Morgunblaðið - 15.02.1989, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1989
29
ÓlöfÁgústa Jóns-
dóttir - Kveðjuorð
Fædd 5. nóvember 1968
Dáin 8. febrúar 1989
Mig langar til að minnast æsku-
vinkonu minnar sem kvaddi svo
skyndilega þennan heim þann 8.
febrúar sl.
Oft hefur leið mín legið yfir í
næsta hús til Ólafar, yfír girðinguna
og í gegnum garðinn. Stundum hitt-
umst við á miðri leið, þá var ég á
leið til hennar og hún til mín. Sem
böm áttum við margar samveru-
stundimar sem seint gleymast. Við
gátum leikið okkur saman svo tímum
skipti en stundum slettist líka upp
á vinskapinn, en það varði aldrei
lengi. Þegar líða tók á unglingsárin
fækkaði samverustundum okkar til
muna. Hún hélt á leið með jafnöld-
mm sínum og ég með mínum. Við
fýlgdumst þó alltaf hvor með ann-
arri og fengum reglulega fréttir.
Síðast hitti ég hana rétt fyrir jólin
og vorum við að hlæja að því hvað
allt hefði breyst frá því fyrir nokkr-
um árum. Þessa síðust daga hef ég
margspurt sjálfa mig hvers vegna
hamingjusöm, ung og falleg stúlka
í blóma lífsins er tekin svo skyndi-
lega í burtu, en svörin fæ ég ekki.
Elsku Hildur, Jón Þór, Svavar,
Amþór, Ómar Andri og Jón Geir,
ég sendi ykkur mínar innilegustu
samúðarkveðjur og megi góður Guð
styrlq'a ykkur í þessari miklu sorg.
Að lokum við ég vitna í orð spá-
mannsins: „Þegar þú er sorgmæddur
skoðaðu þá aftur huga þinn og þú
munt sjá, að þú grætur vegna þess,
sem var gleði þ!n.“
Bogga
Ólöf okkar er dáin, blessuð sé
minning hennar. Upp í huga manns
koma minningar um hið liðna, atvik,
samtöl, samstarf, hlátur, gleði, reiði
og allt sem tengist mannlegum sam-
skiptum. Þessar minningar munu
varðveitast í huga manns um
ókomna framtíð.
Ólöfu kynntist ég fyrst í lok októ-
ber 1987 er hún kom á tal við mig
og var hún þá í atvinnuleit. Ég var
þá starfandi framreiðslumaður í Bro-
adway og hafði nokkrar aðstoðar-
manneskjur með mér í því starfí.
Ólöf var ráðin til starfa og mætti
hún strax næstu helgi. Það kom
strax í ljós að hér var á ferðinni
traust og dugleg stúlka sem hafði
bæði þekkingu og reynslu af faginu.
Hún hafði sterkan persónuleika og
bjó yfir miklum mannlegum eigin-
leikum sem sérhver góður þjónn
þarf að hafa. Ólöf vann allar helg-
ar, jafnframt því að vera í skóla.
Stundum kom hún beint úr skólanum
og vann til næsta morguns. Hún tók
ávallt virkan þátt ( undirbúningi fyr-
ir matarveislur. Samstarf okkar hef-
ur verið óslitið síðan.
Ári síðar eða í október 1988 tók
ég við nýju starfi í Hollywood, Ólöf
Agústa, mín dyggasta stoð og vinur
fylgdi mér ásamt nokkrum öðrum
og unnum við saman fram að þessu
skyndilega atviki sem við fáum ekki
skilið. Við sem unnum með henni
erum öll harmi slegin og það tóma-
rúm sem hefur skapast við fráfall
hennar verður erfítt að fylla.
Það er trú mín og vissa að Ólöfu
sé ætlað stærra hlutverk á öðrum
stað á öðrum tíma.
Ólöf var góð stúlka og vinur í
raun, þroski hennar og innsæi spegl-
aðist í sterkum persónuleika hennar.
Hún var mannvinur og mátti ekkert
bágt sjá án þess að hjálpa.
Minningamar um Ólöfu fylgja
okkur gegnum lífið og er ég þakklát-
ur fyrir að hafa fengið að kynnast
henni.
