Morgunblaðið - 15.02.1989, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1989
Útgefandi
Framkvœmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
BjörnJóhannsson,
ÁrniJörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst IngiJónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. [ lausasölu 70 kr. eintakið.
15. febrúar og fé-
lagsmálapakkar
Idag er 15. febrúar. Þegar
sú ríkisstjóm, sem enn sit-
ur, var mynduð í lok septem-
ber, töldu alþýðubandalags-
menn, nýliðamir í stjóminni
ásamt með Stefáni Valgeirs-
syni, sér það helst til ágætis,
að þeir hefðu náð því fram,
að frá og með 15. febrúar
féllu lagaákvæði um takmörk-
un á samningsrétti launafólks
úr gildi. Var ákvæði um þetta
meðal annars sett inn í bráða-
birgðalög, sem stjómin gaf
út við valdatöku sína. Af eðli
bráðabirgðalaga leiðir, að
þetta ákvæði kemur til fram-
kvæmda í dag, þótt lögin hafí
ekki verið staðfest á Alþingi.
Þess sjást merki, að aðilar
vinnumarkaðarins séu famir
að hugsa sér til hreyfíngs.
Þannig hélt Bandalag starfs-
manna ríkis og bæja (BSRB)
formannaráðstefnu á mánu-
daginn í því skyni að ræða
um leiðir til bættra lífskjara.
Margt bendir til þess að undir
nýrri forystu Ögmundar Jón-
assonar ætli BSRB nú að fara
inn á svipaða braut og þegar
samningar voru gerðir á
sínum tíma við ríkissjóð í tíð
vinstri stjómar í skugga olíu-
verðhækkananna á fyrri
helmingi áttunda áratugarins.
Þá var ekki talað mikið um
nauðsyn þess að flölga krón-
unum í launaumslaginu, held-
ur áhersla lögð á það, sem
nefnd em félagsleg réttindi,
en nú heitir á máli BSRB að
„efla velferðarkerfið" og al-
mennt er kennt við félags-
málapakka. Var þess svo sem
að vænta, að þeir kæmust í
tísku aftur.
í viðtali við Ögmund Jónas-
son, sem birtist í Morgun-
blaðinu 3. nóvember síðastlið-
inn, sagði hann, að rangt
væri að einblína á krónur og
aura, þegar rætt væri um
kjarabætur. Þá var hann
spurður, hvort til greina kæmi
að semja um félagsmála-
pakka, og svarið var á þessa
leið: „Innihalda félagsmála-
pakkar ekki oft ýmsa þætti
velferðarþjóðfélagsins? Að
mínu áliti snúast allir kjara-
samningar um velferðarmál.
Við skulum ekki gera lítið úr
félagsmálapökkum, en það
má aldrei stunda blekkingar-
leifc með þá.“ m »••* »*
Sú leið sem formaður
BSRB er að boða felst í auk-
inni íhlutun ríkisins í fjármál
einstaklinga. Hún byggist á
þeirri meginforsendu, að fjár-
munir nýtist betur, ef þeir
renni í gegnum ríkissjóð frá
einum borgara til annars.
Hvarvetna á þessi hagstefna
undir högg að sæfcja. Hún
þykir ekki hafa skilað bættum
lífskjörum.
í ályktun formannaráð-
stefnu BSRB segir meðal ann-
ars: „Þegar þjóðin hefur orðið
fyrir áföllum hefur almennt
launafólk þurft að taka á sig
byrðamar en fjármagnseig- .
