Morgunblaðið - 15.02.1989, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 15.02.1989, Qupperneq 34
84 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1989 OlöfS. Magnús- dóttir - Minning Fædd26. nóvember 1966 Dáin 5. febrúar 1989 Hún Ólöf okkar er dáin, hún er ekki lengur hér með okkur, með bro- sið sitt blíða, faðminn breiða og hlýja viðmótið sitt. í þessari miklu sorg, sem það er ■ að kveðja Ólöfu, get ég huggað mig við að rifja upp þær yndislegu stund- ir sem við áttum saman. Hvað mér þykir vænt um að þegar við hittumst þurftum við að segja hvor annarri frá þvi hvað á daga okkar hafði drif- ið og hvemig við léttum á hjörtum okkar um okkar innstu tilfinninga- mál og ekki létum við staðar numið fyrr en við vorum búnar að ræða málin til hlftar og stóðum þá upp endumærðar og sterkari einstakling- ar. Ég þakka góðum Guði fyrir það að hafa fengið að eiga Ólöfu fyrir vinkonu og hugsa nú oft til kveðju- stunda okkar á þessari stuttu sam- leið, þá föðmuðumst við alltaf og kysstumst og minntum hvor aðra á það hversu innilega vænt okkur þótti hvorri um aðra. Það reyndist mér erfítt að skýra út fyrir litlu drengjunum mínum, sem þótti svo ósköp vænt um hana, að hún væri dáin, en þeir í sinni bama- legu einlægni hjálpa mér að sætta mig við það að hún sé hjá Guði á himninum og þar líði henni vel. Elsku Kiddi minn, Einína, Helena, Binna, Magnús og aðrir ástvinir, ég votta ykkur mina innilegustu samúð. Góður Guið styrki okkur öll í þessari miklu sorg. Ella Rósa Nú þegar leiðir skilja langar okk- ur að senda Ólöfu okkar hinstu kveðjur með þakklæti fyrir allar góðu stundimar sem aldrei gleym- ast. Ég kynntist Ólöfu fyrst í Víði- staðaskóla þar sem við báðar klámð- um 9. bekkinn. Eftir það fór Ólöf í hárgreiðslunám og ég í snyrtinám. t Faðir okkar, ÞÓRÐUR ÞORGRfMSSON, varð bráðkvaddur 14. febrúar. Börnin. Móðir okkar, t JÓNÍNA JÓH ANNSDÓTTIR, Hátúnl 8, lést á heimili sfnu sunnudaginn 12. febrúar. Eyþór Steinsson, Jóhann Steinsson. t Hjartkœr eiginkona mín, KRISTJANA EINARSDÓTTIR SCHMIDT, Furugrund 66, Kópavogi, lóst 11. febrúar. Útförin auglýst síöar. Robert Schmidt. t Eiginmaöur minn, KRISTJÁN KARL PÉTURSSON frá Skammbelnsstöðum, Holtum andaðist í Sjúkrahúsi Selfoss mánudaginn 13. febrúar. Sólvelg Eysteinsdóttir og bömln. Birting afmælis- 0 0 ogmmmng- argreina Morgunblaðið tekur af- mælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. bæð í Aðal- stræti 6, Reykjavík og á skrif- stofii blaðsins f Hafnarstræti 85, Akureyri. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki em tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta tilvitnanir í ljóð eftir þekkt tsjom Bjamason' f - - -• Minnmg Jón Jónsson, tré- smiður — Minning skáld, og skal þá höfundar get- ið. Sama gildir ef sálmur er birt- ur. Meginregla er sú, að minn- ingargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmæiisgreina gildir sú regia, að aðeins em birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar em birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Nokkm seinna varð kunningsskapur okkar að góðri vináttu. Eftir að við Siggi byijuðum að búa og Kamilla fæddist urðu Ólöf og Kiddi hluti af okkar tilveru. Við töluðum oft um þann draum að geta opnað saman