Morgunblaðið - 15.02.1989, Side 44
MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1989
VEIffi í LAUSASÖLU 70 KR.
ísagarðardjúp:
Mikil leit að rækjubáti
með tveimur mönnum
Við ráðherrabústaðinn
Aðstoðarforstjórar General Mills,
sem rekur meðal annars Red
Lobster-veitingahúsin í Banda-
ríkjunum, ganga af fundi Halldórs
Ásgrímssonar sj ávarútvegsráð-
herra í Ráðherrabústaðnum þar
sem þeir lýstu yfír áhyggjum
vegna vaxandi mótmælum frá
grænfriðungum vegna kaupa
þeirra á íslenskum físki.
Tveir menn björguðust þegar annar
rækjubátur sökk innst í Skutulsfirði
Grænfriðungar búast við
mótmælum í 150 borgum
Heimsfrægar hljómsveitir neita að spila hér vegna hvalveiðisteftiunnar
ELLEFU tonna rækjubátur, Kol-
brún ÍS, sökk innst í Skutulsfírði
um klukkan 21 í gærkvöldi, rétt
utan við Norðurtangabryggjuna
á ísafirði. Tveir menn, sem um
borð voru, björguðust. Þeir voru
báðir í flotbúningum. Er talið
---víst að það hafí verið þeirra
lífbjörg. Annars rækjubáts, Dóra
ÍS 213, tíu tonna trébáts, var
saknað með tveimur mönnum í
ísafjarðardjúpi í gærkvöldi. Öll
tiltæk skip og sterri bátar héldu
til leitar frá ísafírði, Bolung-
arvík og Súðavík en leitin hafði
ekki borið árangur siðast þegar
fréttist laust fyrir klukkan eitt
í nótt. Versta veður var við ísa-
fjarðardjúp frameftir kvöldi í
gær, norðan 6-8 vindstig með
_ _éljum, um 13 gráðu frost og
mikil fsing, en undir miðnætti
var veður gengið niður.
Gjaldskrá
SVR hækk-
ar um 25%
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
25% hækkun á gjaldskrá
Strætisvagna Reykjavikur frá
. jQg með 1. mars næstkomandi.
«
Einstök fargjöld fullorðinna
hækka úr 40 krónum í 50 og far-
miðaspjöld með 26 miðum hækka
úr 700 í 900 kr. Lítil farmiða-
spjöld kosta áfram 300 krónur,
en miðunum á þeim verður fækkað
úr átta í sjö. Farmiðaspjöld aldr-
aðra með 26 miðum hækka úr 350
í 450 kr.
Einstök fargjöld bama hækka
úr 11 kr. í 14 og farmiðaspjöld
bama með 26 miðum hækka úr
200 kr. í 250.
Mennimir, sem björguðust af
Kolbrúnu ÍS, heita Haraldur Kon-
ráðsson og Gísli Jón Kristjánsson,
skipstjóri, báðir á þrítugsaldri. Þeir
vom fluttir á sjúkrahúsið á ísafirði,
kaldir og hraktir en heilir á húfí.
Gísli Jón sagði í samtali við frétta-
ritara Morgunblaðsins að báturinn
hefði verið orðinn mikið ísaður öðru
megin þegar hann fékk á sig sterka
öldu. Við það hvolfdi bátnum og
sökk hann á örskammri stundu.
GRÆNFRIÐUNGAR búast við
mótmælum f 100—150 borgum í
Bandaríkjunum, við veitingastaði
Mönnunum var bjargað um borð í
bát sem þá var á leið úr höfn til
að taka þátt í leitinni að Dóra.
Síðast heyrðist til Dóra um
klukkan sex í gærkvöldi. Hann var
þá við rækjuveiðar við Strand-
seljavík undan Æðey og í þann veg
að leggja af stað inn til ísafjarðar.
Þangað er um 1V2-2 tíma sigling,
að sögn björgunarmanna. Þegar
Dóri var ekki kominn til hafnar um
níuleytið eins og aðrir bátar sem
væntanlegir höfðu verið á eftir
honum, var haft samband við lög-
reglu og leit þegar sett af stað.
Öll tiltæk skip og bátar héldu strax
úr höfn á ísafirði, Bolungarvík og
Súðavík og björgunarsveitir frá
þessum stöðum voru einnig ræstar
út. Um miðnætti var verið að flytja
björgunarsveitir til leitar með
ströndum.
10-15 skip voru við leit frá Am-
amesi og inn að Ögurhólmum.
