakennslu sendist skóla-
meistara viðkomandi skóla.
Menntamálaráðuneytið.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á ÍSAFIRÐI
Atvinna
Óskum að ráða strax, eða eftir nánara sam-
komulagi, til framtíðarstarfa:
★ Hjúkrunarfræðing
★ Sjúkraliða
★ Starfsfólk á legudeild
Húsnæði til staðar.
Upplýsingar hjá hjúkrunarforstjóra í síma
94-4500 eða -3014 alla virka daga frá kl.
8.00 til 16.00.
Hjúkrunarfræðingar
Eftirtaldar stöður hjúkrunarfræðinga í heilsu-
gæslustöðvum eru lausar til umsóknar nú
þegar:
1. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslu-
stöðina í Ólafsvík.
2. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslu-
stöðina í Hólmavík.
3. Staða hjúkrunarforstjóra og staða hjúkr-
unarfræðings við Heilsugæslustöðina á
Selfossi.
4. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslu-
stöðina á Þórshöfn.
5. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsu-
gæslustöð Suðurnesja í Keflavík.
6. Staða hjúkrunarfræðings við heilsugaeslu-
stöðvarnar á Fáskrúðsfirði og Stöðvar-
firði.
7. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsu-
gæslustöðina í Hrísey.
Umsóknir ásamt u'pplýsingum um nám og
fyrri störf við hjúkrun sendist heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu, Laugavegi 116,
150 Reykjavík.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið,
18.júlí 1988.
atvinna — atvinna
FJÚLBRAUTASKÓUNN
BREiÐHOUI
Frá
Fjölbrautaskólanum
í Breiðholti
Laust er starf ritara á skrifstofu Fjölbrauta-
skólans í Breiðholti.
Upplýsingar veittar á skrifstofu skólans í
síma 75600.
Skrifstofustjóri.
Lyfjatækna
vantar 1. september. Afgreiðslufólk vant
störfum í lyfjabúð kemur einnig til greina.
Reykjavíkur Apótek,
Austurstræti 16.
BORGARSPÍTALINN
LADSAR STÚ0UR
Öldrunardeildir
B-5 09 B-6
Hjúkrunarfræðingar óskast frá 1.09. ’88 á
kvöld- og helgarvaktir.
Hjúkrunartræðingar óskast á fastar nætur-
vaktir í B-álmu. I starfinu felst skipulagning
og framkvæmd hjúkrunar aldraðra á öldrunar-
deildum B-5 og B-6. Vinnutími frá kl. 23.00-
08.30. Vinni hjúkrunarfræðingur 60% starf eða
meira á næturvöktum greiðast deildarstjóra-
laun. Jafnframt raðast hjúkrunarfræðingar
starfandi á öldrunardeild einum launaflokk ofar
en ella.
Sjúkraliðar óskast á hinar ýmsu vaktir frá
1. september. Sjúkraliðar starfandi á öldr-
unardeild raðast tveimur launaflokkum ofar
en ella.
Hvítaband,
hjúkrunardeild I
Sjúkraliðar óskast frá 1.09. '88. Ýmsir vakta-
möguleikar. Á deildinni eru 20 rúm fyrir heila-
bilaða aldraða sjúklinga. Sjúkraliðar starfandi
á öldrunardeild raðast tveimur iaunaflokkum
ofar en ella.
Heilsuverndarstöð,
hjúkrunar- og
endurhæfingadeild
Sjúkraliðar óskast frá 1.09.'88. Deildin hefur
25 rúm ætluð ungum sem öldnum einstakl-
ingum er búa við fjölþætta líkamlega, and-
lega og félagslega fötlun. Sjúkraliðar starf-
andi á deildinni raðast tveimur launaflokkum
ofar en ella.
Hjúlkrunarfræðingar óskast á kvöld-, næt-
ur- og helgarvaktir nú þegar. Gagngerar
endurbætur hafa verið gerðar á húsnæði
deildarinnar er bæta mjög aðstöðu sjúklinga
og starfsliðs.
Nánaci upplýsingar um ofangreindar stöður
fást hjá Önnu Birnu Jensdóttur, hjúkrunar-
framkvæmdastjóra, í síma 696358 og Elín-
borgu Ingólfsdóttur, hjúkrunarframkvæmda-
stjóra starfsmannaþjónustu, í síma 696356.