Morgunblaðið - 15.02.1989, Page 42
42
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1989
KNATTSPYRNA
ÖmóHur
þjálfarBÍ
Omólfur Oddsson var um helg-
ina ráðinn þjálfari meistara-
flokks BÍ á ísafirði. Ömólfur þjálf-
aði kvennalið BÍ í 1. deild í fyrra
og lék jafnframt með BÍ í 4. deild.
Hann tekur við þjálfun liðsins af
Jóhanni Torfasyni.
BÍ sigraði í 4. deild á síðasta
keppnistímabili og leikur því 3. deild
í sumar. Litlar sem engar breyting-
ar verða á liði ísfírðinga frá því á
síðata keppnistímabili og em æfíng-
ar þegar hafnar.
ENGLAND
Guðjón
varvið-
staddur
síðustu
æfingu
Eustice
Peter Eustice rek-
inn frá Sheffield
Wednesday
GUÐJÓN Þórðarson, þjálfari
KA, er nú staddur í Englandi
og var viðstaddur sfðustu
œfingu Peter Eustice hjá
Sheffield Wednesday í gœr.
Eftir œfinguna var Eustice
tilkynnt að hann gœti tekið
pokann.
Peter Eustice tók við liðinu
október af Howard Wilkin-
son, sem fór til Leeds. Sheffíeld
var þá í 7. sæti deildarinnar, en
er nú í 18. sæti. Líklegt er talið
að Ron Atkinson, fyrrum
framkvædastjóri Manchester
United og Atletico Madrid, taki
við liðinu.
Guéjón Þórðarson var í heim-
sókn hjá Sigurði Jónssyni og
horfði á æfínguna í gær. Æfing-
in gekk eðlilega fyrir sig, en
eftir hana komu stjómarmenn
Sheffíeld og tilkynntu Eustice
að hann væri rekinn.
Guðjón ætlar að dvelja í Eng-
landi í tíu daga og fylgjast með
æfíngum hjá Nottingham Forest
og Manchester United.
HANDKNATTLEIKUR /B-KEPPNIN I FRAKKLANDI
Morgunblaðið/Skapti
Sórstaklr passar eru útbúnir fyrir leikmenn og aðra sem tengjast keppninni. í gær fór íslenski hópurinn í myndatöku
þess vegna og hér bfða nokkrir fyrir utan „skyndimyndir" í góða veðrinu eftir að röðin komi að þeim. Frá hægri Al-
freð Gfslason, Jón Hjaltalfn Magnússon, Gunnar Þór Jónsson, Sigurður Sveinsson, Bogdan Kowalczyk, Davíð Sigurðsson
og Guðjón Guðmundsson.
ii
„Ýmislegt óvænt gerist
- segir Bogdan Kowalczyk, landsliðsþjálfari íslands
„UNDIRBUNINGUR liðsins hef-
ur verið of Iftill að mínu mati.
Tfminn hefur verið nægur en
við höfum samt ekki œft nóg.
Þá höfum við orðið fyrir of mikl-
um meiðslum, einnig veikind-
um, þannig að við hefðum get-
að undirbúið okkur betur,“
sagði Bogdan Kowalczyk,
landsliðsþjálfari, um B-keppn-
ina sem hefst hór í Cherbourg
í kvöld. ísland mætir þá Búlg-
arfu.
Bogdan sagði ljóst að ísland
ætti betra lið en Búlgaría, „en
það þýðir ekki að við munum vinna
þá örugglega. Hér verða allir leikir
erfiðir. Það eru
nokkrir góðir ein-
staklingar í liði
Búlgaríu og liðið
leikur mjög kerfís-
bundið. Við eigum betri einstakl-
inga og eigum að vinna, en leikur-
inn gegn þeim í Danmörku fyrir
skömmu var erfíður."
VHum nánast
ekkert um Kúvæt
Bogdan sagðist eiginlega ekkert
vita um lið Kúvæt, sem ísland
mætir í 2. leik keppninnar. „Ég hef
Skapti
Hallgrímsson
skrífar
frá Frakklandi
Sala AUKASEÐILS 1 lokar kl. 18:45
miðvikudaginn 15. febrúar.
