Morgunblaðið - 15.02.1989, Side 33

Morgunblaðið - 15.02.1989, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1989 33 Enn um ríkisútvarpið eftirÞórðE. Halldórsson Einn hinn svívirðilegasti inn- heimtumiði opinberrar stofnunar, afnotagjald útvarps og sjónvarps, var að velta innúr bréfalúgunni í morg- un. Þessi mjög svo umdeildi okur- skattur á hvert heimili landsins er orðinn alvarleg byrði stórum hluta gjaldenda. Hvað með ellilífeyrisþega? Bera hin smánarlegu ellilaun, sem svo eru nefnd, og nema í desember 1988 kr. 8.619.00, það með sér að illa rekið ríkisfyrirtæki geti sótt rekstrarfé sitt í þann sjóð? Eru engin takmörk fyrir því hvað almenningur í þessu landi lætur bjóða sér. Er fólk alveg dofið fyrir því sem er að gerast kringum það? Það er á allra vitorði að þessi stofn- un skilaði þjóðfélaginu hátt í milljarð króna í skuld á sl. tveimur árum. Fylgist fólk ekkert með því bruðli og sukki sem þama fer fram, eða er öllum sama? Á sl. ári segir í opin- berri skýrslu að fyrirtækið hafi íjölg- að starfsliði um áttatíu stöðugildi á árinu án þess að fyrir því væri heim- ild á fjárlögum. Hvar endar þetta ef svo er um fleiri ríkisfyrirtæki, sem raunar þarf ekki að efa, þótt ekki sé alls staðar farið jafn gróft í sakirn- ar. Með tilliti til þess að hér er um nauðungarskatt að ræða, sem þú lesandi góður ert þvingaður til að greiða, hvort sem þér líkar betur eða verr, hlýtur sú spuming að vakna hvort hér er ekki um mannréttinda- brot að ræða, bæði hvað snertir íslenska stjómarskrá og ekki síst mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Er það ekki skortur á mannrétt- indum að hafa ekki valfrelsi til fjöl- miðla? Þegar um fjölda útvarps- og sjónvarpsstöðva er að ræða liggur í Þórður E. Halldórsson „Eru engin takmörk fyrir því hvað almenn- ingur í þessu landi læt- ur bjóða sér. Er fólk alveg dofíð fyrir því sem er að gerast kring- um það?“ augum uppi að í lýðræðislandi eiga þær að hafa sömu möguleika til fjár- öflunar og einstaklingurinn þar með valrétt. Ef fram færi almenn skoð- anakönnun um álit fólksins í landinu um algjört frelsi á þessu sviði óttast ég ekki um niðurstöðuna. Rekstrar- lega séð er þessi stofnun komin útí algjört forað. Milljarðahöllin við Bú- staðaveg er enn ekki komin í nýtan- legt ástand. Hvað um rekstur rásar 2 sem er með öllu ofaukið við hlið allra hinna frjálsu stöðva. Ætlar út- varpsstjóri að reyna að telja mér og Afinæliskveðja: Stefanía Gissurardóttir Það var við setningu prestastefnu í júní 1983, að fundum okkar frú Stefaníu bar fyrst saman. Maðurinn minn lék á selló við athöfnina. Ég sat því ein míns liðs, að mér fannst, í hópi prestanna og eiginkvenna þeirra, ef til vill hálf- feimin og uppburðarlaus. Eftir at- höfnina söfnuðust viðstaddir saman ' til kaffidrykkju framan við hátíð- arsal Háskólans. Þá heyrði ég allt í einu hlegið dátt, skært og smit- andi. Mér varð litið til og mikið rétt: Þarna var þá konan, sem ég hafði heyrt að mörgu góðu getið, en ekki verið svo lánsöm að hitta fyrr en á