Morgunblaðið - 24.08.1988, Síða 36

Morgunblaðið - 24.08.1988, Síða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1988 Rallkeppni Hjólbarðahallarinnar: „Barist um hverja sekúndu“ Metþátttaka í alþjóðlegri rallkeppni BÍKR „ÞETTA verður slagnr frá upphafi til enda og spurningin er hvaða bilar haldast í lagi. Síðan þarf úthald ökumanns að vera gott, því miðað við síðustu mót þá verður barist um hverja sekúndu,“ sagði íslandsmeistarinn Jón Ragnarsson í samtali við Morgunblaðið. Jón leggur fyrstur af stað í Michelin-rallkeppni Hjólbarðahallarinnar sem hefst í hádeginu á morgun í Reykjavik. Keppnin er alþjóðleg og er betur þekkt sem Ljómarall, en hefur skipt um nafn. Jón Ragnarsson og Rúnar Jóns- son unnu Ljómarallið í fyrra á Ford Escort og hafa forystu í íslands- meistarakeppninni i ár. „Steingrím- ur verður einna sterkasti andstæð- ingurinn, hann kemur vel undirbú- inn til ieiks. Það verða líklega fjór- ir bílar sem berjast um sigurinn og ég á ekki von á því að þeir haldi allir út til enda í þriggja daga langri keppninni. Við unnum í fyrra þar sem við urðum ekki fyrir neinum áföllum, en aðrir voru óheppnir. Ég vona að lánið fylgi okkur í ár líka,“ sagði Jón. Ef Jón og Rúnar vinna Michelin- rallið verða þeir íslandsmeistarar, en nokkrir ökumenn eru staðráðnir í að hindra það, Steingrímur Inga- son og Witek Bogdanski á Nissan meðal þeirra. Þeir háðu mikla keppni við feðgana í síðustu keppni á Olafsvík en töpuðu með tveggja sekúndna mun. „Ég vona að barátt- an haldist út alla keppnina, svo þetta verði spennandi. Leiðimar henta mér ágætlega, þó ég hefði viljað skoða þær betur. Bfllinn verð- ur í góðu ásigkomulagi, ég hef yfír- farið allt, m.a. tekið vélina í gegn. Tveir fyrstu dagamir verða erfíð- astir, en Jón má ekki vinna núna vegna meistarakeppninnar. Ef hann vinnur ekki þá verður síðasta keppni ársins úrslitakeppni og það væri virkilega spennandi,“ sagði Steingrímur. 34 keppnisbílar em skráðir til leiks, fímm erlendir, en enginn sem veitt getur íslensku toppbílunum keppni. Rallið hefst klukkan 12.00 við Hjólbarðahöllina í Fellsmúla. Fyrsta keppnisleiðin verður á Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson Jón Ragnarsson og Rúnar Jónsson hafa forystu í íslandsmeistara- keppninni í rallakstri, unnu síðustu keppni á Ólafsvik og unnu al- þjóðarallið í fyrra á Ford Escort. Þeir leggja fyrstir af stað í Mic- helin-rall Hjólbarðahallarinnar. Reykjavíkurflugvelli kl. 12.21, en dal. Keppninni lýkur á laugardaginn sfðan er ekið í Borgarfírði og í ná- kl. 15.00 við Hjólbarðahöilina. grenni Þingvalla, m.a. yfir Kalda- - GR Minning: Hafliði Jóhannsson húsasmíðameistari Fæddur 29. desember 1906 Dáinn 16. ágúst 1988 í dag kveðjum við hinstu kveðju Hafliða Jóhannsson, húsasmfða- meistara í Reykjavík. Hann fæddist í Reykjavík 29. desember 1906, sonur hjónanna Guðbjargar Gísladóttur frá Þver- spymu í Hmnamannahreppi og Jó- hanns Hafliðasonar frá Bimustöð- um á Skeiðum, sem var kunnur húsasmfðameistarí í Reykjavík. Þau hjón bjuggu lengst af í Reykjavík, sfðari ár þeirra á Frejrjugötu 45, húsi sem feðgamir byggðu