Morgunblaðið - 08.09.1988, Side 15

Morgunblaðið - 08.09.1988, Side 15
eignar en venjulegt er; með þeim má í raun semja allflókin forrit og láta þá breyta vinnulagi Excel á margvíslegan hátt. Valblöðum Windows getur notandi breytt, ef hann vill, og notað sér fjölva til að kalla fram þá ásjónu forritsins við ræsingu, sem hann kærir sig um. Og valblöðunum { Windows má breyta að vild. Þeir, sem eru vanir Lotus 1-2-3 eða Microsoft Multi- plan, eiga aðstoð vísa á skjá. Sér- stakar hjálparskrár fylgja forritinu, þannig að leiðbeiningar birtast á skjá um samsvaranir Lotus- eða Multiplanskipana í Excel. Og hjálp- arskjáir, sem varða Excel sjálft, eru alltaf innan seilingar. Gerðir mynd- rita eru margvíslegar; þar er um að ræða sjö grundvallargerðir, og má laga þær til og fjölga í 44. Og leturúrval er gott. Þar hefur þessi gerð Excel raunar eitt óvænt atriði fram yfir Macintosh-útgáfuna; í sama skjali má nota fleiri en eina leturgerð. Kostir á útprentun eru eins og best verður á kosið, texta, skýrslur og myndrit má senda til prentara eða þá teiknara. Teiknara, já. Excel er nýtilegt til fleira en bókhaldsins eins; í fylgiriti er t.d. tekið dæmi um notkun þess við landmælingar. Nýtist jafnt sem gagnasaf nsf orrit og töflureiknir Hér er nú ekki að sjá, að margt vanti á. Og næstum óþarft að auka því við, að Excel er í raun jafnnýti- legt sem gagnasafnsforrit og töflu- reiknir. Innbyggð föll, sem varða gagnasafnsvinnslu, eru fjölmörg, og við þau má auka eftir hentug- leikum, eins og áður sagði. En allt hlýtur þetta nú að kosta eitthvað, jafnt í fé, minnisrými og diskrými. Og eins þurfa skjákort og skjáir að vera af þróaðri endanum. Forrit- ið er stórt, það fer ekki milli mála, þegar pakkinn er opnaður. Fimm 1,2 megabæta diskar eða þá sjö 720 kflóbæta disklingar. Alls tekur þetta u.þ.b. 3,6 megabæti á hörðum diski. Diskrými 5 megabæti hið minnsta, segja fylgiritin, og ljóst má nú vera, að stórum meira rými þarf, ef koma á rúmlega fjórum milljónum reita í gagnið. Forritið sjálft er raunar til allnokkurrar með plasti til vemdar. Sony og Philips-fyrirtækin eru frumkvöðlar CD-ROM-disksins og hófst ffamleiðsla hans og diskadrifa árið 1985. Notagildi Notandinn getur ekki vistað gögn sín á CD-ROM-diski eins og venju- legum tölvudiski, en hvað er þá hægt að nota hann? í dag er hægt að kaupa CD-ROM-diska með ýmsu efni á, svo sem alfræðiorðabókum, læknisfræðitímaritum, landfræði- legum staðreyndum og ýmsu því sem er svo yfirgripsmikið að það kemst aðeins fyrir í margföldum bókabindum. Að minnsta kosti 160 titlar eru nú komnir á markað. Þessu til viðbótar eru nokkrir tugir sem ekki eru á almennum markaði. í sum CD-ROM-drif er hægt að láta hljómdiska svo þú getir hlustað á Mozart í hádeginu. Kostir CD-ROM-tæknin hefur ýmsa kosti fram yfír harða diskinn. Þar er geymslurýmið efst á blaði, bæði vegna þess að það er meira en einn- ig sökum þess að öllu þessu geymslurými má stinga í vasann, rétt eins og hljómdiski. Sagt er að CD-ROM diskur geti geymt 550— 600MB, þ.e. 550-600 milljón stafí. það eru um 700 bækur sem hver er 300 bls. að stærð. Þar að auki eru harðir diskar mjög viðkvæmir. Það má ekki hrista tölvuna, allra síst þegar hún er í gangi, því þá geta leshausamir skaddað diskinn. Eins og hljómdiskurinn er diskur- inn ekki viðkvæmur fyrir rispum 88ei naaManaa .8 HUOAOUTMMri lllOTÍIÍSVSArWIffiŒV .gigajhmu.uhom_________t_____________________8 .. M MORGUNBLAÐIÐ, VIDSKIPn/AlVlNNULÍF FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1988 B 15 hjálpar hér; af töflu er ekki vistað meira en þarf, auðum reitum er sleppt, þannig að diskrými nýtist betur fyrir bragðið. Lágmarks- vinnsluminni er 640 