Morgunblaðið - 07.10.1988, Qupperneq 3
B 3
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1988
Rás 1:
Tónskáldið P.D.Q. Bach
■■^■1 í dag flytja þeir Trausti Jónsson, Hallgrímur Magnússon
1 qio og Asgeir Sigurgestsson þátt á Rás 1 um bandaríska tón-
lö skáldið og spaugarann Peter Schickele sem samið hefur
tónlist undir nafninu P.D.Q. Bach. Þátturinn nefnist Tónskáldið sem
gleymdist — og átti það skilið. Að sögn átti P.D.Q. Bach að vera
21. bam Johanns Sebastians Bachs. Hann fékkst við tónsmíðar eins
og aðrir synir meistarans en þótti takast heldur óhönduglega. Var
helst til hans leitað ef ástæða þótti til að koma þaulsætnum gestum
úr húsi, enda gafst það yfírleitt vel. P.D.Q. Bach samdi oft tónlist
fyrir óvanalegar raddir og hljóðfæri svo sem afsláttarkontratenór,
vindbijóta og hjólapumpur. Peter Schickele, höfundur að ævisögu
og tónlist P.D.Q. Bachs er prófessor í tónlistarfræðum við tónlistar-
skóla í New York en hefur fengist við þessa iðju sína í frístundum
um langt árabil. Þátturinn í dag er nú endurtekinn og er þetta sá
síðari af tveimur.
Bestu kveðjur
■ Á Rás 1 í kvöld verð-
35 ur þáttur sem ber
”“ yfírskriftina Bestu
kveðjur, en þetta eru bréf frá
vini til vinar. Um er að ræða
fyrsta bréfið af mörgum frá
ungri konu sem skrifast á við
sér eldri mann um lifið og tilver-
una og ekki ólíklegt að það sem
þar er sagt varpi ljósi á sam-
skipti kynja og kynslóð. Þórunn
Magnea Magnúsdóttir semur og
flytur ásamt Róbert Amfínns-
syni. Þátturinn verður endurtek-
inn á mánudagsmorgun.
Þórunn Magnea Magnúsdóttir.
KVIKMYNDIR
HRÓI OG MARÍANNA
m STÖÐ 2 —
91 35 HRÓI OG
MAR-
IANNA (Robin and
Marian — 1976).
Frumsýning. Hrói
höttur og Litli Jón eru
komnir aftur til Sher-
wood-skógar, til fé-
laga sinna sem áður
fyrr hjálpuðu þeim að
ræða hina ríku til
bjargar þeim fátæku.
Hrói fer að heimsækja
Maríönnu, sem er orð-
in nunna en boð ber-
ast frá konungi um
að klaustrið skuli burt úr sveitinni. Hrói bjargar Maríönnu úr klaustr-
inu og ástin á milli þeirra kviknar á ný. Hrói og félagar hans ákveða
að beijast á móti konungsmönnum og þrátt fyrir að aldurinn sé
farinn að segja til sín hjá Hróa á hann von á að geta unnið einn
sinn mesta sigur á ævinni. Aðalhlutverk: Sean Connery, Audrey
Hepbum og Robert Shaw. Leikstjóri: Richard Lester. Scheuers gefur
myndinni ★ ★ ★.
BARÁTTA EDA BRÆÐRALAG
Hrói höttur og
Jón.
mmmm sjónvarpið -
99 50 Barátta eða
bræðralag (Benny’s
Place — 1982). Benny hefur
unnið á sama stað í yfír 17 ár,
á verkstæði sem honum fínnst
hann orðið eiga. Hann á fáa
vini og hefur engin áhugamál.
Vinnan er honum allt. Hann
verður fyrir árás ungra bófa,
sem hann að vísu kemst léttilega
undan en er yfirmaður hans bið-
ur hann að taka að sér lærling
til að Iétta honum störfín, finnst
honum hann hafa vemð niður-
lægður og ákveður að endur-
skoða líf sitt. Aðalhlutverk: Louis Cossett jr. og Cicely Tyson. Leik-
stjóri: Michael Schultz. Scheuers gefur ★ ★ ★.
Louis Cossett jr. leikur Benny.
KRYDD I TILVERUNA
■■ STÖÐ 2 — Krydd í tilveruna (A Guide for the Marri-
9 A 00 ed Man — 1967). Frumsýning. Paul Manning er hamingju-
“ samlega giftur maður sem fær þá hugdettu að fara að
halda fram hjá eiginkonu sinni. Nágranni hans Ed Stander, sem er
kvensamur í meira lagi, býðst til að hjálpa honum. Aðalhlutverk:
Walter Matthau, Inger Stevens, Robert Morse, Sue Anne Langdon,
Lucille Ball, Jack Benny, Art Carney, Joey Bishop, Sid Ceasar, Jayne
Mansfield, Terry-Thomas o.fl. Leikstjóri: Gene Kelly. Scheuers gefur
★ ★ ★.