þessari stundu. Ég færði mig eins og ósjálfrátt nær þessari glæsilegu konu á íslenska búningn- um, með þennan heiða og sterka svip og þar með voru kynni okkar frú Stefaníu hafin. Undanfarin ár höfum við hjónin notið yls frá arni vígslubiskups- hjónanna á Selfossi, frú Stefaníu og eiginmanns hennar, séra Sigurð- ar Pálssonar. Minnist ég kvölda í Ártúninu, meðan séra Sigurður lifði, þar sem saman fóru létt lund og hláturmildi húsfreyjunnar og mannvit, orðkyngi og hárfín kímni- gáfa húsbóndans. Ut um stofu- gluggann blasir við óviðjafnanlegt útsýni: Ölfusáin logagyllt í kvöldsól- inni. Marga nótt höfum við gist í gestaherbergi frú Stefaníu og hlust- að á árniðinn gegnum svefninn. Að morgni beið svo litli skatturinn hjá frú Stefaníu, sem er í raun stór- veisla, eins og margir vita. Heima- bakað rúgbrauð, laxasalat, kæfa og úrvals ostar; allt skartar þetta á hringborðinu góða, sem er tveggja hæða og snýst efri platan með kræsingunum, stjórnað af frú Stef- aníu, sem sér vökul um það, að hver og einn geti gætt sér á því, sem hugurinn girnist. Séra Sigurður Pálsson var einn okkar lærðustu guðfræðinga, mikill öðrum trú um að ekkert kosti að reka þá útvarpsrás 24 klukkutíma á sólarhring. Sú stöð er algjörlega nauðsynjalaus eftirherma. Er ekki þama verkefni handa hinum sjálfum- glaða fjármálaráðherra að kippa í taumana og láta eitthvað sjást eftir sig til spamaðar. Það er umhugsunarefni hvað margir ríkisfjölmiðlar fara framúr ákvörðun fjárlaga Alþingis. En spurt skal; Á umframeyðslan að vera í framtíðinni rós í hnappagat þeirra sem komast lengst framúr fjárveit- ingum. Svo er raunar að sjá á síðustu vinsældaútspilum fjármálaráðherra. Mér er mjög til efa að lagaleg heimild sé fyrir því hjá Landsíma Islands að krefjast 3ja mánaða fyrir- framgreiðslu á afnotagjöldum. Póst- ur og sími er mjög illa og óskipulega rekið fyrirtáeki, eitt af þessum yfír- mönnuðu stofnunum. Én sá er þó munurinn að þar ert þú að greiða fyrir það sem þú hefur keypt. Hjá Útvarpi og Sjónvarpi ertu þvingaður til að greiða það sem þú hefur ekki keypt eða falast eftir. Það er varla hægt að líkja þessu við annað en vasaþjófnað. Ég get ekki látið hjá líða að nefna dagskrárefni Ríkissjónvarpsins kvöldið 5.1.1989. Kl. 20.30 í poka- hominu — Brennunjálssaga. Þama var sýnd á mjög óeðlilegan hátt brennsla bókar. I 20 mínútur sást ekkert annað en þessi „brennandi" bók. Ekki þótti hlýða að þessi afreks skræðuleikur væri sviðsettur án hljóða. Upphófust nú gól, óp og ösk- ur framleidd á þann hátt að vel mátti greina hrín í svínum, æpandi öpum, öskrandi Ijónum, beljugaul og annað eftir því, sem trúlega hefur átt að tákna mannleg búkhljóð. Næsti þáttur á eftir eða kl. 21.00 var með öllu táknrænna nafni á hin- um ríkisreknu fjölmiðlum; „Meðan skynsemin blundar". Bylgjan, Stjarnan, Hljóðbylgjan, Útrás, Útvarp Alfa og hvað þær heita allar fijálsu útvarpsstöðvamar, auk hinnar mjög svo ágætu sjón- varpsstöðvar Stöðvar 2, eru ekki byggðar upp á þeim vasaþjófnaði sem ríkisstöðvarnar iðka. Ég skora