Morgunblaðið - 30.10.1988, Side 9

Morgunblaðið - 30.10.1988, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. ÖKTÓBER 1988 B 9 landsheimen, hæli fyrir vangefna, í Bergen í Noregi. Þar lenti hann í nokkru sem hlýtur að teljast nokk- uð óvanalegt: „Forstöðukonan á hælinu var eldri kona sem skrapp árlega til eyju nokkurrar til þess að kaupa nærföt á vistfólkið. Hún var vön að taka einn vistmann með sér í þessar ferðir en nú brá svo við að ég fylgdi henni. Þegar þang- að kom var tékið vel á móti okkur. Reyndar talaði ég norskuna ekki vel f upphafi og má vera að það hafi gert útslagið því mér fannst einstaklega kumpánlega komið fram við mig. Mér var klappað á kollinn og spurður að því hvort ég vildi sælgæti, vinurinn, og þar fram eftir götunum. Ég fattaði strax hvað um var að vera og lék mitt hlutverk. Ég fór að skoða nærfötin í verksmiðjunni og gerði mig líkleg- an til að kaupa bæði fyrir mig og son minn heima á íslandi. Konan sagði nei, bíddu þangað til forstöðu- konan kemur, vinur minn. Þegar upp komst að ég var starfsmaður fölnaðí frúin og baðst afsökunar." Hefurðu orðið fyrir þessu oftar? „Þetta kom stundum fyrir á hælinu sjálfu. Gestir og aðrir utanaðkom- andi sem áttu erindi þangað áttu það til að halda mig einn af vist- fólkinu. En ég hef orðið fyrir ann- ars konar reynslu sem er þessu al- veg óviðkomandi. Eitt sinn var ég á sjúkrahúsi og var vakinn upp á skurðborðinu og spurður að því hvers vegna ég hefði komið í skoð- un. Ég sagði læknunum að ég hefði farið á miðilsfund og miðillinn hefði beðið mig að láta rannsaka skjald- kirtilinn. Það kom á daginn að ég var með illkynja krabbameinsæxli í skjaldkirtlinum sem var þá fjar- lægður og ég hef ekki kennt mér meins síðan." Þegar Eggert var nýkominn til Noregs var hann einmana og ákall- aði guð um áþreifanlega hjálp. Hann hafði Biblíuna meðferðis og fletti upp í henni og kom að kafla sem hann staðnæmdist við: Reynið allt. Haldið ykkur við hið góða og forðist sérhveija mynd hins illa. Eggert þótti þetta mikið og gott svar fyrir sig. Hann ákvað að prófa allt, með réttum formerkjum að sjálfsögðu: „Ásamt þessari tilvitnun í Biblíuna hef ég haft að leiðarljósi þijú atriði sem ég las um í erlendu tímariti. Þessi atriði voru um hvað það væri sem maðurinn vildi helst fá út úr lífinu. í fyrsta lagi vill hann vera andlega og líkamlega heilbrigður, í öðru lagi óskar hann sér maka og nóg af peningum og í þriðja lagi vill hann/hún ævintýri. Ég er ævintýramaður sjálfur," seg- ir Eggert kinnroðalaust. Jæja, ertu má henda kominn af Agli Skallagrímssyni? „Mamma hringdi til mín um daginn og sagði: „Eggert minn, það er verið að gera bók um niðja Hallgríms Péturssonar ...“ og bað mig að senda mynd af mér og aðra af syni mínum. Meira veit ég ekki.“ Þegar snjór var yfir öllu Sagt er að fátækt sé skortur á hugmyndaflugi og má vel vera að svo sé. Skyldi ekki vera öllu nærri sanni að láta ekki hugmyndina fljúga framhjá heldur grípa hana á lofti og moða eitthvað úr henni? Heftur ekki hvarflað að mörgum að hægt væri að lifa góðu lífi af því að bjóða fólki þjónustu í gegnum smáauglýsingamar? Rétta því bæklinga og fá borgað fyrir? Jú þetta flaug Eggert Guðmundssyni í hug og eflaust mörgum öðrum, en Eggert framkvæmdi þetta: „I tómarúminu sem kom þegar tökum á kvikmyndinni Skyttunum lauk byijaði ég að auglýsa. Þá vann ég við húsaviðgerðir og mín verkefni hafa einkennst af því að vera alltaf uppi á húsþökum, eða á hliðum húsa. En þegar Skyttunum lauk var snjór yfir öllu. Ég lá á bakinu í hálfan mánuð og vissi ekkert hvað ég ætti að taka inér fyrir hendur.“ Fyrsta auglýsingin var á þessa leið: Viltu smíða þína eigin þyrlu? „Ég seldi þama teikningar að svona smíði og allar tæknilegar upplýsing- ar. Margir urðu til þess að panta og ég held þetta hafi gert hörku- gagn. Seinna auglýsti ég teikningar að svifnökkva, eimingargræjum og lét þýða og semja megrunarbækl- ing. Ennfremur hef ég komið á fót bréfaklúbbi," segir Eggert og er mikið í mun að leiðrétta þann út- breidda misskilning að þama hafí verið á ferðinni sala á kvenfólki frá Filippseyjum. 