Morgunblaðið - 18.09.1988, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. SEPTEMBER 1988
Mazursky, sem vann líka með
Dreyfuss við gerð „Down and Out
in Beverly Hills“ árið 1986, segir
að hugmyndin að „Moon Over
Parador" hafi komið upp þegar
hann einn daginn, skömmu eftir
að„Down and Out“ var frumsýnd,
lenti í hrókasamræðum um góðar
hugmyndir í slæmum myndum.
Einhver minntist á myndina „The
Magnificent Fraud“ frá 1939 með
Akim Tamiroff í hlutverki gerviein-
ræðisherra í s-amerísku landi.
Skömmu síðar voru Mazursky
og Leon Capetanos, sem gert hef-
ur handritið að Mazursky-myndun-
um„The Tempest", „Moscow ón
the Hudson" og „Down and Out“,
komnir í könnunarferðalág niðrí
Guatemala, El Salvador og víðar. Á
einum stað litu þeir inn á náttúru-
lækningahæli. „Við vissum ekki
hvort við ætluðum að gera mynd
um heilsuhæli eða einræðisherra,"
segir leikstjórinn.
Þegar þeir um síðir duttu niður
á hugmyndina um mikilvægi hjá-
konu einræðisherrans — Sonia
Braga leikur hana í myndinni —
fannst þeim söguþráðurinn loksins
virka. „Þetta er saga um atvinnu-
iausan leikara í frábæru hlutverki
sem erfir hjákonu," segir Mazur-
sky. „Það er miklu meira spunnið
í hjákonuna en halda mætti því hún
er mjög metnaðargjörn."
Og áfram heldur Mazursky:
„Hugmyndin að baki myndarinnar
er ekki alveg úr lausu lofti gripin.
Spænskur blaöamaður sagði mér
eftir aö hafa séð myndina að
síöustu ár Francos hafi sá orðróm-
ur verið á kreiki að hann væri í
raun dauður og þeir hefðu sett leik-
ara á svalirnar."
Næsta vor ætlar Mazursky að
kvikmynda söguna Óvinir eftir Is-
aac Bashevis Singer. Handritið
gerir Mazursky sjálfur og Roger
Simon, höfundur spennusagna, en
Singer-sagan greinirfrá manni sem
lifir af Helförina í Póllandi. Hann
telur konu sína látna og kvænist
pólskri bóndakonu sem bjargaði
honum með því að fela hann í hlöð-
unni hjá sér. Eftir stríðið flytja þau
til Coney Island og hann hittir
reglulega hjákonu en kemst svo
að því að fyrri konan hans er á lífi.
„Allt í einu finnur hann sig í þeirri
stöðu að vera eiginlega giftur
þremur konum á sama tíma," seg-
ir Mazursky.
„Ég hef ver-
ið myrtur“
Myrka og stormasama nótt eina
í desember staulast maður inná
lögreglustöð og stynur uppúr sér
að hann vilji tilkynna morð. Þegar
syfjulegur vaktmaðurinn spyr hver
hafi verið myrtur segir prófessor
Dexter Cornell (Dennis Quaid):
-Ég.“
Cornell hefur verið byrlað eitur
og hann á ekki nema 24 stundir
eftir ólifaðar til að komast að því
hver hefur bruggað honum þvílík
banaráð. Með aöstoð eins nem-
anda síns (Meg Ryan) reynir hann
í örvæntingu að finna svar við
spurningunni: „Hver skyldi vilja
myrða mig?“
Þannig er upphafið á sakamála-
myndinni „DOA“, sem sýnd verður
á næstunni í Bíóborginni. Hún er
lauslega byggð á samnefndri mynd
frá 1949 og leikstýrt af Bretunum
Rocky Morton og Annabel Jankel
eftir handriti Charles Edward
Pogue (Flugan). Með hlutverk auk
Quaids og Ryans fara Daniel Stern
og sú ágæta Charlotte Rampling.
Það var framleiðandinn Laura
Ziskin sem fékk upphaflegu hug-
myndina að endurgerð „DOA".
„Eg sá frummyndina í sjónvarpinu
þegar ég var krakki og ég gleymdi
henni aldrei. Hugmyndin um mann
sem reynir að leysa gátuna að
Ryan og Quaid.
baki morðsins á sjálfum sér var
heillandi," segir hún.
„DOA“ er fyrsta bíómyndin sem
Morton og Jankel leikstýra en þau
hafa getið sér frægðar fyrir að leik-
stýra myndbandahetjunni „Max
Headroom".
Dennis Quaid undirbjó sig undir
hlutverk hins dauðadæmda m.a.
með því að lesa bækur um dauð-
ann og hvernig dauövona fólk
bregst við honum. „Þetta er mjög
ólíkt öðrum hlutverkum sem ég hef
haft,“ segir hann. „Dexter verður
að fást við heilmikla sjálfskoðun á
stuttum tíma og það fannst mér
mjög athyglisvert."
Jane Alexander.
verðlaun. Cacoyannis fær oft til
liðs við sig leikara frá öllum heims-
hornum — í Voru föðurlandi eru
aöalleikararnir frá fjórum löndum.
