Morgunblaðið - 07.10.1988, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1988
B 5
Stöð 2:
Heimaerbest
n stöð 2
50 frumsýnir í
" kvöld
myndina Heima er
best (How Green was
my Valley) frá árinu
1941. Myndin hlaut
fímm Óskarsverðlaun
árið 1942, m.a. sem
besta kvikmyndin,
fyrir leikstjóm, fyrir
kvikmyndatöku og
fyrir aukahlutverk
leikarans Donalds
Crisps. Myndin segir
frá lifí ijölskyldu
nokkurrar í kola-
námubæ i Wales.
Fimm bræður vinna
ásamt föður sínum í
námu en yngsti bróð-
irinn er heima og
hjálpar móður sinni
og systur við heimilis-
störfín. Það er hann sem segir söguna og lýsir hann lífí flölskyldu
sinnar er hann var ungur drengur. Aðalhlutverk: Walter Pidgeon,
Maureen O’Hara og Roddy MacDowall. Leikstjóri: John Ford. Kvik-
myndahandbók Scheuers gefur myndinni ★★★★.
Úr myndinni Heima er best.
Stöö 2:
A la carte
■■■1 Skúli Hansen hefur tekið aftur til starfa á Stöð 2 og byij-
1£35 ar nú á ný matreiðslu fyrir þáttinn A la carte. í þættinum
í dag, semer fyrsti þátturinn verðaþessir réttir matreiddir:
Ferskt grænmetissalat
með Pasta í jógúrtsósu (fyrir 4)
Til suðu: */a lítri vatn, Mazola komolía. 5—6 mínútna suða.
Salat: V4 jöklasalat, V4 agúrka, 2 tómatar, 1 gul paprika
Sósa: 1 dl Helmena létt majones, 1 dl. jógúrt (Baulu melónujógúrt).
Krydd: Mardas kariý, Mango chutney, Tandoori.
Eggnúðlur og pönnukökur
fylltar með ýsu á hvítlaukssósu (fyrir 4)
V2 pakki eggnúðlur
TU suðu: V2 lítri vatn, Mazola komolía. 5—6 mínútna suða.
Pönnukökudeig: 120 gr hveiti, 120 gr Maizina-mjöl, 1 egg, mjólk.
Hráefni: 400 gr ýsuflök, roðrifin og hreinsun, 100 gr ferskir svepp-
ir, 75 gr blaðlaukur, 1 dl ijómi.
Krydd: Hvítlaukur, salt og pipar.
Sjónwarpið:
Töfraglugginn
■■■■ í Töfraglugganum í Sjónvarpinu i dag fer Bella í beija-
1 O 00 tínslu en einnig fer hún niður í Qöm og fínnur þar ýmis-
A O “ legt fróðlegt. A milli þess sem Bella dundar sér sýnir hún
nokkrar teiknimyndir. Litla engisprettan missir fíðluna sína dýrmætu
ofan í kontrabassa en fínnur leið til að ná í hana. Rubba er eitthvað
umhugað um sólina þessa dagana og Kári köttur og félagar leika
sér með flugdreka. Teskeiðarkerlingin minnkar í dag eins og venju-
lega og franski lögregluforinginn Clousseau leysir sakamál; hann
leitar að týndum demant fyrir vellauðuga konu. Högni Hinriks dreym-
ir draum sem fylgst verður með. Svo opnast Myndaglugginn með
mörgum fallegum teikningum.
Rás 2;
Ástarsögur afhjúpadar
■■B í Útvarpi
OA30 ungafólks-
insáRás2
í dag sér Sigríður
Amardóttir um þátt
sem nefnist Astarsög-
ur afhjúpaðar. Þetta
er fyrsti þáttur Sigríð-
ar en í næstu þáttum
Útvarps unga fólks-
ins, sem verða á dag-
skrá á sama tíma á
sunnudags-, mánu-
dags-, þriðjudags- og
fímmtudagskvöldum
Sigríður Amardóttir og samstarfsmenn
hennar Þórdís Valdimarsdóttir og Atli
Rafn Sigurðsson.
verða ýmis mál tekin fyrir; má t.d. nefna kynningu á skólalífi um
allt land, fræðslumola um námstækni, íþróttir, líkamsrækt og keDpn-
isgreinar, stjómmál, leikrit, listir og óvænt ævintýraleg atvik. Vem-
harður Linnet sér um þættina á virkum dögum en Sigríður á sunnu-
dögum.