á fólk að láta frá sér heyra um þá ólýðræðislegu vinnu- brögð sem þegnarnir verða að þola af hálfu ríkisfjölmiðlanna. Ég skora einnig á hið háa Alþingi að losa okk- ur frá því að standa undir sukki og svalli ríkisljölmiðlanna. Er einhver von um að hér verði komið á lýðræði? Höfundur er ellilífeyrisþegi. Skrifstofutækninám Betra verö - einn um tölvu Tölvuskóli íslands S: 67 14 66 AÐEINS FYRIR SÖLUMENN Viltu njóta starfsins betur? Ljúka söiunniá auðveidari hátt? Svara mótbárum afmeira öryggi? Dale Carnegie* sölunámskeiðið er einu sinni í viku í 12 vikur frá kl. 14.00-17.30 og er eingöngu ætlað starfandi sölumönnum Námskeiðið er metið til háskólanáms i Bandaríkjunum Námskeiðið getur hjálpað þér að: • Gera söluna auðveldari. • Njóta starfsins betur. • Byggja upp eldmóð. • Ná sölutakmarki þínu. • Svara mótbárum af öryggi. • Öðlast meira öryggi. • Skipuleggja sjálfan þig og söluna. • Vekja áhuga viðskiptavinarins. FJÁRFESTING Í MENNTUN SKILAR ÞÉR ARDIÆVILANGT INNRITUN OG UPPLÝSINGAR í SÍMA 82411 o STJÚRNUNARSKÓUNN Vo Konráð Adolphsson. Einkaumboð fyrir Dale Carnegie namskeiðin" leiðtogi og fræðari yngri prestum og löðuðust þeir að honum sakir gáfna hans, orðsnilli og síðast en ekki síst framúrskarandi fijálslynd- is og umburðarlyndis gagnvart hveijum viðmælanda, jafnt háum sem lágum. Hjá honum varð aldrei vart steigurlætis í garð leikmanns- ins. Eftirminnilegur er sjónvarps- þátturinn, þar sem biskupar lands- ins ræddu um upprisuna. Frammi- staða séra Sigurðar vakti þá hugsun hjá mér, að eftirsjá er að því, að ekki skyldi tekinn upp sérstakur samtalsþáttur við séra Sigurð Páls- son, svo að mönnum gæfist kostur á að njóta þekkingar og innsæis þessa merka kennimanns. Enginn minnist þess, að frú Stef- anía hafi nokkru sinni orðið veik. Þó liggur hún á sjúkrahúsi nú. Hún ’ er þar til aðgerðar, sem áreiðanlega mun lánast vel. Og við hlökkum til að hitta hana aftur, glaða og reifa, á heimili hennar, þar sem hún hef- ur veitt gestum og gangandi af svo mikilli rausn svo lengi. Við hjónin sendum henni innilega afmælisósk^með kæru þakklæti. Ágústa Ágústsdóttir Stjórnunarfélag íslands Ánanaustum 15, Reykjavik, sími91-621066. A REKSTRARLEG ENDUR- SKIPULAGNING FYRIRTÆKJA Ert þú aó velta ffyrir þér breytingum á rekstri fyrirtækisins t.d. vegna eigenda- skipta, kynslóóa- skipta,örs vaxtar, markaósaóstæóna eöa erfióleika í rekstri? Á námskeiði þessu verðurfjallað um helstu ástæðurfyrir rekstrarlegri endurskipulagningu fyrirtækja. - Almennt um tilefni og ástæður fyrir endur- skipulagningu. - Um endurskipulagningu stjórnunarþátta. - Um fjárhagslega skoðun og endurskipu- lagningu. - Um athugun markaðsmála. Leiðbeinendur: Einar Kristinn Jóns- son, fjármálastjóri, Þórður H. Hilmars- Þráinn Þorvaldsson, son, forstjóri, rekstrarráðgjafi. Námskeiðið erætlað eigendum og æðstu stjórn- endum lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Tími og staður: 20.-21. febrúar nk. kl. 13-17 í Ánanaustum 15.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.