endur hafa hagnast." Er for-
svaranlegt að álykta á þennan
veg, þegar margsinnis hefur
komið fram, að einmitt laun-
þegar standa undir spamaði
í landinu? Einkum ungt fólk
og þeir sem eru að ljúka
vinnudegi sínum eða hafa lok-
ið honum mynda fjölmennasta
hóp sparifáreigenda. Ætlar
BSRB að stofna til átaka við
þetta fólk? Ætla hefði mátt,
að forysta BSRB hefði tekið
eftir því, hvemig almenningur
reis upp og andmælti síðast-
liðið haust, þegar ríkisvaldið
ætlaði að ganga á hlut spari-
fjáreigenda. Alyktun BSRB
verður ekki skilin á annan veg
en þann, að nú eigi það að
verða samningsatriði samtak-
anna og ríkisvaldsins, hveijir
vextir skuli vera. Ríkisstjómin
breytti lánslg'aravísitölunni
þannig á dögunum, að nú
mælir hún hækkanir á laun-
um, sem samið verður um
milli BSRB og ríkisins. Á að
skilja ályktun formannaráð-
stefnu BSRB þannig að sam-
tökin ætli að fá þessari vísi-
tölu breytt í viðræðum sínum
við ríkið?
Frá og með deginum í dag
er heimilt að segja kjarasamn-
ingum lausum. Horfur í at-
vinnu- og efnahagsmálum em
ekki bjartar. Það árar ekki
betur þótt sótt sé dýpra ofan
í vasa skattgreiðenda eða
gengið á hlut spariijáreig-
enda. Til að búa til félags-
málapakka, sem bætir hag
launþega, verður forysta
BSRB að róa á önnur mið.
En kannski hentar það ekki
ríkisstjóminni?
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1989
23
Verðlaun afhent í
leikritasamkeppni LR
GUÐRÚN Kristín Magnúsdóttir hlaut fyrstu verðlaun fyrir leikrit ætlað
fullorðnu fólki og Benóný Ægisson hlaut fyrstu verðlaun fyrir bamaleik-
rit í leikritasamkeppni sem Leikfélag Reybjavíkur efndi til í tilefni af
væntanlegri opnun Borgarleikhússins. Hvort um sig hlaut 385 þúsund
krónur f verðlaun.
Leikrit Guðrúnar Kristínar nefnist
»Ég er hættur. Farinn!". Hallmar
Sigurðsson leikhússtjóri og oddviti
dómnefndarinnar sagði um verkið
að það gerðist í íslenskri samtíð og
Qallaði um fólk sem liti til framtíðar
og vissi ekki hvemig það ætti að
bregðast við. Hann sagði að bygging
verksins væri óvenjuleg en nákvæm.
í samtali við Morgunblaðið sagðist
Guðrún Kristín Magnúsdóttir ekki
áður hafa skrifað verk fyrir svið en
hefði áður unnið bamaefni fyrir sjón-
varp og sögu og leikrit fyrir útvarp.
Aðspurð kvaðst hún ekki hafa veirð
lengi að skrfia verkið: „Ég er fljót
að skrifa en lengi að hugsa,“ sagði
hún.
Benóný Ægisson sagði um verk
sitt að það væri ævintýri sem gerðist
í samtímanum. Það væri byggt á
gamalkunnum þjóðsagnaminnum um
kynni manna af álfum og huldufólki
en einnig kæmu alþjóðlegri vættir
eins og risar, dvergar og hrímþursar
við sögu aðalpersónu verksins, lítils
drengs. Hallmar Sigurðsson sagði
um verkið að persónumar væm
litríkar og verkið byði upp á flókna
tækniúrvinnslu sem yrði leikfélags-
fólki kærkomin í nýju leikhúsi.
Önnur verðlaun í flokki fullorðins-
leikríta skiptuif milli tveggja höf-
unda. Guðmundur Ólafsson, hlaut
verðaun fyrir leikrit sitt 1932, sem
gerist í Reykjavík kreppuáranna og
fjallar um baráttu verkalýðs fyrir
atvinnu og bættum lq'ömm. Bjami
Þröstur Þórhallsson vann A-flokk
mótsins með 5 vinningum af 6 mögu-
legum. Daninn Uffe V. Nielsen varð
í 2. sæti með 4 vinninga, en í 3. sæti
varð Tómas Bjömsson með 3V2 vinn-
ing. Davíð Ólafsson var með jafn-
marga vinninga en lægri á stigum.
