Morgunblaðið - 30.10.1988, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 1988
B 27
Rómantfskur
þriller með McGillis
Húsið á Carrollgötu („The House on Carroll
Street"), sem sýnd verður í Háskólabíói á naest-
unni, er rómantískur þriller um unga konu sem
kemst að hættulegu samsæri um smygl á
stríðsglæpamönnum nasista inn í Bandaríkin sex
árum eftir lok seinni heimsstyrjaldarinnar.
Með aðalhlutverkin fara Kelly McGillis, Jeff
Daniels og Mandy Patinkin en leikstjóri er Bretinn
Peter Yates („Suspect" var hans síðasta mynd).
McGillis leikur Emily Crane, greinda og aðlað-
andi unga konu sem vinnur við fjölmiðlun og
segir skoðanir sínar á mannréttindum og pólitík
umbúðalaust - en á röngum tíma. Það er árið
1951 og hún lendir í bragðvondu þegar hún neit-
ar að svara spurningum ákveðinnar þingnefndar.
Skömmu seinna missir hún vinnuna, stjórnvöld
taka að fylgjast náið með henni og hún kemst
óvart á snoðir um nokkuð sem virðist benda til
alþjóðlegs samsæris.
„Við vorum að tala um hvernig ofsóknaræði
getur aukið ímyndunaraflið og við fórum að tala
um McCarthy tímabilið," segja framkvæmdastjór-
ar myndarinnar, Robert Benton og Arlene Dono-
van sem áttu hugmyndina að „Carrollgötu". „Okk-
ur þótti það mjög heillandi að lýsa fólki og tilveru
þessa tímabils og blanda það þrillerforminu." Þau
fengu handritshöfundinn Walter Bernstein til að
skrifa handritið en hann var fullkominn í það;
hann skrifaði handritið að „The Front" með Wo-
ody Allen og Zero Mostel, mynd sem sagði frá
raunum hans sem rithöfundar á „svarta lista"
McCarthys á sjötta áratugnum.
Kelly McGillis og Jeff Daniels í myndinni um húsíð við
Carrollstræti, sem bráðlega verður sýnd í Háskólabíói.
Jodie Foster í
foríð og framtíð
„The Accused") er ný mynd
sem hlotið hefur talsverða at-
hygli í Bandaríkjunum með Jodie
Foster f aðalhlutverki, leikstýrt
af Jonathan Kaplan og framleidd
af Sherry Lansing og Stanley
Jaffe, sem síðast gerðu Hættuleg
kynni. Hinir ákærðu er saga um
unga konu sem er nauðgað af
þremur mönnum á bar á meðan
bargestirnir fagna og iýsir réttar-
höldunum sem fylgja í kjölfarið
yfir bæði nauðugurunum og þeim
sem stóðu hjá.
Handritið byggir lauslega á at-
burði sem átti sér stað á bar í New
Bedford í Massachusetts árið
1983. Foster leikur fórnarlambið,
Söru Tobias, en Kelly McGillis leik-
ur aðstoðarsaksóknarann Kathe-
ryn Murphy, sem verður skjól-
stæðingur hennar.
Hinir ákærðu er 26. bíómynd
Jodie Fosters sem er býsna gott
þegar haft er í huga að hún hefur
aldrei lært leiklist („Það er orðið
of seint núna hvort sem er ...“).
En þegar leikstjórarnir hennar rifja
upp samstarfið er eins og þeir eigi
ekki nógu sterk orð. „Hún var sér-
deilis frábær," segir Martin Scor-
sese sem leikstýrði henni í „Alice
Doesn’t Live Here Anymore" og
„Taxi Driver". „Hún var mjög ná-
kvæm leikkona, mjög fagmann-
leg," segir Adrian Lyne sem leik-
stýrði henni í „Foxes” þegar hún
var 16 ára. Hún er ekki nema 25
ára og hvernig á hún að geta ver-
ið búin að koma fram í 26 mynd-
um? Svarið er: Hún byrjaði að leika
þegar hún var þriggja ára.
Vandræðin byrjuðu hins vegar
þegar hún var 19 ára og John Hin-
ckley yngri reyndi að ná athygli
hennar, elti hana til Yale, sendi
henni orðsendingar og hringdi í
hana hvað eftir annað. Og þegar
honum mistókst að ná athygiinni
gerði hann það sem hann hélt að
færi ekki framhjá neinum; hann
reyndi að ráða Reagan forseta af
lífi.
„Þetta voru skrítnir tímar," seg-
ir hún. „Ég var þá að leika í leikriti
tvær helgar í röð, önnur helgin
leið og svo var Reagan skotinn og
næstu helgi mætti ég á sviðið,
salurinn var fullur en líklega hefur
enginn þeirra náð leikritinu ...
fólkið kom ekki til að horfa á það."
Henni hafði gengið ágætlega að
blandast öðrum nemendum há-
skólans en núna var hún í sviðs-
Ijósinu og það fylgdu henni örygg-
isverðir hvert sem hún fór. „Ég sat
kannski á bókasafninu og fólk
dældi yfir mig öllum mögulegum
tilfinningum. Sumir voru dásam-
legir og svo voru það þessi fimm
prósent, þín versta martröð."
Tilfinningar hennar voru í rusli.