kílóbæti, og er þá þröngt um. En Excel getur sem best nýtt sér viðbótarvinnslu- minni, fylgi það „LIM-staðli“ (Lot- us-Intel-Microsoft). Annars væri nú reitafjöldinn mikli sýndargjöfín ein. Og hraðvirkur verður vélbúnað- urinn að vera. AT-tölvu þarf a.m.k. eða enn þróaðri gerð. Og tvímæla- laust reiknisamgjörva, þegar gögn fara að gerast fyrirferðarmikil. Meinið er nefnilega þetta, að eitt og annað getur orðið til að hægja vinnsluna. Windows-umhverfíð, til dæmis. Það hafa menn fundið Windows einna frekast til foráttu, að það er nokkuð seinvirkt kerfí; sýndarminni þarf að nota í sífellu, þannig að kröfur til vélarafls auk- ast í samræmi við það. Windows hefur þann meginkost, að mun auð- lærðara er að beita því kerfi en að læra MS/DOS, og vinna notandans verður öll skjótari. Gegn því vegur aftur hitt, að Windows sjálft er í hægvirkara lagi, og skipti hraði verulegu máli, þarf að efla vélbúnað með tilliti til þess. Kennslugögn á íslensku Fylgirit þessa hugbúnaðar eru mikil að vöxtum og greinargóð. Og umboðsaðili Microsoft væntir þess greinilega, að Excel muni ekki síður njóta vinsælda hér en raun hefur orðið á í öðrum löndum. Um það vitna umfangsmikil kennslugögn á íslensku, sem Tölvuskóli GJJ hefur þegar látið útbúa, og er þessi gerð forritsins þó ekki nema nokkurra mánaða gömul. Microsoft Excel er að sjálfsögðu ekki ódýrasti töflureiknirinn, sem völ er á, og verður þó allur verðsam- anburður erfíður, þegar haft er í huga, að Excel er enn einsdæmi meðal töflureikna á einkatölvur, að minnsta kosti tvíeflt á við keppi- nauta sína á markaði. Og raunar á það sér enga raunverulega keppi- nauta nú. Það situr enn eitt í þunga- vigtarflokki sínum, hvað sem síðar kann nú að gerast. Höfundur er lektor í almennum málvísindum við Háskóla íslands. og smáhnjaski. Þó að rispa komi í plasthúðina truflar það ekki lestur leysigeislans. Líftími CD-ROM-disksins er tal- inn mjög langur, sumir segja allt að því óendanlegur en íhaldssamari aðilar segja að hann dugi að minnsta kosti í 5—10 ár með stöð- ugri notkun. En þetta atriði er ekki svo mikilvægt þar sem yfirleitt mun þurfa nýjan disk með nýjum upplýs- ingum áður en líftíminn er útrunn- inn. Verð CD-ROM-drif kostar nú frá 700 upp í 900 dollara í Bandaríkjunum. Verðmismunur stafar m.a. af því hvort drifið sé ætlað til innsetning- ar í tölvuna (tekur sama rúm og venjulegt diskadrif í tölvunni) eða standa sjálfstætt. Drif sem geta leikið hljómdiska eru dýrari. CD-ROM-diskar kosta frá 100 upp í 1.000 dollara, allt eftir því hvaða efni er á þeim og hversu mikið. Nokkur fyrirtæki bjóða áskrift að diskum og getur hún kostað frá 500 upp í 30.000 dollara á ári með vikulegum uppfærslum. Framleiðendur Bandaríkjamenn og Kanada- menn eru framsæknastir og þar eru flestir diskar framleiddir og gefnir Út. Talsmenn í Evrópu viðurkenna að þeir séu a.m.k. einu ári á eftir. 'Bretar eru fremstir í Evrópu, síðan koma Þýskaland, Svíþjóð og Ítalía. Japan gefur svo a.m.k. út einn titil. Höfundur er tölvukennari hjá Tölvufræðslunni og höfundur tölvubóka. Tíu þúsund króna verðlækkun! Það Er Engin Ritvél Sem Stendur Jafnfætis Fadt 9401 Nú á tilboðsverði kr. 32.500,- (kostaði áður 42.500,-) Facit rafeindaritvélin er sú ritvél sem vakið hefur hvað mesta athygli undanfarið. Athyglin beinist jafnt að smekklegri hönnun og tæknilegri fullkomnun. Facit 9401 vinnur hljóðlega og ákveðið frá fyrstu snertingu við sérstaklega lágt lyklaborðið sem gerir vélritun á Facit áreynslulausa og þægilega. Takmarkaður fjöldi ritvéla á þessu tilboði. GÍSLI J. JOHNSEN SF. Nýbýlavegi 16, sími 641222, Kópavogi n i * MMhm| Áskriftarsíminn er 83033

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.