Morgunblaðið - 15.02.1989, Page 35

Morgunblaðið - 15.02.1989, Page 35
kORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1989 35 Guðrún Jóns- dóttir - Mhming Hún Gunna vinkona mín er dáin. Hún hafði legið á sjúkrahúsi í rúm- an mánuð, en var mikið farin að hressast. Því var það mjög óvænt er hún lést skyndilega þann 4. febr. sl. Með henni er horfin af sjónar- sviði mæt kona sem vert er að minn- ast. Guðrún Jónsdóttir hét hún og fæddist að Holtakoti í Ljósavatns- hreppi, Suður-Þingeyjarsýslu, 27. ágúst 1911, elst þriggja barna hjón- anna Sigríðar Friðriksdóttur og Jóns Jónssonar. Hún ólst upp í Holtakoti en fór til Reykjavíkur 19 ára að aldri „til að leita sér fjár og frama“ eins og segir í þjóðsögunum. Árið 1932 giftist hún Þórhalli Sig- urðssyni frá Reyðará í Lóni, en missti hann 1933 eftir örstutta sam- búð, og einnig dóttur þeirra á fyrsta ári. Þau dóu bæði úr berklum. Guð- rún giftist öðru sinni 1936, Krist- jáni Skaftasyni. Þau eignuðust 5 böm, 4 syni og 1 dóttur. Guðrún og Kristján skildu 1947. Um 11 ára skeið bjó hún með Skarphéðni Ve- mundssyni og átti með honum 1 son. Þau slitu samvistum 1960. Fyrst eftir það hélt hún heimili með yngstu bömum sínum, en bjó ein síðustu 20 árin. Einn son sinn missti hún rúmlega þrítugan, en 5 böm hennar lifa móður sína. Eins og sést á þessari upptaln- ingu æviatriða var líf Gunnu enginn dans á rósum. Eitt er þó ótalið sem varð henni oft erfitt. Það var hús- næðisleysið. Flestöll sín fullorðinsár varð hún að búa í leiguhúsnæði, oft við slæmar aðstæður og öryggis- leysi. Hún bjó víða, í Reykjavík, Kópavogi og úti á landi, en frá 1960 átti hún heimili í Reykjavík, þó á svo mörgum stöðum að ég hef ekki tölu þar á. En Gunna vildi umfram allt búa að sínu og bjarga sér sjálf. Hún mátti ekki til þess hugsa að vera öðmm til byrði. Eg kynntist Gunnu fyrst 1948 þegar ég flutti í Kópavog og böm hennar urðu leikfélagar mín-ir. Gunna var einn af frumbyggjunum í Kópavogi. Á þessum ámm vom ekki vatn, sími né strætisvagnar og mjög langt í næstu verslun. Lífið var erfítt, en gömlu frumbyggjarnir í Kópavogi vom langflestir harð- duglegt myndarfólk. Með þessu fólki þróaðist mikil samhjálp. Gunna og ein grannkona hennar unnu oft í frystihúsinu, til skiptis annan hvorn dag og gættu barna hvor fyrir aðra hinn daginn. Gunna var fádæma dugleg og ákaflega myndarleg húsmóðir (nú held ég að hún hlæi að mér hvar sem hún er stödd). Hún saumaði falleg föt á krakkana úr smábútum, eða upp úr gömlu, óteljandi em þeir sokkar og vettlingar sem hún prjónaði — reyndar alveg til æviloka — og hún bjó til afar bragðgóðan mat. Gunna var mjög gestrisin og ör- lát. Ein mesta gleði hennar var að gefa og veita af rausn. Efnahagur Birtíng af- mælis- ogminn- ingargreina Morgunblaðið tekur af- mælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal- stræti 6, Reykjavík og á skrif- stofii blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Einn vetur stundaði Odd nam vid Kvennaskólann Árið 1955 hófu systur Guðrúnar og Pálma á Bj sunnan Másstaða. Þar Mikii áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili. hennar var alltaf mjög þröngur en þó tókst henni alltaf að vera veit- andi en ekki þiggjandi, gestrisin og góð heim að sækja. Þegar ég var lítil stelpa og lék mér við krakkana hennar Gunnu spilaði hún oft á orgel fyrir okkur, söng með okkur og fór í leiki. Hún talaði við okkur krakkana eins og jafningja. Seinna meir þegar ég sem ung stúlka varð heimagangur hjá henni, hafði hún enn sama lag á að vera jafningi okkar. Hún var glaðlynd og ung í anda og því hélt hún alla ævi. Böm sóttu til hennar og ungt fólk átti í henni skilnings- ríkan vin. Gunna átti 6 börn sem komust til fullorðinsára, bamabörnin em 19 og langörnmubömin 11. Auk þess gekk hún mörgum óskyldum börnum i „ömmustað", þar á meðal dóttur minni, og ótaldir em þeir sokkar og vettlingar sem hún pijón- aði á fjölskyldu mína frá því að börnin vom lítil og til fullorðinsára. Gunna átti marga vini og var trygglynd og vinföst. Hún hélt ævilangri vináttu við Reyðarárfólk- ið, fjölskyldu fyrsta manns síns, og hélt enn sambandi við bernskuvin- konu sína að norðan, svo og ýmsa aðra æskuvini. En með hverri nýrri kynslóð bættust henni líka nýir vin- ir. Er hún nú hverfur héðan, fátæk að öllu því er mölur og ryð fá grandað, má segja um hana það sem stendur í vísu Arnar Arnarson- ar: En menn flytja ekki neitt yfir djúpið svarta. Þangað fylgir aðeins eitt ást frá vinarhjarta. Nú er hún Gunna farin héðan. Líkaminn var orðinn þreyttur og slitinn og sjálfsagt hvíldinni feginn. En hún var svo hress í anda að manni fannst hún eiga að vera hér svo miklu, miklu lengur. Við dóttir mín söknum vinar í stað. Að lokum kveð ég Gunnu mína með kærri þökk fyrir allt. Megi hún alla tíma vera margblessuð. Helga K. Einarsdóttir t Faðir okkar, SIGURBJÖRN JÓNSSON, Fáikagötu 3, Reykjavík, andaöist í Vífilsstaöaspítala 14. