Morgunblaðið - 15.02.1989, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1989
27
HlutaQársjóðiir Bygg'ðastofii-
unar gerður að ruslakistu
- segir Kristín Halldórsdóttir
Bráðabirgðalög ríkisstjómar
Steingrims Hermannssonar era
enn til umræðu á Alþingi. Á fundi
neðri deildar í gær sagði Kristin
Halldórsdóttir, að með breyting-
artillögum forsætisráðherra um
Hlutafjársjóð Byggðastofiiunar
væri ekki verið að koma til móts
við stjórnarandstöðuna, enda
væri verið að gera sjóðinn að
ruslakistu. Þangað ættu þau fyr-
irtæki að ieita, sem ekki full-
nægðu þeim skilyrðum, sem
væru fyrir aðstoð úr Atvinnu-
tryggingarsjóði útflutnings-
greina.
Kristín minnti í upphafi máls síns
á, að Kvennalisti og Sjálfstæðis-
Mikil fiindahöld
framundan á Alþingi
- segir Guðrún Helgadóttir
Stif fúndahöld eru framundan
á Alþingi næstu daga, að sögn
Guðrúnar Helgadóttur, forseta
sameinaðs þings. Þinghald fellur
niður vikuna 27. febrúar til 6.
mars, en þá verður þing Norður-
landaráðs haldið i Stokkhólmi.
Guðrún sagði að reynt yrði að
vinna upp þetta vikuhlé með stffum
fundahöldum; lfklega þyrfti að efna
til funda á kvöldin og jafnvel á laug-
ardögum. Eins mætti reikna með því
að eitthvað teygðist úr þinghaldinu
fram á vorið, en í starfsáætlun þings-
ins er gert ráð fyrir þinglausnum í
byijun maí. Guðrún sagði að áætlun-
in hefði verið gerð til þess að reyna
að jafna starfsálagið yfír veturinn,
en reynslan væri sú, að mál söfnuð-
ust upp, bæði fyrir jólaleyfí og þing-
lausnir.
Guðrún Helgadóttir.
flokkur hefðu fyrir jól lagt fram
hugmyndir um stoftiun sérstaks
hlutafjársjóðs við Byggðastofnun,
sem hefði átt að kaupa hlut í út-
flutningsfyrirtækjum til að bæta
eiginfjárstöðu þeirra. Bætt eigin-
fjárstaða væri mun betur til þess
fallin að auka styrk fyrirtækja held-
ur en lánafyrirgreiðsla. Þessi breyt-
ingartillaga forsætisráðherra um
hlutafjársjóð væri hins vegar flutt
í óþökk stjómarandstöðunnar, þótt
tilgangur hennar hefði sennilega
verið að milda afstöðu stjómarand-
stæðinga.
Kristín sagði að Kvennalistinn
vildi vissuiega gera byggðasjónar-
miðum hátt undir höfði en á vanda
byggðarlaganna yrði að taka bæði
með sértækum aðgerðum og al-
mennum. Nú virtust ráðherrar
ríkisstjómarinnar komnir á villigöt-
ur í sambandi við þátt sérstaks
hlutafjársjóðs í þessum efnum og
búið væri að gera hann að rusla-
kistu. Þangað ættu þeir að leita,
í gær fór fram önnur umræða
um ríkisreikninga ársins 1979 i
neðri deild Alþingis. Einnig var
fjallað um ríkisreikninga fyrir
Kristín Halldórsdóttir
sem ekki uppfylltu skilyrði Atvinnu-
tryggingarsjóðs fyrir lánafyrir-
greiðslu, auk þess sem opnað væri
fyrir framlög til hans úr rfkissjóði
og opinberum sjóðum, svo sem Iðn-
þróunarsjóði og Fiskveiðasjóði.
Kristín gagnrýndi bráðabirgða-
lögin og meðferð þeirra harðlega
og sagði að lokum að það væri ljót-
ur svipur á stjómvaldsaðgerðum af
þessu tagi.
árin 1981 tíl 1986. Við umræðuna
sagði Sighvatur Björgvinsson að
það væri vanvirða við löggjafar-
valdið að leggja fram svona
gamla reikninga og Geir H.
Haarde sagði að það væri til van-
sæmdar og á engan hátt i sam-
ræmi við nútímavinnubrögð.
