Morgunblaðið - 09.09.1988, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 09.09.1988, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1988 B ,9 MYIMDBÖIMD Sæbjörn Valdimarsson A JOHNHUGHES PRODUCTION Some KíndOf WONDERFUL Ástin grípur unglingana drama Einskonar ást - Some Kind of WonderfultT ★ Leikstjóri: Howard Deutch. Handrit: John Hughes. Tónlist: Stephen Hague og John Musser. Aðalleikendur: Eric Stoltz, Mary Stuart Masterson, Lea Thomp- son, Craig Sheffer, John Ashton. Bandarísk. Paramount Pictures 1987. CIC Video/ Háskólabíó 1988. Hi-Fi. 91 mín. Öllum leyfð. Yfirsoðgreifi bandarískrar ungl- ingamyndagerðar, John Hughes, er hér reyndar ekki í brytastarfi held- ur í 1. kokks hlutverki framleiðand- ans, sem og í Falleg í bleiku, en efnið í Einskonar ást er sótt á sömu mið. Hér er tekið fyrir á nýjan leik bilið á milli fátækra og ríkra nem- enda í Bandaríkjunum. Stoltz leikur pilt af almúgaættum sem hrífst af fegurðardísinni Thompson, sem á sér svipaðan bakgrunn, en hefur komist í klíku unglinga efnafólks sakir fegurðar og yndisþokka. Masterson, vinkona Stoltz úr múgs- hverfinu, varar pilt við samneyti við Thompson, sem hún álítur að geti orðið til þess eins að hann geri sig að fífli, og fleira býr und- ir... Þetta gamla, sígilda þríhymings- vandamál gengur bærilega upp samkvæmt siðabókum unglinga- venja Hughes. Vafalítið (vonandi) er hegðunarmunstur bandarískra og íslenskra unglinga mjög ólíkt, þó held ég að þeir geti engu að síður haft gaman að þessum bamalegu vangaveltum Hughes-fyrirtækisins. Og hvað sem öðm líður er leikur þessa æskufólks með ágætum, en hveijum þykir Thompson fegurri en sú sjarmerandi Masterson? • • Oskubuska í Beverly Hills gamanmynd Maid to Order^ ★ •^ Leikstjóri: Amy Jones. Handrit: Jones, Perry Howze og Randy Howze. Tónlist: Georges Del- erue. Aðalleikendur: Ally Sheedy, Michael Ontkean, Val- erie Perrine, Dick Shawn, Tom Skerritt. Bandarísk. 93 mín. Öll- um leyfð. Heldur geðfelld dæmisaga úr margmilljónerahverfinu Beverly Hills til áminningar um að margur verður af aurum api og ekkert er dýrmætara en að þroska og efla mannkostina. Sheedy leikur forríka og gjörspillta auðmannsdóttur sem er að ganga af vitinu vegna of- dekurs og allsnægta. Að því kemur að faðir hennar óskar sér að hann hefði aldrei eignast dóttir og, bingó!, óhemjan hverfur úr vitund allra sem hana þekkja. Utan heilladísarinnar sem tilkynnir að Sheedy verði nú að bæta heldur betur ráð sitt ef hún ætli að eiga möguleika á sínu gamla hlutskipti. Upphefst nú píslarganga pils- vargsins sem verður að gjöra svo vel að hefja störf sem þjónustu- stúlka á Beverly-hæðum og verður endurhæfingin öll hin söguleg- asta... Minnir nokkuð á draumóramynd- imar sem nutu feykivinsælda á kreppuárunum vestra og er því líkleg til vinsælda hérlendis í dag! Gamanlaust, græskulaust ævintýri, ósköp ófrumlegt, og kryddað óhjá- kvæmlegri væmni, en sleppur fyrir hom fyrir atbeina skemmtilegs leik- hóps sem rennur fyrirhafnarlaust í gegnum lauflétt handritið. Merki- legt nokk, en myndinni leikstýrir Amy Jones sem einnig stýrði Slumber Party Massacre, einni verstu mynd sem þessi gagnrýnandi hefur séð! Sannast því hér hið fom- kveðna að „batnandi mönnum er best að lifa!