Morgunblaðið - 15.02.1989, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1989
3
Borgarstjórn:
Könnun á
fiiokkun
sorpsá
heimilum
Endurunninn
pappír seldur
Járnblendiverk-
smiðjunni
BORGARSTJÓRN hefiir falið
Sorpeyðingu höfuðborgarsvæð-
isins að kanna möguleika á að
sorp verði flokkað í heimahúsum
þannig að nýta megi það sem er
endurvinnanlegt. Katrín
Fjeldsted borgarfiilltrúi Sjálf-
stæðisflokksins flutti tillögn
þessa efiiis í borgarstjórn en hún
flutti samskonar tíllögu í borgar-
ráði árið 1987. Þá var ekki mark-
aðsgrundvöllur fyrir endur-
vinnslu að sögn Katrínar en nú
hefiir verið ákveðið að endur-
vinna pappír og timbur frá fyrir-
tækjum í fyrirhugaðri sorppökk-
unarstöð höfuðborgarsvæðisins
og selja Járnblendiverksmiðj-
unni á Grundartanga til
brennslu.
„Nú hefur þetta breyst og er
meðal annars gert ráð fyrir að tek-
ið verði á móti pappír, pappa og
timbri beint frá fyrirtækjum í iðn-
aði í nýju sorppökkunarstöðinni.
Ætlunin er að búa til kubba úr
pappírs- og timburkurli og selja
Járnblendiverksmiðjunni á Grund-
artanga til brennslu," sagði Katrín.
„Það hlýtur því að vera sjálfsagt
að nota annan pappírsúrgang á
sama hátt en það þarf að kanna
hvemig þessi tillaga leggst í fólk
því hún gerir talsverðar kröfur til
manna ef af verður.
Með því að flokka sorp í tvö flát
og ætla annað undir pappír fer
ekki meira fyrir því og ég er ekki
viss um að auka þurfi við öskubfla-
flotann þó ruslinu sé skipt.
Þá má vel ímynda sér að eitt-
hvert fyrirtæki hafi áhuga á að
bjóða í þann pappír, sem til fellur
til endurvinnslu.
Þetta er auðvitað hluti af um-
hverfísvemd, sem mikið er til um-
ræðu. Ég held að tímamir séu að
breytast og að fólk muni taka þess-
ari tillögu vel þegar það áttar sig
á tilganginum."
Borgarráð:
Rúmlega
34,2 milljónir
til íþrótta-
félaga
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
tillögu íþrótta- og tómstundaráðs
um skiptingu á styrkjum til
íþróttafélaganna vegna mann-
virkjagerðar. Veitt er samkvæmt
80% reglunni og er heildarupp-
hæðin 34.240.000 milljónir
króna.
Glímufélagið Armann fær kr.
907.000 þús., íþróttafélagið Fylkir
fær 4 millj., íþróttafélagið Leiknir
fær kr. 800.000 þús., íþróttafélag
Reykjavíkur fær 8 millj., Knatt-
spymufélagið Fram fær 1,7 millj.,
Knattspymufélag Reylq'avíkur fær
1,5 millj., Knattspymufélagið Valur
fær kr. 1.333.000, Knattspymufé-
lagið Víkingur fær 7 millj., Knatt-
spymufélagið Þróttur fær 8 millj.
og Fjölnir í Grafarvogi fær 1 millj.
i . £.f i ,ri!i
Vikulegt leiguflug til Costa del Sol og Benidorm - Kynntu þér þjónustutryggingu Veraldar, sérstakt apríl-tilboð og maí-tilboð.
/ PÁSKAFERÐ
Á FRÁBM VERÐI
Þjónustutrygging Veraldar
- Trygging fyrír
betrí feró
Brottför 21. mars - 13 dagar
í beinu leiguflugi
Benal Beach
Santa Clara
Timor Sol
Verð frá kr.
33.200,-
Brottför 20. mars - 15 dagar
Flug um Kaupmannahöfn.
Glæsileg lúxusferð með íslenskum
fararstjóra.
Bangkok 5 dagar
Pattaya 10 dagar
Gist verður á hinu frábæra Dusit
Laguna, lúxushóteli á Pattaya.
Verð kr.
98.900,-
Oð',í\8 _Qo
Benidorm
mammaamam
Brottför 21. mars - 13 dagar
í beinu leiguflugi.
Europa Center
Torre Levante
Gemelos II
Verð fró kr.
31.100,-