Morgunblaðið - 15.02.1989, Page 16

Morgunblaðið - 15.02.1989, Page 16
I 16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1989 Ferðalög íslendinga í sumar: Júgóslavía helsta nýjungin „HELSTA nýjungin hjá okkur í sumar er að víð bjóðum nú upp á ferðir tíl Júgóslavíu,“ sagði Engilbert Gíslason, markaðs- sljóri ferðaskrifstofúnnar Atl- antik. Engilbert sagði að mannfjöldi hefði sótt ferðaskrifstofuna heim um helgina, þegar áætlun sumars- ins var kynnt. „Þrátt fyrir vitlaust veður fylltist allt hjá okkur, enda er landinn líklega kominn með út- þrá eftir umhleypingana undanfar- ið. Við ætlum að byija á að þreifa okkur áfram með ferðir til Júgó- slavíu í sumar og sjá hvernig þeim verður tekið. Mesta aðsóknin und- anfarin ár hefur hins vegar verið í ferðir til Mallorka. Þær standa allt- af fyrir sínu.“ > Engilbert sagði að verð fyrir þriggja vikna ferð fjögurra manna fjölskyldu til Mallorka væri rúmlega 200 þúsund krónur. „Við bjóðum upp á lúxusgistingu í íbúðum. Hækkunin frá síðasta ári er sáralít- il og nemur aðeins breytingum á gengi, eða um 30% frá janúar 1988,“ sagði hann. Engilbert kvað ekki nokkum vafa á að komandi sumar yrði gott ferðasumar. „Obbinn af þjóðinni vill skipta um umhverfi í fríinu og ég á ekki von á breytingu þar á, þrátt fyrir hróp á torgum um kreppu og óáran.“ Útsýn: Flug, bíll og frelsi „VIÐ bjóðum Útsýnarfarþegum upp á nýjan möguleika í sumar, sem við kölliun „Flug, bU og frelsi“. Fólk fer héðan til Lúxem- borgar, tekur þar bílaleigubíl og getur svo valið frá hvaða borg það flýgur heim aftur. Möguleik- amir em tíl dæmis París, Kaup- mannahöfn, Frankfurt og Mílanó,“ sagði Anna Guðný Ara- dóttir, framkvæmdastjóri Ferða- skrifstofúnnar Útsýnar. Útsýn, líkt og margar aðrar ferðaskrifstofur, hafði opið hús um síðustu helgi og kynnti þar ferða- áætlun sumarsins. „Þrátt fyrir slæmt veður komu um 1800 til 2000 manns hingað þá fjóra tíma sem opið var á laugardag, svo það er greinilegur ferðahugur í fólki," sagði Anna Guðný. „Utsýn býður upp á ferðir til ýmissa staða, sem Islendingum eru vel kunnir, svo sem á Spáni, í Portúgal og á Ítalíu. Þá verður í sumar farið til Kýpur ann- að árið í röð. Ég er sannfærð um að þetta verður gott ferðasumar." Anna Guðný sagði að Costa del Sol á Spáni væri mjög vinsæll stað- ur meðal íslenskra ferðalanga. Hún sagði þriggja vikna ferð þangað í júní, fyrir hjón og tvö böm, annað undir 12 ára aldri og hitt á ungl- ! ingsaldri, kosta um 160 þúsund krónur, eða um 40 þúsund á mann ] að meðaltali. „Hækkunin frá síðasta - hausti er 12-15% og hana má rekja t til gengislækkunar," sagði Anna Guðný. Farþegar Útsýnar geta flogið til Lúxemborgar og tekið þar bíla- leigubíl. Ekki eru farþegar þó bundnir við að fara heim frá Lúxem- borg. Séð yfir ströndina við Portoroz í Júgóslaviu. Atlantik: Urval: Kína, Rússland og Egyptaland „ÞAÐ verður bryddað upp á ýmsum nýjungum hjá ferðaskrif- stofúnni Urval á þessu ári. Þar má nefna ferð til Austurríkis og Þýskalands, Thailands-ferð um páskana, rútuferðir um Frakk- land og ferðir til Kína, Rússlands og Egyptalands. Þá má ekki gleyma siglingum með Eimskip, sem mikið hefúr verið bókað í,“ sagði Ingibjörg Sverrisdóttir, sölustjóri Úrvals. Ingibjörg sagði að ferðimar til Austurríkis og Þýskalands væra tilvaldar fyrir göngufólk. „Fólk dvelur í viku í hveiju landi og getur spókað sig í göngutúrum um flöllin. Ferðir um Frakkland í rútum era einnig spennandi og ferðalangar gista meðal annars í gömlum köst- ulum.