“ Ógæfuleg akuryrkja spennumynd Quiet Cool ★,/2 Leikstjóri Clay Borris. Handrit Borris og Susan Vercellino. Tón- list Jay Ferguson. Kvikmynda- tökustjóri Jacques Haitkin. Aðal- leikendur James Remar, Adam Coleman Howard, Daphne Ash- brook, Nick Cassavettes. Bandarísk. New Line Cinema 1986. RCA-Columbia/Skífan 1988. 91 mín. Bönnuð yngri en 16 ára. Myndbandaleigjendur em drifnir enn eina ferðina á hefndarslóðir i Quiet Cool, sem státar af prýðis- góðum áhættuatriðum og þokka- legri keyrslu, en líður hinsvegar fyrir langþreyttan og mæddan efn- isþráð og álappalegt handrit sem hrakar þegar á líður. Remar fer með hlutverk lög- regluþjóns í New York, sem fær upphringingu frá gamalli vinkonu (Ashbrook) í Norð-Vesturríkjunum. Litli bróðir hennar og fjölskylda týnd. Er nú illt í efni svo löggan pakkar niður marghleypunni í snatri og er mættur fyrr en varir í hlaðvarpanum hjá Ashbrook. Fastir liðir einsog venjulega. Remar verður þess áskynja að í nágrenninu fer fram ólögleg en ábatasöm akuryrkja á maríúana. Finnur litla bróðir (Howard), sem sloppið hefur við illan leik úr hönd- um fólanna sem gæta ekranna, eft- ir að þau hafa myrt foreldra hans. Ganga þeir nú milli bols og höfuðs á grasbændunum. Dálítil ellimörk á þessu sullu- malli, sem sjálfsagt fellur í smekk ókresinna leigjenda sem aldrei fá nógu mikil átök og djöfulskap. Remar er íjarri sínu besta, enda hentar honum mun betur að teljast í flokki ribbalda (Rent-A-Cop, The Cotton Club). Einu sinni var... gamanmynd The Princess Bride ★★★•/£ Leiksljóri: Rob Reiner. Handrit: James Goldman. Tónlist: Márk Knopfler. Kvikmyndatökustjóri: Adrian Biddle. Aðalleikendur: Gary Elwes, Mandy Patinkin, Chris Sarandon, Christopher Guest, Wallace Shawn, Andre The Giant, Peter Falk, Billy Crystal. Bandarísk. 20th Century Fox/Act III Communications 1987. JB heildsala 1988. 98 mín. Öllum leyfð. Það tók undirritaðan ekki langan tíma að velja The Princess Bride eina af 10 bestu myndum síðasta árs. Hér er nefnilega um að ræða einstaklega skemmtilega og elsku- lega mynd, sem um margt minnir á gömlu góðu Grimms ævintýrin. Enda hefst myndin á því að afi gamli (Falk) fer að segja sonarsyni sínum þetta ágæta ævintýri. Stráksi er ekki par hrifinn, að hætti nútímabama vill hann mun frekar horfa á sjónvarpið eða þrælast í tölvuleikjum. En smá saman hrífst hann með ... Og síðan segir afi söguna sem afi hans las fyrir hann þegar hann var lítill. Þetta er klassískt ævin- týri um fallega stúlku og fátæka kærastann hennar, vonda prinsinn og síðan tvísýna afturkomu kærast- ans sem með naumindum tekst að véla stúlkuna sína úr böðulshöndum hins hábölvaða ríkisarfa, rétt undir lokin. Og með hjálp allskyns undra- vera. Einsog afí lofaði stráknum, þá er The Princess Bride hið líflegasta ævintýri, með „skylmingum, pynt- ingum, bardögum, hefndum, risum, álfum, ófreskjum, eltingarleikjum, flótta, sannri ást og kraftaverkum". Enda er handrit Goldmans hreint bráðskemmtilegt og hugmyndaríkt og hans besta verk í mörg ár. Rein- er leikstýrir af slíkri innlifun að hann gæti verið af Grimmsættinni og aðrir aðstandendur litlu síðri. Hreint út sagt stórfengleg skemmt- un fyrir börn á öllum aldri. Og eiga Reiner, Goldman og félagar þakkir skyldar fyrir að þora að leggja útí þá tvísýnu að