HVAÐ
ERAÐ
GERAST?
árin. Sýningarnar eru opnar alta daga frá
kl. 14 til 22 og er síðasti sýningardagur
á sunnudag.
Krókur
I Gallerí Krók sýnir Daníel Þorkell Magn-
ússon myndverk. Krókur er að Laugavegi
37 og er opinn á verslunartíma.
Nrtján
Sýningarsalurinn Nitján er til húsa í bak-
húsi að Selvogsgrunni 19 í Reykjavik.
Þar sýnir Mússa 17 vatnslitamyndir frá
síðustu þremur árum. Þetta er þriðja
einkasýning Mússu en áður hefur hún
sýnt collage-myndir í Reykjavík og coll-
age- og vatnslitamyndir í Þýskalandi.
Sýningin er opin kl. 17—19 alla daga og
stendurtil9.október.
Nýhöfn
Á laugardaginn opnar Borghildur Óskars-
dóttir sýningu í Nýhöfn, Hafnarstræti 18.
Á sýningunni eru 11 verk unnin i leir og
glerá þessu ári. Þetta erfjórða einkasýn-
ing Borghildar en hún hefur einnig tekið
þátt í fjölda samsýninga hér heima og
erlendis. Sýningin, sem er sölusýning,
er opin virka daga frá kl. 10 til 18 og um
helgarfrákl. 14 til 18. Sýningunni lýkur
26. október.
Nýiistasafnið
f Nýlistasafninu, Vatnsstig 3b, stendur
yfir sýning á verkum Dagmar Rhodius.
Dagmar Rhodius er vestur-þýsk mynd-
listarkona. Hún hefur áður sýnt á Islandi,
i Nýlistasafninu árið 1983 og síðan þá
hefur hún komið á hverju sumri og ferð-
ast um landiö. Listakonan kallar sýning-
una Straumland, og er hún installasjón
með Ijósmyndum, teikningum, fslenzkum
steinum og oröum. Steinar og orð eru
ek. megininntak sýningarinnar. Sýningin
er opin daglega frá kl. 16—20 og stend-
urhúntil9.október.
Sparisjóður Reykjavíkur
I Sparisjóð Reykjavíkur, Álfabakka 14,
stenduryfiirsölusýning á málverkum eft-
ir Jóhannes Geir. Sýningin eropin frá kl.
9.15—16, mánudaga til fimmtudaga og
á föstudögum til kl. 18. Á sýningunni eru
20 myndir. Sýningin stenduryfirtil 25.
nóvember. Aðgangurerókeypis.
Hafnarborg Hafnarfirði
I Hafnarborg, Strandgötu 34, Hafnarfirði
stendur yfir sýning á verkum úr safni
stofnunarinnar. Sýningin er opin daglega
kl. 14-19.
Vinnustofa og
sýningarsalur
(vinnustofu og sýningarsal Ríkeyjar Ingi-
mundardóttirað Hverfisgötu 59 eru til
sölu verk hennar; málverk, postullnslág-
myndir, styttur og minni hlutir úr leir og
postulini. Ríkey málar og mótar verk eft-
ir óskum hvers og eins. Opið er á verslun-
artíma.
Slúnkaríki, ísafirði
í Slúnkariki á (safirði stendur yfir sýning
Erlu Þórarinsdóttur. Erla lauk námi frá
Konstfackskólanum i Stokkhólmi 1981
og hefur síðan unnið og starfað að mynd-
list i Sviþjóð, New York og hér heima.
Hún hefur haldið einkasýningar i
Reykjavík, Stokkhólmi, Kaupmannahöfn
og New York og tekið þátt í fjölda sam-
sýninga. Nærmyndir minnis og gleymsku
kallast myndaröð sem Erla sýnir og eru
það myndir málaðar með olíu á striga,
flestará þessu ári. Sýningin stenduryfir
til 9. október.
Gallerí Allrahanda
Akureyri
Galleri Allrahanda er til húsa aö Brekku-
götu 5 á Akureyri. Opnunartími er
fimmtudaga kl. 16—19, föstudaga kl.
13—18 og laugardaga kl. 10—12. Aörir
tímar eftir samkomulagi. Galleríið er á
efri hæð og eru þar til sýnis og sölu leir-
munir, grafík, textíl-verk, silfurmunir,
myndvefnaður og fleira.
