Morgunblaðið - 15.02.1989, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1989
43
HANDKNATTLEIKUR / B-KEPPNIN í FRAKKLANDI
Klöppuðu
Menn biðu spenntir eftir því
hvernig Alfreð Gíslasyni
gengi á æfingunni í gær, en
hann hafði ekki þorað að skjóta
knettinum í nokkra daga vegna
meiðslanna í öxl sem hafa hijáð
hann undanfarið. Jón Hjaltalín
formaður HSÍ og Gunnar Þór
formaður landsliðsnefndar sátu
á varamannabekknum og fylgd-
ust með liðinu æfa, og þegar
Alfreð tók fyrsta „alvöru" skotið
á æfingunni þegar leikkerfi voru
æfð — stökk himinhátt upp fyr-
ir framan vömina og þrumaði
knettinum neðst í bláhom
marksins, klöppuðu „varamenn-
imir“ hátt og vel.
Jón Hjaltalín:
„Leggst
vel í mig“
Þetta leggst vel í mig. Ég veit
að strákamir standa sig,“
sagði Jón Hjaltalín Magnússon,
formaður HSÍ, I gær um keppnina
sem hefst í kvöld.
„Það er mjög mikilvægt að liðið
nái að vinna alla leikina hér í
Cherbourg og ná þannig að taka
fjögur stig með sér í milliriðilinn,"
sagði Jón. „Ef það tekst keppum
við um verðlaunasæti."
Jón sagði að markmiðið hér í
B-keppninni væri að verða í einu
af sex efstu sætunum, og komast
þannig í A-keppnina. „Við verðum
því að ná einu af þremur efstu
sætunum í milliriðli. Við bemm hins
vegar mikla virðingu fyrir öllum
okkar keppinautum, og munum
ekki vanmeta neinn þeirra. Við vit-
um af reynslu okkar frá Ólympíu-
leikunum að eitt mark getur skipt
sköpum. Menn verða því að einbeita
sér að verkefninu strax frá fyrstu
mínútunni og þar til flautað verður
til leiksloka."
---—
Morgunblaðið/Skapti Hallgrimsson
íslensku landsliAsmennlrnlr tóku lífínu með ró eftir hádegismatinn ( gær. Sumir gengu um gamla bæinn í Cherbo-
urg og hér sjást Héðinn Gilsson, Július Jónasson og Geir Sveinsson kanna úrvalið á geisladiskum ( einni versluninni.
Fjórða viðureign þjóðanna í kvöld:
Alltaf unnið Búlgaríu
Leikurinn í kvöld verður fjórða
viðureign íslendinga og Búlg-
ara á handknattleiksvellinum frá
upphafi. Þjóðimar mættust fyrst á
Spáni í forkeppni
Ólympíuleikanna
1972. Jón Hjaltalín
Magnússon, núver-
andi formaður HSÍ,
lék einmitt þann leik, en ísland
Skapti
Hallgrímsson
skrífar
frá Frakklandi
vann með tíu marka mun. Þjóðimar
mættust síðan aftur í B-keppninni
í Hollandi 1983, er ísland vann
aðeins með tveggja marka mun.
Síðasti leikurinn var í Danmörku
á Eyrarsundsmótinu fyrir skömmu
og þá vann ísland 22:17 í frekar
slökum leik, þar sem Búlgarar
reyndu að hanga á boltanum. Vessl-
in Penchev, þjálfari Búlgara sagði
eftir leikinn að (slenska liðið yrði
„að leika betur í B-keppninni en
gegn okkur, ef það ætlar að kom-
ast í hóp hinna bestu."
„Við unnum með 5 mörkum en
áttum 8 eða 9 stangarskot. Menn
eru örugglega enn að hugsa um
það,“ sagði Gujón Guðmundsson,
liðsstjóri íslenska liðsins, í gær.
KÖRFUKNATTLEIKUR
IRmeðtakáKR
SAMKVÆMT bókinni eiga KR-
ingar að sigra ÍR-inga, en ÍR
virðist hafa tak á KR og sigraði
örugglega í gærkvöldi.
KR-ingar byijuðu vei, Birgir
virtist í miklu stuði og skoraði
níu fyrstu stigin. Um miðjan fyrri
hálfleik var staðan 23:17 fyrir KR,
■■■■■ en þa'fékk Jóhannes
Skúli Sveinsson, ÍR,
Unnar tæknivíti og sína
Sveinsson flmnltu villu! Við
þetta tvíefldust ÍR-
ingar, skoruðu 31 stig á næstu 10
mínútum og náðu forystu, sem þeir
létu ekki af hendi.
