Morgunblaðið - 15.02.1989, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1989
Bretland:
Neil Kinnock endanlega
afhuga einhliða afvopnun
St. Andrews. Frá Gudmundi Heiðari Frímannssyni, fréttiiritara Morgunblaðsins.
NEIL Kinnock, leiðtopi Verkamannaflokksins, lýsti yfir í síðustu
viku, að einhliða kjarnorkuafvopnun væri úrelt stefnumið. í The
Sunday Times síðastliðinn sunnudag biður hann talsmenn einhliða
afvopnunar innan flokksins að koma ekki í veg fyrir sigur hans í
næstu kosningum.
Fyrir um hálfum mánuði hélt
nefnd Verkamannaflokksins, sem
vinnur að endurskoðun varnarmála-
stefnu flokksins, tij Moskvu til að
Gasslysið í Bhopal:
Union Car-
bide fellst
ábætur
Nýju Delhi. Reuter.
Bandaríska fyrirtækið
Union Carbide féllst í gær á
að greiða 470 miljjónir doll-
ara, 23,5 milljarða ísl. kr., í
skaðabætur vegna gaslekans
og stórslyssins í Bhopal á
Indlandi árið 1984.
Hæstiréttur Indlands ákvað
að binda enda á málaferlin
gegn Union Carbide þegar full-
trúar þess samþykktu fyrr-
nefnda skaðabótaupphæð en
alls hafa 3.300 manns látist
vegna gaslekans frá skordýra-
eitursverksmiðju fyrirtækisins
í Bhopal. Um 1.700 manns lét-
ust strax á fyrstu klukkustund-
unum en síðan hefur að jafnaði
einn maður látist á degi hveij-
um vegna eitrunarinnar.
Samkomulagið kom nokkuð
á óvart en allar skaðabætumar
eiga að vera greiddar 31. mars
nk. Eru þær sex milljörðum kr.
hærri en Union Carbide hefur
áður boðist til að greiða en
upphaflegar kröfur indverskra
stjómvalda voru 165 milljarðar
ísl. kr.
afla upplýsinga og fá viðbrögð Sov-
étmanna við hugmyndum um, að
kjamorkuvopn Breta komi inn í
samningaviðræður risaveldanna.
Sovétmenn brugðust vel við og
sögðust ekki kreijast þess, að jafn-
vægi yrði í slíkum samningum.
I síðustu viku lýsti Neil Kinnock
því yfír í sjónvarpi, að einhliða
Iq'amorkuafyopnun væri orðin úrelt
stefnumið. í viðtali við The Sunday
Times síðastliðinn sunnudag sagðist
hann hlynntur samningum um
kjamorkuafvopnun. Hann biður
talsmenn einhliða afvopnunar að
halda ekki skoðunum sínum til
streitu og koma í veg fyrir, að flokk-
urinn geti unnið næstu kosningar.
Kinnock er spurður um, hvort
sljóm Verkamannaflokksins muni
halda kjamorkuvopnum, ef samn-
ingaviðræður sigli í strand. Hann
vísar spumingunni á bug með þeim
orðum, að samningar risaveldanna
séu svo vel á veg komnir, að þeir
verði ekki stöðvaðir úr þessu. Því
vakni ekki sá möguleiki. Spumingin
sé fyrst og fremst um, hvemig
Bretar stuðli best að kjamorkuaf-
vopnun.
Vinstri armur flokksins hefur
tekið þessum yfirlýsingum
Kinnocks illa og sagt, að það sé í
verkahring ársþings flokksins að
ákveða stefnuna. Á síðasta ársþingi
var tillaga um, að flokkurinn gæti
gripið til einhliða afvopnunar,
samninga eða annarra leiða til að
fækka kjamorkuvopnum, felld með
fremur litlum mun, en samþykkt
tillaga um einhliða afvopnun.
Kinnock lýsti því ítrekað yfir í sjón-
varpsviðtalinu, að tillaga um samn-
ingaleiðina yrði samþykkt á þingi
flokksins á komandi hausti.
Þessar nýju yfírlýsingar flokks-
leiðtogans hafa staðfest gmnsemdir
vinstrisinna innan flokksins um að
endurskoðun stefnumála hans væri
ekkert annað en yfírskin yfír að
breyta stefnunni um einhliða af-
vopnun. í fyrra neyddist leiðtoginn
til að draga svipaðar yfírlýsingar
til baka, en er hvergi banginn nú.
Andstæðingum Kinnocks fínnst
lítið til stefnubreytingarinnar koma.
Sir Geoffrey Howe utanríkisráð-
herra sagði, að staðreyndin væri
sú, að Verkamannaflokkurinn vildi
Bretland kjamorkuvopnalaust og
hann gæfí ekki mikið fyrir þessa
„u-beygju“ Kinnocks. „Þetta er eina
„u-beygjan“ í sögunni, þar sem
ökumaðurinn snýr bflnum í öfuga
átt og setur síðan í bakkgír."
