Morgunblaðið - 09.09.1988, Side 12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1988
12 B
T'----------
Sovétríkin:
Sjónvarp á
tímum umbóta
Vald sjónvarpsins í Sov-
étríkjum Gorbatsjovs er næst-
um algert, skrifar Ellen Micki-
ewicz nýlega í „The New York
Times", en hún er fjölmiðla-
fræðingur sem sérhæft hefur
sig í sjónvarpsmálum Sov-
étríkjanna. Hún nefnir dæmi
um það þegar hún fór síðasta
vetur með stórum hópi á veit-
ingahús í Moskvu og þegar
með ólíkindum hár reikningur-
inn var settur á borðið hafði
einhver orð á því að réttast
væri að benda sjónvarpsþætt-
inum „Kastljós umbótanna“,
sem þekktur er fyrir rannsókn-
arblaðamennsku, á himinháa
álagninguna. Brosin frusu á
þjónunum, upphæðin var
lækkuð og enginn tók við svo
miklu sem kópek í þjórfé.
Guðaðá
skjáinn
Sjónvarpið gegnir líka lykil-
hlutverki í skilgreiningu og
mótun stjórnmálaforystunnar.
Margt hefur verið rætt og ritað
um notkun Gorbatsjovs á sjón-
varpi — skilning hans á mögu-
leikum fjölmiðilsins og leikninni
sem hann beitir þegar hann
ávarpar sovéska sjónvarps-
áhorfendur, venjulega um 150
'til 200 milljón manns.
Einstakur atburður gerðist
5. ágúst sl. þegar Yegor K.
Ligasjev, annar valdamesti
maðurinn í Kreml, notaði sjón-
varpið til að sýna fram á eigið
leiðtogahlutverk. . Tuttugu
mínútur af fréttatímanum
þetta kvöld fóru í ræðu Lig-
asjevs og segir Mickiewicz að
hún hafi aldrei vitað til þess
að nokkur ræðumaður nema
aðalritarinn fengi eins mikinn
tíma í fréttum.
Sjónvarpið hefur einnig orð-
ið einn mikilvægasti liðurinn í
stöðu og einkennum hinna
mismunandi þjóða og þjóðar-
brota sem byggja Sovétríkin.
Landsstöðvarnar tvær, Fyrsta
og Önnur rásin, eru á rússn-
esku en í lýðveldunum hverju
fyrir sig er talsverður hluti dag-
skrárinnar sendur út á tilheyr-
andi tungumáli. í Nagorno-
Karabakh, hinu umdeilda hér-
aði Armena i Azerbaijanlýð-
veldinu, hafa menn löngum
gert kröfu um að fá aðgang
að sjónvarpssendingum Arm-
eníu. Þegar sameiningu hér-
aðsins við Armeníu var hafnað
í Moskvu hélt leiðtogi Azerbaij-
an ræðu þar sem hann sagði
að ýmsar umbætur skyldu
gerðar í héraðinu. Það fyrsta
sem hann nefndi var stofnun
héraðssjónvarps á armensku í
Nagorno-Karabakh og aðgang
að sjónarpssendingum frá
Armeníu. í Moldavíulýðveldinu
krafðist rithöfundafélagið þess
fyrir ári að útsendingum á
rússnesku yrði hætt en allt
efni yrði^ent út á moldavísku.
Unglingaþátturinn Tólfta
hæðin er ágætt dæmi um þró-
un sovésks sjónvarps. Hann
byggðist í fyrstu á því að hóp-
ar unglinga staðsettir í stiga-
göngum — unglingunum
fannst þeir afslappaðri á
heimavelli — gagnrýndu og
hæddust að kerfiskörlum í
upptökusal í Moskvu. Þættirnir
vöktu mikla athygli en voru svo
teknir af dagskrá.
