Morgunblaðið - 15.02.1989, Page 37

Morgunblaðið - 15.02.1989, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRUAR 1989 37 : ; .. Morgunblaðið/Þorkell Orn Ómarsson ásamt móður sinni, Helgu Jóhannsdóttur, og heimiliskettinum, sem bauð sér sjálfur til myndatökunnar og bað fyrir kveðju til Söru prinsessu. LÆKNINGAR Hittir Söru Ferguson í London Erni Ómarssyni, 21>árs gömlum Reykvíkingi, hefur verið boðið að vera viðstaddur opnun rannsóknarstofu á vegum breskra sam- taka, Action Research for the Crippled Child næsta fímmtudag 16. febrúar. Meðal annarra heiðursgesta verður hennar hátign, hertogaynj- an af Jórvík, Sara Ferguson. Auk hinnar hátíðlegu athafnar, munu Öm og móðir hans, Helga Jóhannsdóttir, að öllum líkindum hitta há- tignina við annað tækifæri í boði hennar. Aðspurður, hvemig á því stæði að hann yrði þama meðal gesta, sagði Öm, að undanfarin ár hefðu þessir bresku vísindamenn sýnt sér og ijölskyldu sinni mikinn áhuga. Hann sagði að fjölskyldan væri einstök vegna þess að upp- götvast hefði að sjúkdómur sem hann gengi með, klofinn hryggur, væri ættgengur í fjölskyldunni. Vísindamennimir, sem hann hefði komist í samband við fyrir milli- göngu Ólafs Jenssonar yfirlæknis Blóðbankans, væm sérfræðingar í gena- og erfðafræðirannsóknum og með rannsóknum á sér og ijöl- skyldunni vonuðust þeir til að ná árangri í baráttunni við þennan sjúkdóm sem Öm sagði að væri óvíða algengari en í Bretlandi. Öm sagði að ferðin og tilstand- ið legðist vel í sig og ekki spillti það fyrir að hitta kóngafólk. í þannig félagsskap hefði hann aldrei komist áður, frekar en flest- ir íslendingar, þótt hann hefði komið á ólíklegustu slóðir, meðal annars til Ungveijalands og ísra- els með Hamrahlíðarkómum. Öm hefur gert sérstaklega víðreist í vetur. Aðeins líða tveir dagar frá því að hann kemur frá keppni á alþjóðlegu borðtennismóti, Malmö open, í Svíþjóð og þar til hann flýgur til London, nú á miðviku- dag. GÓð íþrótt, gulli betri. Morgunblaðið/Þorkell SUNDNÁMSKEIÐ Aldreiof seint að læra réttu tökin w ISundhöll Reyiqavíkur stendur yfír sundkennsla fyrir fullorðna. Er þetta námskeið liður í þjónustu við aldraða og'hefur það staðið yfír allt skólaárið síðastliðin átta ár. Flestir sem þama em hafa aldrei lært að synda, nokkrir em að rifja upp sundkunnáttu og margir nem- endanna hafa þar fyrir utan barist við vatnshræðslu ámm saman. Emst Backman kennir fólkinu sundtökin og þjálfar það einnig í svokallaðri sundleikfími. „Þetta em afskaplega þakklátir nemendur, skilja hvað það er mikil- vægt að veita elli kerlingu mót- spymu,“ segir Emst Backman íþróttakennari, „og ekki em aðeins kennd sundtökin heldur einnig mik- ilvægar líkamsæfíngar. Hreyfíngin er holl.“ Um það vom nemendur hans vitanlega sammála. „Þetta er mikil heilsubót," segir María Eyjólfsdóttir sem er að læra að synda í fyrsta sinn. „Og kennar- inn eyðir allri hræðslu héma,“ bæt- ir hún við. „Nei, nei, ég hef ekki verið vatnshræddur," segir Jón Veturliðason, „og um að gera að læra sundtökin áður en maður verð- ur fullorðinn". „Þú meinar meira fullorðinn" bætir María við í spaugi og má á öllum sjá og heyra að námskeiðið líki ljómandi vel. Fyrir utan líkamsþjálfunina væri sund- kunnáttan ákaflega mikilvæg og aldrei of seint að læra réttu tökin. Sœnsku Cylinda þvottavélamar hafafengiðfrábcera dóma i neytendaprófum á kröfuhörðustu mörkubumEvrópu. Þúgeturvalið umframhlaðnareða topphlaðnarCylinda vélar. Þœrtopp- hlöðnu spara gólfpláss ogekki þarf að bogra vib þvottin Cylinda nafnib er tryggingfyrir fyrstaflokks vöru ogsannkallaðri maraþonendingu. Þegarctdeins þad besta er nógn gott TOPPHLAÐIN Cylinda ÞVOTTAVÉLAR - UPPÞVOTTAVÉLAR TAUÞURRKARAR JrOUlX HÁTÚNI 6A SÍMI (91)24420 ” ^ TIZKAN Laugavegi 71 II. hæö Sími 10770

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.