Sighvatur Björgvinsson (A/Vf)
hóf þessa umraeðu um ríkisreikn-
ingana. Sagði hann að það væri
vanvirða við löggjafarvaldið í
landinu að framkvæmdarvaldið
skuli leyfa sér að leggja fram 10
ára gamla reikninga. Embættis-
menn og ráðherrar væm með þessu
að troða á Alþingi. Ekki sagðist
hann þó eiga við neinn sérstakan
ráðherra með þessu. Hann líkti
ríkisreikningunum við ársreikning
fyrirtækis og spurði hvað menn
myndu segja um fjármálastjóra fyr-
irtækis ef hann leyfði sér að leggja
fram svona gamla reikninga.
Sighvatur lýsti að lokum þeirri
skoðun sinni, að leggja ætti ríkis-
reikninga hvers árs fram strax vor-
ið eftir.
Matthías Á. Mathiesen (S/Rn)
tók næstur til máls. Hann sagði að
það hlyti að vekja mikla athygli að
svona gamlir ríkisreikningar væm
Tekju- og eiguarskattur:
Persónuaf-
slátturfær-.
ist að fullu
milli hjóna
Sólveig Pétursdóttir (S/Rvk)
og sex aðrir þingmenn úr Sjálf-
stæðisflokki og Borgaraflokki
hafa lagt fram frumvarp til laga
um breytingar á iögum um tekju-
og eignarskatt. Samkvæmt því á
persónuafsláttur að verða að
fúllu millifæranlegur milli hjóna.
Samkvæmt gildandi lögum er
þessi millifærsla takmörkuð við 80%
af þeim hluta persónuafsláttarins,
sem annar maki nýtir ekki. í grein-
argerð með frumvarpinu er sagt,
að þessi takmörkun leiði til þess
að vemlegur mismunur verði í
skattlagningu heimila eftir því
hvemig teknanna er aflað; hvort
einungis annað hjóna aflar allra
teknanna eða þeirra er aflað með
vinnu beggja. Geti þar munað vem-
legum fjárhæðum og bersýnileg
mismunun felist í ákvæðum skatta-
laga að þessu leyti.
lagðir fram á Alþingi. Vakti hann
síðan athygli á því, að nú hefði
orðið sú breyting á, að Ríkisendur-
skoðun sæi um endurskoðun reikn-
inganna, en áður hefði það verið í
höndum Alþingis. Taldi þingmaður-
inn breytinguna mjög til bóta.
Geir H. Haarde (S/Rvk) sagði
að hann væri í aðalatriðum sam-
mála Sighvati Björgvinssyni. Þessi
málsmeðferð væri til vansæmdar
og ekki í neinu samræmi við
nútímavinnubrögð. Svona vinnu-
brögðum þyrfti að breyta.
Geir sagði það skoðun sína, að
ekki ætti að samþykkja fjárlög
næsta árs fyrr en ríkisreikningur
fyrir árið á undan hefði verið stað-
festur. Eins ætti að afgreiða
fjáraukalög liðins árs um leið og
flárlög komandi árs. Þannig kæmu
ríkisreikningamir að gagni og Al-
þingi gæti veitt ráðhermm meira
aðhald í sambandi við aukaQárveit-
ingar.
Árni Gunnarsson (A/Ne) sagð-
ist telja að full ástæða væri til að
kanna það í ríkisreikningunum
hvemig fjárlögum hefði verið fram-
fylgt. Taldi hann að víða væri pott-
ur brotinn í þeim efnum.
Halldór Blöndal::
Er varaflugvöllur í Aðal-
dal ekki inn í myndinni?
HALLDÓR Blöndal (S/Ne) hefur
lagt fram á Alþingi fyrirspum til
Steingríms J. Sigfússonar sam-
gönguráðherra um varaflugvöll f
Aðaldal.
Þingmaðurinn spyr hvers vegna
varaflugvöllur í Aðaldal sé „ekki á
dagskrá f samgönguráðuneytinu", og
vísar þar til ummæla ráðherrans í
ríkissjónvarpinu þann 8. febrúar.
Hann spyr einnig, hvort svo sé um
fleiri samgöngumannvirki í Norður-
landskjördæmi eystra, að þau séu
„ekkj á dagskrá í samgönguráðu-
neytinu".
Salome Þorkelsdóttir (S/Rn)
hefur lagt fram fyrirspum til Hall-
dórs Asgrímssonar dómsmálaráð-
herra. Spyr Salome hvað líði gerð
og úrvinnslu afbrotaskýrslu um kyn-
ferðisafbrot gagnvart bömum.
