Morgunblaðið - 18.10.1988, Qupperneq 12
Los Angeles Dodgers
komið með aðra hönd-
ina á meistaratitilinn
Eftirtvo sigurleiki gegn Oakland á heimavelli um helgina
r ; I • ’•,«
STÓRLIÐIÐ Los Angeles
Dodgers hefur nú náð 2-0
forystu í lokaúrslitum (World
Series) í keppni atvinnu-
manna C haf nabolta eftir tvo
sigra gegn Oakland A’s á
heimavelli sínum.
akland A’s tiyggði sér ör-
uggt sæti f lokaúrslitunum
með því að sigra Boston Red Sox
I fjórum leilcjum í röð { undanúr-
slitunum. í hinum
undanúrslitunum
sigraði Los Ange-
les Dodgers lið
New York Mets
með fjórum sigrum gegn þremur
í mjög jafnri keppnk
A laugardag sigraði Los Ange-
les 5:4 í hörkuspennandi leik þar
sem úrslit réðust ekki fyrr en í
seinni hluta lokalotunnar, þegar
Kirk Gibson sló boltann út fyrir
Qunnar
Valgeirsson
skrifar
leikvöllinn og komst þar með beint
i heimahöfn.
Á sunnudag var hinsvegar aldr-
ei spuming um hvaða lið næði að
sigra. Dodgers sýndu geysilegt
öryggi og Orel Hershiser, kastari
liðsins, var í miklum ham. Leik-
menn A’s komust aldrei nálægt
heimahöfn {leiknum og Dodgers
unnu ömgglega 6:0. Það lið sem
fyrr sigrar í fjórum leikjum verður
meistari.
Fýrir þessa úrslitakeppni var
Oakland talið mun sigurstrang-
legra, enda vann liðið flesta leiki
allra liða í deildinni $ sumar, alls
104. Los Angeles vann New York
nokkuð óvænt í undanúrslitunum
og lítur nú út sem að liðið sé að
ná toppnum á réttum tíma. Liðin
spila nú þijá leiki í Oakland og
verður heimaliðið að sigra í þeim
öllum ef það ætlar sér meistaratit-
ilinn.
Klrk Qlbson tryggði Los Angeles Dodgers í fyrri leiknum með glæsilegu
skoti út fyrir leikvöllinn. Hann hafði ekkert tekið þátt í leiknum fram að
þessu — var meiddur, en var Iátinn slá í lokin, og brást ekki!
AMERiSKI FOTBOLTINN
Fyrsta tap
Cincinnati
Gunnar
Valgeirsson
skrifar
CINCINNATI Bengals töpuðu
sfnum fyrsta leik á keppn-
istímabilinu í NFL-deildinni
gegn New England Patriots,
sem leika nálœgt Boston, með
27 stigum gegn 21.
Það voru fyrst og fremst mistök
stjómanda Bengals, Boomer
Esiason, sem ollu þessum fyrsta
ósigri liðsins, en fímm sinnum kom-
ust leikmenn Patri-
ots inn { sendingar
hans í leiknum.
Annars hefur Esia-
son verið í miklu
stuði fram til þessa í leikjum Ben-
gals.
San Fransisco 49ers sigraði Los
Angeles Rams í leik dagsins með
24 stigum gegn 21. San Fransico
byrjaði vel, en síðan meiddist stjóm-
andi liðsins, Joe Montana, á öxl og
þá náði Rams forystunni. San
Fransico gekk illa á meðan Montana
var utan vallar, en hann kom síðan
aftur inn í leikinn í síðari hálfleik
og stjómaði liði sínu til sigurs í
hörkuleik.
Auk Cincinnati, San Fransisco
og Los Angeles Rams, virka lið
Chicago, New Orleans og Buffalo
sterkust í deildinni það sem af er
þessu keppnistímabili.
