Morgunblaðið - 24.08.1988, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1988
4^
VELVAKANDI .
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Bandarískir grænfriðungar
Til Velvakanda.
Bandarískir grænfriðungar eru
dularfull- samtök í meira lagi. Þeir
virðast hafa allgóð fjárráð, það sýna
fjárfrekar framkvæmdir hvað eftir
annað. Tvímælalaust er þeim öllum
stjórnað frá einum og sömu höfuð-
stöðvunum, því ólíklegt er, að þeir
gætu að öðrum kosti hafist handa
í 60 borgum um Bandaríkin þver
og endilöng á sömu mínútunni.
Þetta og margt fleira bendir til
þess, að þarna séu ekki á ferðinni
saklausir hugsjónamenn um dýra-
friðun, heldur launaðir skemmdar-
verkahópar. Launagreiðendur
þeirra gætu' verið hvaða ríki eða
auðhringar sem kunna að hafa
hagsmuna að gæta.
Ekkert sannar þó betur hugsjón-
afátækt þessara svonefndu sam-
taka en þær staðreyndir sem blasa
við. Grænfriðungar hafa nú um
hríð beitt kröftum sínum gegn hval-
veiðum okkar íslendinga. Þessir
heiðursmenn hóta að eyðileggja all-
an fisksölumarkað okkar vegna
þessara 70 — 80 dýra, sem íslensk-
ir hvalveiðimenn veiða nú á þessu
ári. En á meðan drepa landar þeirra
í Bandaríkjunum þúsundir hvala.
Þarna blasir hugsjónin við okkur.
Allir hljóta að sjá, að hér er
Til Velvakanda.
Laugardagskvöldið 20. ágúst
opnaði ég fyrir sjónvarpið og kom
þá inn í miðjan þáttinn um „Mann
vikunnar". Fyrri hlutann sá ég ekki,
bættur sé skaðinn.
Það sem ég heyrði í þessum
þætti var guðlast af verstu gerð.
Maðurinn, sem rætt var við líkti
almáttugum Guði við Stalín, og
meira en lítill maðkur í mysunni.
Og trúlega væri nú ráð í tíma tek-
ið, að herða sig í að finna nýja
markaði fyrir þorskblokkirnar okk-
ar, svo þær lendi nú ekki á ösku-
haugunum með dilkakjötinu, smá-
fískinum og kartöflunum.
Áhyggjufullur.
hafði uppi gífuryrði um Guð. Hafi
hann ætlað sér að verða sér til
skammar, þá tókst það fullkomlega.
Eina ósk á ég þessum manni til
handa. Hún er sú, að hann fái að
auðmýkja sig frammi fyrir Guði.
Öll erum við syndarar, sem getum
hvorki lifað né dáið án hans hjálpar.
Með þökk fyrir birtinguna,
Sigurborg Eyjólfsdóttir.
Guðlast í sjónvarpsþætti
Ég er Vatnsberi ,
VIÐ ERUM SERSTOK SAMAN.
Persónukort: Hvererég? Hvaða hæfileika hef ég?
Hvað veikleika? Get ég skilið mig betur?
Framtíðarkort: Hvaða sjó sigli ég þetta árið?
Hvar er meðbyr, mótbyr, blindsker og öruggar
siglingaleiðir?
Samskiptakort: Ég elska maka minn, en getum við
skilið hvort annað betur?
Sjálfsþekking er forsenda framfara.
Hringdu og pantaðu kort
sem þér hentar í síma
10377
Gunnlaugur Guðmundsson
STJ0RNUSPEKI
>STÖf)lN
fLAUGAVEGI 66 SIMI 10377 |
RANDERS Tegl
• UTANHÚSSHLEÐSLUSTEINN
Til afgreiðslu í september
Námskeið
'
Þessir hringdu . .
Rjómaábót á Óperu
Kristín, Pétur og Ragnhildur
hringdu:
„Við viljum koma á framfæri
þakklæti fyrir veitingar og viðmót
á veitingastaðnum Óperu. Til
dæmis um þjónustuna þá fengum
við ijómaábót á eftirréttinn okk-
ar, sem ekki er algengt á veitinga-
stöðunum hér. Einnig viljum við
þakka Stefáni Emilssyni fyrir
slaghörpuleikinn á veitingastaðn-
um.“
Hávaði á Hótel íslandi
Ósk Jóhannsdóttir hringdi:
„Ég var stödd á Hótel Islandi
síðasta föstudagskvöld og þótti
mjög slæmt hvað það var mikill
hávaði í hljómsveitinni þar. Rúnar
Júlíusson söng með, en það heyrð-
ist varla nokkuð í honum fyrir
hljóðfærunum. Mér finnst ekki
farandi á svona stað ef maður
heyrir ekki í sjálfum sér og hvað
þá öðrum."