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar. Bjarnl Slgurbjörnsson, Helga Sigurbjörnsdóttir, Jón Sigurbjörnsson. t Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, STEINDÓR INGIMAR STEINDÓRSSON bifreiöastjóri, Strandaseli 9, Reykjavik, lóst í Landspítalanum 13. febrúar. Fyrir hönd aðstandenda. Steindór I. Stelndórsson, Ellert K. Stelndórsson. t Útför bróður okkar, BJÖRNS ÁSGEIRSSONAR, Reykjum, Lundareykjadal, verður gerð að Lundi laugardaginn 18. febrúar kl. 14.00. Leifur Ásgeirsson, Slguröur Ásgeirsson. t Útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SIGURÐAR GfSLASONAR kaupmanns,, Mlölelti 7, Reykjavfk, (áður Óðinsgötu S), fer fram fró Fríkirkjunni fimmtudaginn 16. febrúar kl. 13.30. Rósa Sigurðardóttir, Gunnar Jóhannesson, Erla Sigurðardóttir, Jón Eirfksson, Gfsli Slgurðsson barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginmaöur minn og faðir okkar, JÓHANN GUÐMUNDSSON fyrrv. verkstjóri, Skarðshlfð 13d, Akureyri, sem lést 10. febrúar, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstu daginn 17. febrúar kl. 13.30. Ólöf Inglmarsdóttir, og dætur. Lovísa Jóns- dóttir — Minning Fædd 25. október 1927 Dáin 26. janúar 1989 Margs er að minnast margt er að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast. Margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. (V. Briem) Mig langar í örfáum orðum að minnast Lúllu tengdamóður minnar. Hún var dóttir hjónanna Jons Pálma Jónassonar og Guðlaugar Daníelsdóttur, þau bjuggu lengst af á Nönnustíg 6 í Hafnarfirði. Hún var næstyngst af fimm bömum þeirra. Lúlla giftist Úlfari Garðari Randverssyni og átti með honum sex böm, fyrir átti hún tvo drengi. Lúlla skilur eftir sig hlýjar minn- ingar í mínum huga. Hún reyndist mér og minni fjölskyldu mjög vel, og þó sérstaklega syni okkar sem hún skildi svo vel. Við fómm ófáar ferðir austur í sveit og í Borgar- fjörðinn og áttum þar frábærar stundir. Áfallið kom í ágúst þegar upp- götvaðist að Lúlia væri með ólækn- andi sjúkdóm. Hún var einstaklega hörð af sér í veikindum sínum og vildi lítið úr þeim gera. í minning- unni er mér ofarlega í huga ferðin til London sem Matthildur, Lúlla t Frænka okkar og vinkona LOUISA M. ÓLAFSDÓTTIR organisti frá Arnarbæll lést í Sjúkrahúsi Suðurlands 28. janúar. Útförin hefur fariö fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Innilegar þakkir skulu færðar öllum vinum og vandamönnum, heimilisfólki og starfsfólki Dvalarheimilisins Áss, einnig kirkjukór og sóknarbörnum Hverageröis- og Kotstrandarsókna, fyrir alla þá alúð og virðingu sem henni var sýnd. , Aðstandendur. og ég fómm í ágúst í sumar. Matt- hildur, yngsta dóttir hennar, reynd- ist henni mjög vel, á hún í mínum huga þakkir skyldar. Það er mér mikil ánægja að hafa getað stutt tengdamömmu á ein- hvern hátt í veikindum hennar. Ég og fjölskylda mín þökkum henni allt. Blessuð sé minnjng hennar. Sigga Einars t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, KRISTÓFER GUÐLEIFSSON, Hjallaseli 29, veröur jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 17. febrúar kl. 13.30. Guðrún Guðmundsdóttir, Valgerður Eygló Krlstófersdóttlr, Björn Slgurðsson, Guðmundur I. Kristófersson, Ósk Davfðsdóttlr, Guðrfður Krlstófersdóttlr, Hallgrfmur Jónasson, Sigurður Kristófersson, HJördfs Árnadóttir, Ingveldur Þ. Kristófersdóttir, Helgi Guðjónsson, Hannes Kristófersson, Guðrfður Olafsdóttlr, Helgl Krlstófersson, Guðrún Eysteinsdóttir og barnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför SIGURVEIGAR JÓNSDÓTTUR frá Grfmsey. Sérstaklega þökkum við starfsfólkinu á Dvalarheimilinu Skjald- arvík fyrir frábæra umönnun. Guð blessi ykkur öll. Óskar Frfmansson, Hrefna Vfkingsdóttir, Sigurbjörn Ögmundsson, Ragnar Vfkingsson, Marfa Krlstófersdóttlr, barnabörn, barnabarnabörn og systur hinnar látnu. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og iangömmu, BÓTHILDAR JÓNSDÓTTUR, H verfisgötu 104A. Guðrún Winslow, Gfslfna Sumarllðadóttlr, Slgrfður Sumarllðadóttir, Unnur Sumarliðadóttlr, Gfsll Sumarliðason, Birgir Sumarliðason, Lára Gasch, Gunnar Sumarllðason, Hildur Valeika, Sigurbjörg von Hoffer, Ásgelr Sumarllðason, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.