Höfundur þeirra er Eduard
Sagalaev, yfirmaður æskulýðs-
deildar sovéska sjónvarpsins
(skrifstofa hans er á tólftu hæð
og þaðan er nafn þáttanna
dregið). Eftir því sem hann
segir var vandamálið með
þættina það að þeir voru farn-
ir að auka mjög óánægju ungra
áhorfenda og vekja vonir sem
með engu móti var hægt að
uppfylla. Það hafði verið kom-
inn tími til að hætta að „rífa
skyrturnar og hella salti í sár-
in“.
25. maí sl. byrjaði Tólfta
hæðin aftur í sjónvarpinu.
Umræðuefnið var karlmennsk-
an og formið var það sama;
unglingarnir sátu f stiga-
göngum og valdamenn í upp-
tökusal í Moskvu. Talið barst
að efnishyggju, tregðu til að
þjóna í hernum og hörmungum
Stalínstímans. Grundvallar-
breytingin sem orðin var á
þættinum snérist um jákvæðar
fyrirmyndir eins og stærð-
fræðinginn Vavilov. Faðir
hans, erfðafræðingurinn N.l.
Vavilov, hafði látist í fangeisi á
Stalínstímanum. Vavilov yngri
sagði ungu áhorfendunum að
slíkt gæti ekki gerst aftur,
þjóðfélagið leyfði það ekki.
—ai.
MYIMDBÖND
Sæbjörn Valdimarsson
Lífshættulegt
símaat
spennumynd
Egr sá hvað þú g-erðir ... - I Saw
What You Did ...★>/2
Leikstjóri: Fred Walton. Handrit:
Cynthia Cidre, byggt á skáldsögu
Ursulu Curtiss. Aðalleikendur:
Shawnee Smith, Tammy Lauren,
Candace Cameron, Robert og
David Carradine. Bandarísk
sjónvarpsmynd. Universal 1987.
Hi-Fi. 90 mín. Bönnuð yngri en
16 ára.
>Þróttlítil spennumynd, byggð á
kunnuglegu efni, sem reynst hefur
meiri spámönnum ágætt viðfangs-
efni. Tvær stelputátur láta sér leið-
ast í bamapíustússi í úthverfí í
Pasadena. Til að stytta stundimar
yfír krakkaborunni hringja þær eitt-
hvert útí loftið og atast í viðmæl-
endum. En þá fer í verra er þær
slá á þráðinn hjá Robert Carradine
og segjast hafa séð hvað hann gerði
og viti hver hann er. Kauði var
nefnilega nýbúinn að murka líftór-
una úr kærustunni og var komið
að honum þar sem hann var að
husla náinn.
En tátumar vita náttúrlega ekk-
ert um það, líst vel á röddina í
Robba og fara í heimsókn. Og svo
framvegis ...
Þetta sígilda efni fær heldur
slaka meðhöndlun hér hjá öllum
viðkomandi. Það vantar broddinn í
myndmálið, möguleikar klippi-
borðsins sérstaklega vannýttir.
Sögur af þessu tagi era harla ólfk-
legar, því þarf að keyra þær áfram
af dómsdagsspennu, svo áhorfand-
inn gleymi stund og stað, ef vel á
að vera. Þessi mallar í hlutlausum,
lengst af. Meira að segja þeir
Carradine-bræður, sem era til alls
vísir, fá ekkert að gert til að hressa
uppá andrúmsloftið. En þá vitið
þið, bömin góð, að það er ekki að-
eins ægilega ljótt, heldur einnig
lífshættulegt að gera símaat...
Áflótta
drama
Kangaroo ★ ★ l/2
Leiksljóri: Tim Burstall. Handrit:
Evan Jones, eftir skáldsögu D.H.
Lawrence. Kvikmyndatökustjóri:
Dan Burstall. Aðalleikendur: Col-
in Friels, Judy Davis, John Wal-
ton, Julie Nihill, Peter Hehir,
Peter Cummins, Hugh Keays-
Byrne. Áströlsk. Vestron Video
Int., 1987. Myndform 1988. 100
mín.
