Morgunblaðið - 16.09.1988, Síða 13

Morgunblaðið - 16.09.1988, Síða 13
B 13 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 1988 MYIMDBÖIMD Sæbjörn Valdimarsson SHE MATES AND SHE KILLS. Eitruð ekkja spennumynd Svarta ekkjan - Black Widow ★ ★ ★ Leikstjóri Bob Rafelson. Handrit Ronald Bass. Kvikmyndatöku- stjóri Conrad L. Hall. Tónlist Michael Small. Aðalleikendur Debra Winger, Theresa Russell, Sami Frey, Nicol Williamson. Bandarísk. 20th Century Fox 1986. CBS/Fox - Steinar 1988þ Hi-Fi. 97 min. Bönnuð yngri en 12 ára. Vönduð, sálræn spennumynd um tvær konur helteknar áráttu. Russ- ell giftist hverjum auðmanninum á fætur öðrum og drepur þá síðan, Winger er lögreglukona sem lætur heillast af henni en á sér þó það æðsta markmið að koma þessari „svörtu ekkju" bak við lás og slá. Það er útaf leiða á aðgerðarleys- inu á skrifstofunni að Winger, starfsmaður hjá Alríkislögreglunni (FBI) í Washington, kemst á spor hugsanlega afkastamikils dráp- kvendis (Russell) sem — ef að líkum lætur — hefur í sig og á með því að giftast auðkýfíngum, veita þeim stundargaman, og drepa síðan. Berst nú leikurinn vítt um Banda- ríkin, Russell drepur, breytir um einkenni, Winger eltir og nær loks kynnum við hina eitruðu ekkju á Hawaiieyjum. Skyldi hún nú reyn- ast ofjarl þeirrar morðglöðu? Svarta ekkjan ber fagmennsku Hollywood gott vitni. Útlit hennar er einstaklega vandað í alla staði, þar sem kvikmyndataka og lýsing snillingsins Conrad Halls rís hæðst. Leikur hinna glæsilegu Russell og Winger er óaðfinnanlegur, kröftug- ur og kynþokkafullur. Milli þeirra byggist spenna, blanda vináttu, hrifningar og kaldra kvennaráða. Síðan springur myndin út á eld- fjallaeyjunni Hawaii. Tónlist Smalls á ekki lítinn þátt í uppbyggingu spennunnar og aukaleikarar flestir góðir. Slakir kaflar í handriti breyta því ekki að hér er um óvenju góða afþreying- ar-spennumynd að ræða, sem á sínum bestu augnablikum minnir jafnvel á verk meistara Hitchcocks. Lævísir laganna verðir gamanmynd Dragnet ★ ★1/2 Leikstjóri Tom Mankiewicz. Handrit Mankiewicz, Alan Zweibel, Dan Aykroyd. Kvik- myndatökustjóri Matthew F. Leonetti. Tónlist Ira Newborn. Aðalieikendur Dan Aykroyd, Tom Hanks, Christopher Plumm- er, Harry Morgan, Alexandra Paul, Dabney Coleman. Bandarísk. Universal 1987. Laugarásbió 1988. Hi-Fi. 102 mín. Bönnuð yngri en 12 ára. Þó svo að Dragnet teljist hrein- ræktuð gamanmynd þá er hug- myndin að henni fengin úr sam- nefndum sjónvarpsþáttum sem voru hinsvegar grafalvarlegir og að auki fyrstu lögregluþættimir sem nutu virkilegrar virðingar áhorfenda vestan hafs. Blómaskeið þeirra var á sjötta áratugnum og eru kana- sjónvarpsneytendum eflaust minn- isstæðir. En hér kemur útgáfa gárungans Aykroyd sem hér fer með hlutverk frænda lögreglumannsins Webb, stjömu sjónvarpsþáttanna. Það háir honum ekki skopskynið og fylgir eftir bókstafnum fram í rauðan dauðann. Þetta á illa við hinn nýja félaga hans, Hanks, sem er kæm- leysið uppmálað og telur Aykroyd með leiðinlegri mönnum á jarðríki. En síðan koma til skjalanna mörg, slæm mál sem snerta djöfla- trúarhyski, víðfrægan prédikara, klámkóng, fegurðardís, borgardóm- ara Los Angelesborgar, ofl., ofl. Og fyrr en varir vita þeir félagar ekki hvað snýr upp né niður. En á lævísan máta leysa þeir málin. Hér em góðir kraftar að verki. Mankiewicz reyndar nýliði bak við tökuvélamar, en kominn af af- bragðs kvikmyndagerðarfólki og vanur handritshöfundur. Það er þó veikasti punktur myndarinnar, sem á hreint bráðfýndna spretti en lekur þess á milli niður í flatneskju. En Aykroyd hefur aldrei verið betri en þverhausinn og leiðindaskarfurinn Friday og Hanks gerir það sem hægt er úr heldur slakri mllu. Köfl- ótt en ekki leiðinleg og aukaleikar- amir flestir stórgóðir, einkum