saman. Alls fæddust þeim Guðbjörgu og Jóhanni fímm böm. Fyrst þeirra var Sigríður, sem dó aðeins 15 ára göm- ul. Annar var Hjálmar, múrara- meistari, hans kona var Valgerður Guðmundsdóttir. Þriðji var Hafliði, hans kona er Svana (Svanfríður) Ingibergsdóttir. Þriðja er Vigdís, sem er ekkja eftir Einvarð Hall- varðsson, bankamann. Fjórði var Jón, trésmíðameistari, hans kona var Ingvör Anna Guðbjömsdóttir. Fimmti er Gunnsteinn, kaupmaður, hans kona var Steinvör (Steina) Ágústa Egilsdóttir. Af þeim systk- inum eru nú lifandi: Gunnsteinn og frú Vigdís. Hafliði fór ungur að starfa með föður sfnum, lærði hjá honum smíðar og útskrifaðist úr Iðnskólan- um í Reykjavík. Hann varð með árunum mikilvirkur verktaki. Eftir hann standa fjölmörg hús í Reykjavík, sem eru góður minnis- varði um dugnað hans og vand- virkni. Fyrstu starfsárin unnu faðir hans og bræður tveir með honum, en síðar var hann sjálfstæður verk- taki, seinni árin vann sonur hans með honum. Margir minnast hans nú fyrir þessi störf, en æskudraum- ur hans var að læra til arkitekts. Þá var annar tími en nú, þegar áhugasöm ungmenni geta með op- inberri hjálp leitað nánast hverrar námsleiðar sem hugur gimist. Þá var flárhagsskortur oftast stærsti þröskuldurinn, sem yfirstíga varð. En Hafliða tókst af brennandi þrá að afla sér farareyris og nokkurs varasjóðs en það kom fyrir ekki. Heilsa hans hafði versnað og margt annað varð til þess að letja hann farar. Ungi maðurinn gerði þá sætt- ir við kringumstæðumar og ákvað að fara ekki en leita sér framhalds- náms hér heima. Finnur Thorlacius var einn þeirra kennara Iðnskólans, sem Hafliði mat ætíð mikils. Varð að ráði, að Finnur tæki hann til framhaldsnáms. Einnig sótti hann kennslu til Ríkarðs Jónssonar. Þá fór hann og í heimsókn til ná- grannalandanna til að kanna nýja strauma í húsagerð. Svo fór, að ævistarf Hafiiða skiptist í tvo meginþætti, annars vegar byggingaframkvæmdir og hins vegar teikningar (hönnun) húsa. Fékk hann löggildingu réttra yfirvalda Reykjavíkur til að teikna og leggja teikningar inn til bygg- inganefndar bæjarins. Oft varð svo, að hann teiknaði hús og byggði það síðan sjálfur. Hús hans urðu eftir- sótt. Þau þóttu lagleg, einkar hent- ug og voru gerð með hina takmörk- uðu fjárhagsgetu fólks þeirra ára í huga. Þá var ekki opinber iánafyrir- greiðsla við húsbyggjendur fyrir hendi eins og er, sem betur fer, nú. f mínum huga var megineðli í skaphöfn Hafliða lyndiseinkunn listamannsins, sem þó var alltaf beisluð af raunsæi. í húsbyggingum sínum keppti hann að því að flétta saman list og hagkvæmni, að móta umhverfí fólks af listfengi í köldum raunveruleikanum, sem markaðist af lítilli fjárhagsgetu flestra við- skiptamanna hans. Þetta virtist leika honum í hendi, enda sparaði hann hvorki tíma né fyrirhöfn til að ná árangri. Því kom ekki á óvart, að verkefni hlóðust á hann. Lagði hann löngum nótt við dag til að koma þeim frá. Heilsa hans sem Móðir mín, t LIUA STEINGRfMSDÓTTIR frá Hörgslandskotl, Bugðulæk 11, andaöist i Landakotsspítala 21. ágúst. Jóhanna Svelnsdóttir. t Maðurinn minn, PÁLL VfDALÍN MAGNÚSSON bifrelðastjóri, Skúlagötu 68, andaðist á heimili sínu 22. ágúst. