Morgunblaðið - 16.09.1988, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1988
B 7
MYNDBÖND
Sæbjörn Valdimarsson
WXRNER HOME VfDEO
Innrás utanúr
geimnum
VÍsindaskíaldsaga
Innrás líkamsræningjanna
★ ★ ★
Leikstjóri Philip Kaufman.
Handrit W.D. Richter, byggt á
skáldsögunni The Body Snatch-
ers eftir Jack Finney. Kvik-
myndataka Michael Chapman.
Tónlist Denny Zeitlin. Aðalleik-
endur Donald Sutherland,
Brooke Adams, Leonard Nimoy,
Jeff Goldblum, Veronica Cart-
wright. Bandarisk. United Art-
ists 1978. Steinar 1988. Stereo.
114 mín. Bönnuð yngri en 16 ára.
Sem kunnugt er þá er Inrrás
líkamsræningjanna endurgerð,
undir sama nafni, á einni frægustu
v-s mynd kvikmyndasögunnar. Sú
fyrri, sem er með ónotalegri mynd-
um, var gerð 1956 af Don Siegel,
með Kevin McCarthy í aðalhlut-
verki, og bregður þeim köppum
báðum fyrir hér. Sögusviðið er San
Fransisco, heilbrigðisfulltrúinn
Sutherland fer að taka eftir óþægi-
legum breytingum í fari fólks, það
verður allt ómanneskjulegra og
kaldara. Smám saman kemur sann-
leikurinn í Ijós; lífverur utan úr
geimnum hafa gert innrás í líkama
jarðarbúa og er fátt til vamar.
Vönduð mynd í flesta staði, en
vantar mikið uppá að skapa þann
hroll sem setti að manni undir fyrri
myndinni og framvindan óljós á
köflum. Taka og tónlist eru til bóta,
eins leikstjóm Kaufmans ef undan
er skilin tök hans á nokkuð forvitni-
legum leikhóp þar sem enginn rís
uppúr meðalmennskunni nema
Sutherland.
DliKAM
LOVKIl
No* l ley mc
tíown to skep
Ul sfroddkHl
bchxel
Draumarutl
spennumynd
Dream Lover ★ ★
Leikstjóri Alan J. Pakula. Hand-
rit Jon Boorstin. Tónlist Michael
Small. Kvikmyndatökustjóri
Sven Nykvist. Aðalleikendur
Kristy McNichol, Ben Masters,
Paul Shenar, Gayle Hunnicutt.
Bandarísk. MGM 1986. 98 mín.
Bönnuð yngri en 16 ára.
Rómuð var samvinna þeirra leik-
stjórans Roberts Mulligan og fram-
leiðandans Pakula, á sjötta og sjö-
unda áratugnum. Hún skóp m.a.
ágætismyndimar Fear Stikes Out,
To Kill A Mockingbird, The Stalk-
ing Moon, o.fl. Að því kom að Pak-
ula vildi einnig fá að leikstýra og
leiðir skildu. Til að byija með leit
þessi ákvörðun vel út því eftir hor-
tittinn The Sterile Cuckoo leikstýrði
Pakula afbragðsmyndinni Klute og
nokkrum árum síðar All The Presid-
ent’s Men. Síðan ekki söguna meir,
ef undan er skilin Sophie’s Choice,
og Dream Lover er vissulega ein
af hans slakari myndum.
Aðalpersónan, McNichol, er ung
tónlistarkona, sem hverfur á vald
martraðar á hverri nóttu eftir að
ráðist var inná heimili hennar. Eft-
ir að hún fer að sækja hjálp sálfræð-
ings (Masters) versna draumfarim-
ar frekar en hitt.
Það tekst ekki að byggja upp
sálfræðilega spennumynd úr þessu
kunnuglega efni, og ástæðumar
margar. I það fyrsta er efnisþráður-
inn mglingslegur og lausu endamir
útum allt, Pakula tekst ekki að ná
áhorfendum á sitt vald, heldur gösl-
ast áfram í slakri meðalmennsku,
en verst af öllu er afleitur leikur
McNichol, sem hvorki ræður við né
passar í hlutverkið. Hinsvegar
stormar af Shenar, líkt og fyrri
daginn og kvikmyndataka Nykvist
hugmyndaauðug og listræn að
venju.
Flughetjur
Hollywoodborgar
gamanmynd
Hollywood Air Force A1/2
Leikstjóri Bert Convy. Handrit
Bruce Belland og Roy O. Rogos-
in. Aðalleikendur Chris Lemmon,
Lloyd Bridges, Vic Taybac.
Bandarísk. New Dimension 1987.
Myndbox 1988. 93 min. Öllum
leyfð.
Fima bragðdauf, í anda glæfra-
gamanmynd á borð við Airplane.
Myndin á að gerast við upphaf sjö-
unda áratugsins og fjallar um valt
veraldargengi hóps, að því er virð-
ist fæðingarhálfvita, sem reynt hef-
ur að komast hjá herkvaðningu með
því að skrá sig í heimavamarliðið.
I þessu tilfelli varaflugher Holly-
woodborgar. Þegar svo kemur að
liðskönnun undir amfráu augliti
þingmanna og sendiherra frá Aust-
antjaldsríki, eru góð ráð dýr. Grípa
slöttólfamir þá til allra tiltækra
ráða til að standast þolraunina,
svosem kúgana, lyga, gleðikvenna
o.s.frv.
Þær gerast fjandakornið ekki
þynnri en þetta hvað efnivið og
uppbyggingu snertir. Því koma á
óvart örfá, brosleg atriði, en ógnar-
langt er á milli þeirra. Leikarahóp-
urinn er svo hæfileikalaus að það
er viss lífsreynsla að fylgjast með
honum. Ekki bætir Chris Jacks
Lemmonssonur uppá sakimar,
kemst ekki með tæmar þar sem
gamli maðurinn hefur hælana.
aroi matii c
FORD' I FRÁMT4Ð ,VIÐ SKEIFÚrÍÁ S1MAR;"6896'33'& 685'í‘ifo
Bronco - betur byggður en gengur og gerist. Bíll sem hefur sýnt og
sannað að hann stenst öðrum fremur íslenskar aðstæður. Jafnt á Staðgreiðsluverð
vegi sem í vegleysum geturðu gengið að gæðunum vísum. Ford Afborgunarverð
Bronco, búnaður og þægindi af bestu gerð.
Við lánum allt að 700 þús. til 12 mánaða.
1.348.000 kr.
1.409.000 kr.
MfflH nmrm§m
esset