Þröstur Ámason vann B-flokkinn,
með 5 vinningum af 6. í öðra sæti
varð Peter Heine Nielsen frá Dan-
mörku með 4 vinninga. Mikil keppni
varð um bronsið milli Sigurðar Daða
Sigfússonar og Petri Hokkanen frá
Finnlandi. Þeir fengu báðir 4 vinn-
inga, og 16 stig, en Finninn varð
hlutskarpari þegar stigin vom reikn-
uð áfram.
Héðinn Steingrímsson vann C-
flokk með 5V2 vinningi. Næstur varð
Jonas Barkhagen með 4 vinninga en
Henri Sigfrídsen varð í 3. sæti með
3V2 vinning. Ragnar Fjalar Sævars-
son náði sér aldrei á strik í þessum
flokki og endaði með 1 vinning.
í D-flokki urðu Finninn Erkki
Lassilla og Helgi Áss Grétarsson
Jónsson, ungur og nýr höfundur í
íslensku leikhúsi, hlaut helming ann-
arra verðlauna fyrir leikritið: Kork-
mann - Circus grotesque. Það gerist
í samtímanum meðal verkafólks.
Hallmar Sigurðsson sagði að bæði
þessi verk sýndu „hve óvenjulegt
þetta venjulega fólk er.“ Verðlaun
Guðmundar og Bjama námu 125
þúsund krónum fyrir hvom um sig.
Önnur verðlaun í flokki bama-
leikrita skiptust milli Iðunnar og
Kristínar Steinsdætra fyrir tvö verk
sem þær skrifuðu sameiginlega:
Mánablóm og Randaflugur. Fyrir
hvort verkanna fengu þær systur 125
þúsund krónur.
Að auki lagði dómnefndin til að
Leikfélag Reykjavíkur veitti Valgarði
Egilssyni starfslaun til að ljúka við
leikrit sem hann sendi til samkeppn-
innar. Hallmar Sigurðsson sagði að
vegna þess hve verkið væri skammt
á veg komið heðfí dómnefndin ekki
treyst sér til að verðlauna það en
hugmyndin ða baki væri nýstárleg,
djörf og krefjandi.
Hafliði Amgrímsson leiklistar-
fræðingur sat sem fulltrúi Rithöfun-
dasambands íslands í dómnefndinni
með fulltrúum Leikfélags Reylqavík-
ur, þeim Hallmari Sigurðssyni og
Sigríði Hagalín.
Hallmar sagði í samtali við Morg-
unblaðið að ekki hefði veirð endan-
lega ákveðið hvenær verðlaunaverkin
yrðu sétt á svið en þess mætti vænta
að einhver þeirra yrðu tekin til sýn-
ingar á næsta leikári.
jafnir með 4 vinninga. Finninn reynd-
ist síðan vera með 17 stig en Helgi
Áss 16,5 stig, svo Finninn fékk gul-
lið. í 3. sæti varð Lasse Aass frá
Noregi með 3’/2 vinning. Magnús
Öm Ulfarsson fékk jafn marga vinn-
in^i en var hálfu stigi lægri.
I yngsta flokknum var Amar E.
Gunnarsson yfírburðasigurvegari
með fullu húsi vinninga, 6 talsins.
Norðurlandameistarinn frá í fyrra,
Mikael Agopov frá Finnlandi, varð í
öðm sæti með 4*/2 vinning. Hinir
íslendingamir í flokknum stóðu sig
einnig vel. Matthías Kjell fékk 3'/2
vinning og Grímur Sigurðsson 2V2
vinning.
Þegar vinningar vom lagðir saman
höfðu íslensku keppendumir 4OV2
en Danir og Finnar fengu 30'/2 vinn-
ing. Svíar fengu 27V2, Norðmenn
24V2 vinning og Færeyingar fengu
3V2 vinning, en þeir sendu aðeins
þijá keppendur til leiks.
Skáksamband íslands og Taflfélag
Reykjavíkur sáu um mótið.
Markmið þessa Viðskiptaþings var
að bæta úr því sem á hefur skort
hvað varðar umræður um samskipti
íslands og Evrópubandalagsins.