stofu. Sá draumur varð að veruleika seint á síðasta ári þegar hágreiðslustofan Hjá Ólöfu opnaði á Melabraut 5a á Seltjamamesi. Síðustu þrír mánuðir em ómetanlegir í mínum huga og er Ólafar sárt saknað. Elsku Kiddi, Einína,- Binna, Hel- ena og Magnús, Guð gefí ykkur styrk í þessari miklu sorg. Halla, Siggi og Kamilla. Að morgni sunnudagsins 5. febr- úar barst okkur sú harmafregn að ástkær vinkona okkar, Ölöf Sæunn Magnúsdóttir, væri látin. Við gátum varla trúað þessu. Hvemig mátti það vera að hún væri tekin frá okkur, þegar framtíðin blasti svo björt við henni og Kidda unnusta hennar. Orð verða fátækleg og vanmátt- ug, þegar lýsa á svo góðum vini sem Ólöf var. Hún var lífsglöð, kát og alltaf hress. Hún var traustur og skemmtilegur vinur og í minning- unni geymist brosandi andlit hennar og það hve hlýleg hún ávallt var. í nóvember framkvæmdi hún eitt af markmiðum sínum, þegar hún opnaði eigin hárgreiðslustofu. Reksturinn gekk framar björtustu vonum. Viðmót hennar hefur örugg- lega átt mikinn þátt í því hve stóran hóp viðskiptavina hún eignaðist. Leiðir okkar lágu fyrst saman í Víðistaðaskóla og hefur vinskapur- inn haldist síðan. Minningamar em margar. Við minnumst þess, þegar við hittumst öll nú um áramótin. Þau Kiddi komu til okkar sposk á svip- inn. Þau vom ekkert að láta okkur vita að þau væm nýbúin að trúlofa sig, enda þurftu þau þess ekki. Við tókum strax eftir því. Það geislaði svo af þeim hamingjan og við samglöddumst þeim mjög. Það var mikið talað og hlegið og svo var haldið af stað að hitta stóra vinahóp- inn. Um leið og við kveðjum kæra vin- konu þökkum við fyrir allar þær góðu samverustundir sem við áttum. Við geymum minningu hennar um aldur og ævi. Eisku Kiddi, Einína, Binna, Hel- ena og Magnús, megi guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Hrefiia, Orrí og Sigga. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaður viðkvæm stund. Vinimir kveðja, vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. (V.Briem.) Mig setti hljóða þegar amma mín færði mér þá frétt að Ólöf væri ekki lengur á meðal okkar. Þá rifl- uðust upp allar þær skemmtilegu stundir, sem við höfum átt saman í gegnum árin. Við kynntumst fyrir sex árum þegar hún byijaði í læri hjá Jan í Adam & Evu. Orkan sem í henni bjó var ótrúleg. Hún hafði að mörgu að keppa í lífinu og var ákveðin í að ná því, sem hún hafði ætlað sér. Við töluð- um um okkar góðu daga og okkar slæmu daga, sem allir hafa ein- hvem tíma á lífsleiðinni. Annars er aldrei hægt að þakka fyrir þau ár með orðum einum. Ég votta unnusta hennar, systk- inum hennar og móður mínar dýpstu samúðarkveðjur. Guð al- máttugur styrki þau í þeirra sorg. Kær kveðja, Rósa Katrin vinkona. Minning: Sesselja S. Guð- jónsdóttir Fædd 19. desember 1894 Dáin 5. febrúar 1989 í dag, 15. febrúar, verður jarð- sungin frá Fossvogskirkju amma mín, Sesselja Sigurborg Guðjóns- dóttir, sem andaðist á Hrafnistu í Reykjavík 5. febrúar síðastliðinn. Hún fæddist í Breiðuvík í Borgar- fjarðarhreppi 19. desember árið 1894 og var því á 95. aldursári. Foreldrar hennar voru hjónin Jórunn Bjömsdóttir og Guðjón Gíslason er þá bjuggu í Breiðuvík. Þau systkin- in vom níu og eru öll látin nema Einar Sigfinnur yngsti bróðirinn, sem