Úrslitin í 7. umferðinni urðu ann-
ars þessi:
Chicago Bears-Dallas Cowboys 17:7
Cieveland Browns-Philadelphia
Eagles.......................19:3
Indianapolis Colts-Tampa Bay Buc-
caneers.....................35:31
Los Angeles Raiders-Kansas City
Chiefs......................27:17
Green Bay Packers-Minnesota Vik-
ings........................34:14
New England Patriots-Cincinnati
Bengals.....................27:21
New York Giants-Detroit Lions
............................30:10
Houston Oilers-Pittsburgh Steelers
............................34:14
Washington Redskins-Phoenix
Cardinals...................33:17
Denver Broncos-Atlanta Falcons
............................30:14
San Fransisco 49ers-Los Angeles
Rams........................24:21
Miami Dolphins-San Diego Char-
gers........................31:28
New Orleans Saints-Seattle Sea-
hawks.......................20:19
Buffalo Bills og New York Jets
kepptu svo sín á milli í nótt.
LOTTO:
BONUSTALA:
Mlloslav Mecir.
FÓLK
■ MARTINA Navratilova og
Chris Evert eru miklar vinkonur.
Þær eru báðar í hópi fremstu tenn-
iskvenna í heimi og þurfa því annað
slagið að mætast í úrslitum á stór-
mótum. Það gerðist einmitt um
helgina á sterku tennismóti í Fild-
erstadt í V-Þýskalandi. Navra-
tilova hafði betur, 6:2 og 6:3 og
hefur nú sigrað í 42 af 79 viðureign-
um sínum við Evert. Þetta er í
fímmta sinn sem Navratilova sigr-
ar á þessu móti og fyrir vikið fékk
hún um fjórar milljónir kr. og
sportbíl að verðmæti um þtjár millj-
ónir kr. Þess má geta úrslitaleikur-
inn stóð í 75 mínútur.
■ SLOBODAN Zivojiaovic frá
Júgóslavíu sigraði á ástralska inn-
anhússmótinu í tennis um helgina.
Zivojinovic sigraði Richard Mat-
uszewski frá Bandaríkjunum {
úrslitaleik, 7:6, 6:4 og 6:3. Þetta
var annar sigur Zivojinovic á stór-
móti en hann er í 35. sæti á heims-
listanum, 101 sæti ofar en Matus-
zewski. Fyrsta lotan var jöfn en í
tveimur síðari hafði Zivojinovic
mikla yfirburði og sigraði örugg-
lega. Fýrir sigurinn fékk hann um
fjórar milljónir kr. en það er rúm-
lega helmingi meira en hann hefur
haft í laun á þessu ári.
■ BRAD Gilbert, frá Banda-
ríkjunum, sigraði landa sinn Aar-
on Krickenstein í úrslitum á tenn-
ismóti í Tel Aviv í ísrael. Það
byijaði reyndar ekki vel hjá Gil-
bert. Hann tapaði fyrstu lotu 4:6
og var undir í næstu 1:5. Þá tók
hann við sér, sigraði 7:6 og 6:2 í
úrsiitalotunni. Þetta varjsriðji sigur
Gilbert á þessu móti. I tvíliðaleik
karla sigruðu Paul Wekesa og
Roger Smith frá Kenýa. Þeir urðu
þar með fyrstu blökkumennimir til
að sigra í tvíliðaleik á stigamóti
alþjóða tennissambandsins.
I STEFAN Edberg tapaði
óvænt fyrir Tékkanum Miloslav
Mecir í úrslitaleik á tennismóti í
Hong Kong, 6:7, 6:4 og 1:6. Andre
Agassi hafnaði í 3. sæti og Nic-
holas Pereira frá Venezuela varð
fiórði.
■ BANDARÍKJAMAÐURINN
Jimmy Connora hefur verið einn
besti tennisleikari heims i áraraðir
og um helgina sigraði hann á stiga-
móti í 107. sinn! Hann vann An-
drei Chesnokov frá Sovétríkjun-
um í úrslitaleik á móti í Toulouse
( Frakklandi, 6:2 og 6:0.
A