Myndin dregur nafn sitt af sam-
nefndri bók Lawrence, er hann
samdi um reynslu sína af Ástralíu
og íbúum hennar í upphafi þriðja
áratugsins. Hjónin Friels og Davis
fíýja eymdina og ofsóknimar á
hendur þeim í Evrópu eftirstríðsár-
anna fyrri. Hann er gagnrýnið skád
og dálkahöfundur og heldur bersög-
ull að flestra dómi. Hennar þýska
ættemi illa séð af breskum, svo þau
söðla um og velja Ástralíu sem sitt
nýja heimaland.
En það líður ekki á löngu uns
Friels verður bitbein neikvæðra
þjóðfélagsafla á nýjan leik. Hann
kynnist manni sem er formaður
fasistasamtaka og vill ólmur fá
skáldið í félagsskapinn. Þegar það
neitar era Astralíudagar þeirra
hjóna á enda.
Óneitanlega forvitnileg mynd,
einkum fyrir þá sem áhuga hafa á
lífshlaupi listamannsins, sem hlaut
litla náð í augum samtímafólks en
er hinsvegar í dag talinn með merk-
(,’OI.IN Uytf.S JUDllMVJS
ISLENSKUR TEXTI
ustu rithöfundum aldarinnar.
Myndin fer grannt ofaní hið sjálfs-
ævisögulega verk Lawrence og er
því orðmörg og bókmenntaleg.
Hinsvegar er leikur Friels traustur
og trúverðugur og Davis skilar jafn-
vel enn mótaðri persónu, enda hlaut
hún verðlaun ástralska kvikmynda-
iðnaðarins fyrir hlut slnn á síðasta
ári. Og þess má svo til gamans
geta, að þau Davis og Friejs era
víst ektapar í raunveraleikanum.
Það hefur öragglega ekki sakað því
samleikur þeirra er besti þáttur
Kangaroo.
B»in í borainni
BÍÓBORGIN
Foxtrot^ ★ ★
Foxtrot brýtur ekki blað í sögu
felenskrar kvikmyndagerðar, held-
ur hefur þaö tekist skínandi vel
sem til stóö; að gera nútímalega
spennumynd með lævi blöndnu
andrúmslofti. Það er óhætt að taka
ofan fyrir öllum hennar aðstand-
endum. - sv.
örvænting ★ ★ ★
Beinskeytt leikstjórn Polanskis og
leikandi létt sögumennska hans
gerir myndina að einstakri, slípaðri
afþreyingu við allra hæfi. Hér upp-
lifum við Bíó með stórum staf í
þess orðs bestu merkingu. -sv.
Rambo III ★ ★ 1/2
Aldrei hefur karl verið jafn ábúðar-
mikill, markviss og háleitur og
aldrei hafa óvinirnir verið jafn ósjá-
legir og illmannlegir. Söguþráður-
inn einfaldur að venju. Andi og
boðskapur myndarinnar minna á
íslensku þjóðsögurnar um nátt-
tröllin, þó hefur tæknin aldrei veið
betri og sjálfsagt er Rambo III hin
ákjósanlegasta afþreying aðdá-
endum garpsins. -sv.
Beetlejuice ★ ★ ★
Þessi draugagamanmynd býður
uppá gersamlega ómótstæðilegan
hræring af vinalegum draugum og
vondum, heilu partýi af sérstökum
tæknibrellum og Michael Keaton
óborganlegum í hlutverki Bjöllu-
djússins. -ai.
STJÖRNUBÍÓ
Breti í Bandaríkjunum ★ ★ ★
Daniel Day Lewis fer á kostum í
þessari bráðskemmtilegu banda-
rísku aldafarslýsingu í hlutverki
hins háttprúða Breta í kolrugluðum
Nýja heiminum. Ekki láta hana
framhjá ykkur fara. -ai.
Von og vegsemd ★ ★ ★ 1/2
Geta stríð veriö skemmtileg?
Breska leikstjóranum John Boor-
man þótti seinni heimsstyrjöldin
einhver skemmtilegasti tími lífsins
og hefur endurskapaö þá upplifun
sem stríðið var fyrir hann sem
krakka í Bretlandi í þessari frá-
bæru, einstaklega skemmtilegu
gamanmynd studdur úrvalsleikur-
um og dásamlegum minningum.
