Morgunblaðið - 24.08.1988, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1988
37.
Morgunblaðið/Einar Falur
Fulltrúar úr stjóm Kórs Langholtskirkju. Talið frá vinstri: Sigrún
Stefánsdóttir, Jón Stefánsson, kórstjóri, Halldór Torfason og Þor-
valdur Friðriksson.
Kór Langholtskirkju:
Frumflytur messu í
e-moll eftir Bruckner
UM þessar mundir er vetrar-
starf Kórs Langholtskirkju að
hefjast. Tónleikahald verður
með hefðbundnu sniði i vetur,
en meðal verka sem flutt verða
má nefna Messu í e-moll eftir
Bmckner og Kantötu Gunnars
Reynis Sveinssonar „Á jörð ertu
kominn".
hafa áhuga þurfa þó að hraða sér
þar sem inntöku nýrra félaga lýkur
um næstu mánaðamót.
Fyrsta verkefni vetrarins eru
Brucknertónleikar sem verða um
miðjan nóvember. Þar flytur kór-
inn flestar mótettur Bruckners auk
þess sem flutt verður Messa í e-
moll, sem aldrei fyrr hefur heyrst
hér á landi. Hugmyndin um að
halda Brucknertónleika vaknaði
fyrir rúmu ári síðan er Joni Stef-
ánssyni, kórstjóra, var færður tón-
sproti að gjöf sem Bruckner átti
og notaði þegar hann starfaði við
St. Florian klaustrið. Tónsprotinn
er úr fílabeini og hyggst Jón Stef-
ánsson nota hann á Brucknertón-
leikunum.
Jólasöngvar kórsins verða að
vanda síðasta föstudag fyrir jól.
Eftir jól hefjast æfingar á Kantötu
Gunnars Reynis Sveinssonar við
texta Birgis Sigurðssonar „Á jörð
ertu kominn". Flutningur verksins
féll niður af óviðráðanlegum
ástæðum á Listahátíð síðast liðið
sumar. Kantatan er samin fyrir
kór, einsöngvara, blásarakvintett
og jasssveit.
Starfsárinu lýkur með söng-
ferðalagi næsta vor. í hyggju er
að ferðast um Norðurland og að
sögn Jóns Stefánssonar, kórstjóra,
er vonast til að gamall draumur
kórfélaga um tónleika í Grímsey
rætist í þessari ferð.
Enn er hægt að bæta við félög-
um í nokkrar raddir. Þeir sem
V
TOSHIBA
örbylgjuofnarnir
10GERÐIR
Verð við allra hæfí
Einar Farestveit&Co.hf.
MMOARTUM >«. «ÍMAR. t»«l IHM OO WINO - NAO gfcftjTMO»
Leið 4 stoppar viö dymar
[LiDtHMJ1
STIMPILDÆLUR
= HÉÐINN =
VÉLAVERSLUN SÍMI 624260 g
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER 2
Fótbrotnaði á Hallærisplani
Okumaður hafi samband
Slysarannsóknadeild lögrelg-
unnar í Reykjavík óskar eftir að
ná tali af um það bil tvítugum
ísborg ekki
ísstöðin
ÞAU mistök urðu í frétt Morgun-
blaðsins i gær af fyrirtækinu ís-
borg í Garði, að það var ranglega
nefnt ísstöðin.
Rekstri ísstöðvarinnar var hætt
vegna rekstrarerfiðleika fyrir
nokkrum misserum og ísborg teng-
ist því ekki á nokkum hátt. Morgun-
blaðið biðst velvirðingar á þessum
mistökum um leið og þau eru leið-
rétt.
ökumanni blárrar bifreiðar,
Jaguar að talið er. Unglingur
brotnaði illa á fæti þegar hann
lenti fyrir bíl mannsins á horni
Austurstrætis og Hallærisplans
aðfaramótt Iaugardagsins 13.
ágúst sl.
Ökumaðurinn ók hinum slasaða
á slysadeild og skildi þar eftir hjá
félaga hans miða með nafni sínu,
heimilisfangi og öðrum upplýsing-
um. Sá miði hefur nú glatast. Þar
sem pilturinn er illa brotinn, þurfti
að gangast undir aðgerð og dvelj-
ast á sjúkrahúsi, væntir lögreglan
þess að ökumaðurinn hafi samband
við hana.
HVERNIG EIGNASTU
SPORTBÍL OG SPÍTTBÁT ?
RYMINGARSALA
20-50%
afsláttur
LAUGAVEGl 95 2 HÆD - REYKJAVlK - SlMI 13577
BESTU BÍLAKJÖRIN
9,9%
ÍKSVEXTW
ENGIN
VERÐTRYGGING
LÁNAKJÖR:
Við lánum kaupendum nýrra bíla frá FORD,
FIAT, HYUNDAI og SUZUKI, allt að 50% af
kaupverði, til 12 mánaöa, með 9,9% föstum
ársvöxtum, - án verðtryggingar.
DÆJVM UM BÍLAKAUP:
Nýr bíll. Verð 400.000 kr.
Útborgun (eða eldri bíll uppí) 200.000 kr.
Lán 200.000 kr. með 9,9% ársvöxtum, án
verðtryggingar.
Endanlegt verð bílsins 411.926,- kr.
LÁNSUPPHÆÐ 200.000
MÁNUÐUR AFBORGUN VEXTIR ÁÆTL BANKA ÞÓKNUN MÁNAÐAR GREIÐSLA
1. afb. 16.667 1.650,00 100 18.417
2. afb. 16.667 1.512,50 100 18.279
3. afb. 16.667 1.375.00 100 18.142
4. afb. 16.667 1.237.50 100 18.004
5. afb. 16.667 1.100,00 100 17.867
6. afb. 16.667 962,50 100 17.729
7. afb. 16.667 825,00 100 17.592
8 afb. 16.667 687,50 100 17.454
9. afb. 16.667 550,00 100 17.317
10. afb. 16.667 412.50 100 17.179
11. afb 16.667 275,00 100 17.042
12. afb. 16.667 137.50 100 16.904
Samtals: ‘211.926
* STIMPILGJALD OG LÁNTÖKUGJALD EKKI INNIFALIÐ.
$ SUZUKI
í FRAMTÍD VID SKEIFUNA
SKIPTIBORÐ 685100, FORD 689633, FIAT 688850, SUZUKI 689622
essemm/sii is.it