Plummer. Dustað af brimbrettunum gamanmynd Á ströndinni — Back to the Beach ★*/2 Leikstjóri Lyndall Hobbs. Hand- rit Peter Krikes, o.fl. Tónlistar- umsjón Becky Mancuso. Aðal- leikendur Frankie Avalon, Ann- ette Funicello, Connie Stevens, Lori Louglin, Tommy Hinkley. Gestahlutverk: Edd Byrnes, Pee-Wee Herman, Bob Denver, ofl. Bandarísk. Paramount 1987. Háskólabíó 1988. H-Fi. 89 mín. Öllum leyfð. Þeir í Hollywood hafa ömgglega eiphvemtíma fengið betri hugmynd í kollinn en að gera framhald af b-myndum, gerðum af einu blank- asta fyrirtæki kvikmyndaborgar- innar fyrr og síðar, American-Int- emational, og kölluðust „strand- myndir". Og vér, táningar þess tíma, börðum augum í Skúlagötu- bragganum, fyrst og fremst til að njóta hinnar eftirsóknarverðu Kali- fomíusólar í hálfan annan tíma. En það er ekki sama hver hugmynd- imar fær, framleiðandi Á ströndinni er sonur eins helsta ráðamanns Paramount. Nú halda þau Frankie, sem eytt hefur síðustu áratugunum sem bfla- söiumaður í Ohio, og Annette í frí með viðkomu í Los Angeles, þar sem allt grínið fór fram í gamla daga. Eru orðin foreldrar tveggja táninga sem eru fjarri því að vera sömu englamir og foreldramir voru á þeirra aldri. Meiningin hefur bersýnilega ver- ið að gera góðlátlegt grín að strand- myndunum slöppu, það tekst engan veginn nógu vel, þó svo að gömlu biýnunum, Frankie og Annette, farist oft ágætlega að skopast að ímynd sinni. Það má segja að sama vandamál plagi þessa framleiðslu og forvera hennar á sjöunda ára- tugnum — slakt handrit. Hinsvegar má hafa nokkurt gaman að hug- myndinni, nokkmm söng- og dans- atriðum og þá era gestaleikaramir þokkalegir, einkum og sérflagi Pee-Wee Herman. Samtök íslenskra myndbandaleiga: VINSÆLUSTU MYNDBÖNDIN 1. ( 1) Hentu mömmu af lestlnnl ....... (Háskólabíó) 2. ( 7) Prlncess Brlde .............. (J.B. Heildsala) 3. ( 6) KaariSðll .................. (Háskólabíó) 4. ( 5) Nornlrnarfrá Eastwlck .......... (Steinar) 5. (—-) Dragnet .................... (Laugarásbíó) 6. ( 2) NoWayOut ........................ (Skífan) 7. (—-) BlackWldow ..................... (Steinar) 8. ( 4) Revenge of The Nerds 2 ......... (Steinar) 9. ( 8) SummerSchool ................ (Háskólabíó) 10. (15) EyeofTheTlger .................. (Myndbox) 11. ( 3) The Bourne Identlty ................. (Steinar) 12. ( 9) Some Kind of Wonderful ........... (Háskólabíó) 13. (14) Three For The Road .................. (Steinar) 14. (18) MaidtoOrder ......................... (Steinar) 15. (11) TheSqueeze .......................... (Steinar) 16. (16) Full Metal Jacket ................... (Steinar) 17. (12) The Plck-Up Artlst .................. (Steinar) 18. (—-) QuletCool ............................ (Skífan) 19. (-—) Amazlng Stories 5 (Laugarásbió) 20. (10) Wlndmlllsof theGods ............ (J.B. Heildsala) í svigunum er það sæti sem myndbandið var í vikunni á undan og (—) merkir að myndbandið er nýtt á listanum. mwwi Biomberq Þurrkarar og þvottavélar Þú færð ekki glæsilegri samstæðu. Hagstæð kjör Einar Farestveit & Co .hf. ■OeOARTUM M, SlMAR. (•<) IMM OO UMM - NRO RtLAST/SW Leið 4 stoppar viö dymar Betri heilsa með góöum vítamínum I Tóró 25 eru 15 vítamín og 10 steinefni í réttum hlutföllum. Eitt hylki gefur fullan dag- skammt allra helstu vítamína og"steinefna. Tóró 25 er e.t.v. besta fáanlega fjölvítamínið, hvað varðar verð og gæði. TÓRÓ HF Siöumúla 32. 108 Reykjavik o 686964 KAUPÞING HF Húsi verslunarinnar, sími 686988 U, ið innleysum spariskírteini ríkissjóðs viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Seljum ný spariskírteini ríkissjóðs, sem bera 7-8% vexti umfram verðbólgu. Veitum alhliða sérfræðiráð- gjöf á sviði fjármála. > /a V-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.