1.000 fílippeyskar konur óska eftir að kynnast og gift- ast. Þetta var fyrst og fremst spum- ing um bréfaskipti milli þessara kvenna og íslenskra karlmanna. Þetta var ekkert plat og margir fundu hamingju með þessu móti. Ég var lengi á báðum áttum með þetta framtak mitt. Það var hrópað á eftir mér á götum úti og ég fékk fáeinar hótunarsímhringingar. Þó komst ég fljótlega að því að margir em einmana á Islandi og ákvað því að búa til lista yfir konur og karla sem vildu koma á sambandi sín á milli. Auglýsingamar Ertu ein- mana? og Islenski listinn er kominn út; litu dagsins ljós. Þetta hefur farið þannig fram að ýmsar upplýs- ingar varðandi búsetu, menntun, aldur, atvinnu, hæð, áhugamál og óskir em sendar mér í lokuðu um- slagi. Síðan sendi ég þetta áleiðis. Ég sé aldrei fólkið, ræði aðeins við • það í sírna," segir Eggert en neitar því ekki að sumt af þessu fólki hafí hann hitt. Ertu orðinn þreyttur á ruglinu héma heima? er nýjasta og ef til vill forvitnilegasta auglýs- ingin frá Eggert. Ætlarðu hér með að ráða bót á ævintýragimi landans? „Þama bendi ég á leið til þess að þéna mikla peninga á stuttum tíma og jafnframt vissa hvfld frá amstrinu héma heima fyrir þá sem orðnir em vonlitlir um að geta borgað af öllum skuldabagganum. Á þessum norsku olíuborpöllum geta menn unnið sér inn á þriðja hundrað þúsund fyrir eitt úthald, sem er hálfur mánuður í senn og svo frí í þijár vikur. Ég veit til þess að ólærðir menn hafa ■fengið þetta. Faglærðir eða menntamenn fá jafnvel hærra kaup. Olíuborpallar em eins og litlar borg- ir úti í hafí.“ En hvað með þig sjálfan, Egg- ert, ert þú orðinn þreyttur á ... þú veist? „Þegar ég horfí upp á lánið mitt upp á þrettánhundmð- þúsund hækka um 150.000 krónur á einum degi þá þykir mér eitthvað vera mglað í kerfinu. Þetta gerðist um daginn þegar 8-10% gengis- felling varð. Ér þetta nokkur hemja? Er þetta ekki mgl? Að teyma fólk svona á asnaeyrunum. Ég reyndi lengi að vinna sólarhringanna á milli í tvö ár. Að lokum sá ég að ég var að henda peningunum í botn- lausa tunnu." Eigum við ekki að slá botninn í þetta með því að fræða okkur sem heima sitjum svolítið um (hm ...) eftir hveiju fólkið á íslenska listan- um var nú helst að sækjast? Hveij- ar vom óskir þess? „Karlmenn vom gegnumsneitt með þær kröfur að æskilegt væri að konan ætti flbúð en mætti eiga eitt bam. Hún átti helst að vera grönn, há og ljóshærð og með stjór bijóst." Er það? En kvenfólkið, hvað vildi það? „Þær vom (og em væntanlega) ekki síður með óskimar á hreinu. Karlmaður- inn á að vera fjárhagslega sjálf- stæður, vel stæður og mátti gjaman eiga íbúð eða einbýlishús. Hann mátti ekki eiga mörg böm en vera menntamaður, hár og grannur og dökkhærður. Örsjaldan var óskað eftir bamgóðum manni, skapgóðum eða áreiðanlegum," segir Eggert aðspurður og er með skýringu á þessu á takteinunum. „íslendingar lifa með draumsýnir. Öll eigum við okkar draumalíf, draumahús, draumamaka, drauma þetta, drauma hitt. Við erum alltaf að flýja raunvemleikann. Hjá okkur íslend- ingum eru vandamálin svo víða og skuldirnar alls staðar miklar og ruglið allt í kringum okkur... að við látum okkur bara dreyma," seg- ir Eggert Guðmundsson og deplar augunum rósemdarlega. Höfiwdur vinnur við ritstörf. SINGER SAUMAVÉLAR SPARA ÞÉR SPORIN SAMBA EXCLUSIVE Saumavél með 11 mismunandi nytja-, skraut- og teygjusaumum fy Beinn saumur ☆ Zig-zag fy Styrktur zig-zag fy Blindfalds saumur ■fy Opinn loksaumur ☆ Þriggjaspora zig-zag fy Tíglasaumur fy M-saumur it Loksaumur Einnig hefur vélin sjálfvirkan hnappagatasaum, frjálsan arm og þægilega yfirbreiðslu. LADY STAR Saumavél með 6 mismunandi saumum. ■fy Beinn saumur ☆ Zig-zag ☆ Blindfalds saumur ☆ Þriggjaspora zig-zag fy M-saumur Vélin er með frjálsum armi og sjálfvirkum hnappagatasaum. Það er auðvelt að þræða hana og létt að spóla. kr. 18.915 stgr. kr. 15.820 stgr. Við kaup á einni af neðangreindum saumavélum fylgir Magic Taylor tölufestingavél eða viðgerðavél í bónus. SINGER tölvuvél mód. 6268 kr. 54.500 stgr. SINGER Serenade 30 mód. 6235 kr. 42.720 stgr. SINGER Serenade 10 mód. 6233 kr. 30.780 stgr. Tölufestingavél MAGIC Viðgerðavél I II Ú ÍM SAMBANDSINS ÁRMÚLA3 SÍMAR 681910-68 1266 OG KAUPFÉLÖGIN GREIÐSLUKORT OG GÓÐIR GREIÐSLU- SKILMÁLAR.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.