Morgunblaðið - 15.02.1989, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.02.1989, Blaðsíða 1
48 SIÐUR B 38. tbl. 77. árg. MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1989 Prentsmiðja Morgunblaðsins Beðið í ofvæni eft- ir snjókomu í Sviss Zilrich. Frá önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. ÞAÐ snjóaði smávegis í Ölpunum í byijun þessarar viku en spáð er að úrkomulaust verði það sem eftir er vikunnar. Ekki hefur snjóað að ráði í Sviss síðan 18. desember. Eins lítill snjór og nú hefiir ekki mælst í fjöllunum á þessum árstíma í yfir aldarQórðung og er ástand- ið verst í suðurhlíðum Alpanna. skíðafæri í Alpafjöllunum væri þó ágætt fyrir ofan 2.000 metra. „Skíðafólk getur iðkað íþrótt sína en það getur yfirleitt ekki rennt sér alla leið niður í þorpin heldur verður það að taka skíðalyftumar þangað." Þeir sem fara á fjöll þrátt fyrir snjóleysið kvarta ýmist undan harð- fenni eða krapi. Fleiri skíðaslys hafa orðið í Sviss í vetur en nokkru sinni fyrr. Steinar standa upp úr á mörg- um stöðum og erfítt getur verið að fóta sig á bröttum klaka. Bærinn San Bemardino er við samnefnd jarðgöng í suð-austur- hluta Sviss. Skíðafólki hefur verið ekið þaðan norður göngin til að gefa því færi á að komast í snjó. Hóteleig- endur á svæðinu hafa einnig reynt að bæta ferðalöngum upp snjóleysið með ýmsum hætti, m.a. skipulagt gönguferðir út í guðs græna náttúr- una og spilakvöld. Þeir sem höfðu heppnina með sér fóru á skíði um jólin. Þá var nægur snjór og sól skein í heiði. Síðan hef- ur sólin skinið en sáralítill snjór bæst við. Talsmaður snjóflóðastofn- unar Sviss tjáði Morgunblaðinu að Lettland: Takmarka fjölda inn- flytjenda Moskvu. Reuter. STJÓRN Sovétlýðveldisins Lett- lands hefur ákveðið að takmarka fjölda þeirra sem flytja mega til lýðveldisins frá öðrum hlutum Sovétríkjanna vegna kvartana Letta um að þeir séu að verða minnihlutaþjóð í eigin lýðveldi. Níkolaj Nejland, aðstoðarforsæt- isráðherra Lettlands, sagði að stjómin hefði ákveðið að setja lög um takmarkanir á fjölda innflytj- enda til lýðveldisins á fundi sínum í höfuðborginni, Ríga, á mánudag. „Þessar takmarkanir njóta mikils stuðnings, einkum í Ríga, þar sem íbúafjöldinn er orðinn of mikill," bætti Nejland við. Lettneskir heimildarmenn sögðu líklegt að stjómin myndi einnig veita Lettum sérstök þegnréttindi. Þeir sögðu að nokkur hundmð Lett- ar hefðu safnast saman fyrir utan fundarstað stjómarinnar til að kreíjast þess að innflytjendalögin yrðu samþykkt. Reuter Þúsundir afganskra kvenna söfiiuðust á mánudag saman fyrir utan skóla í Kabúl, þar sem Barnahjálpar- sjóður Sameinuðu þjóðanna dreifði matvælum. Mildll matvæla- og eldsneytisskortur er i borginni vegna slæms veðurs og umsáturs skæruliða. Síðustu Sovétmennirnir yfírgefa Afganistan: Hermenn leppstjórnar- innar flýja varðstöðvar Kabúl, Moskvu, Islamabad. Reuter. SÍÐUSTU sovésku hermennirnir í Kabúl, höfiiðborg Afganistans, fóru í flugvél til Sovétrikjanna i gær, nokkrum klukkustundum áður en brottflutningi þeirra átti að ljúka samkvæmt friðarsamn- ingnum sem undirritaður var í Genf i aprfl á liðnu ári. Sovésk stjórnvöld skýrðu frá því að 30.000 skæruliðar sætu nú um höfuðborgina og sovéskt dagblað greindi frá því að hermenn afg- önsku leppstjórnarinnar hefðu yfirgefið varðstöðvar sem þeir tóku við af sovéska hernum. Síðustu sovésku hermennimir í Kabúl, sem höfðu varið flugvöll borgarinnar, fóm með fjórum