Danfríður Skarphéðinsdóttir
(Kvl/Vl) hefur lagt fram fyrirspum
til Jóns Sigurðssonar, viðskiptaráð-
herra, hvað hafí verið gert af hálfu
ríkisstjómarinnar til að ná því mark-
miði stjómarsáttmálans, „að bæta
aðstöðu verslunarfyrirtækja í dreif-
býli“.
Þórhildur Þorleifsdóttir
(Kvl/Rvk) hefur lagt fram fyrir-
spum til Svavars Gestssonar,
menntamálaráðherra, um bamaefni
í Qölmiðlum árið 1988. Spyr þing-
maðurinn hvað bamaefni hafí verið
stórt hlutfall af heildarútsendingum
ríkisútvarpsins og sjónvarpsins á ár-
inu og hve mikill hluti þess efnis
hafí verið íslenskur. Einnig spyr
þingmaðurinn hve miklu fé hafi ver-
ið varið til innlendrar dagskrárgerðar
árið 1988 og hversu margir hafí
starfað að henni, hve miklu fé hafí
verið varið til kaupa á erlendu sjón-
varpsefni og hversu stór hluti erlends
bamaefnis hafi verið textaður eða
með íslensku tali. Að lokum spyr
Þórhildur Þorleifsdóttir menntamála-
ráðherra hveijir hafi verið helstu
flokkar bamaefnis í ríkisútvarpinu
og sjónvarpinu á árinu 1988.
Fjallað um tíu ára gamla
rfldsreikninga í neðri deild
Vanvirða við löggj afarvaldið, segir Sighvatur Björgvinsson
Nokkrir þátttakenda á hagfræðinámskeiðinu.
Mcrrgunblaðið/Diðrik Jóhannsson
Vel sótt hagfræðinámskeið
Hvannatúni Andakíl.
Á VEGUM Bændaskólans á
Hvanneyri og Búnaðarfélags ís-
lands var fyrir skönunu haldið
flögurra daga hagfræðinámskeið
fyrir ráðunauta og fleiri.
Kennarar á námskeiðinu voru
Gunnlaugur Júlíusson hagfræðingur
Stéttarsambands bænda, Karen
Refsgaárd kennari Búvlsindadeildar
Bændaskólans og Ketill A. Hannes-
son hagfræðiráðunautur Búnaðarfé-
lags íslands. Nemendur komu úr
röðum héraðsráðunauta og frá öðr-
um stofnunum landbúnaðarins, auk
nemenda Búvfsindadeildar, sem eru
á lokaári í námi.
Á dagskrá voru til umfjöllunar efn-
isflpkkar eins og arðsemisrnat, bú-
rekstfarstjórnun, áætlanagerð og
endumýjum flárfestinga. A síðast-
liðnu ári var ráðinn endurmennuntar-
stjóri og gegnir því starfi Runólfur
Sigursveinsson, fyrrum yfirkennari
við Bændaskólann á Hvanneyri. í
samtali við fféttaritara taldi hann upp
margvísleg námskeið, sem ákveðin
eru á næstu vikum við Bændaskólana
á Hvanneyri og Hólum.
- D.J.
Flak Marianne Danielsen:
Þeir sem vilja
mega hirða flakið
Björgun vill flarlægja það fyrir borgun
EIGENDUR danska skipsins
Marianne Danielsen sem nýlega
strandaði við Grindavík hafii
gefið út þá yfirlýsingu að þeir
sem geta megi hirða flakið.
Þorvaldur Jónsson skipamiðl-
ari, umboðsmaður eigenda,
segir að þetta sé háð því skil-
yrði að bæjarstjóra Grindavík-
ur samþykki viðkomandi.
„Það verður að liggja ljóst fyr-
ir að sá sem vill hirða flakið geti
komið því af strandstað," segir
Þorvaldur Jónsson. „Sá sem vill
hirða flakið mun fá það sér að
kostnaðarlausu, það er eigendurn-
ir fara ekki fram á neina borgun
fyrir flakið."
Björgun hf. hefur gert eigend-
um flaksins ákveðið tilboð um að
annaðhvort ná Marianne Daniel-
sen á flot eða búta það í sundur
í brotajám á strandstað. Kristinn
Guðbrandsson forstjóri Björgunar
hf. segir að þeir fari fram á
ákveðna fjárhæð fyrir að gera
þetta en vill ekki að svo stöddu
gefa upp hve sú fjárhæð er mik-
il. „Við teljum okkur geta bútað
flakið niður á strandstað, ef ekki
reynist mögulegt að ná skipinu á
flot, en viljum fá greiðslu fyrir
verkiðf“ segir Kristinn.