AUKASEÐtLL 1- 1$. FEBRÚAR 1989
Leikur 1 V.Þýskaland - Noregur
Leikur 2 Island
Leikur 3
Spánn
- Búlgaría
- Austurríki
Leikur 4 Pólland - Kúba
Leikur 5 V.Þýskaland - Holland
Leikur 6 Kuwiat
- Island
Leikur 7
Israel
Leikur 8
Kúba
- Spánn
- Danmörk
Leikur 9 Noregur- Sviss
Leikur 10 Búlgaría
- Rúmenía
Leikur 11 Austurríki - Frakkland
Leikur 12 Egyptaland - Pólland
1
Símsvarí hjá getraunum eftir kl. 21:15
fimmtudaginn 16. feb. er 91-84590 og -84464.
Sala á AUKASEÐLI2 hefst föstud. 17. feb. og
lokar mánud. 20 feb. kl. 16:15
rætt við dómara frá Danmörku og
Póllandi, sem hafa dæmt hjá liðinu,
og þeir segja að Kúvæt-búar eigi
betra lið en Búlgarir. Þeir hafa
verið í tvö ár undir stjóm Zorana
Zivkovic og ég minni á að unglinga-
landslið Kúvæt vann það íslenska
í heimsmeistarakeppni unglinga á
síðasta ári. En við verðum auðvitað
að vinna þá til að komast áfram.
Ég hef aldrei séð þá, þannig að ég
verð að bíða þar til eftir leik þeirra
gegn Rúmenum á morgun til að
geta sagt nokkuð um þá.“
Um Rúmena sagði Bogdan ein-
faldlega: „Þeir eiga alltaf gott lið.
Og það segir mikið um liðið nú að
það skildi vinna Spánveija á Spáni
um helgina. Ég tel að Rúmenar séu
nú með sjö til átta leikmenn á
heimsmælikvarða í liði sínu.“
Um möguleika íslands í keppn-
inni sagði Bogdan: „Þeir fara að
miklu leyti eftir því hvort Alfreð
og Bjarki ná sér fyllilega af meiðsl-
unum. Einnig hvemig Héðinn
stendur sig. Þetta er hans fyrsta
heimsmeistarakeppni. Hann hefur
staðið sig vel að undanfömu — en
það kom berlega í ljós á Ólympíu-
leikunum að slíkt skilar sér ekki
alltaf. Bjarki hafði leikið mjög vel
HANDBOLTI
Naumur
Valssigur
Viðureign Víkings og Vals í
gærkvöldi var mjög kaflaskipt.
Valur lék vel í fyrri hálfleik og
leiddi í leikhléi, 11:9.
Forskot Vals-
Katrín stúlkna jókst jafnt
Fríðriksen og þétt framan af í
skrifar síðari hálfleik og um
tíma var munurinn
7 mörk Val í hag. Þá tók Víkingslið-
ið við sér og með góðri baráttu
gekk það ört á forskotið. Fjörkipp-
urinn kom þó of seint þrátt fyrir
að litlu hefði munað og lauk leikn-
um með eins marks sigri Vals,
22:21.
Halla Helgadóttir var atkvæða-
mest í liði Víkings með 6/1 mörk
og Inga Lára Þórisdóttir skoraði
5/2. Hjá Val skoraði Guðrún Kristj-
ánsdóttir mest 9/1 og Katrín Frið-
riksen 6. Þá var Amheiður Hregg-
viðsdóttjr góð í markinu. (Jl
fyrir keppnina í Seoul, en fór þar
á taugum — í sinni fyrstu stóru
keppni." Bogdan hélt hins vegar
áfram: „Ég fínn það á mér að
Kristján, Þorgils Óttar, Guðmundur
Guðmundsson, Einar og Jakob eiga
eftir að spila vel hér í Frakklandi.
Þeir hafa allir æft mjög vel og ég
er viss um að þeir standa sig.“
Marfcmlðið
Markmið liðsins er fyrst og
fremst að vinna sig upp í A-keppn-
ina, segir Bogdan, „að ná einu af
fyrstu sex sætunum. Hvaða sæti
það verður vil ég ekki spá um. Það
er erfítt, en ég get þó sagt um
þessa keppni að ýmislegt óvænt
gerist. Ég hef trú á að Frakkland,
Kúba, Noregur og Sviss eigi eftir
að koma á óvart. Ég er viss um
að ekkert lið á til dæmis eftir að
vinna alla leiki sína í keppninni.
Ég nefni sem dæmi að Danir virð-
ast alltaf leika vel gegn Spánverjum
og Frökkum, Pólveijar gegn Dönum
og Frakkar gegn Pólveijum. Það
eru því ýmsir möguleikar fyrir hendi
í þessari baráttu. Okkar megin geta
bæði lið Norðmanna og Svisslend-
inga reynst okkur erfíð," sagði
Bogdan Kowalczyk.
