Morgunblaðið - 24.08.1988, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1988
47
HANDKNATTLEIKUR / FLUGLEIÐAMÓTIÐ
Morgunblaðið/Júlíus
Bjarki Slgurðsson átti bestan leik íslensku leikmannanna, en varð að fara
af leikvelli meiddur eftir gróft brot.
H vað er að?
Skellur gegn Spánverjum í gærkvöldi
leitt. Af þeim sex mörkum sem ís-
lendingar skoruðu í fyrri hálfleik
komu aðeins tvö utan af velli. Hin
fjögur voru úr vítaköstum. Það seg-
ir nokkuð um spænsku vömina og
sóknarleik íslendinga.
Fyrri hálfleikurinn var slakur af
íslands hálfu, einkum þó í sókn-
inni. Spænska vömin var sterk, en
því er ekki að neita að oft var skot-
ið úr undarlegum færam. Spán-
veijar léku hinsvegar á als oddi,
skoraðu sex mörk úr hraðaupp-
hlaupum og teygðu vel á íslensku
vöminni með löngum sóknum.
Klórað f bakkann
í upphafi síðari hálfleik var sem
íslendingar ætluðu að reka af sér
slyðraorðið og með góðum kafla
tókst þeim að minnka muninn í fjög-
ur mörk, 11:15. En þær vonir sem
höfðu hugsanlega verið kveiktar í
bijóstum íslenskra áhorfenda vora
fljótlega slökktar því Spánveijar
skoraðu þijú mörk í röð.
Þegar 11 mínútur vora til leiks-
loka var staðan 14:20, Spánveijum
í vil. Þá kom Sigurður Sveinsson
inná og við það breyttist leikur ís-
lendinga til hins betra. Hann átti
strax tvær frábærar línusendingar
og skoraði svo með þrumuskoti. En
Sigurður kom of seint og möguleik-
ar íslendingar á sigri vora þegar
úr sögunni. Þegar svo Lorenzo Rico
varði vítakast frá Alfreð Gíslasyni
þegar tvær mínútur vora til leiks-
loka var sigur Spánveija í höfn,
staðan þá 19:22.
Aðeins þrír leikmenn komust vel
frá þessum leik. Bjarki Sigurðsson
stóð sig vel í hominu, Alfreð Gísla-
son átti góðan leik í vöminni, en
hefur oft komið betur út í sókninni
og Sigurður Sveinsson stóð sig vel
þær fáu mínútur sem hann var inn
á.
ÁfaU
Þessi leikur var mikið áfall fyrir
ÍSLENDINGAR fengu slæman
skell gegn Spánverjum í gær-
kvöldi er þeir töpuðu 21:23 í
næst síðasta leik liðsins á Flug-
leiðamótinu í handknattleik í
Laugardalshöllinni. Þráttfyrir
aðeins tveggja marka mun í
lokin er vart hægt að kalla
þetta annað en skell því
íslenska liðið virtist aldrei eiga
möguleika á að vinna um for-
skot Spánverja, en f leikhléi var
staðan 6:12. Hvað er að hjá
íslenska landsliðinu?
Spánveijar byijuðu vel, sóknir
þeirra vora langar en árang-
ursríkar og þess á milli komu vel
útfærð hraðaupphlaup. íslensku
leikmennirnir kom-
ust sjaldan í gegn-
um spænsku vöm-
ina og þegar það
tókst varði Rico yfir-
Logi B.
Eiðsson
skrifar
Morgunblaöiö/Einar Falur
Guðmundur Guðmundsson sést
hér skora gegn Spánveijum.
Bogdan Kowalczyk:
„Mistök að setja
Sigurð ekki
fyrr inn á“
,,ÉG NEITA því ekki að það
voru mistök að setja Sigurð
Sveinsson ekki fyrr inn á, en
það eitt var ekki ástæðan fyr-
ir þessu tapi,“ sagði Bogdan
Kowalczyk, þjálfari fslenska
iandsliðsins, f samtali við
Morgunblaðið eftir leikinn.
„Við reyndum ýmislegt en
það gekk ekkert upp. Skotin
voru slæm og sóknarleíkurinn
og markvarslan með slakasta
móti.
Eg held að vömin hafi ekki
verið svo slök. Það er ekki
slæmt að fá á sig 23 mörk gegn
Spáni. En liðið spilar ekki eðliega,
taugaveiklun er of mikil."
Hvað með allar þessar skipt-
ingar?
„Það er ekki bara hægt að bíða
eftir að leikmenn geri mistök og
ef eitthvað gengur ekki þá verður
að prófa eitthvað nýtt.“
Hvað með Kristján Arason?
„Kristján hefur leikið mikið og
verið undir miklu álagi. Hann
hefur tapað snerpu og ekki leikið
vel. En hann hefur góðan tíma
til að ná fyrra formi fyrir ólympíu-
leikana.
Það er enn nægur tími til stefnu
og ég hef ekki svo miklar áhygg-
ur. Ef liðið væri í toppformi núna
væri það slæmt,“ sagði Bogdan
Kowalczyk.