Ég sendi foreldrum hennar, systk-
inum og unnusta mínar innilegustu
samúðarkveðjur og bið guð að
styrkja þau á erfiðum stundum.
Guðmundur Sigtryggsson
Ung og yndisleg stúlka í blóma
lífsins er kölluð héðan og eftir standa
foreldrar, bræður, ættingjar og vinir
með sorg í hug og hjarta. Ólöf
Agústa var öllum kær og dreifði
lífsgleði og birtu á meðal allra sem
til hennar þekktu. Hún var sólar-
geisli foreldra sinna og ætíð reiðubú-
in að veita hjálparhönd ef á þurfti
að halda, það vottar best hennar
síðasta verk hér á jörðu. Er okkur
barst andlátsfregn Ólafar Ágústu
var sem ísköld hönd tæki um okkur
og við gátum ekki skilið að hún
væri farin frá okkur. Það er ekki
langur tími liðinn frá jólum en þá
var hlátur og gleði allsríkjandi í
Efstasundi 73 eins og alltaf er við
hittumst á heimili foreldra hennar,
sem eru okkar bestu vinir. Þá hvarfl-
aði það ekki að okkur að þetta yrði
okkar hinsta kveðja. Það er erfítt
að lýsa þeirri sorg sem fyllir hug
okkar og bama okkar.
Ykkur, kæm vinir, vottum við
okkar innilegustu samúð við fráfall
ykkar elskulegu dóttur og megi guð
gefa ykkur, sonum ykkar, unnusta
hennar og öllum ættingjum þrek og
styrk á þessari stundu.
Rósa, Stefán og börn
14. febrúar 1989 kvöddum við
okkar kæm vinkonu, Ólöfu Ágústu
Jónsdóttur, og langar okkur til að
minnast hennar með fáum orðum.
Það er skrítin tilfínning sorgar
og ótta sem kemur yfir mann þegar
svona harmafrétt berst og innst
inni trúir maður því ekki að dauðinn
komi og taki vinkonu okkar frá
okkur einmitt þegar hún er í blóma
lífsins.
Ólöfu þekktum við sem duglega
og hjartagóða stúlku sem alltaf var-
gott að umgangast, okkur er mest
til minnist tvítugsafmæli hennar
fyrir stuttu þar sem við áttum
ánægjulegar og hlýjar stundir með
henni og fjölskyldu hennar.
Minningin um hana mun aldrei
hverfa úr hugum okkar.
Við kveðjum Ólöfu og þökkum
alla samveruna og vináttu sem hún
veitti okkur. Jón Geir, foreldrar og
bræður, við sendum ykkur okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V.Briem).
Stefán Þór og Barbara
raðauglýsingar — raðaugiýsingar — raðaugiýsingar
| þjónusta | I | nauðungaruppboð \ I | fundir — mannfagnaðir |
Bólstrun Hauks
Allar klæðningar og viðgerðir á bólstruðum
húsgögnum. Úrval af efnum. Allt unnið af
fagmanni. Góð þjónusta. Gott verð.
Upplýsingar í síma 91-681460 á kvöldin og
á verkstæðinu, Háaleitisbraut 47.
| titboð — útboð
Útboð - gatnagerð
Hafnarfjarðarbær leitar tilboða í gerð gatna
og lagna í Setbergi. Helstu magntölur eru:
Uppúrtekt 4000 rm, fylling 7800 rm, holræsa-
lögn D=200 mm 680 Im, holræsalögn D=300
mm 425 Im.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu bæjar-
verkfræðings, Strandgötu 6, gegn 10.000
kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á
sama stað fimmtudaginn 23. febrúar kl.
11.00.
Bæjarverkfræðingur.
Vanefndauppboð
Vegna vanefnda hæstbjóðanda fer fram nauðungaruppboð á hús-
eigninni Háholti 11, neðri hæð, talinni eign Ketils Vilbergssonar, á
eigninni sjálfri miðvikudaginn 15. febrúar 1989 kl. 11.00.
Bæjarfógetinn á Akranesi.
