Morgunblaðið - 24.08.1988, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1988
„ Étj keypti }?&tta bindi handa
þér fyrir40 dru m, 09 þetta
cri -lynsta 6inn sem þú crtmeíi bíö *
IO-G
Áster...
10-20
... að gera fíngraför
hennar ódauðleg.
TM R«q. U.S. Pat Off. —all hghts resarved
0 1987 Los Angelas Times Syndicste
Bé...!
Með
morgunkaffinu
Fæ ég hér hjá ykkur stórar
smákökur?
Að verja landíð sitt
Nokkur orð, hugsandi fólki til umhugsunar
Stríð. Oft verður mér hugsað til
þeirra, sem verða nauðugir viljugir
að fara í stríð til að veija landið
sitt. Það er því miður staðreynd,
að stríð eru háð víða um jörð, þó
það sé heilbrigðri skynsemi sem
hver önnur villimennska og ekkert
hafist upp úr því nema eymd og
volæði. Það eru ekki einungis ver-
aldleg verðmæti sem eru brotin nið-
ur, heldur einnig þau andlegu, sem
ósjálfrátt fylgja með.
Við íslendingar erum blessunar-
lega lausir við stríð af því tagi, sem
ég hef lýst hér að framan. Við berj-
umst við annað, og kannski er
kæruleysi, bæði fyrir andlegum og
líkamlegum hlutum, að verða alvar-
legasti ásteytingarsteinn okkar í
dag. Það er eins og tónninn „mér
er sama“ verði háværari með hveij-
um deginum, bæði í huga, svip og
athöfnum.
Bera menn ekki lengur ást og
virðingu fyrir landi sínu. Hvemig
geta menn fleygt rusli í allar áttir
út á víðavangi, á friðhelgum stöð-
um, mannvinum til sárrar hryggð-
ar. Hvemig geta menn ekið góðum
Velvakandi goður!
íslenskir aðalverktakar hafa ára-
tugum saman haft einokunarað-
stöðu hvað varðar verklegar fram-
kvæmdir fyrir varnarliðið á
Keflavíkurflugvelli. Þetta hefur að
sjálfsögðu verið nokkuð umdeilt í
gegnum tíðina og hljóta samskipti
ríkisins og fyrirtækisins að mótast
af því.
Utanríkisráðherra fer með stjóm
allra þeirra mála, sem snúa að sam-
skiptum við vamarliðið, og heyra
samskipti ríkisins og íslenskra aðal-
verktaka því undir hann. Það er því
í meira lagi óviðeigandi, að
Steingrímur Hermannsson skuli
hafa þegið boð fyrirtækisins um
laxveiði í Víðidalsá á dögunum.
Ég held, að víðast hvar í alvöm
lýðræðisríkjum væri ráðherra
bifreiðum eins og angurgapar, þver-
brotið lög og reglur, skemmt og
eyðilagt, syo nú er samfélagið í
vandræðum með það, hvað gera á
við leifar þess, sem kæruleysið hef-
ur eyðilagt?
Og hvernig geta menn §yo feng-
ið af sér, jafnvel í leysingum á vor-
in, að beina tryllitækjum á óspillt
landið og skilja eftir hryllileg för
eftir svakalega hjólbarða, sem
minnismerki um hrottalegan um-
gang um okkar fagra land?
Við tölum um gróðureyðingu.
Við stöndum oft ráðþrota frammi
fyrir henni, þegar hún verður af
völdum náttúmnnar. En þessi eyð-
ing stafar að miklu leyti af um-
gengni landsins barna og útlend-
inga, sem finnst það „sport" að
geta riðið fjallvegi eins og þeim
sýnist, á alls konar tryllitækjum.
Þessar hugsanir og fleiri sækja
á. Ég var í Danmörku fyrir nokkm.
Ég sá strax hversu mikið við gætum
lært af umferðinni þar. Ég kom svo
í höfn þar sem feijan Norröna kom
að landi. Ut úr henni streymdu
þessi stórkostlegu tæki, mér liggur
neyddur til að segja af sér vegna
svona máls. Það væri litið á þetta
sem mútur og engum manni í svona
mikilvægu embætti væri stætt á
að sitja áfram eftir afglöp af þessu
tagi. Hvorki fjölmiðlar né almenn-
ingsálitið myndu líða slíkt.
Það er mikilvægt að hér á landi
skapist heilbrigðari viðhorf til mála
af þessu tagi. Þeir sem gegna opin-
beram embættum verða að gera sér
grein fyrir ábyrgð sinni og átta sig
á því að þeir geta ekki leyft sér
hvað sem er. Steingrímur ætti nú
að mínu ,mati að ganga á undan
með góðu fordæmi og segja af sér
embætti utanríkisráðherra. Með því
gæti hann aukið álit sitt eftir þessa
hneisu.
Suðurnesjamaður.
við að segja vígvélar, sem hafa
heijað á landið okkar. Ekki hafði
unnist tími til að íjarlægja alla
moldina af þeim, svo að hin íslenska
mold skipti um landvist.
Nú spyr ég þá, sem vinna að
gróðurvemd hér á landi: Er þetta
hægt? Má ekki banna slíka meðferð
á landinu, eða á hið taumlausa
frelsi jafnvel að ná til eyðingar
gróðurs? Er í rauninni hægt að tala
um gróðurvernd, meðan þetta er
látið afskiptalaust?
Ég held ekki, og við verðum að
vakna. Það er kannski ekki nóg að
gróðurvæða landið eða tala um
það, á sama tíma og við látum
hugarfarið verða að gróðurlausri
auðn, örfoka kæmleysi. Er ekki
kominn tími til að hefja stríð? Ekki
með vopnum, heldur með nýjum
huga og opnum, þar sem ást þegn-
anna á landi sínu er í fararbroddi.