Samtals hafa um 40 manns starfað
í §ómm EB-nefndum á vegum Versl-
unarráðsins að undirbúningi þings-
ins. Hafa þær farið yfír obbann af
þeim aðgerðum eða tillögum að að-
gerðum, sem mynda eiga gmnninn,
að hinum innri markaði Evrópu-
bandalagsins, sem á að vera kominn
á í árslok 1992.
Verkaskipting EB-nefndanna var
þannig að ein þeirra fjallaði um bein-
ar hindranir á viðskiptum og frelsi
fólks til þess að ferðast og velja sér
búsetu. Tvær nefndanna fjölluðu um
tæknilegar hindranir á viðskiptum,
annars vegar vegna mismunandi
staðla og aðferða við opinber útboð
en hins vegar um hindranir vegna
viðskipta með fjármagn, þjónustu og
flutninga. Fjórða nefndin fjallaði loks
um samræmingu óbeinna skatta,
þ.m.t. virðisaukaskatts.
Heiðursgestur Viðskiptaþingsins
var Vigdís Finnbogadóttir, forseti
íslands, en sérstakur fyrirlesari á
þinginu var Hans Joachim von Bulov,
framkvæmdastjóri Eurochambers,
verslunarráðs EB-þjóðanna. Von
Bulov lagði í erindi sínu ríka áherslu
á þá miklu hagkvæmni sem hinn
innri markaður EB myndi hafa í för
með sér. Þessi aukna hagkvæmni
kæmi þó einungis þeim fyrirtækjum
til góða sem aðlöguðu sig að hinum
breyttu aðstæðum. Hvað EFTA-ríkin
varðaði sagði von Bulov að fríversl-
unarsamningar þeirra við Evrópu-
bandalagið myndu tryggja áfram-
haldandi fríverslun. EFTA löndin
myndu að hans mati hagnast á hinum
innra markaði en þyrftu að aðlaga
sig að honum.
Aðlögun að þróuninni í EB var líka
meginstefíð í máli þeirra á þriðja tug
framsögumanna sem kynntu niður-
stöður EB-nefndanna, hvort sem
umræðuefnið var verðbréfaviðskipti
eða flugsamgöngur. Sumir þeirra
vom ómyrkir í máli og sagði Tryggvi
Pálsson, bankastjóri, að hætta væri
á að ísland og önnur lönd sem vildu
halda í höft, t.d. í gjaldeyrismálum,
myndu einangrast. Það væri kannski
sérviska sem samrýmdist þjóðarstolti
en ef það færi að bitna á lífskjömm
þjóðarinnar myndi gamanið fara að
káma. Af öðmm atriðum sem
komu fram má nefna að Þórður
Sverrisson, framkvæmdastjóri hjá
Eimskipafélagi fslands sagði það
geta haft veraleg áhrif á íslenska
kaupskipaútgerð ef aðrar reglur giltu
um útflöggun og sérstakar skipa-
skrár á íslandi en innan EB. Banda-
lagið ætlaði ekki að standa í vegi
fyrir sérstökum skipaskrám en um
þær myndu gilda svipaðar reglur og
þegar kaupskipt sigla undir hentif-
ána. Bandalagið ætlaði ekki heldur
að standa í vegi fyrir því að kaupskip-
um í eigu borgara EB yrði flaggað
út undir hentifána. Þetta tryggði
þessum skipafélögum lægri rekstrar-
kostnað og sagði Þórður mikilvægt
að reglum um þessi atriði yrði breytt
sem fyrst.
Ólafur Davíðsson, framkvæmda-
stjóri Félags íslenskra iðnrekenda og
formaður ráðgjafanefndar EFTA,
flutti erindi um hvað væri framundan
í samskiptum íslands og EB. Ólafur
sagði það ekki vera óskhyggju að
ætla að framkvæmd hins innri mark-
aðar yrði lokið nokkum veginn á
réttum tíma. Þessu yrðum við að
gera okkur grein fyrir og aðlaga
okkur að. Margt gætum við gert ein-
hliða, s.s. að afnema hindranir á
gjaldeyrisviðskiptum og samræma
starfsskilyrði fyrirtækja, t.d. hvað
varðar skattlagningu, þannig að þau
stæðust samkeppni.