Alþýðubankinn
Akureyri
Menningarsamtök Norðlendinga og Al-
þýðubankinn hf. á Akureyri kynna mynd-
listakonuna Dröfn Friðfinnsdóttur. Á list-
kynningunrli eru 12 verk unnin með akrýl-
litum á strika. Dröfn stundaði nám við
Myndlistaskólann á Akureyri og þaðan
útskrifaðist hún úr málaradeild 1986.
Árið 1987 var hún við nám í Lahtí lista-
skólanum i Finnlandi. Kynningin er i úti-
búi Alþýöubankans hf., Skipagötu 14,
og lýkur henni 4. nóvember.
HAMLET
Leikfólag Reykjavfkur hefur á ný haflA sýningar á harm-
leiknum um Hamlet Danaprlns, sem var frumsýndur í
lAnó sl. vor. Alls urAu sýnlngar 14 á siAasta leikári.
Leiklist
Alþýðuleikhúsið
Alþýðuleikhúsið sýnirleikritið Elskhuginn
eftirenska rithöfundinn Harold Pinter.
Sýningarnar eru i Ásmundarsal við
Freyjugötu sunnudag kl. 16 og mánudag
kl. 20.30. Sýningum ferfækkandi.
Leikfélag Reykjavíkur
Leikfélag Reykjavikur sýnir gamanleikritið
Sveitasinfónía eftir Ragnar Arnalds. Leik-
stjóri er Þórhallur Sigurðsson. Sýningar
eru á laugardag og sunnudag kl. 20.30
í Iðnó. Sýningar Leikfélagsins á Hamlet
verða á miðvikudag og föstudag kl. 20.00
í Iðnó. Harmleikurinn um Hamlet Dana-
prins var frumsýndur í Iðnó í apríl sl. vor
og urðu sýningaralls 14 á síðasta leikári.
Miðasala er opin alla daga frá kl. 14—19.
Simi 16620.
Þjóðleikhúsið
Þjóðleikhúsiö sýnir leikritið Marmari eftir
Guðmund Kamban i leikgerð og leik-
stjórn Helgu Bachmann. Sýnt er laugar-
dag og sunnudag kl. 20.00. Miðasala
er opin alla daga nema mánudaga kl.
13—20.Sími 11200.
Á Litla sviði Þjóðleikhússins er sýnt verk-
ið Ef ég væri þú, eftir Þorvarð Helgason.
Sýningar eru á föstudag og laugardag
kl. 20.30
Á laugardag kl. 15 frumsýnir Þjóðleik-
húsiðnýtt íslenskt barnaleikrit, Hvarer
hamarinn? eftir Njörð P. Njarövík. Tónlist
er eftir Hjálmar H. Ragnarsson og leik-
stjóri er Brynja Benediktsdóttir. Leikurinn
byggirá einu Eddukvæða, Þrymskviðu,
og prýða hann margir sögvar. Leikritið
er sýnt í Gamla bíói á laugardag og
sunnudag kl. 15.
Frú Emilía
Leikhúsið Frú Emilía stendurfyrir leik-
lestri helstu leikrita Antons Tsjekhov í
Listasafni islands við Frikirkjuveg. Á laug-
ardag og sunnudag kl. 14.00 verður flutt
verkið Kirsuberjagarðurinn. Leikararnir
sem flytja verkið eru: Baldvin Halldórs-
son, Edda Heiðrún Backmann, Ellert A.
Ingimundarson, Eiríkur Guðmundsson,
Flosi Ólafsson, Guðjón P. Pedersen,
Guðrún Marinósdóttir, Helga Stephen-
sen, Jón Júliusson, Ragnheiður Stein-
dórsdóttir, SigurðurSkúlason, Valdimar
Örn Flygenring og Vilborg Halldórsdóttir.
Leikstjóri er Eyvindur Erlendsson. Að-
göngumiðasala er i Listasafni íslands
laugardag og sunnudag og hefst kl.
12.30.
Gríniðjan hf.
Griniðjan hf. sýnirgamanleikinn NÖRD
(Nær öldungis ruglaður drengur) í Gamla
Bíói. Leikritið er eftir bandaríska leikarann
og leikritahöfundinn Larry Shue. Leikarar
eru: Randver Þorláksson, Sigrún Waage,
Július Brjánsson, Edda Björgvinsdóttir,
Björgvin Franz Gislason og ÞórhallurSig-
urðsson auk Gísla Rúnars Jónssonar sem
einnig leikstýrir. Sýningar eru föstudag
og laugardag kl. 20.30. Sýningarfjöldi er
takmarkaður. Miðasala er í Gamla Biói
frákl. 16.30, sími 11475.
