Morgunblaðið - 30.10.1988, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 1988
B 11
varðarson var kokkur um borð og
í einum túmum tók hann kærustuna
með sér, núverandi eiginkonu.
Himmi hafði klefa frammí, glugga-
lausan, og því var þar algjört myrk-
ur nema að ljós væru kveikt. Einn
daginn fer Himmi frá kærustunni
snemma dags aftur í til þess að
hugsa um matinn. í sama mund og
Himmi skellir eggjunum á pönnuna
er Jón Berg að semja við kærustuna
um að víkja úr klefanum um stund-
arsakir og gefa sér færi á ákveð-
inni hugmynd. Um semst og Jón
Berg klæðir sig úr öllu nema nær-
brókunum.
Þegar Himmi er búinn með eld-
húsverkin hugsar hann sér gott til
glóðarinnar eftir matseldina og
ætlar að skreppa upp í til kær-
ustunnar. Það er myrkur þegar
hann opnar klefadymar og hann
vildi ekkert vera að raska ró kær-
ustunnar strax, snakar sér úr fötun-
um og skríður undir sæng hjá sinni
heittelskuðu. En heldur betur brá
honum í brún þegar hann fór að
faðma meyna, því hann fann fljótt
að þetta var ekki eins og það átti
að vera, einhveijar ójöfnur miðað
við fyrri kynni. Kokkurinn var fljót-
ur til eldhúsverkanna aftur.“
ÁTTU EKKISTRAUJÁRN?
Jón Berg notaði ósjaldan símann
í uppátektum sínum og var frægur
fyrir símaplötin sem bitnuðu oft á
nágrönnum hans því hann leitaði
aldrei langt yfir skammt ef hug-
myndin var komin upp á borð. Einu
sinni tóku nágrannar hans sig sam-
an ,um að gera honum ærlegan
grikk og það var Addi Baid sem tók
að sér að vera talsmaður. Hann
hringdi í Jón Berg, sagðist vera frá
Pósti og síma og spurði mjög inn-
virðulega hvort það gæti verið að
eitthvert heimilistækjanna hjá hon-
um væri í ólagi, því það hefði kom-
ið í ljós að svo virtist sem tæki frá
hans húsi truflaði útvarp í húsum
nágrannanna. Jón Berg var alveg
grandalaus og taldi þetta ólíklegt,
en Addi spurði þá með mikilli var-
færni hvort hann ætti ekki strau-
jám. Þvf var játað og þá spurði
Addi hvort hann vildi ekki vera svo
góður að setja straujámið og prófa
bylgjumar á útvarpstækinu sínu á
meðan jámið væri í notkun.
Það vom kampakátir nágrannar
sem fylgdust með á gluggum húss
Jóns Bergs þegar hann djöflaðist
með straujámið á straubrettinu og
skipti í gríð og erg milli bylgja á
útvarpinu sínu. Gildran hafði smoll-
ið.
ÞÚ SKALT BARA HÆTTA
ÞESSU, NONNIMINN
Það var á Kristbjörginni einu
sinni sem oftar að bmgðið var á
leik. Jón Berg hafði kastað litlum
kínveija inn í brúna hjá Sveini Hjör-
leifs og gert.vininum talsvert bylt
við, en nú hafði Sveini dottið í hug
að prófa reyksprengjur sem hann
hafði fengið um borð og rétt i þann
mund sem Jón Berg er að kasta
stórþorski þar sem hann stóð í miðri
kösinni þá kastar Sveinn bombunni
að hlið hans og það verður þessi
dúndur hvellur. Jón Berg fellur á
sama augnabliki kylliflatur í miðja
fiskkösina og liggur þar hreyfíngar-
laus. Óskaplegar hláturrokur heyrð-
ust úr brúarglugganum, en smá
saman fjaraði hláturinn út hjá
Sveini, því Jón Berg bærði ekki á
sér. „Nonni minn, þetta er allt í
lagi, þetta er alveg orðið nóg,“ kall-
ar Svenni, en maðurinn lá sem
dauður væri.
„Þú skalt bara hætta þessu,
Nonni minn, þetta er alveg nóg,“
kallar Svenni aftur,- en ekkert skeð-
ur. „Strákar, er ekki allt í lagi með
hann Jón Berg,“ kallar skipstjórinn
þá og er nú bmgðið. Verður nú
uppi fótur og fít og það er ákveðið
að bera Jón Berg inn í borðsal.
„Berið þið hann varlega strákar
mínir, farið þið varlega með hann,“
kallar Sveinn og líst ekkert á blik-
una. Sagan segir að það hafí verið
skorið á veiðarfærin og siglt fulla
ferð í land. En þegar báturinn lagð-
ist að bryggju spratt Jón Berg á
fætur, stökk upp með spottann,
batt, og veifaði með langvarandi
glotti til Sveins sem stóð agndofa
Við brúargluggann.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem gerÖu
mér 70 ára afmcelisdaginn ógleymanlegan meÖ
árnaðaróskum, heimsóknum og gjöfum. Eg
óska ykkur öllum velfarnaöar. Kœr kveðja.
Bergþóra Guömundsdóttir,
Sléttuvegi 7,
Selfossi.
HORNMARKAÐURINN
á horni Bankastrætis og Ingólfsstrætis
Mikið úrval af fatnaði og skóm
frá þekktum merkjum á lækkuðu verði.
OPIÐ10-18 VIRKA DAGA
OG10-16 ÁLAUGARDÖGUM.
B M
HORNMARKAÐURINN
Bankastræti 7a, sími 19530
(þar sem Herrahúsið var áður).
Vestur-þýsk hágæðavara.
Topphönnun.
Eina kerfið hér á landi með stiglausri hraðastillingu
Ótvíræður kostur!
Styrkirvöðva.
Minnkarummál.
ÞOLIR SAMANBURÐ!
Umboð:
Valeik hf.,
sími 91-16982.
Væntanlegt
á ísafirði.
Heilsu Sport,
Furugrund 3, Kóp.,
sími 46055.
NÝ YERSLIJN
ÖÐRUVlSl HÚSGÖGN
/. viúseaenaverslun að Bi
opnum nyia Saeftftlitinu).
fvið hliðina a Bifteioaei
Falleg húsgogn - vonduo
Utið inn og skoðið úrvaUð^ ^
Opið hús í dag klukkan
búsgögtt
BUdsh5ða8Súni67 40 80