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna, Njála Eggertsdóttlr. + Eiginmaður minn, faðir og sonur, VILHJÁLMUR INGVARSSON framkvæmdastjóri Sæbraut 11, Seltjarnarnesl, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 26. ágúst kl. 13.30. Anna Fríða Ottósdóttir, Ingvar Vllhjálmsson, Ottó Vilhjálmsson, Valdis Vilhjálmsdóttir, Ingvar Vilhjálmsson. + Móðir okkar, HELGA PÁLSDÓTTIR GEIRDAL, Laugarbraut 21, Akranesi, andaðist í sjúkrahúsi Akraness þann 22. ágúst. Jaröarförin auglýst síðar. Dætur hinnar látnu. + Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför föður okkar, MAGNÚSAR ÓSKARS MAGNÚSSONAR, bókbindara. Þórunn Magnúsdóttir, Ásdfs Magnúsdóttir. + Útför eiginkonu minnar, RÚNU GUÐMUNDSDÓTTUR, Fjölnlsvegl 8, Reykjavlk, verður gerð frá Dómkirkjunni flmmtudaglnn 25. ágúst kl. 13.30. Magnús Guðmundsson. + Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför föður míns, tengda- fööur og afa, GUÐMUNDAR ÞORLÁKSSONAR prentara, Njálsgötu 98. Guðlaug Guðmundsdóttlr, Halldór Hjartarson og synlr. bilaði á ungum aldri, fór nú ört undan að láta. Var svo síðustu ár hans, að hann var svo að segja stöð- ugt inn og út af sjúkrahúsinu og hafði jafnan súrefnistæki við rúmið. Var öllum undrunarefni, hve skjótt hann reis til athafna, eftir hvert áfallið af öðru. Var hann varla fyrr kominn í vinnustofu sína eða að öðru verkefni, sem úrlausnar beið, að hann væri ekki þegar tekinn til starfa eins og ekkert hefði í skor- ist. Að sjálfsögðu er skýringar þessa að leita í lífs- og athafnavilja hans og í þeirri frábæru umönnun, sem hann naut hjá konu sinni, sem ætíð var við hlið hans, þolinmóð, natin, raunsæ og uppörvandi. Þann fjórða júlí 1936 kvæntist Hafliði systur minni Svönu. Varð hún þá umlukin byggingamönnum á báðar hendur svo að segja, þar sem meirihluti karla í báðum fjöl- skyldum þeirra hjóna voru bygg- ingaiðnaðarmenn. Svana og Hafliði eignuðust þijú böm. Þau eru: Ingi- björg Helga sem gift er Einari Guðmundssyni, múrarameistara, og eiga þau hjón þrjá syni, sem allir eru kvæntir og eiga böm. Annað systkinanna er Jóhann Jón, húsa- smíðameistari. Hans kona er Eyja Viggósdóttir og eiga þau tvær dæt- ur. Þriðja er Guðbjörg Erla, sem gift 'er Tryggva Hjörvar. Eiga þau tvo syni. Állt er þetta mannvænlegt og fallegt fóik, sem ættforeldrum þess og þjóð er sómi að. Við kynni mín af Hafliða Jó- hannssyni kom í Ijós, að við höfðum í mörgu svipaðar skoðanir. Fór alla tíð vel á með okkur. Einnig kona mín, Katla og öll böm okkar mátu hann mjög mikils og þótti vænt um hann. Fyrir þessi góðu kynni og margvíslega ómetanlega aðstoð þökkum við honum öll af einlægum huga og við þökkum honum og Svönu og bömum þeirra órofa elskusemi á liðinni tíð. Nú að leiðarlokum vottum við Svönu, bömum hennar, tengda- bömum og bamabömum samúð okkar, og óskum þeim velfamaðar um ókomin ár. Matthías Ingibergsson, apótekari Kransar, krossar W) og kisíuskreytingar. (v Sendum um allt land. ‘ GLÆSIBLÓMIÐ GLÆSIBÆ, Álíhcimum 74. sími 84200

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.