Leikfélag Hafnarfjarðar
Leikfélag Hafnarfjarðar sýnir leikritið
Emil í Kattholti eftir Astrid Lindgren laug-
ardag og sunnudag kl. 16 i Bæjarbiíoi i
Hafnarfirði. Miðasala eropnuð tveimur
timum fyrir sýningar en hægt er að panta
miða í sima 50184 allan sólarhringinn.
Ferðalög
Upplýsingamiðstöð
Upplýsingamiöstöð ferðamála er með
aðsetur sitt að Ingólfsstræti 5. Þar eru
veittar allar almennar upplýsingar um
feröaþjónustu á (slandi. Opið er mánu-
daga til föstudaga kl. 10—16, laugardaga
kl. 10—14ogsunnudaga kl. 11—14.
Síminn er 623045.
Útivera
Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Frístunda-
höpsins Hana nú í Kópavogi verður laug-
ardaginn 8. október. Lagt veröur af stað
frá Digranesvegi 12 kl. 10.00. Markmið
göngunnar er samvera, súrefni og hreyf-
ing. Nýlagað molakaffi. Allir, ungirog
aldnir, eru velkomnir.
Ferðafélag íslands
Á sunnudag verða farnar tvær göngu-
ferðir, sú fyrri kl. 10 en þá verður gengin
gömul þjóðleið frá Junkaragerði sunnan
Hafna og í Staðarhverfi við Grindavík.
Þessi gönguferð er um sléttlendi en í
lengra lagi. Kl. 13 veröur ekið að Svarts-
éngi og gengið þaðan á Hagafell og
viðar. Á miðvikudag veröur efnt til fyrsta
myndakvöldsins á vetrinum, þar verða
kynnt i máli og myndum nágrannarokkar
Grænlendingar og Færeyingar. Mynda-
sýningar Ferðafélagsins í vetur verða i
Sóknarsalnum, Skipholti 50a.
Útívist
Um helgina verður farin síðasta haustlita-
ferðin i Þórsmörk á árinu. Brott er er
föstudagskvöld kl. 20 og er gist i skálum
Útivistar i Básum. Á laugardagsmorgun
kl. 8 veröur lagt upp í tveggja daga ferð
á Emstrusvæðið. Skoðað verður Markar-
fljótsgljúfur, fossarvið Mýrdalsjökul og
farið um Fjallabaksleið syðri vestan
Hvanngils. Gist í húsi. Á sunnudags-
morgun kl. 8 veröur einsdagsferð i Þórs-
mörk. Kl. 13 á sunnudag erfarin ný
gönguferö. Gengið verður um svokallað-
an Tóarstig, en það er skemmtileg
gönguleiö um sjö aöskildar gróðurvinjar
í Afstapahrauni. Brottförerfrá BS(,
bensinsölu, frá Kópavogshálsi og v/Sjó-
minjasafnið i Hafnarfirði.
Viðeyjarferðir
Hafsteinn Sveinsson er með daglegar
ferðir út í Viðey. Fyrsta ferð er farið kl.
13.00 og er farið á heila tímanum frá
Reykjavík og á hálfa tímanum frá Viðey.
Mánudaga, þriöjudaga og miðvikudaga
fer síðasta ferð frá Viöey kl. 18.30 en
aðra daga kl. 23.30. Aukaferðir eru fam-
ar með hóparsem panta sérstaklega.
Kirkjan í Viðey er opin og veitingar fást
í Viðeyjamausti. Bátsferöin kostar 300
krónur fyrir fullorðna, 100 krónur fyrir
börn að 14 ára aldri en frítt er fyrir böm
5áraogyngri.
Hreyfing
Keila
í Keilusalnum í öskjuhlíð eru 18 brautir
undir keilu, á sama stað er hægt að
spila billjarö og pínu-golf. Einnig er hægt
að spila golf í svokölluðum golfhermi.
Sund
í Reykjavik eru útisundlaugar i Laugar-
dal, við Hofsvallagötu og við Fjölbrauta-
skólann í Breiðholti. Einnig eru útisund-
laugar á Seltjarnamesi, á Varmá og viö
Borgarholtsbraut í Kópavogi. Innisund-
laugar á höfuöborgarsvæðinu eru við
Barónsstíg og við Herjólfsgötu í Hafnar-
firði. Opnunartima þeirra má sjá í dag-
bókinni.