Morgunblaðið - 15.02.1989, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1989
Selamálið í Noregi:
Verður skuldinm
skellt á Eidem?
Ósló, Kaupmannahðfh. Frá Rune Timberlid og NJ. Bruun, fréttariturum Morgunblaðsins.
Höfhin í Bodö hefur verið yfirfull af bátum í langan tíma og svo vont hefur veðrið verið, að margir
hafa ekki einu sinni hœtt sér yfir VesturQörðinn til Lófóts þaðan sem þeir ætluðu að róa.
Tíðarfarið í Norður-Noregi:
Stormar og stórviðri og
ekki róið í margar vikur
ÖLL spjót beinast nú að Bjarne
Mörk Eidem, sjávarútvegsráð-
herra Noregs, vegna selamálsins
en það var hann, sem ákvað að
loka niðri í skúfiii skýrsluna um
ólöglegar aðferðir norskra sel-
fangara við veiðarnar.
Bjame Mörk Eidem var staddur
í Bandaríkjunum í gær við að kynna
norskar sjávarafurðir þegar Gro
Harlem Brundtland forsætisráð-
herra skipaði honum að koma heim
hið bráðasta. Svo virðist nefnilega
sem þeim stjómmálamönnum fjölgi
stöðugt, sem telja Eidem bera meg-
inábyrgð á því, að selveiðamar skuli
vera orðnar að því stórmáli, sem
raun ber vitni. Norska stjómin hef-
ur einnig beðið kunna vísindamenn
víða um lönd að ganga úr skugga
um hvemig staðið er að veiðunum
og er ætlast til, að þeir skili af sér
skýrslu fyrir febrúarlok eða áður
en selveiðitíminn er vanur að hefj-
ast.
Grænlenska landsstjómin telur,
að norskir selfangarar hafi veitt
kópa innan grænlensku lögsögunn-
ar á síðustu fimm ámm en samning-
um samkvæmt höfðu þeir aðeins
leyfi til að veiða fullorðinn sel.
„Á allri minni lífsfæddri ævi hef
ég ekki vitað annað eins. Menn
hafa ekki vogað sér út á miðin á
stórum og góðum bátum og þeir,
sem hafa reynt að bijótast út til
að vitja netjanna, hafa ekki fund-
ið annað en eitthvert slitur."
Þannig lýsir Einar Larsen, eftir-
litsmaður í Lófót í Norður-Nor-
egi, veðrahamnum þar á slóðum
það sem af er árinu enda al-
kunna, að tíðarfarinu á íslandi
og Norður-Noregi svipar oft sam-
an. Sagði frá þessu f norska sjáv-
arútvegstímaritinu Fiskaren f
sfðustu viku.
í viðtali við tímaritið sagði Einar'
Larsen, að ástandið meðal sjómanna
og fiskkaupenda væri farið að ein-
kennast af örvæntingu. Ekki hefði
gefið á sjó í margar vikur og svo
mikill hefði veðurofsinn verið, að 39
vitar á Norðlandi væru stórskemmd-
ir eða ónýtir. Mætti sem dæmi um
það nefna, að á Væröy hefði viti,
sem stóð 15 metra uppi á landi, fok-
ið í heilu lagi á haf út.
í Bodö hafa bátamir einnig legið
inni í margar vikur en þeir, sem
Sænskir bankar:
Ný lög heim-
ila erlenda
eignaraðild
Stokkhólmi. Reuter.
TVEIR stærstu bankar Svfþjóðar,
Skandinaviska Enskilda Banken
og Svenska Handelsbanken sem
eru á meðal arðbærustu banka f
heimi, undirbúa nú sölu á hluta-
bréfum til erlendra aðila á næsta
ári. Bankamir hyggjast báðir láta
skrá hlutabréf sfn á fiármagns-
markaði f London og kauphöllum
vfðar um heim þegar rfkisstjóra
landsins afléttir banni á eignar-
aðild útlendinga að sænskum
bönkum.
Sænska rikisstjómin er nú að
semja frumvarp að lögum, þar sem
gert er ráð fyrir að eignarhluti út-
lendinga í bönkum í Svíþjóð megi
nema allt að 20 af hundraði.
„Við ætlum að láta skrá hlutabréf
okkar í London en einnig geri ég ráð
fyrir því að hið sama verði upp á
teningnum í París og Frankfurt,“
sagði Jakob Palmstjeme, stjómar-
formaður Skandinaviska Enskilda
Banken.
„Þetta verður Iqorið tækifæri til
að komast inn á alþjóðlegan áhættu-
markað og við munum skrá hluta-
bréf Handelsbanken í kauphöllinni í
London og seinna í New York,“ sagði
formaður Handelsbanken, Göran
Björling.
hafa reynt að róa, hafa orðið fyrir
miklu veiðarfæratjóni, jafnvel tapað
milljónum ísl. kr. Þar við bætist svo,
að vegna þess hve veiðarfæratrygg-
ingar eru dýrar eru margir og
kannski flestir með allt ótiyggt.
