Morgunblaðið - 19.02.1989, Side 8

Morgunblaðið - 19.02.1989, Side 8
8 C ' JÍÖRGUNBlíAÉ)lb! átiklítíD'ÁcjM Í9.'í4B1áÖA!á’iÍ^9 Ad hugsa ems °g POLLYMA verki. Jón prímus er að vissu leyti leiðandi persóna fyrir Umba, en Umbi er aðalpersónan í myndinni og við fylgjum honum eftir. Siggi er nánast í hverju einasta skoti í allri myndinni og sýndi mikla þolin- mæði í þessu öllu saman, sem endranær." Settist á þúfu og fór að tína ber Myndatakan fór fram við Amar- stapa á Snæfellsnesi síðastliðið sumar og inniatriðin voru flest tek- in í Mosfellsdal. Það sem einkum háði myndatökunni var íslenska veðrið, að sögn Guðnýjar. „Maður verður bara að taka veðr- ið með í reikninginn við kvikmynda- tökur hér á landi og láta það skipa sinn sess í handritunum, eins og það gerir í þessari mynd. Það fauk til dæmis niður hjá okkur heil leik- mynd og það er ekki í fyrsta sinn sem það gerist hér á íslandi. Aðalat- riðið er þó að koma sér upp eins konar Pollýönnu-hugsunarhætti og gera gott úr hlutunum. í svona samstarfí verður maður að halda góða skapinu og láta andstreymið ekki bitna á samstarfsfólkinu. Það er heilmikil vinna út af fyrir sig að bíta á jaxlinn og brosa við slíkar aðstæður. Þegar leikmyndin fauk kom leik- myndasmiðurinn, Karl Júlíusson, á móti okkur og sagði ósköp varfæm- islega: Ég held að það standi nú ekki allt sem stóð þama í gær. Þetta hefur eitthvað laskast hjá okkur. Þegar við komum svo á staðinn og sáum að allt var í rúst reyndi mjög á Pollýönnu-hugsunarháttinn og maður sagði við sjálfan sig: Verra gæti það verið. Erfiðasta atriðið var það sem tekið var á Jöklinum. Það hefði auðvitað legið beinast við að fá þyrlu til að flytja fólkið þangað upp, alls 25 manns, en það var of dýrt og þess vegna æddum við af stað klukkan sex um morguninn á snjóbíl, en hann bræddi úr sér svo að við þurftum að fara fótgangandi upp. Við gengum og gengum og þurftum að bera dótið þannig að þetta var mikil þrekraun fyrir fólk- ið. Einn gafst upp og var sendur á sjúkrahús. Það er auðvitað ekkert skemmtilegt að þurfa að leggja svona á annað fólk eins og þama var gert. En þetta var alveg ein- stakur hópur sem vann við myndina og ef þessi endalausa þolinmæði fólksins og fómfýsi hefði ekki kom- ið til hefði þetta aldrei verið hægt. Eitt það eftirminnilegasta í sam- bandi við kvikmyndatökuna var þegar þýska konan, sem sá um fjár- málin fyrir þá, kom til að_ fylgjast með kvikmyndatökunni. Ég hafði oft talað við hana í síma og gert henni grein fyrir gangi mála og þetta var greind kona og vel lesin. Einhvem veginn fékk ég á tilfinn- inguna að þetta væri glæsikona á uppleið í viðskiptalífinu, með út- saumaða stresstösku, ekta Faye Dunaway-týpa. Þá kemur þessi gamla kerling, í heilsárs kápu, með svona gamaldags kvenveski. Hún kom vestur og settist þar á þúfu eins og gömul frænka og fór að tína ber. Og hún bókstaflega fríkaði út, henni fannst svo gaman að sitja þama undir Jöklinum. Eftir það komu peningamir örar frá Þýska- landi, enda sá hún með eigin augum hvað íslendingar leggja mikið á sig til að búa til eina kvikmynd.