í seinni hálfleik breyttu KR-ingar
fljótlega í pressuvöm. Við það færð-
ÍBK komst
ekki norður
Keflvíkingar komust ekki til
Sauðárkróks í gær og því
varð að fresta leik Tindastóls
og ÍBK sem fram átti að fara í
gærkvöldi.
Leikmenn ÍBK biðu í íþrótta-
húsinu í Keflavík frá því kl.
15.00 í gser. Liðið átti að fljúga
með Amarflugi, en flugfélagið
bar því við að ófært væri á Sauð-
árkróki. En samkvæmt upplýs-
ingum flugvallarstarfsmanns á
Sauðárkróki var flugvöllurinn
opinn í allan gærdag og flugu
Plugleiðir þangað samkvæmt
áætlun.
ist mikið fjör í leikinn, spenna og
barátta, en ÍR-ingar höfðu betur.
Karl og Jón Öm voru bestu menn
ÍR og var skemmtilegt að sjá þessa
lágvöxnu menn renna sér framhjá
hávöxnum mótheijum og skora
hvað eftir annað.
Guðni og Birgir vom bestir hjá
KR, en furðulegt var hvað Birgir
var látinn hvfla mikið í seinni hálf-
leik.
Karl Guðlaugsson og J6n Öm Guð-
mundsson, ÍR.
Bragi Reynisson, ÍR. Birgir Mikaelsson
og Guðni Guðnason, KR.
ÍR - KR
91 : 80
íþróttahús Scljaskóla, Islandsmótið í
körfuknattleik, þriðjudaginn 14. febrú-
ar 1989.
Gangur leiksins: 2:0, 7:11, 17:23,
28:28, 34:32, 48:86, 61:42, 72:62,
79:62 81:71, 86:78, 91:80.
Stig IR: Karl Guðlaugsson 26, Jón öm
Guðmundsson 26, Bragi Reynisson 14,
Bjöm Steffensen 12, Ragnar Torfason
6, Sturla örlygsson 6, Jóhannes
Sveinsson 2.
Stig KR: Guðni Guðnason 30, Birgir
Mikaelsson 20, Jóhannes Kristbjöms-
son 11, Matthías Einarsson 8, ívar
Webster 7, Ólafur Guðmundsson 2,
Lárus Ámason 2.
Áhorfendur: 25.
Dómarar: Jón Bender og Sigurður
Valgeireson dæmdu geysilega erfiðan
leik ágætlega.
Alfreð og Bjarki
verða með
„ÉG reikna með aö spila gegn
Búlgörum. Ég finn þó enn til
íöxlinni þegar ég reyni mark-
skot,“ sagAi Alfreö Gíslason
eftir æfinguna (gærkvöidi.
m
Eg reyndi að skjóta í kvöld,
en gerði það þó ekki af fullum
krafti. Eg vonast til að eftir að
ég hitna vet geti ég gleymt þess-
um meiðslum. Þegar ég kem í
leikina," sagði Alfreð. Hann
meiddist sem kunnugt er á öxl í
landsieik gegn Tékkum í Laugar-
dalshöll fyrir skömmu.
Bjarki Sigurðsson var einnig
með á æfingunni S gær og ekkert
virðist geta komið S veg fyrir að
hann verði með í kvöld. Þeir félag-
amir verða a.m.k. báðir ( hópnum
í kvöld, en það fer eflaust eftir
því hvemig leikurinn þróast hve
mikið þeir verða notaðir.
„Sýnd veiði
en ekki gefin"
— segirGuðjónGuðmundsson,
liðsstjóri, um lið Búlgan'u og Kúvæt
„ÉG HEF öðruvfsi tilfinningu
fyrir þessu móti en fyrir
Ólympíuleikana í sumar, en þá
leist mór satt að segja ekkert
á málin síöustu tvær vikurnar
fyrir keppnina," sagöi Guöjón
GuAmundsson, liAsstjóri
íslenska liAsins, í gær.
Guðjón sagði að liðin sem talin
væru lakari ( riðlinum, Búlg-
aría og Kúvæt, væru „sýnd veiði
en ekki gefin", eins og hann orðaði
það. „En ég treysti strákunum al-
veg til að klára þetta með prýði.
