Morgunblaðið - 19.02.1989, Side 3

Morgunblaðið - 19.02.1989, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1989 C 3 við starfíð, löngum tíma og miklum kröftum verið beitt til þess eða ef um fáa kosti er að ræða í starfs- vali. Margir vilja líkja atvinnumissi við önnur erfið áföll í lífinu þar sem manneskjan getur um tíma kiknað undan álagi, svo sem óvæntum skilnaði eða dauðsfalli náins ætt- ingja. Tilfinningaleg viðbrögð geta því verið sterk. Þeir sem komnir eru yfir miðjan aldur geta átt erfiðara með að mæta slíkum áföllum. Þá eru færri möguleikar á því að vinna úr og komast í gegnum sálarkrepp- una en fyrir yngra fólk sem hefur oft meiri styrk og fleiri kosta völ. Þess vegna hefur vandi sem tengist atvinnuöryggi miðaldra og eldra fólks oft afdrifaríkari afleiðingar fyrir tengsl innan ijölskyldu og við vini en hjá þeim sem yngri eru. Einnig má sjá að þeir sem hafa sótt langskólamenntun og lagt hart að sér til að öðlast fagréttindi og stjómunarstöður þola atvinnuleysi mjög illa. Hver eru áhrifin? Hér á eftir verða nefnd nokkur þeirra viðbragða mannsins sem búast má við að sýni sig þegar um atvinnumissi er að ræða: Reiði sem rekja má uppsagnar getur verið erfið að eiga við; það er stundum erfitt að finna sökudólg- inn. Oft beinist þó sú heift að fyrri vinnustað, einkum yfirmönnum; margir fá heldur ekki skýrar ástæð- ur fýrir uppsögninni, talað er óljóst um samdrátt og taprekstur. Margir yfirmenn valda því illa að útskýra og sýna nærgætni þegar um upp- sögn er að ræða. Stundum hafa þeir sjálfír ekki þekkingu á ástæð- um eða vita að þær eru ekki réttar en oft eiga þeir erfitt með að tak- ast á við þetta verkefni og firra sig því ábyrgð með óljósu tali og undan- brögðum. Reiði beinist einnig gegn þeim sem eru þeim atvinnulausa nánast- ir, einkum maka og börnum. Það getur verið erfítt hlutskipi að verða háður öðrum þegar vaninn er sá að vera fyrirvinna og húsbóndi. Mörg erfið vandamál innan fjöl- skyldna eiga rætur að rekja til valdabaráttu við þessar aðstæður, sem stundum tengjast ofdrykkju og jafnvel ofbeldi. Reiði sem beinist inn á við kemur gjarnan fram sem sjálfs- ásakanir og það er algengt að þeir sem verða fyrir áföllum í vinnu grufli mikið yfir eigin viðbrögðum. Ymis atvik riíjast upp þar sem betra hefði verið að taka öðru vísi á mál- um, mistökin verða stærri í minn- ingunni. Þá er gjaman stutt í að dæma sjálfan sig hart, gera ráð fyrir að aðrir hafi einnig séð í gegn- um og dæmt mann léttvægan. Maðurinn verður því auðveldlega bældur og bitur þegar slíkar hugs- anir verða ofaná, og jafnvel þung- lyndur þegar fram í sækir. Streituviðbrögð af sálrænum og líkamlegum toga aukast stór- lega. Óróleiki innra með manninum og eirðarleysi gerir að verkum að erfitt er að einbeita sér að nokkru verki. Líkamleg veikindi aukast einnig á þessum tíma vegna minnk- aðrar mótstöðu í kjölfar áfallsins. Einstaklingurinn sjálfur getur haft tilhneigingu til að nota þá skýringu að hann sé veikur fremur en at- vinnulaus, vegna þess að hann og aðrir viðurkenna þær ástæður frek- ar. Þannig eru vissar líkur á að meiri sókn verði í ýmis konar tauga- Tilvalinn fermingarfatnoóur Slalcor buxur kr. 3.450 Skyrfo kr. 2.490* Stakur jokki kr. 7.990, Bindoseff kr. 980, Dömujokki Dömubuxur Blússo' 3.950,- 2.990,- - wmimI Binrfoseft kr. 930, nujokki kr. 5.490. filskr. 2 890, Blússokr 2.990 • 5 O G A R T Austurstræti 22, sími 22925 KARNABÆR Laugavegi 66, sími 22950 GARBO Austurstræti 22, sími 22925 f fiíií 2 S >8 í 5 * f * ð í ■ i- í i ~ 2 St,i í 8 s Il » í Í t i w . : -• í r. -i <: £ l 5 * Jl. t t i i í. i j

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.