Reuter
Tutu ekki íhungurverkfall
Desmond Tutu, erkibiskup í Höfðaborg, sagði í gær að hann myndi
ekki taka sjálfur þátt í hungurverkfalli sem 300 pólitískir fangar í
Suður-Afríku hafa efnt til; slíkt væri „óviðeigandi." Hvatti hann
kristið fólk þess í stað til að fasta með sér þjjá daga í viku. Allan
Boesak, prestur af blönduðum kynstofni og þekktur baráttumaður
gegn aðskilnaðarstefnunni, segist hins vegar ætla að fasta til stuðn-
ings föngunum ,jafnvel þótt það kosti hann lífið.“ Fangarnir vilja
með aðgerðum sínum mótmæla fangelsunum án dóms og laga sem
stjómvöld hafa tíðkað í skjóli neyðarlaga er sett vom fyrir nokkmm
ámm. Sumir fanganna hafa neitað að borða í þijár vikur og hafa
verið fluttir á sjúkrahús. Að sögn lögfræðinga þeirra er líðan þeirra
slæm. Tutu segist hafa rætt við Adriaan Vlok dómsmálaráðherra,
sem hyggst ræða við biskupinn og fleiri kirkjuleiðtoga á fimmtudag.
Tutu sagði að ráðherrann virtist vera „umhyggjusamur maður...sem
a.m.k. er reiðubúinn að hlýða á skoðanir annarra." Á myndinni sést
Tutu (annar f.v.) ásamt nokkmm öðmm kirkjuleiðtogum.
Atlantshafsbandalagið:
Endurnýjun kjarnorkueld-
flauga ræður ekki úrslitum
- segir utanríkisráðherra Vestur-Þýskalands
ERLENT
Söngvar Satans:
Khomeini vill lífláta höfimdinn
Tortryggi þá sem þekkja „allan sann-
leikann“, segir Salman Rushdie
Nikósíu, Reuter.
AYATOLLAH Khomeini, erldlderkur í íran, hvatti til þess í gær að
Salman Rushdie, höfundur bókarinnar Söngva Satans (Satanic Ver-
ses), yrði tekinn af lífi fyrir gnðlast. Útvarpið í Teheran sagði að
Khomeini bæði múhameðstrúarmenn um allan heim að framfylgja
dauðadóminum yfir Rushdie og öllum þeim sem talia þátt í útgáfii
bókarinnar. Því heftir verið lýst yfir í lran að þjóðarsorg ríld í dag
vegna útgáfii bókarinnar.
Bonn. Reuter.
HANS-Dietrich Genscher, utanrfldsráðherra Vestur-Þýskalands,
sagði í útvarpsviðtali í gær að endumýjun skammdrægra kjamorku-
eldflauga í Vestur-Evrópu væri eldd forsenda fyrir traustum vömum
vestrænna lýðræðisríkja. Utanríkisráðherrann sagði andstöðu Vest-
ur-Þjóðveija við áform um endumýjun þessara vopna engan veginn
gefa til kynna að þeir hygðust víkja frá skuldbindingum sínum inn-
an Atlantshafsbandalagsins og varaði rikissfjórair annarra aðild-
arrílqa við því að álykta sem svo. Ummæli Genschers og Helmuts
Kohls nú nýverið þylq'a, að sögn fréttaritara jBeuíers-fréttastofunn-
ar, til marks um aukna samstöðu meðal ráðamanna í Bonn um stefhu
ríkisstjórnarinnar í vamarmálum.
„Vamir Vesturlanda standa ekki
og falla með endumýjun skamm-
drægra kjamorkueldflauga, “ sagði
Genscher og bætti við að brýnna
væri að ná fram jöfnuði milli aust-
urs og vesturs á sviði hefðbundins
herafla í Evrópu. „í sijómmálalegu
tilliti er mikilvægt að viðhorf til
einnar einstakrar spurningar verði
ekki gert að mælistiku á áreiðan-
leika einstaks ríkis eða einstakra
ríkja innan bandalagsins," sagði
Genscher í orðréttri þýðingu. Hann
hvatti ennfremur til þess að ríkjum
Varsjárbandalagsins yrði boðið að
ganga til viðræðna um fækkun
skammdrægra kjamorkuvopna í
Evrópu en á þessu sviði njóta Sov-
étríkin mikilla yfírburða.
slíka heimssýn úr öllum áttum og
án afláts og þetta er það sem ég
hef reynt að gera.“
Mótmælin gegn bók Rushdies
hófust í Bretlandi fyrr í vetur þar
sem hún kom fyrst út. Söngvar
Satans eru nú söluhæsta bók Bret-
lands og verið er að undirbúa út-
gáfu hennar víða um heim.
Bandaríkjamenn og Bretar hafa
hvatt stjómvöld í Bonn til að lýsa
sig samþykk því á þessu ári að
Lance-eldflaugar í eigu Atlants-
hafsbandalagsins verði endurnýjað-
ar. Alls ræður NATO yfir 88 skot-
pöllum fyrir eldflaugar þessarar
gerðar og em þeir flestir í Vestur-
Þýskalandi. Uppmnalega var
ákveðið árið 1983 að vopn þessi
skyldu endumýjuð og í lokaályktun
leiðtogafundar Atlantshafsbanda-
lagsins sem fram fór í Bmssel í
mars á síðasta ári sagði að nýjar
eldflaugar yrðu settar upp þar sem
nauðsyn krefði.
