Morgunblaðið - 07.10.1988, Blaðsíða 1
VIKUNA 8. - 14. OKTOBER
PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS
FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1988
BLAÐ
Ævi og ástir
kvendjöfuls
Á mánudag hefur Sjón-
varpiö sýningu á breskum
myndaflokki gerðum eftir
sögu Fay Weldon. Mynd-
in er í fjórum þáttum og
er annar þáttur á dagskrá
á miðvikudag. Myndin seg-
ir frá Ruth sem er frekar
stórskorin kona og manni
hennar Bobbo. í starfi sínu
kynnist Bobbo konu sem
hefur allt til að bera til að
gera menn ástfangna af
sér. Hún heitir Mary Fisher
og Bobbo verður ástfang-
inn af henni. Þrátt fyrir
þetta fullvissar Bobbo hina
fyrirferðarmiklu konu sína
um að hann muni aldrei
yfirgefa hana og Ruth von-
ar að þetta ástarsamband
muni taka enda. En einn
daginn þolir hún ekki meir
og segir tengdaforeldrum
sínum hvernig komið er.
Bobbo verður ákaflega
reiður, segir hana varla
vera kvenmann, eiginlega
sé hún bara kvendjöfull.
Hann yfirgefur hana og fer
að búa með hinni fallegu
Mary. í bræði sinni ákveð-
ur Ruth að sýna honum
hvernig kvendjöfull sé og
byrjar að undirbúa hefnd á
hendur þeim skötuhjúum.
Stöð 2
tveggja
ára
í tilefni tveggja ára afmælis
Stöövar 2 á sunnudag verður
sýnd heimildarmynd sem Marí-
anna Friðjónsdóttlr hefur
gert. Myndin fjallar um starf-
semi stöðvarinnar á þessum
tveimur árum.
Konungur
Ólympíuleikanna
Á miðvikudag hefur Stöö 2 sýningu á myndinni Konungur
Ólympíuleikanna. Myndin er byggð á sannsögulegum atburðum
og er sýnd í tveimur hlutum, seinni hluti hennar verður sýndur
sunnudaginn 16. október. Myndin lýsir ævi íþróttamannsins Avery
Brundage sem átti stóran þátt
í að endurvekja Ólympíuleikana
eftir fyrri heimsstyrjöldina.
Seinna meir varð hann yfirmað-
ur bandarisku ólympíunefndar-
innar. Ungur að árum setti
Avery stefnuna á Ólympíuleik-
ana og þrátt fyrir nærsýni sem
háði honum náði hann því tak-
marki. Avery var ekki við eina
fjölina felldur í ástamálum og
eignaðist hann t.d. tvo syni með
hjákonu sinni.
David Selby.
Veteardagskrá
Meðal fjölmargs nýs efnis á vetrardagskrá Ríkisútvarpsins má
nefna þáttinn Kviksjó, þar sem fjallað verður um það sem er efst
á baugi í listum og menningu hérlendis og erlendis með gagn-
rýni, kynningum, umræðum og viðtölum. Umsjónarmenn þátt-
anna, sem eru á dagskrá fjóra daga vikunnar, þriðjudaga til föstu-
daga kl. 19.35, eru Friðrlk Rafnsson og Halldóra Friðjóns-
dóttír.
Alla mánudaga til fimmtudaga eru á dagskrá fjórir þættir sem
hafa að markmiði upplýsingamiðlun til almennings um tiltekin efni.
Á mánudögum fjallar Slgrún Björnsdóttir um líf, starf og tóm-
stundir eldri borgara i þætti sem nefnist Dagmðl. Á þriðjudögum
gefur Sigríöur Pótursdóttlr hlustendum holl ráð varðandi heimil-
ishald í þættinum í pokahorninu og á miðvikudögum er hún
einnig með þáttinn íslenskur matur, þar sem kynntar eru gaml-
ar íslenskar mataruppskriftir sem safnað hefur verið í samvinnu
við hlustendur og samstarfsnefnd um þessa söfnun. Á fimmtudög-
um svarar svo Hafsteinn Hafliöason fyrirspurnum hlustenda
um garðagróður og pottablóm í þættinum í garölnum. Þættirnir
eru á dagskrá kl. 9.30.
í þættinum í llöinni vlku skiptast þau Páll Heiöar lónsson
og Sigrún Stefánsdóttlr á um að líta yfir atburði liðinnar viku
í svolítið öðru Ijósi en gert er af fréttamönnum. Þátturinn er á
dagskrá á laugardögum kl. 11.05. f honum verða kvaddir til þrír
viðmælendur og þeir beðnir að láta í Ijós álit sitt á viðburðum lið-
innar viku, bæði á innlendum og erlendum vettvangi.
Þetta eraðeins lítil upptalning
á því efni sem útvarpið býður
hlustendum sínum upp á í vetur
en stefnt er að því að hlustend-
ur geti gengið að því vísu hvað
sé á dagskrá útvarpsins á hverj-
um tíma dagsins, þ.e. að hafa
svipað efni á dagskrá á sömu
tímum.
Sjónvarpsdagskrá bls. 2-12
Útvarpsdagskrá bls. 2-12
Hvað er að gerast? bls. 3/5
Stjömugjöf bls. 10/11
Friörik Rafnsson og Halldóra Friðjónsdóttir.
Vinsælustu myndböndin bls. 11
Quðað á skjáinn bls. 11