-ai.
BÍÓHÖLLIN
Góðann daginn, Vfetnam ★ ★ ★
★
Meira en skemmtileg heldur líka
mannleg og skynsamleg, drifin
áfram af ofurkrafti Robin Williams
og Barry Levinsons og matarmiklu
handriti. Besta mynd ársins til
þessa. -sv.
Örvænting. Sjá Bfóborgin.
í fullu fjöri ★ V2
Þetta er aðeins „rokk og ról“
sungu garparnir í den, sama gildir
um þetta þunnildi sem sjálfsagt
átti að grassera á unglingamynda-
markaðinum. En þrátt fyrir nota-
lega tónlist er heildin meðal-
mennska í slappari kantinum. -sv.
Skær Ijós stórborgarinnar ★ ★
Michael J. Fox rífur sig úr fjöl-
skylduböndum til að leika Man-
hattan-uppa og kókaínætu sem
hefur enga stjórn á lífi sínu, Mynd-
in veröur aldrei meira en lítil og
sæt, eins og stjarnan. -ai.
Rambó III. Sjá Bíóborgin.
Beetlejuice. Sjá Bfóborgin.
Lögregluskólinn 5 ★
Lögregluskólamyndirnar eru fyrir
krakka sem finnst það fyndið ef
einhver missir niður um sig bræk-
urnar. Húmorinn er ræfilslegur og
leikurinn skrípalegur en vinsæld-
irnar ótrúlegar. -ai.
Hættuförin ★ ★ ★
Poitier snýr aftur í einstaklega
spennandi afþreyingarmynd þar
sem ekki er eitt einasta dautt
augnablik að finna. Smellur sum-
arsins. -sv.
REGNBOGINN
Hamagangur á heimavist ★ ★
Bara enn ein unglingamynd meöal-
mennskunnar -ai.
Helsinki - Napoli^ ★
Það er óhætt að fullyrða að sá
einstaki kvikmyndargerðarmaður,
Mika Kaurismaki fer ósmeykur eig-
in leiðir, kærir sig kollóttan um
vörður og vegvísa. H-N er engin
undantekning, glórulaus en gam-
ansöm. -sv.
Leiðsögumaðurinn ★ ★ ★
Leiðsögumaðurinn er á margan
hátt velheppnuð mynd, hröð og
spennandi, segir sterka sögu sem
getur höfðað til allra og gerist í
hrjóstugu og snjóhvítu umhverfi
Sama. Helgi Skúlason er frábær í
óþokkahlutverkinu. -ai.
Krókódíla-Dundee II ★ ★ ★
Dundee er ein jákvæðasta og geð-
þekkasta hetja hvíta tjafdsins um
árabil og nær til allra aldurshópa.
Heilbrigður, hrekklaus og um-
gengst glæpalýð stórborganna líkt
og eiturkvikindi merkurinnar og
afgreiðir hann af eðlishvöt náttúru-
barnsins. Enda alinn upp af dul-
úðugum frumbyggjum. -sv.
HÁSKÓLABÍÓ
Á ferö og flugi ★ ★ ★
Steve Martin og John Candy fara
á kostum í þessari ágætu John
Hughes-gamanmynd um tvo
ferðafélaga á leið í helgarfrí og
þeirra mjög svo skemmtilegu erfið-
leika og óyndislegu samverustund-
ir. -ai.
LAUGARÁSBÍÓ
Stefnumót á Two Moon Junc-
tion^
Enn ein útgáfan af brennheitu
Suðurríkjaástunum milli herra-
garðsstelpunnar og bringubera
vinnumannsins. Ekkert „ótrúlega
djörf" miðað við landlæknisauglýs-
inguna. -ai
Sá illgjarni ★★1/2
Sem fyrr, ágætt handbragö hjá
Craven en máttlítið handrit. Uppá-
komurnar á Haiti, þessari paradís
kuklara, heldur óyndislegar og vel
útfærðar og nú hlýtur að styttast
í sannkallaða gegnumbrotsmynd
frá hendi leikstjórans. SV.