BLÓÐUG SÓLARU PPRÁS
STÖÐ 2 — Blóðug sólarupprás (Red Dawn — 1984).
Er Rússar gera innrás inn í Bandaríkin flýja nokkur ung-
menni til fjalla og reisa sér byrgi þar. Scheuers gefur ★ ★.
HVAÐ
ER AÐO
GERAST (
Söfn
Árbæjarsafn
Árbæjarsafn er opið eftir samkomuiagi.
Hægt erað panta tíma ísima 84412.
Ámagarður
i Árnagarði er handritasýning þar sem
má meðal annars sjá Eddukvæði, Flateyj
arbók og eitt af elstu handritum Njálu.
Ásgrímssafn
Ásgrimssafn við Bergstaðastræti er opið
þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga og
sunnudagakl. 13.30—16.00.
Ásmundarsafn
i Ásmundarsafni er sýningin Abstraktlist
Ásmundar Sveinssonar. Þar gefur að líta
26 höggmyndirog 10 vatnslitamyndir
og teikningar. Sýningin spannar 30 ára
tímabil af ferli Ásmundar, þann tíma sem
listamaðurinn vann að óhlutlægri mynd-
gerð. í Ásmundarsafni er ennfremur til
sýnis myndband sem fjallar um konuna
í list Ásmundar Sveinssonar. Þá eru til
sölu bækur, kort, litskyggnur, myndbönd
og afsteypur af verkum listamannsins.
Safnið er opið daglega frá kl. 10 til 16.
Hópar geta fengið að skoða safnið eftir
umtali.
Listasafn Einars
Jónssonar
Listasafn Einars Jónssonar er opið alla
laugardaga og sunnudaga frá kl.
13.30— 16.00. Höggmyndagarðurinn er
opinn daglega frá kl. 11.00—17.00.
Listasafn íslands
I sölum 1 og 2 stendur nú yfir sýning á
íslenskum verkum í eigu safnsins. Eru
þar sýnd verk eftirÁsgrím Jónsson,
Gunnlaug Scheving, Jóhannes S. Kjarv-
al, Jón Engilberts, Jón Stefánsson JNÍnu
T ryggvadóttur, Snorra Arinbjarnar og
Þorvald Skúlason. Á sunnudag fer fram
i fylgd sérfræðings leiösögn um sýning-
una og hefst hún kl. 13.30.
Leiösögnin „Mynd mánaöarins" ferfram
áfimmtudögum kl. 13.30. Myndoktóber-
mánaðar er eftir Ásgrím Jónsson: Sumar-
kvöld (Öræfajökull), vatnslitamynd frá ár-
inu 1912.
I fyrirlestrarsal (sal nr. 5) í kjallara safns-
ins verða eftirfarandi myndbandssýning-
ar: Sunnudagur: Kl. 11—13. Syrpa, 11
íslenskir myndlistarmenn. Sjónvarpið
1986. Þriðjudagur: Skáld hlutanna, mál-
ari minninganna. Lpuisa Matthíasdóttir.
Listmunahúsiðog (sfilm. Miövikudagur:
Galdurinn og leikurinn. Fjórir ungir mynd-
listarmenn. Sjónvarpið 1986. Fimmtu-
dagur: Ásgrimur Jónsson málari. Sjón-
varpiö 1984.
Listasafn (slands er opið alla daga, nema
mánudaga, kl. 11 — 17. Aögangur að sýn-
ingunum er ókeypis, svo og auglýstar
leiðsagnir. Veitingastofa hússins er opin
ásamatima.
Ustasafn Háskóla
íslands
f Listasafni Háskóla íslands i Odda eru
til sýnis 90 verk í eigu safnsins. Lista-
safnið er opið daglega kl. 13.30— 17 og
er aögangur ókeypis.
Minjasafnið Akureyri
Minjasafnið á Akureyri ertil húsa við
Aöalstræti 58. Safnið er opið á sunnu-
dögumfrákl. 14—16.ÁMinjasafninu
má sjá ýmis konar verkfæri og áhöld sem
tengjast daglegu lífi fólks áðurfyrrtil sjáv-
ar og sveita. Einnig er margt muna sem
sýna vel menningu og listiðnaö islenska
sveitasamfélagsins s.s. tréútskurður, silf-
urmunir, vefnaðurog útsaumur. Einnig
er á safninu úrsmíða-, skósmíða- og
trésmíðaverkstæði frá fyrri tíð. Þá má
nefna gamla kirkjumuni s.s. bænhús-
klukku frá því um 1200. Á minjasafninu
er einnig hægt að skoða gamlar Ijós-
myndir og á lóð safnsins stendur gömul
timburkirkja frá árinu 1876.