Yfirvöld og atvinnumálanefndir á
Norðlandi hafa miklar áhyggjur af
þessum málum og hafa nú þegar
lagt til við sjávarútvegsráðuneytið,
að páskastoppinu verði aflýst strax
þótt enn sé rúmur mánuður í páska.
Þá hafa fiskeldismenn í Norðlandi
einnig orðið fyrir miklum sköðum,
tapað tugum eða jafnvel hundruðum
milljóna ísl. kr.
ERLENT
Perú:
Verkalýðs-
leiðtogi skot-
inn til bana
Lima. Reuter.
SAUL CANTORAL, leiðtogi
hinna valdamiklu verkalýðssam-
taka námuverkamanna í Perú,
var skotinn til bana f gær og eru
dauðasveitir hægrimanna grun-
aðar um morðið.
Dagblöð í Lima höfðu það eftir
sjónarvottum að lík konu hefði
fimdist í tíu metra fjarlægð frá líki
Cantorals.
Miðar voru festir á líkin og á
þeim var áletrunin: „Svona deyja
uppljóstrarar".
„Samtök námuverkamanna sök-
uðu Cantoral um tengsl við skæru-
liðasamtök maoista, Sendero Lum-
inoso (Skínandi stíg), þegar á verk-
föllum stóð á síðasta ári,“ sagði
Maximo Paz Calle, einn leiðtoga
verkalýðsfélagsins.
Aldi-verslanakeðjan:
Urðu stærstir með því að
bjóða ætíð bestu kaupin
Viðskiptavinir vestur-þýsku verslanakeðjunnar Aldi eru tvenns
konar: Þeir sem verða að horfa f hvern eyri og þeir sem kunna að
reikna. Þar sem jógúrtbikarinn kostar 25 penninga (7 fsl. kr.) og
pylsan er helmingi ódýrari en hjá slátraranum skiptir ekki máli
þótt verslunarferðin sé engin skemmtun. Eftirfarandi samantekt um
feril Albrecht-bræðra, sem tóku við búðarholu móður sinnar árið
1948 en eiga nú stærstu verslanakeðju f Evrópu, er byggð á tveimur
greinum f tímaritinu Stern.
Bræðumir Theo og Karl Albrecht
eiga samtals 2400 verslanir í Vest-
ur-Þýskalandi. í Hollandi eiga þeir
247 búðir, í Belgíu 220, í Aust-
urríki 144, í Danmörku 84 og í
Bandaríkjunum nokkur hundruð að
auki. Ráðgert er að opna verslanir
á Spáni, Bretlandi og í Frakklandi.
Verslunarferill bræðranna, sem á
engan sinn líka í heiminum, hófst
í Essen árið 1948. Þeir bættu
nokkrum útibúum við kjörbúð móð-
ur sinnar og buðu einungis upp á
ódýrar niðursuðuvörur. Vegna þess
hve litlu fjármagni þeir réðu yfír
urðu þeir að leigja ódýrasta hús-
næðið sem kostur var á. Ljósaper-
umar vom strípaðar, hillumar
óheflaðar og sjálfsafgreiðsla af því
að hagnaðurinn dugði ekki fýrir
launum handa mörgu starfsfólki.
Aðalkeppinauturinn í þá daga vom
Konsum-verslanir í eigu verkalýðs-
félaganna. Albrecht-bræðumir
buðu einungis upp á innpakkaða
vöm á meðan afgreiðslufólk í Kons-
um-búðunum seldi margar vömr
eftir vigt.
Verslanir bræðranna, sem eink-
um vom staðsettar í lágstéttar-
hverfum, gengu ótrúlega vel. Nafn
keðjunnar breyttist úr Albrecht-
Discount í Aldi og smám saman
varð hún sú stærsta sinnar tegund-
ar í Evrópu.
; iii ríi. .11,. i.í j í
Á 9 dögum ráðast
afdrif vönmnar
Eins og vonlegt er geta bræðum-
ir — Theo í norðri og Karl í suðri
— náð hagstæðum innkaupum
vegna markaðshlutdeildar sinnar.
Þeir líta ekki við minni samningum
en upp á eina milljón marka (27
milljónir ísl. króna). Þeir endumýja
aldrei smásamninga undir tveimur
milljónum marka ef varan er lengur
en 9 daga í hillunum. Samt fara
þeir ætíð fram á 30 daga greiðslu-
frest. Um flestar vömr á það við
að bræðumir ganga einungis til
langtímasamninga, helst til 10 ára.
Ef framleiðandinn er ekki reiðubú-
inn að gangast undir óbreytt vöru-
verð á samningstímanum þá getur
hann hypjað sig. Einkenni samning-
anna er að þeim má rifta hvenær
sem er en einungis af hálfu Aldi.
