Morgunblaðið - 09.09.1988, Page 1
PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS
FOSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1988
SJónvarpiA sýnir á föstu-
dagskvöldlð nýjan mynda-
flokk úr leiksmiðju Jim Hen-
sons sem ber heitið Sagna-
þulurinn. Sagnaþulurinn er
leikinn af John Hurt og situr
hann ásamt hundinum sín-
um við arineld í fomfálegum
kastala og segir evrópskar
þjóðsögur. Blandað er sam-
an leikbrúðum og leikurum til að gæða frásagnirnar lífi. Fyrsta
sagan heitir Hans broddgöltur og segir frá bóndakonu sem
þráir svo heitt að eignast barn að henni er sama þóttt það sé
eins Ijótt og broddgöltur, að því er hún segir.
Ópera mánaðarins verður
sýnd á sunnudaglnn á Stöö
2. Að þessu sinni er það upp-
færsla japanska leikstjórans
Keita Asari á Madam Butt-
erfly eftir Qlacomo Pucclnl
í La Scala. Japanska söng-
konan Yasuko Hayashl
þreytir hér frumraun sína á
vestrænu leiksviði í titilhlut-
verkinu.og sama má segja um
Hak-Nam sem leikur þjónustu-
stúlku hennar, Suzuki. Óperan
á sér stað í Nagasakí í upp-
hafi tuttugustu aldarinnar.
Bandarískur sjóliðsforingi og
lávarður að nafni Plnkerton
er staddur í Japan þar sem
hann kynnist japanskri stúlku,
Cio-Cio-San, öðru nafni Butt-
orfly, og kvænist henni. Stúlk-
an afneitar forfeðrum sínum til
að sýna Pinkerton trúlyndi sitt
og er hann fer aftur til Banda-
ríkjanna ber Butterfly barn
hans undir belti. Er Pinkerton
snýr aftur til Japans, fáeinum
árum síðar, hefur hann með
sér nýtt kvonfang sem fer þess
á leit að fá að ættleiöa barnið.
Butterfly gefur samþykki sitt
og afhendir þeim barnið en
fyrirfer sér síðan.
John Hurt sem sagnaþulurinn.
I Litla barnatímanum sem er á V
dagskrá Rásar 1 á mánudag /
verður byrjað að lesa söguna /
Alís f Undralandl eftir / /
LewisCarroll. íbókinni /
komafyrirmargarfurðu- i /
legarpersónur. Má þar j
nefna hvítu kanínuna, her-
togaynjuna, bláa kálorminn, \ \
vitlausa hattarann og hina \ \
skapríku hjartadrottningu. Sag- \ \
an segir frá Alís sem sér hvíta \
kanínu og eltir hana niður holu í tré. \
Ýmislegt furðulegt fer að gerast og Alís \
ýmist minnkareða stækkar. Þorsteinn
Thorarensen les söguna sem móðir hans,
Ingunn, þýddi. Þetta ereina óstytta þýðing
á bókinni þar sem öll hin skrítnu Ijóð eru
tekin með. .
StöA 2 sýnir á fimmtu-
dagskvöldlA breska gam-
anþáttinn Einskonar líff eða
„A Kind of Living" eins og
hann heitir á ensku. Þáttur-
inn fjallar um Beasley-
hjónln og sjö mánaða gaml-
an son þeirra sem enn hefur
ekki fengið nafn. Þrátt fyrir
nýtt hús, nýja vinnu og litla
barnið er Trevor Beasley
fastur fyrir í fortíðinni og er
hann hittir gamlan vin sinn, Brian, kemur á daginn að þeir
hafa ólíkar skoðanir á því hvernig hlutirnir voru í gamla daga.
Eiginkonan hugsar um heimilið og talar án afláts við litla son-
inn sem þau eignuðust er þau voru komin á efri ár. Hjónin eru
leikin af Richard Griffiths og Frances de la Tour en hlutverk
litla drengsins er í höndum Christophers Rothwells.
Richard Griffiths og Frances de la Tour.
Sjónvarpsdagskrá bls. 2-12
Útvarpsdagskrá bls. 2-12
Myndbönd bls. 9/12
Bfóin í borginni bls. 12
Guðað á skjáinn bls. 12