Myntsafnið
Myntsafn Seðlabanka/Þjóöminjasafns er
í Einholti 4. Þar er kynnt saga íslenskrar
peningaútgáfu. Vöruseðlar og brauð-
peningarfrá siðustu öld eru sýndir þar
svo og orður og heiöurspeningar. Líka
er þarýmis forn mynt, bæði grísk og
rómversk. Safniö er opið á sunnudögum
millikl. 14og 16.
Norræna húsið
I anddyri Norræna húsinu stenduryfir
sýning bandariska málarans L. Alcopleys
á málverkum, grafík og teikningum. Sýn-
ingin stendurtil 9. októberog eropin á
venjulegum opnunartima Norræna húss-
ins, kl. 9—19 á virkumdögum og kl.
12— 19 á sunnudögum.
Póst-og
símaminjasafnið
I gömlu símstöðinni í Hafnarfirði er núna
póst- og símaminjasafn. Þar má sjá fjöl-
breytilega muni úr gömlum póst- og
simstöðvum og gömul símtæki úr einka-
eign. Aðgangur er ókeypis en safnið er
opið á sunnudögum og þriðjudögum
milli klukkan 15 og 18. Hægt er að skoða
safniö á öðrum tímum en þá þarf að
hafa samband við safnvörð i sima 54321.
Þjóðminjasafnið
Þjóðminjasafniö er opið alla daga nema
mánudaga kl. 11.00—16.00. Aögangur
er ókeypis.
Sýningar
íslenskur
heimilisiðnaður
Heimilisiðaðarfélag (slands er 75 ára um
þessar mundir. I tilefni afmælisins erfé-
lagið með sýningu og kynningu á starf-
semi þess í Hafnarstræti 3. Sýningin er
opin á venjulegum verslunartima fram til
15. október. Sýningardagana erfyrir-
hugað að sýna ýmis vinnubrögö sem
kennd eru í Heimilisiönaðarskólanum.
MÍR
Kósakkarnir, sovésk kvikmynd gerð á
sjötta áratugnum eftir samnefndri skáld-
sögu Lévs Tolstojs, verður sýnd í bíósal
Ml'R, Vatnsstíg 10, sunnudaginn kl. 16.
Skáldsagan Kósakkarnir kom út á
islensku í þýðingu Jóns Helgasonar áriö
1961, réttri öld eftir að sagan kom fyrst
út á frummálinu. Kvikmyndin ersýnd í
MÍR núítilefni þess að 160árvoruí
haust liðin frá fæðingu Tolstojs. Aðgang-
ur er ókeypis og öllum heimill meðan
húsrúm leyfir.
Myndlist
FÍM-salurinn
Bergljót Kjartansdóttir opnar sýningu á
málverkum í F(M-salnum, Garðastræti
6,12. október kl. 12. Opið er alla daga
frákl. 14 til 19. Sýningin stenduryfirtil
23. október.
GalleríBorg
í Gallerí Borg, Pósthússtræti 9, stendur
núyfirsýning á verkum Jóns Þórs Gísla-
sonar. Þetta erfjórða einkasýning Jóns.
Á sýningu Jóns Þórs eru olíumálverk og
teikningar. Sýningin stendurtil 18. októ-
berogeropinvirka dagafrákl. 10—18
og um helgarfrá kl. 14—18.
Grafik-Gallerí Borg, Austurstræti 10, er
opið á verslunartima. Á laugardögum og
sunnudögum erlokað. Kjallarinn, Póst-
hússtræti 9, er ávallt opinn um helgar
frákl. 14—18. Þarerúrval mynda yngri
höfunda og mikiö af verkum eldri meist-
ara einsog t.d. eftir Jón Stefánsson,
Ásgrím Jónsson, Jóhannes S. Kjarval,
Kristínu Jónsdóttur, Mugg, Gunnlaug
Blöndal, Gunnlaug Scheving o.fl.
Gallerí Gangskör
Á laugardaginn kl. 16 opnar Anna Gunn-
laugsdóttir málverkasýningu í Galleri
Gangskör, Torfunni. Sýningin eropin frá
kl. 12 til 18 alla virka daga nema mánu-
daga og kl. 14 til 18 um helgar. Sriingin
stendurtil 24. október.