Hvað varðaði önnur atriði, t.d.
samkeppnisreglur og flugmál, væri
best að vinna að þeim á vettvangi
EFTA og í sumum tilvikum þyrftum
við að semja beint við EB, t.d. hvað
varðaði sölu á fískafurðum sem
samningur íslands og EB frá árinu
1972 næði ekki til.
Það meginvandamál sem við stæð-
um frammi fyrir væri ekki að tryggja
okkur aðgang að mörkuðum fyrir
afurðir okkar heldur hvort við vildum
búa við hagkerfí sem byði sömu
starfsskilyrði og innan EB eða ein-
angra okkur frá framvindu mála og
„treysta á Guð og lukkuna". Þessari
spumingu yrðum við að svara strax
en ekki árið 1992.
Fjórir íslenskir Norð-
urlandameistarar í skák
ÍSLENDINGAR fengu Qóra Norðurlandameistara af fímm í skólaskák
í Reykjavík um helgina, og litlu munaði að sá fímmti bættist við. Héðinn
Steingrímsson varð Norðurlandameistari í skólaskák fimmta árið i röð.
Morgunblaðið/Ámi Sœberg.
Frá Viðskiptaþingd Verslunarráðsins í gær. í ræðustól er Hans Joachim von Bulov, framkvæmdastjóri versl-
unarráðs EB-ríkjanna, en sitjandi eru þau Jóhann J. Ólafsson, formaður Verslunarráðs íslands og Vigdis
Finnbogadóttir forseti íslands sem var heiðursgestur Viðskiptaþingsins.
Viðskiptaþing Verslunarráðsins:
Mendingar verða að aðlaga
sig að þróuninni innan EB
VIÐSKIPTAÞING Verslunarráðs Islands var haldið á Hótel Sögu i gær
en það var að þessu sinni helgað íslandi og Evrópubandalaginu(EB).
Fjórar nefndir, sem unnið hafa á vegum Verslunarráðsins, að þvf að
gera úttekt á þeim breytingum, sem nú eiga sér stað innan EB, kynntu
afrakstur vinnu sinnar en tilgangur hennar var, að mynda grunn, sem
atvinnulifið getur markað sér heildarstefíiu i málefnum EB á. Lögðu
menn mikla áherslu á mikilvægi þess að íslendingar aðlöguðu sig að
þessum breytingum. Ólafur Daviðsson, framkvæmdastj óri Félags
islenskra iðnrekenda, sagði það vera einna brýnast að afiiema hömlur
á gjaldeyrisviðskiptum. Spumingin, sem við þyrftum að gera upp við
okkur, væri hvort við vildum búa við hagkerfí, sem byði fyrirtækjum
sömu starfsskilyrði og innan EB, eða hvort við vildum einangra okkur
frá framvindu mála og „treysta á Guð og lukkuna".
Píanótónleikaröð á vegum
EPTA í Islensku óperunni
FYRSTU tónleikar af Qórum f röð pfanótónleika á hinn nýja og glæsi-
lega Steinway-flygil f Islensku óperunni f Gamla bfó, verða haldnir mánu-
dagskvöldið 20. febrúar. Á þessum tónleikum mun Þorsteinn Gauti Sig-
urðsson leika ítalska konsertinn eftir J.S. Bach, Waldstein-sónötu Beet-
hovens, Valleé d’Oberman eftir Liszt, Qórðu Ballötu Chopins og Scarbo
eftir Ravel. Á öðrum tónleikum koma fram Guðmundur Magnússon 13.
mars, Ruth Slenczynska 3. apríl og Selma Guðmundsdóttir 24. apríl.
