Morgunblaðið - 24.08.1988, Page 44
44
MORGUNBLAÐEÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1988
■ DIETER Burdenski, fyrrum
markvörður Bremen, er að hugsa
um að taka fram skó og hanska á
ný. Hann hafði leikið kveðjuleikinn,
en AIK í Stokkhólmi er í vandræð-
um og er Burdenski tilbúinn að
hlaupa í skarðið.
( ■ ARGENTÍSKA knatt-
spyrnusambandið hefur breytt
stigagjöfinni í 1. deild fyrir kom-
andi keppnistímabil. Héðan í frá
munu lið fá þijú stig fyrir sigurleik
í stað tveggja áður. Ef staðan er
jöfn að loknum venjulegum
leiktíma, kemur til vítaspymu-
keppni sem gefur sigurvegaranum
tvö stig, en tapliðið fær eitt stig.
Skiptar skoðanir eru um ágæti
þessarar nýbreytni og eru ýmsir
þeirrar skoðunar að þetta hefði
fyrst átt að reyna í neðri deildun-
' um, en breytingin nær ekki þangað.
■ ÍTÖLSKU blöðin virðast ekki
gráta brottför Ian Rush frá Ju-
ventus. Eitt blaðanna komst svo
að orði, að keppnistímabil hans með
Juventus hefði einkennst meira af
heimþrá en markaskorun. Önnur
ítölsk blöð tóku í svipaðan streng.
Stjóm Juventus hefur sætt gagn-
rýni fyrir meðferð mála varðandi
kaup og sölu leikmanna og mörgum
þótt hún ráðleysisleg. Michael
Laudrup verður áfram hjá Juvent-
us og líklegt er að Sovétmaðurinn
Alexander Zavarov skrifí undir
samning við liðið innan skamms.
■ JOHN O’Neill, sem lék með
- liði N-Ira í heimsmeistarakeppninni
í knattspymu í Mexíkó 1986, hefur
neyðst til að hætta knattspyrnuiðk-
un vegna meiðsla á hné að sögn
liðs hans, Norwich. Hann er 30
ára og á að baki 39 landsleiki.
■ ICUK Sugiarto frá Indónesíu
sigraði Yang Yang heimsmeistara
í úrslitaleik opna badmintonmótsins
í Hong Kong. Sugiarto, sem sigr-
aði 7:15, 15:1 og 15:11, sagðist
gera sér góðar vonir um sigur í
heimsmeistarakeppninni og að þessi
sigur hafi verið mjög mikilvægur.
■ HANDKNA TTLEIKS-
SKÓLI Stjörnunnar í Garðabæ
verður starfræktur 22. ágúst til 2.
september fyrir stúlkur á aldrinum
6-13 ára. Þátttakendum verður
skipt í flokka eftir aldri og kunn-
áttu. Farið verður í undirstöðuatriði
handknattleiks og sérstök áherzla
lögð á tækni, leikskilning og regl-
ur. Landsliðsmenn koma í heimsókn
og í lokin verða veittar viðurkenn-
ingar fyrir framfarir og árangur.
Kennt verður í íþróttahúsinu Ás-
garði. Kennarar verða Gylfi Birg-
isson, Brynjar Kvaran og Magnús
Teitsson. Innritað verður um leið
og námskeiðið hefst.
■ OSCAR Ruggeri,\arnarmað-
' urinn snjalli úr heimsmeistaraliði
Argentínu var á dögunum seldur
til spánska liðsins Logrones. An-
tonio Alzamendi, sóknarmaður frá
Úrúgvæ er líka á leið til liðsins.
Logrones kemur til með greiða
700.000 dollara fyrir Ruggeri eða
rúmlega 31 milljón kr. Alzamendi
kostar spánska liðið hins vegar 20
milljónir kr.
KNATTSPYRNA / V-ÞÝSKALAND
„Með Ásgeir og
Katanec á miðjunni
verður Stuttgart
í meistaraham"
- segir Udo Lattek, fyrrum þjálfari Bayern Miinchen
HAMPAR Ásgeir Sigurvinsson,
fyrirliði Stuttgart, V-Þýska-
landsmeistaratitlinum þegar
uppi verður staðið í Bundeslig-
unni? Margir knattspyrnuspek-
ingar íV-Þýskalandi spá þvíað
Stuttgart verði með meistara-
liðið í vetur.
Eins og Stuttgart-liðið hefur
leikið þá spái ég því meistara-
titlinum. Vörn liðsins er sterk með
Immer í markinu. Þá eru Stuttgart
með tvo mjög hættulega sóknarleik-
menn - Júrgen Klinsmann og Fritz
Walter. Kjölfesta liðsins er miðjan,
þar sem Ásgeir Sigurvinsson ræður
ríkjum og við hlið hans er nú kom-
inn Júgóslavinn Srecko Katanes,
sem er sterkur leikmaður og á eftir
að gera marga góða hluti. Með þá
Ásgeir og Katanes á miðjunni -
verður Stuttgart í meistaraham,"
sagði Udo Lattek, þjálfarinn góð-
kunni.
Þau félög sem einnig eru nefnd
í sambandi við meistarabaráttuna,
eru Werder Bremen, Bayern Múnc-
hen, Köln og Bayer Leverkusen,
sem Rinus Michel, fyrrum landsliðs-
þjálfari Hollands, stjórnar.