“ Ingibjörg sagði að viðskiptavinir Úrvals færa víða, en Mallorka og Kýpur væra vinsælustu staðimir. „Þriggja vikna dvöl á Kýpur kostar um 217 þúsund fyrir fjögurra manna fjölskyldu í íbúð,“ sagði hún. „Ég á von á ágætu ferða- sumri, þó erfitt sé að meta það fyrirfram. Miðað við bókanir og áhuga gesta hjá okkur um helgina fæ ég ekki séð annað en jafn marg- ir ætli utan nú og áður.“ Svipmynd frá Grikklandi, einum áfangastaða Ferðamiðstöðvarinnar Veraldar. Veraldarreisa til Suður-Ameríku Frá Hawaii. „MÉR virðist sem fólk sé þyrst í sólina og til marks um það má nefna að um helgina, þegar áætl- un sumarsins var kynnt, bárust strax um 220 bókanir. Yfirleitt Samvinnuferðir-Landsýn: Sólarferðir til Hawaii í sumar í Kína. „AF ÞEIM nýjungum sem við bjóðum upp á ber hæst ferðir til Hawaii, sólarparadfsarinnar í Kyrrahafinu," sagði Tómas Tóm- asson, sölustjóri hópferða hjá Samvinnuferðum-Landsýn. Tómas sagði að íslenskur farar- stjóri yrði ferðalöngum á Hawaii til halds og trausts. „Þeim sem hyggja á ferðir til Evrópu bjóðum við einnig upp á nýjungar. Þar má nefna ný sæluhús í Frakklandi, um 120 kílómetra vestur af París. Sum- arhúsin okkar í Hollandi hafa verið mjög vinsæl undanfarin ár og fyrir . tveimur áram bættust við hús á Englandi. Þessir staðir era aðallega sóttir af fjölskyldufólki. Þeir era rólegir, en aðstaða öll er fyrsta flokks." Tómas sagði að vinsælasti ferða- staður Samvinnuferða-Landsýnar væri Mallorka „í fyrra byijuðum við að selja ferðir til Benidorm á Spáni og þær urðu strax afar vin- sælar. Fyrir fjögurra manna fjöl- skyldu kostar þriggja vikna dvöl í íbúð á Benidorm um 160 þúsund, eða um 40 þúsund á mann að með- altali. Dvöl í sumarhúsunum í Frakklandi kostar svipaða upp- Iiæð." . þarf fólk lengri tfma til að ákveða sig,“ sagði Andri Már Ingólfsson, forstjóri Ferðamið- stöðvarinnar Veraldar. Andri Már sagði að Veröld byði upp á nokkrar nyjungar í sumar. „Það verður farin Veraldarreisa til Suður-Ameríku og við bjóðum einn- ig ferðir til Sikileyjar, Thailands, Rússlands og Grikklands. Þá verð- um við með nýja gististaði á Costa del Sol og farið verður til Benidorm sem fyrr. Tveir síðasttöidu staðimir hafa ávallt verið vinsælastir." Verð á þriggja vikna ferð í júní til Benidorm fyrir fjögurra manna fjölskyldu er um 150 þúsund krón- ur. „Hækkunin er um 30% frá sama tíma í fyrra og um 8% frá síðasta hausti," sagði Andri Már. „Við átt- um von á meiri hækkun, en þar sem við náðum mjög hagstæðum samn- ingum gátum við komið í veg fyrir hana." Andri Már sagði að sér virtist sem fólk væri ekki lengur hikandi vegna óvissu í efnahagsmálum. „Við leggjum okkar af mörkum til að létta undir með þeim sem vilja fara til útlanda í fríinu og bjóðum meðal annars upp á svokallaðar raðgreiðslur, sem eru vaxtalausar.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.