leika þeirra og að þeir fái í rauninni
Tónleikar þessir em haldnir á veg-
um íslandsdeildar EPTA (European
Piano Teachers Association), Evr-
ópusambands píanókennara, en það
er nýorðið tíu ára og deildin hér sú
næst elsta í sambandinu. Lengi hefur
verið um það rætt, að erfítt sé fyrir
píanóleikara að starfa sem einleikar-
ar hér á landi, langt sé á milli tón-
ekki næga og stöðuga æfíngu í að
koma fram, sérhveijir tónleikar séu
eins konar fmmraun. Einnig hafa
unnendur píanótónlistar oft haft á
orði að píanótónleikar hér séu bæði
fáir og óreglulegir. Til að koma til
móts við báða þessa hópa hefur
EPTA-stjómin hér haft áðumefnda
pfanótónleikaröð í undirbúningi und-
anfama mánuði.
Til að ömggur gmnnur geti mynd-
ast fyrir slíkum tónleikum og fram-
haldi þeirra er nauðsynlegt að nógu
margir gerist áskrifendur að slíkri
tónleikaröð. Lausasala við inngang
tónleika er of óáreiðanleg til að
byggja upp slíka starfsemi. Þess
vergna er hér boðið upp á áskrift
að tónleikum þessum, en ganga má
frá henni í versluninni Istóni við
Óðinstorg eða í íslensku ópemnni.
Þar em einnig að fá hvers konar
upplýsingar og eftiisskrár allra tón-
Þorsteinn Gauti Ruth Slenczynska.
Sigurðsson.
leikanna.
Viðbrögð píanóleikara hér hafa
verið svo góð að þegar er búið að
parta tónleika næsta vetur og laus-
leg könnun meðal unnenda píanótón-
listar sl. haust var einnig mjög já-
kvæð. Stjóm íslandsdeildar EPTA
vonar því að þessu framtaki verið
vel tekið og með því takist að skapa
Guðmundur Selma
Magnússon. Guðmundsdóttir.
íslenskum píanóleikurum ömggari
starfsgmndvöll. Einnig munu erlend-
ir píanóleikarar taka þátt í tónleikum
þessum, en Ruth Slenczynska, sem
hreif hug og hjörtu tónlistarunnenda
hér fyrir nokkmm ámm, mun halda
hér tónleika og námskeið í byijun
apríl.
(Fréttatilkynninjf)
Alþjóðlegur varaflugvöllur íslandi:
Wömer staðfestir að flug-
völlurimi sé borgaralegur
Sannfærður um að völlurinn verður
lagður, segir utanríkisráðherra
MANFRED Wömer aðalframkvæmdastjóri Atlantshafsbandalags-
ins hefíir staðfest með bréfí til Jóns Baldvins Hannibalssonar
utanríkisráðherra að varafiugvöllur sá sem lagt er til að verði
lagður á íslandi yrði mannaður og starfræktur af óbreyttum
borgurum og ekki talinn vera herflugvöllur nema til stríðsátaka
komi. íslensk sfjómvöld þurfa nú að taka afstöðu til þess hvort
fram fari forkönnun þar sem meðal annars verður valinn hentug-
asti staðurinn fyrir flugvöllinn. Að þeirri könnun lokinni er hægt
að taka afstöðu til hvort af lagningu hans verði, sagði Jón Bald-
vin á blaðamannafundi um varaflugvallarmálið í gær. Bréf Wöm-
ers hefur verið kynnt i rfkisstjórninni en ekki tekin afstaða til
þess. Jón Baldvin sagðist í samtali við Morgunblaðið vera sann-
færður um að þessi forkönnun muni fara fram og að flugvöllur-
mn verði lagður í framhaldi af henni. Hann segist vilja leita samn-
inga við Bandaríkjamenn um að þeir standi straum af rekstrar-
kostnaði við flugvöllinn.