Til sölu fiskverkun
á góðum stað á Suðurnesjum. Mjög hentugt
fyrir lítinn rekstur. Beitningaraðstaða. Frysti-
klefi. Einnig lyftari, kör og vörubíll ásamt fleiru.
Upplýsingar í síma 92-37417.
Hagstætt fyrirtæki
til sölu
Nýir möguleikar og viðhorf frá 1. mars næst-
komandi. Starfssvið er innfluttningur, iðnað-
ur, heildsala og smásala á þekktum vöru-
flokkum. Tilvalið til sameiningar við sambæri-
leg fyrirtæki. Miklir möguleikar á veltuaukn-
ingu.
Þeir, sem áhuga hafa, sendi skriflegt svar
til auglýsingadeildar Mbl. merkt. „GE -
2713“.
Aðalfundur
Framfarafélags Selás- og Árbæjarhverfis
verður haldinn í Árseli miðvikudaginn 22.
febrúar nk. kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Umræður um skipulagsmál hverfisins.
Gestur fundarins verður Þorvaldur S. Þor-
valdsson, forstöðumaður borgarskipulags.
Stjórn F.S.Á.
Aðalfundur
Breiðfirðingafélagsins
Aðalfundur Breiðfirðingafólagsins í Reykjavík
verður haldinn miðvikudaginn 22. febrúar kl.
20.30 í Sóknarhúsinu, Skipholti 50A.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Apglýsinga-
síminn er 2 24 80
smáaugiýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
I.O.O.F. 7 = 1702158V2 = 9.0
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindislns.
Almenn samkoma ! kvöld
kl. 20.00.
□ GLITNIR 59892157 - 1
□ HELGAFELL 598915027
IV/V - 1 FÖSTUF.
REGLA MIISTERISRIODARA
RMHekla
15.2.VS.FR.
Hvitasunnukirkjan
Ffladelfía
Almennur blbllulestur I kvöld kl.
20.30. Ræðumaður Hallgrimur
Guðmannsson. Allir hjartanlega
■miiinim
Skyggnilýsingarfundur
verður í kvöld kl. 20.30 í Siðu-
múla 25. Ray Wílliamson og
Þórhallur Guðmundsson verða
með skyggnilýsingar. Allir vel-
komnir meðan húsrúm leyfir.
Ljósgeislinn.
utivist, c,_„
Árshátíð Útivistar
laugardaginn 18. fabr. Nú er tæki-
færi til að blása á allt óveður og
mæta í sólskinsskapi á góða
skemmtun í Skíöaskálanum,
Hveradölum. Glæsilegt heitt og
kalt hlaðborð. Danshljómsveit.
Rútuferð frá BSf, bensinsölu, kl.
18.30 og til baka að skemmtun
lokinni.
Allir velkomnir. Pantið strax.
Næstu helgarferðlr:
1. Tindafjöll 24.-26. febr.
2. Þórsmörk i vetrarskrúða er
frestað til 3. mars. Gerist Úti-
vistarfélagar. Uppl. og miðar á
skrifst., Grófinni 1, simar: 14606
og 23732. Sjáumstl
Útivist, feröafélag.
Emmess ís svigmót
Fram
haldið í Eldborgargili í Bláfjöllum
18. og 19. febrúar 1989.
Laugardagur.
Kl. 10.00. Brautarskoðun karla,
kvenna og 15-16 ára. Veröiauna-
afhending aö lokinni keppni.
Kl. 13.00. Brautarskoðun 13-14
ára. Verðlaunafhending að lok-
inni keppni.
Sunnudagur.
Kl. 11.30. Brautarskoðun 11-12
ára barna.
Kl. 13.30. Brautarskoðun 9-10
ára og 8 ára og yngri.
Verðlaunaafhending að lokinni
keppni.
Fararstjórafundur verður hald-
inn föstudaginn 17. febrúar kl.
18.30 (Framheimilinu, Safamýri,
Reykjavík.
Þátttökutilkynningar berist til
Jóns Ólafssonar, Brúarási 12,
hs. 671066 eða vs. 12345 fyrir
miðvikudagskvöld.
Þátttökugjöld greiðast é farar-
stjórafundi.
Stjómin.