„Valinn maður í hverju rúmi“
Max Merkel, orðhákurinn frægi
og fyrrum þjálfari, spáir einnig að
Stuttgart verði meistari. „Stutt-
gart-liðið er mjög fjölhæft og með
valinn mann í hverju rúmi.
Stuttgart gerðu góð kaup þegar
félagið fékk hinn 25 ára júgóslav-
neska landsliðsmann Srecko Kat-
anec frá Partizan Belgrad á 1.3
millj. marka. Hann er svipaður leik-
maður og hollenski landsliðsmaður-
inn Frank Rijkaard og mun sóma
sig vel í Bundesligunni - með leik-
mönnum eins og Thon, Augenthal-
er, Littbarski, Sigurvinssyni og
Klinsmann." Markel sagði að Ás-
geir Sigurvinsson væri besti mið-
vallarspilarinn í V-Þýskalandi og
það væri slæmt að hann gæti ekki
leikið með v-þýska landsliðinu.
„Þýska landsliðið hefur ekki átt
afgerandi miðvallarspilara frá
heimsmeistarakeppninni 1974,"
sagði Markel.
Ásgeir Slgurvinsson sést hér fagna sigri ásamt Fritz Water (t.v.). Á myndinni uppi í homi er Sercko Katanec, sem
Stuttgart keypti frá Partizan Belgrad í Júgóslavíu.
Talið er að Stuttgart hafi sýnt
mikil klókindi þegar félagið keypti
Katanec. Hann er sterkur leikmað-
ur og þá á hann eftir að auka að-
sóknina á leikjum Stuttgart á Neck-
ar-leikvanginum. Alls búa 27.800
Júgóslavar í Stuttgart - flestir
verkamenn í verksmiðjum. Katanec
er þeirra maður í knattspymunni í
V-Þýskalandi og þeir mæta á völl-
inn til að sjá sinn mann leika.
Leikmenn Stuttgart fá 50 þús.
ísl. fyrir stig, ef þeir verða í fyrsta
eða öðru sæti, eða 100 þús. kr.
fyrir sigurleik. Ef við gefum okkur
að Stuttgart næði 52 stigum, fær
hver leikmaður 2.6 millj. kr. í sinn
hlut fyrir keppnistímabilið í bónus.
HAIMDKNATTLEIKUR
Max Rinkenburger hættur
ax Rinkenburger, fram-
kvæmdastjóri alþjóða
handknattleikssambandsins,
verður að segja starfi sínu lausu
vegna veikinda. Rinkenburger,
sem er 68 ára og hefur starfað
hjá IHF í 34 ár kemst ekki til
Seoul heilsunnar vegna og verður
að draga sig í hlé. Alþjóða
ólympíunefndin heiðraði hann sér-
staklega eftir HM í Sviss.
Raymond Hahn frá Frakklandi er
sagður sækjast eftir fram-
kvæmdastjórastarfinu.
OLYMPIULEIKARNIR
KNATTSPYRNA
Evrópusamvinna
Vals og Fram
Keppa Norðmenn
ekki í Seoul?
60 þús. öryggisverðir verða í Seoul
VALSMENN og Framarar
hafa ákveðið að vera með
samvinnu vegna leikja þeirra
í Evrópukeppninni í knatt-
spyrnu - gegn Mónakó og
Barcelona.
Félögin selja miða í pakka á
báða leikina og verða „pakka-
miðarnir" einnig happdrættismið-
ar. Fjórar ferðir til Thailands
verða í vinning. Það er Ferðaskrif-
stofan Útsýn sem hefur gefið
vinningana.
Valsmenn leika gegn Mónakó
á Laugardalsvellinum þriðjudag-
inn 6. september, en Framarar
mæta Barcelona þar daginn eftir.
Félögin hafa haft samband við
auglýsingafyrirtæki í Frakklandi
og Spáni og kannað hvort að þau
vilji kaupa auglýsingaréttinn á
leikjunum, en miklar líkur eru á
því að leikjunum verði sjónvarpað
beint til Frakklands og Spánar.
Þá gafa félögin út saman leik-
skrá.
NORSKA Ólympíunefndin hug-
leiðir nú að hætta við þátttöku
á Ólympíuleikunum í Seoul
verði áframhald á óeirðum í
borginni. Jan Gulbrandsen,
formaður norsku ólympíu-
nefndarinnar, sagði að hann
gæti ekki séð að hægt yrði að
tryggja öryggi keppenda í Ijósi
þess ástands, sem ríkt hefði í
borginni að undanförnu.
Af ummælum nokkurra þeirra,
sem valdir hafa verið til keppni
í Seoul fyrir Noregs hönd, má þó
heyra að þeir éttist ekki mikið um
öryggi sitt í Seoul.
Sigurjón „Við treystum
Einarsson þeim 60.000 örygg-
skrifarfrá isvörðum, sem gæta
ore9' eiga okkar,“ er haft
eftir einum norskum keppanda, en
flestir þeirra eru á öndverðu meiði
við álit nefndarinnar.
Ólympíunefndin norska mun
fylgjast náið með framvindu mála
og taka ákvörðun um hvað gera
skal, en líklegt er að mikil umræða
eigi eftir að skapast um það hér í
Noregi.