Genscher og Helmut Kohl, kansl-
ari Vestur-Þýskalands, kváðust
báðir vera sammála þessari ályktun
er þeir ræddu við James Baker,
utanrikisráðherra Bandaríkjanna ,
á sunnudag og mánudag en hvöttu
jafnframt til þess að ákvörðun um
sjálfa framkvæmdina yrði frestað
um tvö til þijú ár. Þingkosningar
fara fram í desember á næsta ári
í Vestur-Þýskalandi en komið hefur
fram í skoðanakönnunum að áform
um endumýjun þessa hluta kjarn-
orkuheraflans mælast illa fyrir
meðal almennings þar í landi.
Höfundurinn, Salman Rushdie,
sem fæddur er í Bombay á Indlandi
en er búsettur í Bretlandi, kom í
fyrrakvöld fram í bandarískum
sjónvarpsþætti. Um helgina höfðu
sex manns látist í óeirðum í Ind-
landi og Pakistan vegna bókarinn-
ar. Rætt var við höfundinn um of-
sóknir á hendur honum og um fyrir-
hugaða fyrirlestraferð um Banda-
ríkin en þar verður bókin gefín út
á næstunni. Þegar Rushdie var
spurður hvort hann hefði ætlað að
koma svo hatrömmum deilum af
stað sagði rithöfundurinn að blóð-
ugar væm hendur þeirra sem æst
hefðu tilfínningar fólks sem ekki
hefði einu sinni lesið bókina. „Ekki
sagði ég fólki að ganga fyrir byssu-
kjafta,“ sagði Rushdie meðal ann-
ars.
Einkum hefur verið fundið að
kafla í Söngvum Satans þar sem
Iýst er reynslu manns sem í draumi
hittir vændiskonur sem bera nöfn
eiginkvénna spámánnsiris Múha-
meðs. Rushdie, sem sjálfur er alinn
upp í múhameðstrú, sagði að vænd-
iskonumar væru nokkurs konar
andstæður hins hreinlífa spámanns
og eiginkvenna hans enda hefðu
þær verið teknar af lífí í bókinni
fyrir siðspillingu sína.
Rushdie sagði að vissulega væri
ýmsu í bókinni teflt gegn trúarleg-
um kennisetningum en í því fælist
engin óvirðing við trúna. Hann taldi
að strangtrúaðir múslímar hefðu
kynt undir mótmælin til þess að
hindra að eigin trúarskoðanir væru
opinberlega dregnar í efa. Hann
sagði að 66 múslímskir mennta-
menn væru á svörtum lista hjá öfga-
fullum trúbræðrum sínum. Sjálfur
hefur Rushdie nú bæst í þennan
flokk. „Ég tortryggi þá sem segjast
þekkja allan sannleikann og reyna
að móta heiminn í samræmi við þá
opinberun," sagði Rushdie og bætti
við: „Þetta er hættuleg afstaða og
hana verður að draga í efa með
hjálp listarinnar. Ráðast verður á
Súdan:
Hungurdauði vofir
yfir í bænum Malakal
Khartoum. Reuter.
UM 150.000 manns hafa einangrast í bænum Malakal í suðurhluta
Súdans og svelta heilu hungri en matvæli hafa ekki borist þangað
í eitt ár, að sögn starfsmanna alþjóðanefridar Rauða krossins í
gær. Þeir saka uppreisnarmenn í súdanska Þjóðfrelsishemum
(SPLA) um að bijóta gegn samkomulagi um matvælasendingar til
bæjarins.
„Ástandið hlýtur að vera mjög
alvarlegt, en það er erfítt að segja
til um hve margir hafí dáið,“ sagði
einn starfsmanna Rauða krossins.
Samkvæmt samkomulagi sem
alþjóðanefnd Rauða krossins og
uppreisnarmenn gerðu fyrir ári
síðan var flutningur á neyðargögri-
um tryggður til þriggja þorpa sem
stjómarherinn hefur á valdi sínu
þnggja þorpa á valdi súdanska
Þjóðfrelsishersins. Hjálparstarfið
hófst í desember en þegar fljúga
átti með matvæli til Malakal, sem
stjómarherinn ræður yfír, vildu
uppreisnarmenn ekki ábyrgjast ör-
yggi starfsmanna Rauða krossins.
I Malakal hefur stjómarherinn
bækistöðvar og bærinn gegnir mik-
ilvægu hemaðarlegu hlutverki.
Hann er í um 200 km fjarlægð frá
bænum Nasir sem féll í hendur
uppreisnarmanna í janúar á þessu
ári.
Tugir þúsunda manna sultu í hel
á síðasta ári og ástæðumar má að
mestum hluta rekja til þess að
báðir stríðsaðilamir, stjómarherinn
og Þjóðfrelsisherinn, komu í veg
fyrir að matvælasendingar bárust
sveltandi fólkinu.