Læða týndist í Seiáshverf i
Svört læða, þriggja tl fjögurra
mánaða týndist frá Reykási 20.
Þeir sem geta gefið upplýsingar
um ferðir hans eru beðnir að
hringja í síma 673663.
Háfurtýndistí
Hvammsvík
Síðastliðinn fimmtudag týndist
silungsháfur í Hvammsvík.
Finnandi hringi í síma 24438.
Þakklæti til starfsmanna
Tívolísins í Hveragerði
Akureyringur hringdi:
„Ég var ásamt fjölskyldu minni
á ferðalagi nýlega og brugðum
við okkur í tívolíið í Hveragerði í
leiðinni. Þar henti það óhapp, að
smurolía af tækjunum kom í föt
konu minnar og barns. Við létum
starfsmenn vita og þeir brugðust
mjög vel við og leystu úr málum
okkar.“
Skammarleg framkoma
vagnstjóra
Ein hneyksluð hringdi:
„Ég varð fyrir nokkru vitni að
því, að vagnstjóri hjá Strætis-
vögnum Reykjavíkur hegðaði sér
afar ruddalega við þijár tólf ára
stúlkur. Hann heimtaði -af hverri
þeirra §óra miða, því hann taldi
þær eldri en þær voru. Þær höfðu
hvorki skólapassa né önnur
skilríki, svo þær gátu ekki sannað
mál sitt. En ég hélt, að tólf ára
grunnskólabörn ættu að greiða
barnagjald í strætisvögnunum."
Auglýsingar Umferðar-
ráðs ósmekklegar
Vegfarandi hringdi:
„Það hljóta allir hugsandi ís-
lendingar að sjá, að það verður
að grípa til róttækra aðgerða til
að fækka umferðarslysum, draga
úr hraða og útrýma ölvun við
akstur. Hins vegar greinir menn
nokkuð á um hvaða leiðir séu
heppilegastar til að ná þessum
markmiðum. Umferðarráð og lög-
reglan hafa 'nú að undanfömu
staðið að auglýsingaherferð, þar
sem reynt er að hræða ökumenn
til löghlýðni og aðgæslu í akstri
með hryllilegum frásögnum af
slysum, nánum lýsingum og jafn-
vel ljósmyndum af fómarlömbum
slysanna. Nú gengur þeim auðvit-
að gott eitt til, en ég held að þessi
aðferð dugi skammt. Satt að segja
finnst mér verið að velta sér upp
úr hryllingnum og ógæfu fólks
með þessum auglýsingum. Þær
vekja ugg og ótta hjá gömlu fólki,
bömum og viðkvæmum einstakl-
ingum, en þessir hópar eru ekki
mestu slysavaldamir í umferð-
inni. Miklu nær væri að herða
eftirlit og refsingar fyrir umferð-
arlagabrot. Það væri mun væn-
legra til árangurs."
Kvenmannsúr týndist á
laugardaginn
Svart og hvítt kvenmannsúr
týndist að kvöldi laugardagsins
20. ágúst í eða við Teigasel 5, eða
á Casablanca. Skífan er hvít, en
á henni stórir, svartir tölustafir.
Finnandi hringi í síma 54427 eða
651836.
Sækið námskeið hjá traustum aðila
Eftirfarandi námskeið verða haldin nú á næstunni:
Tölvunámskeið:
- dBase 111+ forritun.....................29.-31. ágúst
- Multiplan...............................27.-28. ágúst
- Multiplan - framhald......................3.-4. sept.
- Tölvusamskipti og tenging
við gagnabanka.................29. ágúst-1. sept.
- Kerfisgreining fyrirforritara
°g kerfisfræðinga.............. 26.-30. sept.
Almenn námskeið:
- Bókfærsla II fyrri hl.. 30. ág., 1., 3., 4., 6. og 8. sept.
- Bókfærsla II seinni hl. 10., 11., 13., 15., 17. og 18. sept.
- Verslunarréttur (réttarreglur
viðskiptalífsins).......... 13.-15. og 20.-22. sept.
- Þjónustunámskeið
(samskipti við viðskiptavini)....... 20.-21. sept.
- Starfsmannahald/þjónusta............ 27.-29. sept.
Tölvubókhald:
- Laun - launaforrit.................... 5.7. sept.
- Ópus - fjárhagsbókhald.............. 10.-11. Sept.
- Ópus - viðskiptamannabókhald........ 17.-18. sept.
- Ópus - birgða- og sölukerfi......... 24.-25. sept.
BHM, BSRB, VR og fleiri séttarfélög styrkja sína
félaga til þátttöku.
Frekari upplýsingar fást ísíma 688400.
- Innritun fer fram á skrifstofu skólans -
VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS