Morgunblaðið - 15.02.1989, Side 15

Morgunblaðið - 15.02.1989, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1989 15 Gítartónleikar ________Tónlist____________ RagnarBjörnsson Kristinn H. Árnason hélt sína fyrstu (að ég best veit) opinberu tónleika föstudaginn 10. febrúar kl. 20.30. Utan dyra Langholts- kirkju æddi Vetur konungur um í sínum versta ham, reið húsum og engu var líkara en hann ætlaði sér að þagga niður í því hljóðláta hljóð- færi sem gítarinn er. En Vetri gamla tókst aðeins að undirstrika þær stemmningar sem Kristinn lað- aði fram úr gítarnum sínum. Mynd- ir lénstímabils og lútustemmningar liðu um hvelfingu kirkjunnar og Kristni tókst að halda áheyrendum sínum vel vakandi tónleikana til enda, eða í tæpa tvo klukkutíma. Undirritaður var fyrirfram vantrú- aður á að gítartónleikar og Lang- holtskirkja ættu vel saman, en til- fellið var að hljómburður kirkjunnar hjálpaði gítarleikaranum á margan hátt og hentaði að mörgu leyti spila- máta Kristins, sem var hógvær, fínlegur en öruggur. Kristinn hóf tónleikana með tveimur tónverkum eftir eitt virtasta tónskáld Englend- inga á 16. og 17. öld, J. Dowland. Dowland gerði það merkilega hljóð- færi lútuna að sínu, en lútan var reyndar á þessum tíma nokkurn veginn það sem píanóið er okkur í dag. Þessi tvö vel skrifuðu verk sköpuðu strax stemmninguna sem ég talaði um í upphafi, voru enda mjög fallega leikin. Chacconnan úr d-moll partítu Bachs fyrir einleiks- fiðlu hlýtur að vera vandflutt á gítar og hér fannst undirrituðum nokkuð á vanta að innihaldið skilaði sér á gítarinn, leikurinn varð svolítið ein- hæfur og innhverfur, sem reyndar einnig hafði sinn sjarma. Það sem ég saknaði helst í leik Kristins var meira skap og heyranleg átök, gítarinn hlýtur að þola það. Nocturnal op 70 eftir Britten náði ekki minni athygli, þar fannst mér þetta annars ágæta tónskáld, hóa saman of mörgum af eigin veik- leikum á sama stað. Eftir hlé lék Kristinn Sónötu eft- ir mexíkanskt tónskáld, Manuel Ponce f. 1882, mjög fróðlegt og vel skrifað verk. í lokin lék Kristinn Qórar myndir, umritanir fyrir gítar, eftir þann fræga píanóvirtúós Isaac Albéniz. Bæði þessi verk lék Knst- Kristinn H. Ámason inn af öryggi og skilningi. Kristinn er ekki aðeins efnilegur gítarleikari heldur nú þegar mjög góður. En þótt gítarinn sé vafalaust heppileg- ur fyrir eintal sálarinnar, þá hlýtur hann einnig að þurfa að fá að syngja út. Til hamingju með tónleik- ana, Kristinn. Meðfærileg og öflug rafsuðutæki Blomberq vaskar í stáli og hvítu. 15 gerðir. Hagstætt verð. Góð greiðslukjör. _________ Einar Farestveit&Co.hff. BORGARTÚNI28, SÍMI1699B. LolA 4 stoppar viA dymar Gleði- og gáskadrottnjngin EJsa Lund ríöur á vaðið og lætur gamminn geysa ásamt flokki valinkunnra gleðimanna í skammdegrssprengju ársins. Sérstakir gestir okkar heittelskujðujEIsu eru m.a. galsa- bræðurnir Halli og Laddj; raftæknirinn og stuðgjafinn Skúli Amper Oh,marssori; Smári ,,sjarmör“ Sjutt, skóari; Magnús, bóndi; Valgerður Moller og Leifur óheppni. 'r ' Undir og yfir og allt um kring er svo stórsöngvarinn og feröagrínarinn Egill ÓJáfsson ásamt hinni tón- og söngelsku hljórriéVeit Magnúsar Kjartanssonar. Og síðast en ekki sjst: gleðigjafinn Nadia Banine. Stjórnandi og sperinugjafi: Egill Eðvarðsson. v' Þriréttuö veislumáltíð að hætti Elsu Lund. Húsið opnar kl. 19.00. y/ Borðapantanir daglega i simum 23333 og 23335..,-— Elsa: ,,Betra er að gripa sima panta í tima svo að ekki þúrfi að hima úti í kulda og trekk með mina". y' Sýningar öll föstudags- og laugardagskvöld. Enginn býdur beíur en Þórseafé í vetur. Power Inverter 250 og 315 eru afar öflug, jafn- straums-rafsuðutæki til pinna- og tig-suðu. Power Inverter rafsuðutækin eru 3ja fasa, 380 volt og vega aðeins um 28 kg. Þau eru miklu meðfærilegri en eldri tæki af sama styrkleika. Hafðu samband við sölpmenn okkar sem veita allar nánari upplýsingar. HÉÐINN SEUAVEGI 2.SÍMI 624260 Fróöleikur og skemmtun fyrirháa semlága! .'ÓHUlV’VUtftiUiK k &ai

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.