nú býr á Austurbrún 4, Reykjavík. A bamsaldri missti amma föður sinn og var þá tekin í fóstur af móðurbróður sínum að Úlfsstöðum í Loðmundarfirði. Þar var hún fram yfír fermingaraldur, eða þar til er hún fluttist til Seyðisfjarðar sem ung stúlka. Húnn vann þar á ýmsum stöðum, uns hún réðst að Brimbergi þar sem hún kynntist afa mínum, Jóni Bergmanni Guðmundssyni, en þau gengu í hjónaband árið 1914. Amma og afi eignuðust þijú böm, Guðnýju fædda 19. október 1914, Gunnar Björgvin fæddan 1. ágúst 1916 og Jóhann fæddan 27. septem- ber 1918. Þau Guðný og Gunnar Björgvin eru látin, en Jóhann býr í Kransor, krossar og kistuskreytingar. Sendum um allt land. GLÆSIBLÓMIÐ GLÆSIBÆ, Álfheimum 74. sími 84200 Garðinum og hefur verið þar kenn- ari í tæp 30 ár. Mann sinn missti amma árið 1939 og lifði sem ekkja eftir það í nær 50 ár. Þau amma og afí bjuggu lengst af í Sjávarborg í Seyðisfjarð- arhreppi, í þorpinu sem nefnt var Eyrar. En amma flytur alfarin til Reykjavíkur árið 1946 og átti þar heima á ýmsum stöðum, uns hún að lokum fer á Hrafnistu í maí 1985. Þar fékk hún góða aðhlynningu og ummönnun, sem ég þakka af alhug fyrir hennar hönd. Ævistarf ömmu minnar var að þjóna öðrum, enda var hún alltaf boðin og búin til að hjálpa og ætíð með glöðu geði, því hún lagði sig alla fram um að inna allt sem best af hendi. Hún var hög í höndum og vann allt af trúmennsku og dugnaði sem hún tók sér fyrir hendur. Og allir, sem kynntust henni, dáðust að handbragði hennar og útsjónar- semi. Heima á Eyrum vann hún sem matráðskona við útgerð Sigurðar heitins á Þórarinsstöðum í nær tutt- ugu sumur og þótti árrisul og áhugasöm í því starfí sem öðrum. Á vetuma vann hún mest við sauma og sneið einnig marga flíkina fyrir nágrannakonur sínar og leiðbeindi þeim við að setja þær saman. Einn- ig var oft leitað til hennar ef menn þurftu að fá hár sitt klippt, og mátti segja að varla væri það mannshöfuð f hreppnum sem amma hafði ekki einhvem tíma klippt. Söngvin var amma og ljóðelsk og kunni mikið af sálmum, ljóðum og lögum og söng allt til þess er hún lagðist banaleguna. Amma var greind kona og kunni á mörgu skil, þó hún nyti ekki mikillar menntun- ar. Hún las mikið og hlustaði tíðum á útvarp. Réttsýn var hún í skoðun- um og rökföst svo að af bar. Þegar hún var unglingur nýkomin til Seyð- isfjarðar tók hún til við að læra dönsku án teljandi aðstoðar og náði svo góðum tökum á þvf máli að hún gat lesið danskar bækur og blöð sér til fróðleiks og ánægju. Hún talaði fallega íslensku og sagði vel frá því, er hún vildi fræða mann á. Til ömmu var alltaf gott að koma og tekið á móti manni með ástúð og hlýju hvemig sem á stóð, en eftir að amma fluttist á Hrafnistu urðu heimsóknimar stijálli og syrgi ég það nú, því í önnum hversdags- ins vill stundum gleymast það sem næst manni stendur, en minningin um hana lifír með mér og öðmm er hana þekktu og þar er hún ávallt hin glaða og hlýja sál, sem hún var í lifanda lífí. Guð blessi sál hennar og minninguna um hana. Ómar Jóhannsson t Sonur okkar og bróðir, SVERRIR KJARTANSSON, Grófarseli 7, lést ó hjartadeild Landspftalans 13. febrúar. Magnea GuAmundsdóttlr, Kjartan Ólafsson, Ólafur og Hjördfs.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.