í bréfí Wömers er vitnað til
viðræðna hans og Jóns Baldvins
7. desember síðastliðinn. Wömer
segir síðan: „Að höfðu samráði
við hlutaðeigandi stjómunaraðila
innan Atlantshafsbandalagsins
get ég staðfest að flugvöllur sá,
sem tillaga liggur fyrir um, mun
á engan hátt gegna hemaðar-
hlutverki á friðartímum. Flugvöll-
urinn yrði mannaður og starf-
ræktur af óbreyttum borgurum
og ekki talinn herflugvöllur nema
á stríðstímum. Þannig yrði í öllu
tilliti litið á þennan flugvöll sem
borgaralegan flugvöll.
Að sjálfsögðu yrði að gera ráð
fyrir að herflugvélum jafnt sem
borgaralegum flugvélum yrði
beint til þessa varaflugvallar þeg-
ar veður eða neyðarástand gerði
slíkt óhjákvæmilegt. Til að
tryggja öryggi í flugrekstri og að
flugmenn kynnist staðháttum við
flugvöllinn myndu herflugvélar
stöku sinnum og í takmörkuðum
mæli æfa þar aðflug og lendingu."
í reglum Mannvirkjasjóðs At-
lantshafsbandalagsins em undan-
þáguákvæði frá almennum
ákvæðum um greiðslu kostnaðar
úr sjoðnum. Þau ákvæði heimila
að lagt sé fé í borgaraleg mann-
virki sem varaflugvöllinn í eigu
og umsjá íslendinga, að uppfyllt-
um ákveðnum skilyrðum um gerð
hans og búnað.
Flugbraut þarf að vera
3000 metra löng
Jón Baldvin lýsti því hvaða skil-
yrði flugvöllurinn þarf að upp-
fylla. í fyrsta lagi þarf flugbraut
að vera 3.000 metra löng og sam-
hliða henni akstursbraut. Jón gat
þess að þær flugvélar sem lenda
nú reglulega á Islandi frá Flying
Tigers flugfélaginu þurfa allt að
3.150 metra langa flugbraut full-
hlaðnar.
I öðm lagi þurfa flughlöð að
vera nægilega rúm til að leggja
megi flugvélum og að aðstaða
veröi til viðgerða í flugskýli.
í þriðja lagi þarf eldsneytis-
geymsla að vera til staðar með
mögulegri tengingu við olíuhöfn
og skýli þarf að vera fyrir tank-
bfla.
Loks þurfa að vera á flugvellin-
um fullkominn flugtum, fullkomin
flugleiðsögutæki, fullkomin
slökkvistöð, bygging fyrir þjón-
ustu við áhafnir og farþega og
aðstaða til veðurþjónustu.
Á þessu stigi hefur Mannvirkja-
sjóður Atlantshafsbandalagsins
aðeins samþykkt að veita fé til
forkönnunar á mögulegum stöð-
um fyrir varaflugvöllinn og gerð
hans. Jón Baldvin sagði að þessi
forkönnun væri forsenda þess að
hægt væri að ákveða nokkuð um
hvort af lagningu flugvallarins
verður. Á þassu stigi þurfa því
stjómvöld að gera upp við sig
hvort þau vilja láta forkönnunina
fara fram. Bæði danska stjómin
og grænlenska heimastjómin hafa
samþykkt slíka könnun á Græn-
landi, en annað hvort Grænland
eða ísland verður fyrir valinu fyr-
ir varaflugvöll sem Mannvirkja-
sjóðurinn greiðir.
Yrði varaflugvöllur fyrir
allt alþjóðlegt flug
Jón Baldvin lagði mikla áherslu
á að umræddur flugvöllur yrði
varaflugvöllur fyrir allt alþjóðlegt
flug við og yfír landinu, ekki að-
eins fyrir þær flugvélar sem fyrir-
sjáanlegt er að verði í eigu
íslenskra flugfélaga og þurfa mun
styttri flugbraut. Hann sagði að
varaflugvöllur yrði að geta full-
nægt til dæmis öllum framtíðar-
þörfum íslendinga í sambandi við
vömflutningaflug með ferskan
físk og aðrar vörur.