Varðskip var væntanlegt á svæðið
í nótt. Morgunblaðið náði sambandi
við Hjalta Hjaltason skipstjóra á
Etjúpbátnum Fagranesinu um
kiukkan hálfeitt í nótt. Hann sagði
að skipin hefðu þá farið einu sinni
um leitarsvæðið og væru að undir-
búa aðra yfírferð. Hjaiti sagði að
veður væri ágætt, kyrrt í sjóinn
og skyggni þokkalegt en mikill
kuldi, 11 gráðu frost, og ísing.
Mennimir tveir, sem saknað er
með Dóra, eru báðir búsettir á
ísafírði.
sem selja fslenskan fisk, á svoköll-
uðum „þjóðardegi" gegn hvalveið-
um íslendinga þann 25. mars næst-
komandi. MótmæUn beinast eink-
um gegn veitingahúsakeðjunni
Burger King, sem er einn stærsti
kaupandi íslensks fisks f Banda-
ríkjunum, en mótmælastöður eru
einnig fyrirhugaðar við ýmsa aðra
veitingastaði. FuUtrúar eigenda
Red Lobster-veitingastaðanna
hafa í viðræðum við fiskútflytj-
endur og HaUdór Ásgrfmsson
sjávarútvegsráðherra f Reykjavík
í gær lýst yfir áhyggjum sfnum
vegna þess að mótmæU grænfrið-
imga beinast f vaxandi mæU gegn
þeim.
Tveir aðstoðarforstjórar stórfyrir-
tækisins General Mills, sem m.a. rek-
ur 450 Red Lobster-veitingastaði,
voru hér á ferð í vikunni. Var erindi
þeirra hingað til iands, auk reglu-
bundinna viðskiptaviðræðna við SH
og SÍS, að skýra viðskiptaaðilum
sínum og íslenskum stjómvöldum frá
vaxandi mótmælum grænfriðunga
gegn veitingastöðunum.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins óttast þeir að grænfriðungar
byiji á næstu vikum að hvetja fólk
til að sniðganga veitingastaðina, auk
þess sem þeir trufli starfsemi þeirra
með mótmælastöðum. Ef til þess
kæmi yrðu þeir fljótlega að meta upp
á nýtt, hvort um áframhaldandi físk-
kaup af íslendingum geti orðið að
ræða.
Hljómsveitir á vegum alþjóðlega
umboðsfyrirtækisins Wasted Talent
hafa ekki fengist til að spila hér á
landi vegna þess að umboðsfyrirtæk-
ið og hljómsveitimar sætta sig ekki
við hvalveiðistefnu íslenskra stjóm-
valda. Eurythmics og Pretenders,
heimsfrægar hljómsveitir, hafa m.a.
neitað að spila hér á landi.
Sjá fréttir á bls. 4.
Hafís landfast-
ur við Vestfírði
HAFÍS er landfastur á milli
Horns og Straumness og lokar
þar siglingaleiðinni. Búist er við
að hún opnist aftur á morgun
þar sem spáð er suðaustanátt.
Isinn hefur slitnað frá meginís-
breiðunni vegna nokkuð stöðugra
vestlægra átta að undanfömu. Tal-
in er hætta er á að eitthvað af
honum berist inn á Húnaflóa.
Jón Baldvin um alþjóðlegan varaflugvöll:
Sanníserður um að flug-
völlur verður byggður
Framkvæmdastj óri NATO staðfestir að
völlurinn verði ekki hernaðarmannvirki
JÓN BALDVIN Hannibalsson
utanrikisráðherra segist vera
sannfærður um að alþjóðlegur
varaflugvöllur verði byggður
hér á landi, kostaður af Mann-
virkjasjóði Atlantshafsbanda-
lagsins. íslensk stjómvöld þurfa
að taka afstöðu til þess, hvort
Mannvirkjasjóðurinn á að kosta
forkönnun á staðsetningu og
gerð vallarins áður en ákveðið
er um frekari framkvæmdir.
Manfred Wömer aðalfram-
kvæmdastjóri Atlantshafs-
bandalagsins hefur staðfest með
bréfi að varaflugvöllurinn verði
ekki heraaðarmannvirki á frið-
artímum og verði að öllu leyti
f höndum íslendinga sjálfra.
Bréf Wömers hefur verið kynnt
í ríkisstjóra en ekkert verið
ákveðið enn um málið.
Jón Baldvin segist vera því
ákveðið fylgjandi að varaflugvöll-
urinn verði gerður hér á landi og
að hið fyrsta verði svarað jákvætt
tilboði um að forkönnun fari fram.
Áætlaður kostnaður við gerð vara-
flugvallarins er um 11 milljarðar
króna. Rekstrarkostnaður er áætl-
aður um 100 milljónir á ári. Jón
Baldvin sagðist vilja ná samning-
um við Bandaríkjamenn um
greiðslu kostnaðar við reksturinn.
Sjá nánar á miðopnu.