Skapti
Haiigrímsson
skrifar
frá Frakklandi
FRAKKLAND 1989
■ ERIK Larsen, ritari danska
handknattleikssambandsins og
nefndarmaður í tækninefnd aljóða-
sambandsins, er eftirlitsmaður með
keppninni í C-riðli
hér í Cherbourg
fyrir hönd IHF.
Þess má geta að
Larsen er heiðurs-
félagi í HSÍ.
I JÓN Hjaltalín Magnússon,
formaður HSI, brá sér til rakarans
í gær og fékk herraklippingu að
hætti Cherbourg-búa. „Ég geri
eins sundmennimir — læt klippa
mig rétt áður en keppni hefst. Nú
er ég tilbúinn í siaginn," sagði Jón,
eftir að hann steig úr stólnum.
■ ÍSLENDINGAR búsettir {
París halda árlegt Þorrablót sitt
laugardaginn 25. þess mánaðar.
Fari svo að íslendingar leiki um
sæti þann dag hafa menn hér haft
á orði að liðið ætti að skella sér á
Þorrablótið um kvöldið. Hinsvegar
verður ekkert af því ef liðið leikur
á sunnudeginum — þá er spilað um
fyrsta og sjöunda sæti í keppn-
inni...
■ BJARKI Signrðsson, homa-
maðurinn ungi, er með sérstaka
spelku á hægri öklanum vegna
meiðslana sem hann hlaut á æfíng-
um skömmu áður en haldið var til
Frakklandi.
■ EITT dagblaðanna hér
greindi frá þvf í gær að ótilteknir
„sérfræðingar" spái því að Spánn,
Pólland, Rúmenía og Vestur-
Þýskaland séu sigurstranglegustu
liðin í keppninni. Síðan kemur ís-
land með möguleikana 4:1. Nefnt
var að Frakkland væri talið eiga
möguleikana 6:1, Búlgaria 80:1,
Kuawait 100:1.
■ EFTIR morgunverð í gær-
morgun var myndbandsfundur hjá
íslenska liðinu. Þar var skoðuð upp-
taka frá leik Norðmanna og Svíss-
lendinga sem fram fór í Basel í
október sl. Svisslendingar sigmðu
24:20. Ef allt fer að óskum mæta
íslendingar þessum þjóðum í milli-
riðli.
■ LIÐ Rúmeníu og Búlagríu
komu seint í gærkvöldi til Cher-
bourg, og æfa því ekki keppnis-
höllinni fyrr en í dag.
•uiOirnwJa
,:6v
fcsni
Þorgils Ottar Mathieserr.
„Eigum að
vinna Búlgari“
„MEÐ eðlilegum leik elgum
við að vinna Búlgari, an mað-
ur veit aldrei hvað gerist. Við
verðum að gefa allt í hvern
einasta leik, sama hver mót-
herjlnn er, og stefna að sigri,"
sagði Þorgils Óttar Mathies-
en, fyrirliði íslenska lands-
liðsins.
m
Alagið á æfíngum hefur ekki
verið eins mikið fyrir þessa
keppni og oft áður, og ég vona
að það verði til þess að menn
hafí meira gaman af því sem þeir
eru að gera en oft áður.“
Fyrirliðinn sagði ljóst að líkam-
legur undirbúningur fyrir
Ólympíuleikana í Seoul hefði verið
eins og best varð á kosið — það
hefði sýnt sig i síðasta ieiknum
gegn Austur-Þjóðveijum, en and-
imiiiiiiiiifiiiiiiiiiiinr
lega hiiðin væri ætíð óútreiknan-
leg og hefði mátt vera betri fyrir
Ólympíuieikana. Hann vonaðist
hins vegar til að þeir hlutir væru
í lagi núna og ættu eftir að skila
sér.
Rauchfuss og Buchda
Þijú dómarapör dæma leikina
f C-riðlinum. Rauchfuss og Buch-
da frá Austur-Þýskalandi, sem
hafa oft dæmt á íslandi, dæma
leik íslands og Búlgarfu í kvöld.
Annaðkvöld verður leikið gegn
Kúvæt og þá dæma Búhning og
Iwarczichin frá Bandaríkjunum.
Ekki hefur enn verið ákveðið
hverjir dæma leikinn gegn Rúm-
enum á laugardag, en Gallego og
Lamas frá Spáni dæma einnig f
Cherbourg.
............ iii.Hi