“ Maður verður að vera glenntur og interessant Fjármál em stöðugt til umræðu þegar íslensk kvikmyndagerð er annars vegar og ég spyr Guðnýju út í þá hlið mála varðandi Kristni- haldið: „Þetta er dýrasta mynd sem Umbi hefur framleitt, kostnaðurinn er um 40 milljónir og allt lagt und- ir. Það hafa meira að segja verið veðsett hús sem aðrir eiga, svo sem hús systur minnar og hús góðrar frænku vestur á Patreksfirði, svo nokkur séu nefnd. Lauslega áætlað þurfum við 42 þúsund áhorfendur til að sleppa á sléttu og það er því teflt á tæpasta vað. Enda situr maður nú og nagar á sér neglum- ar. Fyrri myndimar tvær sluppu, Sandra slapp fyrir hom, skilaði reyndar 16 krónum í gróða. Stella kom ágætlega út og hagnaðurinn af henni gerði okkur kleift að ráð- ast í þessa mynd. Þótt þetta sé mikill kostnaður hefði ekki verið hægt að gera Kristnihaldið fyrir minni pening. Við gerðum þetta á eins ódýran hátt eins og hægt var.“ — En gerir samvinnan við Þjóð- veijana það ekki að verkum að myndin á greiðari aðgang inn á markað erlendis? „Hún verður sýnd í sjónvarpi í Þýskalandi, en að öðm leyti er þetta óskrifað blað og ómögulegt að segja hvemig til tekst. Þessi markaður er svo mikill frumskógur. Menn verða að vera duglegir að fara á kvikmyndahátíðir, sækja kokteil- boð, tala mikið um ekki neitt við alls konar fólk og vera voðalega glenntur og interessant. Það er ekki mín deild. Þetta byggist með öðmm orðum á því að þekkja rétta fólkið og ko_ma vel fyrir í samkvæm- unum. Við íslendingar emm því oft eins og sveitamenn í þessum félags- skap, þegar við komum út í þennan stóra heim með myndimar okkar undir hendinni, — nema kannski einstaka menn sem koma vel fyrir í hópi stórmenna." — Ertu ánægð með árangurinn, svona þegar upp er staðið? „Ja, nú er maður náttúrulega orðin svo samdauna þessu og fáir utanaðkomandi hafa séð myndina enn sem komið er, þannig að það er erfitt að segja til um hvemig til hefur tekist. En sjálf er ég ósköp ángæð og myndin er nákvæmlega eins og ég vildi hafa hana, en það er auðvitað annarra að dæma. Ég vil ekki vera að gefa neina yfírlýs- ingar um ágæti myndarinnar, því það er tvennt sem ég þoli ekki við íslenska kvikmyndagerð. Það er annars vegar þetta sjálfshól og grobb, þar sem menn tala enda- laust um ágæti verka sinna, eins og annað eins hafí aldrei verið gert áður. Auðvitað þurfa menn að selja afurðir sínar, en maður getur sjálf- ur aldrei verið svona ofboðslega viss um gæði þeirra. Annað ein- kenni á íslenskri kvikmyndagerð er vælið um það hvað þetta sé erfitt og dýrt. Þetta er voðalega leiðinleg umræða." — En skiptir fjárhagsleg afkoma ekki öllu máli um framhaldið? „Sumir hafa nú haldið áfram þótt þeir séu margoft famir á haus- inn. Én ég held að ég hætti ef þetta gengur ekki upp. Hvað ætli maður sé að pípa þetta ef enginn nennir að horfa á þessar myndir. Þá getur maður alveg eins fengið sér 8 milli- metra vél og farið að búa til mynd- ir fyrir fjölskylduna." SIC l R1)L R SIC IIR.JÓ\SSO\ Viðamesta hlutverkið til þessa SIGURÐUR SIGURJÓNSSON fer með hlutverk Umba, sem sendur er á vegum biskupsembættisins til að kanna kristnihaldið undir Jökli. „Þetta er viðamesta kvik- myndahlutverk sem ég hef fengist við, það er engin spurning," sagði Sigurður, en