Gallerí Grjót
Eigendur Gallerí Grjóts að Skólavörðustíg
4a eru níu listamenn og sýna þeir verk
sin i galleríinu nú i sumar. Listaverkin
eru margvísleg og má þar nefna mál-
verk, grafík, skúlptúr, teikningar, skart-
gripi, leirmuni, steinmyndirog postu-
línsmyndir. Öll verkin eru til sölu. Galleri
Grjóteropiðvirka daga kl. 12—18.
Gallerí Guðmundar
frá Miðdal
í Galleri Guðmundarfrá Miðdal, Skóla-
vörðustig 43, eru til sýnis og sölu mál-
verk eftir Guðmund Einarsson, Svövu
Sigriði, Guðmund Karl, Hauk Clausen
o.fl. Galleri Guðmundar er opið alla daga
nema sunnudaga kl. 14—18.
Gallerí Kirkjumunir
í Galleri Kirkjumunum, Kirkjustræti 10,
stenduryfir myndasýning. Verkin á sýn-
ingunni eru eftir Sigrúnu Jónsdóttur ofl.
GalleríList
I Galleri List, Skiþholti 50b, stenduryfir
sýning Höllu Haraldsdótturáverkum úr
steindu gleri. Á sýningunni eru einnig
myndir unnar með vatnslitum, fjöðurstaf
og penna. Halla er vel kunn fyrir myndir
sínarúrsteindu gleri enjafnframt hefur
hún unnið með oliulitum, vatnslitum og
gert myndir úr steini. Hún hefur haldið
fjölda einkasýningum hérlendis og er-
lendis. Sýningin stenduryfirtil 9. októ-
ber. Opið eralla virka daga frá kl.
10.30— 18.00 og laugardaga frá kl.
10.30- 14.00.
Gallerí Svart á hvftu
í GalleriSvart á hvítu, Laufásvegi 17, er
sýning Sóleyjar Eiríksdóttur á höggmynd-
um unnum úr steinsteypu og grafíkmynd-
um. Sóley er Hafnfiröingur, fædd 1957.
IHún nam við Myndlista- og handíðaskóla
(slands og lauk þaðan námi árið 1981.
Sóley hefurtekið þátt í fjölda samsýninga
hér á landi og erlendis. Hún hélt síðast
einkasýningu á Kjarvalsstöðum árið
1987. Sýningin er opin álla daga nema
mánudaga frá kl. 14 til 18. Siöasti sýning-
ardagur er 16. október.
(Listaverkasölu gallerisins á efri hæð
eru til sölu verk ýmissa myndlistarmanna
og má m.a. nefna: Karl Kvaran, Georg
Guðni, Hulda Hákon, Helgi Þorgils Frið-
jónsson, Halldór Björn Runólfsson, Guð-
mundur Thoroddsen, Jón Óskar, Jón
Axel, Brynhildur Þorgeirsdóttir, Pétur
Magnússon, Sigurður Guðmundsson,
SigurðurÖrlygsson, Pieter Holstein,
Tumi Magnússon, HalldórÁsgeirsson
og Erla Þórarinsdóttir. Listaverkasalan
eropin á sama tíma og sýningasalur
gallerisins.
Gullni haninn
Áveitingahúsinu Gullna hananum eru
myndir Sólveigar Eggerz til sýnis.
Hafnargallerí
Helgi Jónsson sýnir vatnslitamyndir í
Hafnargalleríi, Hafnarstræti 4, dagana
4. til 15. október. Opið erá verslunartima
og frá kl. 9 til 13 á laugardögum.
Katel
(sal Verslunarinnar Katel er sölusýningu
á plakötum og eftirprentunum eftir
Chagall. Salurinn ertil húsa að Lauga-
vegi 29 (Brynju-portið). Sýningin er opin
virkadaga kl. 10—18.
Kjarvalsstaðir
Á Kjarvalsstöðum standa nú yfir þrjár
sýningarsem hafa staðið frá 17. septem-
ber, og lýkur nú um helgina. I vestursal
og á vesturforsal eru tvær sýningar í
gangi: Hallsteinn Sigurðsson sýnir mál-
aða skúlptúra úr málmi, og er bæði um
að ræða verk sem hvíla á stöllum, eru
sett á vegg og svonefnd svifverk. Ása
Ólafsdóttir sýnir myndvefnað og eru
mörg þeirra unnin úr islenskri ull. (austur-
sal eru sýnd grafíkverk frá Tamarind
stofnuninni i Bandaríkjunum. Þessi verk
eru úrval af verkum ýmissa listamanna,
sem starfað hafa við stofnunina í gegnum
Ekkert
blávatn
Dauer
léttöl