Næstu þrjá mánuði faldi hún sig á
bak við þvingað bros og útbýtti
eigin fréttatilkynningum til fjöl-
miðla. „Ég hef mikið velt fyrir mér
gagntekinni ást og hvers vegna
ég þurfti að lenda í þessu. Ég veit
að ég hef gert býsna skrítna hluti
sem farið hafa út í öfgar. Ég hef
látið mig verða fyrir hraðlest og
sagt svo, gerðu það keyrðu yfir
mig aftur."
En hún vill sem minnst um þetta
tala. Eftir að hún lauk háskólanámi
Jodie Foster
hefur hún leikið í fjórum myndum;
„Mesmerized", „Siesta", „Five
Corners" og „Stealing Home".
Engin þeirra hefur náð hingað
kannski vegna þess að þær liggja
utan við „meginstrauminn, eru list-
rænar" eins og hún segir. Hana
langar að komast aftur í stóru
aðsóknarmyndirnar og liður í því
er að leika næstí „Backtrack" sem
Dennis Hopper leikstýrir og leikur
í. Myndin er um leigumorðingja
mafíunnar (Hopper) sem verður
ástfanginn af konunnni sem hann
á að drepa (Foster). Það er tals-
verður aldursmunur á þeim skötu-
hjúum en það virðist virka öfugt í
raunveruieikanum. „Hopper er
eins og litli bróðir minn,“ segir
Foster.
Jonathan Kaplan, leikstjóri
Hinna ákærðu, segir að Foster
hafi verið eina leikkonan af mörg-
um sem sóttu um hlutverkið sem
ekki virtist hafa áhyggjur af hinu
ofbeldisfulla nauðgunaratriði í
myndinni. Kaplan hafði áhyggur
af því að hún forðaðist að hugsa
um það en í Ijós kom að kvikmynd-
unin reyndi mjög á hana tilfinn-
ingalega. Hún býr ekki yfir sömu
Julliardtækninni og meðleikarinn,
Kelly McGillis, („Segðu henni aö
gráta og hún segir: Hvað mikið?
Hvort auga? Hvenær?"). Það tók
fjóra daga að mynda nauðgunarat-
riðið og það reyndist öllum hið
mesta sálfræðidrama. Þegar
myndavélarnar stoppuðu hug-
hreystu þau hvort annað Foster
og árásarmennirnir. Þegar upptök-
um á Hinum ákærðu lauk var Fost-
er úrvinda. „Ég hugsaði með mér,
ég er enginn leikari, mér var aldrei
ætlað þetta. Ég flyt til Nígeríu og
gerist kennari."
Það verður ekki.
HEILSUGARÐURINN
Garðatorgi, Garðabæ, sími 656970-71
SLÖKUN GEGN STREITU
Nýtt námskeið hefst 2. nóvember.
ÆTTFRÆÐINÁMSKEIÐ
Námskeið í ættfræði eru að hefjast hjá Ættfræðiskólanum.
Námskeiðin eru jafnt sniðin fyrir byrjendur og þá sem lengra eru komnir.
Aðgangur að einu stærsta heimildasafni landsins í ættfræði.
Leiðbeinandi: Þorsteinn Jónsson.
Innritun og upplýsingar virka daga frá kl. 14-16 í síma 641710 og á
kvöldin í síma 46831.
ÆTTFRÆOISKÓLINN
r
Yogastöðin Heilsubót,
Hátúni 6a, auglýsir
Konur og karlar athugið. 6 vikna námskeið byrjar 1.
nóvember. Byrjunartímar, mjög góðar alhliða æfingar
sem byggðar eru á Hatha-yoga, til viðhalds þrótti,
mýkt og andlegu jafnvægi. Ljósalampar og gufa.
Yogastöðin Heilsubót,
Hátúni 6a, sími 27710.
NÁMSKEIÐ
Eftirmenntunarnefnda stál- og vélsmíða
Framundan eru eftirfarandi námskeið:
Vökvakerfi I 35 kennslust. 25.-28. nóv. 1988
Málmsuða 25 kennslust. 15.-22. nóv. 1988
Efnisfræði I 15 kennslust. 12.-19. nóv. 1988
Enska I 36 kennslust. byrjar 3. nóv. 1988
Enska II 36 kennslust. byrjar 3. nóv. 1988
Nánari upplýsingar og skráning eru hjá
Fræðsluráðinu í síma 621755 og hjá
MSÍ í síma 83011.
--------------------------------------
Alþjóðlegur
samstarfsfélagi óskast
Við erum útflutningsfyrirtæki með aðsetur í Kaup-
mannahöfn, Danmörku, sem flytur út allar tegundir
notaðra vöruflutningabíla og langferðabíla, ásamt
varahlutum.
Við leitum nú að föstum samstarfsfélaga, sem hef-
ur góð sambönd við flutninga- og verktakafyrirtæki
á hinum íslenska markaði.
Hafið samband við okkur á eftirfarandi heimilisfangi.
Handelsselskab D.L.T. ApS
Gáseholmvej 8
DK-2730 Herlev - Danmark
Sími: 9045 2 84 06 00
Telefax: 9045 2 84 06 55
Telex: 9124836 dlt
Viðskiptatungumál: Norðurlandamál,
enska og þýska
V____________________-_______________
r