gera ævintýramynd, þær eiga svo sannarlega ekki uppá pallborðið á vinsældalistum dags- ins. En hún sannar að allt gengur upp ef vel er að staðið. Maðurinn frá Moskvu spennumynd Wynne and Penkovsky ★ ★ ★ Leikstjóri: Paul Seed. Handrit: Andrew Carr, byggt á The Man From Moscow' eftir Greville Wynne.. Kvikmyndatökustjóri: Colin Munn. Tónlist: Jim Parker. Aðalleikendur: Daniel Calder, Christopher Rozycki, Fiona Walker, Denys Hawthorne, Fred- erick Trevers, Paul Geoffrey, Roger Hume, Ed Bishop, Petar Vidovic, George Pravda. Bresk. BBC 1987. Bergvík 1988. 135 min. Nostursleg spennumynd, byggð á sönnum atburðum sem áttu sér stað á geigvænlegustu tímum kalda stríðsins. Breski kaupsýslumaður- inn Wynne (Calder), fyrrverandi leyniþjónustumaður í seinna stríði, er gerður útaf örkinni af bresku leyniþjónustunni að afla njósnara í KGB. Penkovsky (Rozycki) verður fyrir valinu. Er skemmst frá því að segja að samstarf þeirra gengur með eindæmum vel, Penkovsky til- kjmnir samstarfsmönnum sínum á Vesturlöndum m.a. frá undirbún- ingi Berlínarmúrsins, eldflauga- flutningunum til Kúbu, jafnframt vex vinátta mannanna tveggja. En smá-saman liggja þeir báðir undir grun sinna jrfirmanna og endar samstarfið með skelfingu. Viðsjár njósnastarfsins, óttinn við að skelin ljúkist upp, vantraust- ið til þeirra sem stjóma spilinu, eld- urinn undir fótunum, eru inntak Wynne og Penkovsky, auk þess sem hún er sterkt, mannlegt drama um vináttu og veraldargengi. Löng en einstaklega vel gerð útí smáatriði þar sem hæst rís eftirminnilegur leikur aðalleikaranna tveggja, að öðrum ólöstuðum. Spennandi og bregður sönnu ljósi yfir eina váleg- ustu atburði á síðari áratugum. Bresk vandvirkni hvert sem litið er. Þrenning á þjóð- veginum gamanmynd Three for the Road^V2 Leikstjóri: B.W.L. Norton. Hand- rit: Richard Martini, Tim Met- calfe og Miguel Tejada-Flores. Tónlist: Barry Goldberg. Aðal- leikendur: Charlie Sheen, Kerri Green, Alan Rock, Sally Keller- man. Bandarísk. The Vista Oragnisation 1987. Steinar 1988. 90 mín. Öllum leyfð. Dómgreind Charlie Sheen í myndavali virðist harla rysjótt. Pilt- urinn vakti geysiathygli á síðustu árum fyrir góðan leik í enn betri myndum, Wall Street og Platoon. Þess á milli koma svo horhundar sem þessi. Að þessu sinni fer Sheen með hlutverk ungs framagosa, í starfi hjá þingmanni. Nú fær hann það vafasama verkefni að koma stelpugálunni, dóttur hans, í heima- vistarskóla fyrir vandræðaböm, þar sem að hefla á af henni vankant- ana. Tvær dagleiðir eru í skólann og allt á að fara fram með kurt og pí. En þetta tveggja daga ferðalag leysist uppí allsheijar glundroða þar sem uppanum og vini hans tekst bölvanlega að hafa stjóm á hinni gjörspilltu smápíu. Óskaplega þunn í roðinu og yfir- gengilega vitlaus. Hér á hvert atrið- ið að vera öðm æðislegra, en því miður, allt em þetta gamlar klisjur og flestar illa stældar. Maður hálf- kennir í bijósti um Kellerman, sem stingur upp kollinum í æ fleiri slök- um B-myndum. Hún glansar, ef tækifærin bjóðast, einsog í Back To School. Og Sheen má til með að vera vandlátari en svo að taka hlutverki í mynd sem þessari, sem telst varla slarkfær unglingaafþrey- ing. Ekkert blávatn Dauer léttöl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.