Menn verða að leggja sig vel fram
og umfram allt að hafa gaman af
jiessu." Guðjón bætti við: „Strák-
amir eru staðráðnir í að sýna að
þeir eiga heima á toppnum, í hópi
A-þjóða.“
Hópurinn er mjög ánægður með
aðstæður hér. „Þær em mun betri
en á Ólympíuleikunum. Hér er allt
manneskjulegra. Við höfum ekki
yfir neinu að kvarta. Sjórinn hefur
líka góð áhrif á menn. Við emm
vanir að vera nálægt honum og líður
því vel hér.“ Hótelið þar sem liðin
búa stendur alveg niður við höfnina.
Skapti
Hallgrímsson
skrífar
frá Frakklandi
JÓN Hjaltalín hefur löngum
verið duglegur við kynningarstarf
fyrir íslands hönd á ferðum sínum
erlendis. Hann kom hingað til
Frakklands klyQ-
aður bæklingum um
ísland á frönsku,
sem Flugleiðir hafa
látið prenta, dreifir
þeim hvar sem hann kemur.
ÓLAFUR Jónsson, fyrrum
landsliðsfyrirliði, heldur í dag frá
íslandi til Frakklands. Hann fer
rakleiðis til Belfort, þar sem D-
riðillinn fer fram, og tekur leikina
þar upp á myndband. íslendingar
mæta liðum úr D-riðli í milliriðlinum
í Strassbourg. Ólafur kemur
þangað með upptökur sínar. •—
■ AÐ sögn forráðamanna hand-
knattleikssambands Kuwait stunda
aðeins 900 manns íþróttina þar í
landi. Forráðamenn HSÍ skjóta á
að um 10 þúsund manns stundi
handknattleik á íslandi, karlar,
konur og böm.
I KALT var í (þróttahöllinni
þegar landslið ísiands kom þar á
æfíngu kl. 18.00 í gær og ekki var
búið að þrífa gólfið vel. Talsvert ryk
var á keppnisgólfinu, og höfðu
menn á orði að Davíð Sigurðssoiv, _
einn fararstjóranna hér og forstöðu-
maður íþróttahússins að Varmá í
Mosfellsbæ, ætti að halda nám-
skeið fyrir heimamenn hér hvemig
fþróttasalir eiga að vera!
■ GÓLFFLÖTURLNN í höll-
inni, sem leikið er í hér í Cher-
bourg, er 45 x 45 metrar, eins og
í nýja húsinu sem á að fara að reisa
i Hafnarfirði. Hér em áhorfenda-
bekkimir ekki færanlegir nema
öðm megin, þannig að ekki er hægt
að koma fyrir tveimur handbolta-
völlum á gólfinu eins og hægt verð-
ur í Hafnarfirði.
Zoran Zlvkovic, þjálfari Kúvait.
■ ÞJÁLFARI landsliðsKuwait,
sem er i riðli með íslandi, er eng-
inn annar en Júgóslavinn Zoran
Zivkovic, einn þeirra sem sýndi
áhuga á að taka að sér þjálfun
íslenska liðsins eftir Ólympíuleik-
ana í Seoul. Hann þjálfaði Júgó-
slava er þeir urðu heimsmeistarar
í Sviss 1986, og var einnig með
liðið ásamt Branislav Pokrajac er
það varð ólympíumeistari í Los
Angeles 1984.
■ GUNNAR Þór Jónsson,
formaður landsliðsnefndar og lækn-
ir liðsins, og Guðjón Guðmundsson
liðsstjóri, segjast báðir hafa á til-
finningunni að ísland eigi eftir að
mæta Póllandi í lok keppninnar,
þegár keppt verður um sæti. Um
hvaða sæti vilja þeir ekki gefa
upp...
■ ARSENAL vann franska
landsliðið 2:0 á Higbury ? gær-
kvöldi og var leikurinn sýndur beint
í Frakklandi. Heimamenn höfðu
mikla yfirburði, en Martin Hayes
og Alan Smith skomðu ( seinni
hálfleik.
■ EVERTON og Aston Villa
gerðu 1:1 jafntefli í ensku 1. deild-^-
inni. Tony Cottee skoraði fyrir
heimamenn, en Ian Ormandroyd
jafnaði.