Áhorfendur Ijósi punkturlnn
„Það var erfitt að vinna upp
þetta forskot í síðari hálfleik en
við reyndum og lögðum okkur
virkilega fram I þessum leik,“
sagði Þorgils Óttar Mathieúen,
fyrirliði íslenska landsliðsins. „Við
þurfum að laga ýmislegt fyrir
ólympíuleikana og ég vona að
okkur takist það. Það er betra að
fá vandamálin upp á yfirborðið
núna en í Seoul.
Áhorfendur voru ljósi punktur-
inn í þessum leik og þeir studdu
mjög vei við bakið á okkur. Það
var mjög leiðinlegt að geta ekki
unnið þennan leik fyrir þá,“ sagði
Þorgils óttar.
„Leikum
gegn ís-
landi um
5. sætið“
- segirJuan Roman
Seco, þjálfari Spán-
verja
„VIÐ höfum aldrei leikið jafn
góða vörn og ég er mjög
ánægður með þennan leik.
Hann sýnir að við erum á
réttri leið,“ sagði Juan Ro-
man Seco, þjáifari spænska
landsliðsins eftir leikinn
gegn íslendingum f gær.
Islendingar eru með gott lið
og án efa tvo bestu llnumenn
í heimi. Þeir era eina liðið í
sínum riðli sem getur sigrað
Sovétmenn og Júgóslava. Eg á
þó von á því að það verði hlut-
skipti þeirra að leika gegn okkur
um 5. sætið, rétt eins og í Sviss.
Ég þori ekki að spá um úrslit í
þeim leik,“ sagði Juan Roman
Seco og brosti.
Bjarki frá æfingum um tíma
Bjarki Sigurðsson, hornamaðurinn knái úr Víkingi, verður frá
æfingum í nokkra daga. Hann fékk slæmt högg á vöðva á læri
vinstri fótar í gær. „Bjarki verður frá æfingum - á meðan
hann er að jafna sig. Hann verður með kæliumbúðir í nótt og
fer síðan til sjúkraþjálfara í fyrramáli," sagði Gunnar Jónsson,
læknir íslenska landsliðins, eftir leikinn gegn Spánveijum.
Gunnar sagði að það hafi ekki tognað á liðböndum, þannig
að Bjarki ætti að vera kominn á fulla ferð fljótlega. „Ég verð
orðinn góður eftir tvo daga,“ sagði Bjarki, sem meiddist á sama
stað á æfingu fyrir stuttu.
Spánveijar hafa leikið fast á Flugleiðamótinu. Tveir leik-
menn Tékka eru nú á sjúkralista eftir leikinn gegn þeim. Lið-
bönd á hné tognuðu á öðrum þeirra og hinn fékk högg á auga.
íslenska liðið. Þrátt fyrir að liðið
léki á fullri ferð allan tímann var
aldrei von til þess að liðið sigraði.
Vissulega léku Spánveijar vel, en
ástæðunu fyrir tapinu er kannski
frekar að finna í slæmum leik ís-
lendinga. Sóknarleikurinn var klúð-
urslegur og greinilega mikil tauga-
veiklun í liðinu. Liðið náði ekki að
standa undir þessari pressu og það*^-
er vissulega slæmt með tilliti til
þess hve stutt er I Ólympíuleikana.
Þrátt fyrir tapið er kannski ekki
ástæða til að örvænta. Enn er mán-
uður í ólympíuleikana og því nokkur
tími til að laga það sem að er hjá
liðinu. Leikir þeir sem íslenska liðið
spilar nú era fyrst og fremst æf-
ingaleikir, en lið sem leikur illa á
æfíngum er vart líklegt til stór
afreka þegar til kastanna kemur.
Ísland-Spánn
21 : 23
Laugardalshöllin, Flugleiðamótið (
handknattleik, þriðjudaginn 23. ágúst
1988.
Gangur leiksins: 0:1, 1:1, 1:4, 2:4,
2:7, 4:9, 4:11, 6:11, 6:12, 7:14, 10:14,
11:15, 11:18, 14:20, 17:20, 18:21,
19:23, 21:31.
Mörk íslands: Alfreð Gíslason 7/6,
Þorgils Óttar Mathiesen 4, Kristján
Arason 3/1, Atli Hilmarsson 2, Guð-
mundur Guðmundsson 2, Bjarki Sig-
urðsson 2 og Sigurður Sveinsson 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson
6 og Einar Þorvarðarson 1.
Utan vallar: 2 mfnútur.
Mörk Spánar: Juan Munoz 6/2, Jaime
Puig 5, Eugenio Serano 4, Juan del la
Pinte 2, Julian Ruiz 2, Ricardo Marin
2, Jesus Femandez 1 og Javier Caban-
as 1.
Varin skot: Lorenzo Rico 15/2.
Utan vallar: 6 minútur.
Dómarar: Per Elbrönd og Per Horst
frá Danmörku.
Áhorfendur: 3000.