Svari hver fyrir sig.
Það þýðir ekki annað en að láta
verkin tala. „Það vantar fjármuni",
segja þeir sem em í fararbroddi.
En vita menn ekki, að peningamir
koma að litlu gagni, ef ekki er
hreint og ómengaðað hugarfar að
baki. Sigursæll er góður vilji. Marg-
ar hendur vinna létt verk. Það er
allt hægt, ef viljinn er fyrir hendi.
En við græðum ekkert á því að
orkuvæða kæmleysið, loka augun-
um og segja með úldnum huga:
Mér er alveg sama.
Arni Helgason,
Stykkishólmi.
Þakkir til starfs-
manna Hagkaups
Til Velvakanda.
Við viljum koma á framfæri
þakklæti til Hagkaups í Skeifunni
fyrir snögg viðbröð þegar gasgrill
bilaði hjá okkur á dögunum. Grillið
höfðum við keypt í versluninni
tveimur mánuðum áður. Við viljum
þakka verslunarstjóranum Guð-
mundi Heiðari fyrir fljót og góð
vinnubrögð og sérstaklega þökkum
við Ólafi Guðjónssyni, sem kom
heim og gerði við fyrrnefnt grill.
Fjölskyldan Grundarási 11.
Utanríkisráðherra
ætti að segja af sér
Yíkverji skrifar
HÖGNI HREKKVlSI
ES HE-LP AD pBiR KUNMI AÐ SYNPA'"
Meðal þeirra vandamála sem
erfiðast hefur verið að leysa
í íslenskum ferðaiðnaði er að fínna
gesti til að nýta hótel á vetmm.
Ferðamannatíminn er stuttur og
það kostar mikið að láta dýrar
byggingar standa auðar meirihluta
ársins. Víkveiji hefur því miður
enga lausn á þessum vanda. Þar
sem aðstaða er til þess gefst vafa-
laust best að sækjast eftir viðskipt-
um þeirra, sem skipuleggja fundi
og ráðstefnur.
Skíðalyftur og mannvirki tengd
skíðaíþróttinni standa oft ónotuð á
sumrin. Verður þess ekki vart að
eigendur þeirra hafi miklar áhyggj-
ur af því eða hugi að leiðum til að
nýta þessi tæki allt árið. Stangast
þetta aðgerðarleysi á við það, sem
menn kynnast í útlöndum. Þar em
lyftur notaðar til þess á sumrin að
flytja fólk upp í fjallshlíðar eða upp
á tinda. Láta ýmsir sér nægja að
fara í slíka ferð upp og niður og
njóta ef til vill veitinga séu þær
seldar, þegár upp er komið. Aðrir
fara upp í lyftum og rölta síðan
niður fjallastíga.
XXX
Kunningi Víkveija sem þekkir
vel til í Bláfjöllum telur, að
þar sé ákjósanlegur staður fyrir
fjallalyftuferðir á sumrin. Leggur
hann til að uppi í fjöllunum verði
reistur veitingaskáli og samhliða
því eða fyrr verði tekið til við að
bjóða fólki sumarferðir í lyftum upp
á fjöllin. Þá verði lagðir göngustíg-
ar í fjöllunum. Enginn verði ósnort-
inn af því að komast þangað upp á
fögmm degi og njóta útsýnis yfir
höfuðborgina og Reykjanesið í
vestri og Heklu og Vestmannaeyjar
í austri.
Hugmyndinni er hérmeð komið á
framfæri við þá, sem hafa með
stjórn mála í Bláfjöllum að gera.
Efast Víkveiji raunar ekki um að
það ágæta fólk hafi þegar íhugað
kosti af þessu tagi til að nýta sem
best mannvirki, sem þarna hafa
verið reist.
XXX
róun skíðasvæðisins í Bláfjöll-
um er til fyrirmyndar og hefur
skapað þeim, sem sækja til fjalla
til að stunda vetraríþróttir ný tæki-
færi. Hitt er ekki síður ánægjulegt
að kynnast fjöllum á sumrin og
þurfa íbúar okkar ágæta lands
sjaldan að leita langt til að gera
það. Góðviðrisdag í síðustu viku,
þegar varla sást ský á himni, lagði
Víkveiji land undir fót í góðra vina
hópi og gekk upp á Vífilsfell. Er
alltaf jafn ánægjulegt að komast
þangað upp og njóta hins stórkost-
lega útsýnis.
Þegar Víkveiji gekk á Vífilsfell
síðast fyrir nokkram ámm vom
kaðlar þar efst við toppinn til að
auðvelda mönnum að klifra síðasta
spölinn. Nú höfðu þeir verið fjar-
lægðir. Þá vakti það athygli
Víkveija, að í hinni handhægu,
nýju bók Einars Þ. Guðjohnsens um
gönguleiðir á suðvesturhorni lands-
ins, er ekki minnst á Vífilsfell og
það er ekki einu sinni nefnt í ör-
nefnaskrá bókarinnar. Efst á fellinu
er stallur undir útsýnisskífu en eng-
in skífa.
Vakti þetta allt Víkveija til um-
hugsunar um, hvort forgöngumenn
vilji síður stuðla að því að óvanir
leggi leið sína upp á Vífilsfell.
Vænt þætti Víkveija um, ef ein-
hveijir í hópi lesenda hans gætu
upplýst hann um, hvort vangaveltur
af þessu tagi eigi við einhver rök
að styðjast.