flug- Sovétríkin: AldarQ ór ðungs útlegð- ar Solzhenítsyns minnst 1.500 manns hlýða á snældu með upplestri nóbelsverðlaunahafans Moskvu. Daily Telegraph. RODD nóbelsverðlaunahafans Alexanders Solzhenítsyns, sem talinn er einn af mestu núlifandi rithöfimdum Rússlands, heyrð- ist í fyrsta sinn í aldarfjórðung í Sovétríkjunum á mánudag. Þann dag komu 1.500 umbótasinnaðir menntamenn saman í Menningarhöllinni i Moskvu til að minnast þess að 25 ár eru liðin siðan Solzhenítsyn var sendur í útlegð og hlýddu þeir meðal annars á snældu með upplestri nóbelsverðlaunahafans úr bókinni Dagur í lífí ívans Denísovitsj, þeirri fyrstu í ritröð hans um lífið i sovéskum fangabúðum. „Algjör endurreisn Solzhenít- syns er nú prófsteinninn á það hvort Míkhaíl Gorbatsjov Sovét- leiðtogi vilji í raun fylla upp í auðu síðumar í sögu okkar,“ sagði rithöfundur sem hlýddi á upplesturinn. Æðsti hugmynda- fræðingur sovéska kommúnista- flokksins, Vadím Medvedev, lýsti því yfír fyrir þremur mánuðum að ekki kæmi til greina að verk Solzhenítsyns, sem nú er í útlegð í Bandaríkjunum, yrðu gefín út í Sovétríkjunum, þar sem þau myndu „grafa undan sovéska kerfínu". . „Útgáfa Gulageyjaklasans árið 1973 var merkasti atburður- inn í sögu Sovétríkjanna eftir að Stalín lést nákvæmlega tveimur áratugum áður,“ sagði rithöfund- urinn Lydía Tsjúkovskaja. „Heimkoma Alexanders Solzh- enítsyns yrði álíka stórviðburð- ur,“ sagði talsmaður Minnis- varðahreyfíngarinnar, sem reisa vill minnisvarða um fómarlömb Stalíns og berst fyrir því að Solzhenítsyn fái að koma til Sov- étríkjanna. Vinur nóbelsverð- launahafans, sagnfræðingurinn Vadím Borísov, sagði að útlegð Solzhenítsyns væri „móðgun við þær milljónir manna sem týndu lífí í fangabúðunum". Alexander Solzhenitsyn Tugþúsundir Sovétmanna hafa skrifað undir áskorun til sovéskra stjómvalda um að Solz- henítsyn fái að snúa til Sovétríkj- anna og verk hans verði gefín út, en afturhaldsöfl innan komm- únistaflokksins hafa barist gegn slíkum hugmyndum. vélum til Sovétríkjanna í gær. Myrkur var þegar vélamar fóru á loft en ljós þeirra voru samt ekki kveikt. „Allir þeir hermenn sem voru eftir fara núna,“ sagði Pjotr Sardartsjúk undirofursti við frétta- menn skömmu áður en vélamar fóru á loft. Fréttastofan TASS skýrði frá því að síðustu sovésku hermennimir í Afganistan myndu fara yfír landamærin til Sovétríkj- anna fyrir hádegi í dag. Talsmaður sovéska utanríkis- ráðuneytisins skýrði frá því að 30.000 afganskir skæmliðar sætu nú um Kabúl og um 15.000 skæm- liðar hefðu safnast saman umhverf- is borgina Jalalabad. Sovéska dag- blaðið Trúd hafði eftir sovéskum hermönnum sem verið höfðu í Afg- anistan að hermenn leppstjómar- innar í Kabúl hefðu yfírgefíð nokkr- ar varðstöðvar sínar. „Nokkur virki hafa þegar verið tekin herfangi," sagði í blaðinu. „Ýmsar varðstöðv- ar, sem afganskir hermenn tóku við, hafa verið yfírgefnar. Her- mennimir lögðu hreinlega á flótta." Fjómm eldflaugum var skotið á Kabúl-borg í gær og varð ein þeirra fímm bömum að bana, að sögn talsmanns afganska utanríkisráðu- neytisins. Þetta vom fyrstu árásim- ar á borgina í nokkra daga. Lítt miðaði í viðræðum afganskra skæruliða um myndun bráðabirgða- stjómar í Afganistan án þátttöku kommúnista og leiðtogar Frelsis- fylkingar Afgana, ANFL, sögðust ætla að sniðganga viðræðurnar þar til áfganskir skæmliðar í íran fengju að taka þátt í þeim.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.