Þá sagði hann það vera ótvír-
ætt að slíkar framkvæmdir yrðu
hveiju byggðarlagi sem hlut ætti
að máli í grennd vallarins geysi-
mikilvægar og mikil lyftistöng
fyrir atvinnulífíð þar, bæði á með-
an framkvæmdir standa og þegar
rekstur vallarins hæfist.
Ekki liggur fyrir kostnaðará-
ætlun um varaflugvöllinn, en Jón
sagði að hæstu tölur sem nefndar
hafa verið séu að jafngildi 11
milljarða króna. Rekstur flugvall-
arins yrði að öllu leyti í höndum
íslendinga og kvað Jón áætlanir
gera ráð fyrir að hann kosti 75
til 100 milljónir króna á ári. Hann
kvaðst vilja ná samningum við
Bandaríkjamenn um að greiða
kostnað við reksturinn.
Þótt varaflugvöllurinn verði
kostaður af Mannvirkjasjóðnum,
sagði Jón Baldvin að völlurinn
með búnaði yrði í eigu fslendinga,
en tryggja þyrfti það með sérstök-
um samningum í þá vem.
Um afnot NATO af flugvellin-
um sagði Jón Baldvin að enginn
vafi væri á því, að á stríðstímum
yrðu gerðir samningar um afnot-
in. Hins vegar, ef um aðra
stríðsaðila en bandalagsþjóðir ís-
lendinga væri að ræða, ef innrás
yrði gerð í landið, þyrfti ekki að
vænta þess að samninga yrði leit-
að um afnot af þessum flugvelli
fremur en öðmm mannvirkjum.
Hins vegar sagði Jón það vera
ótvírætt að flugvöllurinn yrði ekki
á vamarsvæði Vamarliðsins og
eftir að hann kæmist í gagnið
yrði hann undir forræði sam-
gönguráðherra, „sem er athyglis-
vert í þessu máli," sagði hann.
Utanríkisráðherra sagði það
vera sinn vilja að veitt verði heim-
ild til forkönnunar. Þeirri könnun
yrði lokið eftir nokkra mánuði og
þá væri tímabært að ákveða um
heimild til að leggja flugvöllinn.
Morgunblaðið spurði Jón Baldvin
Hannibalsson að lokum um hvort
hann væri sannfærður um að þessi
mál næðu fram að ganga, að
heimild verði veitt til forkönnunar
og síðan til að leggja flugvöllinn.
„Já, ég er sannfærður um það ...
í fyllingu tímans." Hann vildi ekki
tjá sig nánar um tímasetningar í
þessu sambandi.
Staðfesting Wömers
loðin, segir Ólafiir Ragnar
Bréf Wömers var kynnt í ríkis-
stjóminni í gær og urðu nokkrar
umræður um það, en engar
ákvarðanir teknar. Ólafur R.
Grímsson fjármálaráðherra og
formaður Alþýðubandalagsins
sagði í samtali við Morgunblaðið
að staðfesting Wömers væri bæði
loðin og í henni væri ekkert nýtt
að fínna. Fyrir lægi að hemaðar-
bandalag væri reiðubúið að reisa
mannvirki fyrir 11 milljarða króna
hér á landi, auðsjáanlega í hemað-
arlegum tilgangi. Sagðist hann
ekki geta sagt til um framgang
málsins innan ríkisstjómarinnar.
Steingrímur Hermannson forsæt-
isráðherra kvaðst ekki vilja ræða
þetta mál við Morgunblaðið er
leitað var eftir samtali við hann.
Morgunblaðið/Júlíus
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra greinir frá bréfí
Manfreds Wömers aðalfranikvæmdastjóra Atlantshafsbandalags-
ins á fréttamannafundi í gær. Wðmer staðfesti í bréfinu að al-
þjóðlegur varaflugvöllur á íslandi, kostaður af Mannvirkjasjóði
Atlantsha&bandalagsins, yrði í öllu tilliti borgaralegur flugvöUur
á friðartímum. Jón Baldvin er sannfærður um að flugvöUurinn
muni verða byggður, þrátt fyrir að umdeUdur sé í ríkisstjórninni.