Vort föðurland segir frá banda-
rískri konu (Alexander) í ónefndu
landi í S-Ameríku sem verður mik-
ilsmetin meðlimur í neðanjarðar-
hreyfingu þegar forseta landsins
er steypt af stóli við valdarán hers-
ins. Vinkona hennar er handtekin
ásamt þúsundum annarra, henni
er misþyrmt og hún niðurlægð
áður en henni er sleppt aftur og
neðanjarðarhreyfingin ákveður að
reyna að smygla henni úr landi.
HAUST/VETUR '88/'89
Haust- og vetrarlínan
frá Jil Sander er komin
CLARA Kringlunni
CLARA Laugavegi 15
SARA Bankastræti 8
MIRRA Hafnarstræti 17
NANA Völvufelli 15
NANA Lóuhólum 2-6
SNYRTIHÖLLIN Garðabæ
LIBIA Laugavegi 35
GJAFA- OG SNYRTIVÖRUBÚÐIN
Suðurveri
ANNETTA Keflavík
BYLGJAN Hamraborg 14
BYLGJAN Laugavegi 76
SACHS
KÚPUNGSPRESSUR
KÚPUNGSDISKAR
KÚPUNGSLEGUR
Fyrir flestar tegundir
evrópskra og japanskra
fólks- og vörubifreiða.
Útvegum í allar helstu tegundir
fólks- og vörubifreiða.
Þekking Reynsla Þjónusta
FÁLKIN N
SUOURLANDSBRAUT 8. SIMI 84670
Adam Horovitz leikur strékinn í nýjustu mynd Hugh Hudsons.
Hugh Hudson gerir
bandaríska bíómynd
Það hefur ekkert heyrst til Hughs
Hudsons í þrjú ár. Hann gersamlega
hvarf sjónum manna eftir að Byltingin
(Revolution) var frumsýnd í desember
1985, en það ku vera eitt mesta fjár-
hagslega flopp f sögu breskrar kvik-
myndagerðar. En aðeins þrem árum
áður var hann mikið dáður. Það var
þegar hann geröi Eldvagnana (Chari-
ots of Fire) sem fór sem eldur um
sinu um gjörvalla heimsbyggðina. Og
stuttu síðar gerði hann annað meist-
araverk, myndina um Tarzan apa-
bróður. Sú mynd kostaði mikla pen-
inga en skilaði gróða og fékk góða
gagnrýni. En nú er að rofa aftur til í
lífi Hughs Hudsons. Hann er staddur
vestur í Bandaríkjunum og er að
leggja síðustu hönd á nýja mynd sem
lítið hefur verið fjallað um í fjölmlðlum
hingað til.
Myndin gerist í Bandaríkjunum.
Hún fjallar um Tim, unglingsstrák
sem fer illa út úr skilnaði foreldra
sinna og leiðist úr í vafasamt líf á
meðal stráka sem hafa það að lifi-
brauði að stela og ræna öllu sem
hönd á festir. Strákinn Tim leikur
nýgræðingur í bíómyndum, Adam
Horovitz. Síðan þróast sagan út í það
að Tim er tekinn til fanga af lögregl-
unni og honum komið fyrir á eins
konar unglingaheimili. Þar kemst
hann í hendur sálfræðingsins Loftis,
sem Donald Sutherland leikur.
„Þessi mynd er öðru vísi en allar
aðrar myndir sem gerðar hafa verið
um unglinga og vandamál þeirra,"
segir Hugh Hudson. „Ég forðast eins
og heitan eldinn gömlu lummurnar
um eigingjörnu foreldrana. Mig hefur
alltaf langað til að gera kvikmynd i
Bandaríkjunum, gera bandaríska bíó-
mynd. Ég er mjög hrifinn af þessu
stóra landi, því hér kljást menn við
vandamál af svo stórri gráðu að það
hreinlega heillar mig upp úr skónum."
Hudson varð einnig að ósk sinni
þegar hann fékk til liðs við sig Mich-
ael Weller, sem er frægur og virtur
handritshöfundur. Hann hefur m.a.
skrifað handritið að „Hárinu" og
„Ragtime" sem Milos Forman gerði.
Þeir heimsóttu stofnanir þar sem
vandræðaunglingar eiga heima, þeir
ræddu við unglinga og ungt fólk sem
lent hafði upp á kant við þjóðfélagið,
áður en þeir fóru að skrifa sjálft hand-
ritið.
„Án þessa undirbúnings hefðum
við ekki geta skrifað handritið. Við-
fangsefni okkar er eldfimt og því er
vissara að fara varlega í sakirnar. Þar
aö auki þekktum viö ekki of vel til
þess áður en undirbúningurinn hófst,
enda þótt við hefðum mikinn áhuga
á því," segir Hudson.
Adam Horovitz sem leikur strákinn
hefur ekkert leikið í bíómyndum áður,
engu að síður er hann vanur að koma
fram opinberlega, því hann stofnaði
rokkgrúppuna „The Beastie Boys",
en þeir sérhæfðu sig í þvi að móðga
áhorfendur með miður vingjarnlegri
framkomu. Hann ætti því ekki að
lenda í neinum erfiðleikum með að
túlka vandræðagemlinginn Timl