Til þess að koma í veg fyrir að
viðskiptavinimir freisti þess að
vinna upp óhagstæðan samning eða
tap af völdum verðbólgu með því
að draga úr gæðum hafa bræðum-
ir matvælafræðinga á sfnum snær-
um sem halda uppi ströngu eftirliti.
Ef kaupandinn fær skemmda
vöru þrátt fyrir allt eftirlit þá bregst
Aldi við á einstæðan hátt. Aldi
greiðir vöru til baka umyrðalaust
ef yfír henni er kvartað og gjama
fylgir uppbót með í kaupbæti.
Ekki er þó hægt að hringja og
-■■■■, ■.. ..’í,;.,ii
kvarta til verslana á yfirráðasvæði
Theo í suðri því í spamaðarskyni
er ekki sími í verslununum. Það
getur þó kostað óþægindi fyrir við-
skiptavininn ef búðaþjófur er stað-
inn að verki því versluninni er læst
á meðan verslunarstjórinn gengur
á næstu lögreglustöð. Á meðan
verða „kúnnamir" að bíða þolin-
móðir innilokaðir í búðinnni.
Biðröðin hressir upp
á minnið
Langt er síðan Aldi hætti að vera
verslun fátæka mannsins þótt enn
eigi við að því lakari sem efíiahagur
almennings er því betur gangi hjá
Aldi. Reyndar eru innréttingamar
ennþá hálf óhijálegar. Viðarhillum-
ar em þó í raun dýrari en nýtísku
stálhillur en eiga að vekja þá hug-
mynd með kaupandanum að hér
velti eigendur hveijum penningi
fyrir sér. En sölubrellumar eru
fleiri. Þrátt fyrir reglur um að opna
eigi nýjan afgreiðslukassa ef fleiri
en sex manns standa í röð þá held-
ur varla nokkur verslunarstjóri sig
við þær. Raðimar benda til þess
að spamaður sé mikill auk þess sem
viðskiptavininum detta örugglega
ein eða fleiri vömtegundir í hug til
að kaupa á meðan hann bíður.
Aðhaldssemin og strangt eftirlit
em æðstu boðorð hjá Aldi. Af-
greiðslufólki er stranglega bannað
að afgreiða skyldfólk eða vini að
viðlagðri uppsögn. Aldi-bræður
hafa sjaldan átt í útistöðum við
verkalýðsfélögin þrátt fyrir þá
miklu vinnuhörku sem starfsfólk
er beitt. í fyrsta lagi era launin
20-30% hærri en í sams konar versl-
unum vegna bónusgreiðslna og í
öðm lagi tekur starfsfólkið lítinn
þátt í starfsemi verkalýðsfélaga því
;' - ' - - ■ ■ ■ ‘ - '1! ‘ ■ '■'
það tekur sinn tíma frá störfum,
lækkar veltuna á hvem starfsmann
og þarafleiðandi bónusinn.
Aldi-bræður hafa líka fundið ráð
til að bæta heilsu starfsfólks síns
til muna í samanburði við önnur
verslunarfyrirtæki (þ.e.a.s. að
fækka veikindadögum). Starfsfólk
fær bónus fyrir að mæta til vinnu
sem leiðir til þess að launin lækka
um allt að 20% ef um mikii veik-
indi er að ræða.
Sparsemi er æðsta dyggð starfs-
manna. Sá sem lengst hefur náð á
því sviði er sennilega yfirmaður
birgðageymslunnar í Adelsdorf.
Hann keypti vettlinga handa öllum
undirmönnum sínum og dró svo úr
kyndingunni að lá við að mjólkin
frysi og tókst þannig að minnka
olíunotkun úr 13,5 lítrum í 7,2 lítra
á fermetra. Aldi sparar líka með
því að bjóða upp á tiltölulega fáar
vörtitegundir. Hjá Kaufhof er hægt
að velja á milli 6000 vömtegunda
en hjá Aldi em þær um 1000. Fisk-
ur og kjöt er bara seldur niðursoð-
inn hjá fyrirtækinu. Karl Albrecht,
sem stjómar 1200 verslunum í
suðri, selur ekki sígarettur „vegna
þess hve oft þeim er stolið".
Mannránið vakti athygli
Aldi-bræður urðu fyrst þekktir
þegar Theo Albrecht var rænt árið
1971. Þá eins og ætíð var honum
spamaðurinn efstur í huga. Þegar
ræningjamir spurðu hann hvaða
lausnargjald teldist eðlilegt svaraði
hann: „Hundrað þúsund mörk og
ekki eyri meira!“. Að lokum varð
fyrirtækið að punga út með 7 millj-
ónir marka. Þegar ræningjamir
náðust fékk Theo helming upphæð-
arinnar til baka en hinn helmingur-
inn hefur ekki fundist enn. Honum
tókst heldur ekki að sannfæra dóm-