Morgunblaðið - 15.02.1989, Side 40

Morgunblaðið - 15.02.1989, Side 40
40 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1989 tíCHAAim Þetta eru áhrif frá heimsókn- inni í dýragarðinn forðum. HÖGNI HREKKVÍSI ÚTHLUTUNARREGLUR VERKAMANNABÚSTAÐA Til Velvakanda. Eftirfarandi bréf var einnig sent Páli R. Magnússyni, formanni VB í Reykjavík. Ég hef oft velt því fyrir mér eft- ir hvaða reglum úthlutunamefnd verkamannabústaða fari þegar hún Vil ekki Sjón- varpsvísi Ólafur Guðmundsson hringdi: Mig langar til að koma þeirri spumingu á framfæri hvort maður er skyldugur til að kaupa Sjón- varpsvísinn, ef maður er áskrifandi að Stöð 2. Hann kemur aldrei um mánaðamótin, heldur um miðjan mánuðinn og þá er ekkert gagn að honum. Ég vil geta verið áskrifandi án þess að kaupa Sjónvarpsvísinn, þar sem dagskráin í honum er frá fyrsta hvers mánaðar er lítið gagn í því að fá hann svona seint. Eg hef oft kvartað yfir þessu, en því hefur ekki verið sinnt. er að úthluta íbúðum, sem eru til ráðstöfunar hverju sinni. Það munu vera um 17 ár síðan ég sótti fyrst um. Að vísu sótti ég ekki um á hveiju ári fyrst í stað, en síðan 1980 hef ég sótt um á hverju ári. Það er talað um það í úthlutunar- reglunum að menn megi ekki fara yfír ákveðin tekjumörk, svo þeir öðlist rétt til úthlutúnar. Ef ég miða við tekjur þeirra sem ég þekki og hafa fengið úthlutað ættu mínar tekjur ekki að hafa spillt fyrir því að ég gæti fengið úthlutað. Ekki ætti húsnæðið að vera til fyrirstöðu, því sá sem var á undan mér í því húsnæði sem ég leigi nú fékk úthlutað í Hólahverfi, og margir af þeim sem hafa verið mér samtíma, í því fjölbýlishúsi sem ég bý nú í, hafa fengið úthlutað á liðn- um árum. Búseturétt vantar mig ekki, því ég hef átt lögheimili í Reykjavík síðan 1967. Annars virðist sú regla hafa lítið gildi, því fólk úr öðrum byggðarlögum virðist hafa rétt til þess að fá úthlutað á undan mér. í úthlutunarreglunum stendur að þeir gángi fyrir sem ekki hafa feng- ið úthlutað áður. Þessi regla virðist ekki haldin því fjöldi manna er bú- inn að fá úthlutað tvisvar og sumir oftar, án þess að ég fái úthlutað einu sinni. Það virðist líka vera misjafnt hvað fólk þarf að sækja oft um áður en það fær úthlutað, því sum- ir fá úthlutað eftir að hafa sótt um aðeins einu sinni eða tvisvar, og það virðist ekki skipta máli hvort húsnæðið sem fólkið bjó í var gótt eða_ vont. Ut frá því sem að framan er skrifað óska ég eftir því að formað- ur V.B, Páll R. Magnússon, gefi mér skýringu á því, hvers vegna mínum umsóknum hafi alltaf verið vísað frá. Virðingarfyllst, Guðvarður Jónsson, írabakka 16. Víkverji skrifar IMorgunblaðinu á laugardag birtist stutt grein eftir Pál Skúla- son, prófessor í heimspeki við Há- skóla íslands, sem hefur að geyma áskorun til fréttamanna um að hætta að misnota stjórnmálamenn. Vikveiji hvetur alla fréttamenn að lesa þessa grein og ekki síst þá, sem einkum hafa atvinnu af því að fylgj- ast með störfum stjórnmálamanna. Við sjáum í sjónvarpi og í blöðum og heyrum í útvarpi, að það er ákveðinn hópur frétta- og blaða- manna, sem er á eftir stjórnmála- mönnunum, ef þannig má að orði komast, þessir einstaklingar bera ekki síður en stjómmálamennirnir sjálfir ábyrgð á þeirri mynd, sem af þeim birtist. Hafi fréttamennirn- ir meiri áhuga á mönnum en mál- efnum, verða það eðlilega frekar mennirnir en málefnin, sem setja svip sinn á afurðir fréttamannanna. Víkveiji tekur undir með Páli Skúla- syni, þegar hann segir: „Það er ákveðin siðferðileg skoð- un eða afstaða sem ríkjandi er á ákveðnum tíma til ákveðinna mála. 0g ég leyfi mér að fullyrða að al- menningsálitinu á íslandi sé ofboðið með því hvemig stjórnmálamenn eru misnotaðir, einkum í sjónvarpi. Stundum er þetta svo voðalegt að það mætti ætla að stjómmálamenn- imir sjálfir væra að hafa almenning að fífli.“ xxx egar Víkverji horfði á þingsjá sjónvarps ríkisins á föstudag í umsjá Ingimars Ingimarssonar, blöskraði honum alvöraleysið og leikaraskapurinn. Þessi þáttur var síst af öllu fallinn til þess að auka mönnum traust á þingmönnum eða efla virðingu almennings fyrir stjómmálamönnum. Birtar voru glefsur úr ræðum þingmanna vegna lítilsvirðandi ummæla Jóns Baldvins Hannibalssonar, utanríkisráðherra og formanns Alþýðuflokksins, um störf manna í Seðlabankanum, þar sem blýantar komu við sögu. Kaflar úr ræðum í þingsalnum vora tengdir saman með innskotum, sem vora ósmekkleg en áttu víst að vera fyndin. í stuttu máli skilur Víkveiji einfaldlega ekki, hvaða til- gangi þessi samsetningur átti að þjóna. I síðustu viku boðaði forsæt- isráðherra enn einu sinni stefnu ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum og urðu um þá ræðu málefnalegar umræður. Ef þessi þáttur sjón- varpsins um störf þingsins á að endurspegla það, sem hæst ber hveiju sinni, mætti ætla, að áhorf- endur gætu treyst því, að það sé gert. Umsjónarmaðurinn kýs greinilega frekar að misnota stjórn- málamenn og leita að þingmálum sem gefa honum tækifæri til þess. xxx Iöllu málæðinu og yfirlýsinga- flóðinu ætti það að vera eitt helsta hlutverk þeirra blaðamanna, sem taka að sér að fylgjast með flauminum, að auðvelda almenningi og raunar stjórnmálamönnunum sjálfum að greina kjarnann frá hisminu; staldra við og draga sam- an höfuðatriði og setja þau í eðli- legt samhengi. Lítið fer fyrir slíku. Páll Skúlason telur, að fréttamenn axli ekki ábyrgðina, sem störfum þeirra fylgir, fyrr en þeir beina at- hyglinni frá stjórnmálamönnunum að störfum þeirra. Þá fyrst segir Páll „er von til að almenningur á íslandi fari að skilja sín eigin stjóm- mál og þá er heldur aldrei að vita nema hann taki líka upp á því að leiða þau til betri vegar.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.