hann hefiir leikið í um það bil tíu kvikmyndum, sem er óvenjumikið á íslenskan mælikvarða. í kvikmyndinni er Umba fylgt eftir og er Sigurður i næstum öllurn myndrömmum og því nánast á tjaldinu allan timann. BAI 1)\ I\ 11AI.I.DÓRSSO\ Jón Prímus er einn af mörgum töframönnum Halldórs Laxness „ÞEGAR leikari hefiir lagt sig allan fram við að skapa persónu í kvikmynd, ásamt Ieikstjóra að sjálfsögðu, er einfaldast að fara og sjá myndinatil að gá að hvernig til hefiir tekist,“ sagði Baldvin Halldórsson, sem fer með hlutverk séra Jóns prímus. „Manngerðin verður ekki útskýrð með orðum. Jón primus er einn af mörgum töframönnum Halldórs Laxness. Hann er ofinn úr §öl- mörgum þáttum,“ sagði Baldvin ennfremur, er hann var spurður hvernig manngerð Jón prímus væri. ótt þannig hafi mætt mikið á Sigurði sagði hann að sér hefði ekki þótt erfítt að fást við Umba. „Þetta voru engin stórátök þrátt fyrir allt því Umbi er frekar auðveldur viðureignar. Það bjargaði líka miklu að samvinnan við sam- starfsfólkið, leikstjóra og meðleikendur, var með miklum ágætum þannig að þetta varð ekki eins erfítt og ég ætlaði í upphafí." Sigurður sagði að nokkuð væri um liðið síðan Guðný Halldórsdóttir leikstjóri hefði falast eftir sér í hlutverkið og þótt hann hefði ekki þá þegar farið að velta hlutverkinu fyrir sér hefði undirmeðvitundin eflaust verið tekin til starfa áður en að kvikmyndatökunni kom. „Ég þekkti söguna vel og vissi því að hveiju ég gekk,“ sagði hann. Umbi er þriðja persónan eftir Halldór Laxness sem Sigurð- ur fæst við. Hann lék í íslandsklukkunni í uppfærslu Þjóðleik- hússins og einnig fór hann með smáhlutverk í Atómstöð- inni. Aðspurður um hvað honum þætti eftirtektarverðast í fari Umba sagði Sigurður: „Ég held að það sé ekki rétt af mér að gefa einhverjar yfírlýsingar fyrirfram um persónu- leika Umba enda verður hver að skilja hann fyrir sig. í þess- um efnum vísa ég bara á myndina og leyfi fólki að mynda sér sínar eigin skoðanir um þennan ágæta mann.“ Baldvin Halldórsson lék fyrst í verki eftir Halldór Laxness í frumflutningi á íslandsklukkunni, við opnun Þjóðleik- hússins árið 1950, og fór þá með tvö smáhlutverk. Síðan hefur hann komið við sögu í mörgum verka nóbelskáldsins bæði sem leikari og leikstjóri. Hann lék tvö hlutverk hjá Eyvindi Erlendssyni í uppfærslu á Húsi skáldsins: Hjört f Veghúsum og séra Brand. Hann lék tónskáldið í sjónvarps- myndinni um Brekkukotsannál og í kvikmyndinni Atómstöð- inni fór hann með hlutverk Fals. Veturinn 1965-1966 leik- stýrði Baldvin Pijónastofunni Sólin, og um það verk segir hann m.a.: „Þetta er margslungið verk og var á undan sinni samtíð. Sá tími hlýtur að koma að Pijónastofan Sólin verður metin að verðleikum." Af öðrum verkum Laxness sem Baldvin hefur leikstýrt má nefna íslandsklukkuna, 16 árum eftir frumflutning verks- ins. Sigríður Þorvaldsdóttir var þá í hlutverki Snæfríðar og gekk sýningin 47 sinnum. Vorið 1972 stjómaði hann Sjálf- stæðu fólki í uppfærslu Þjóðleikhússins, sem gekk yfir 60 sinnum fyrir fullu húsi. Seinna stjórnaði hann því verki einn- ig hjá Leikfélagi Akureyrar. í tilefni af afmæli Halldórs tóku þeir Baldvin og Gunnar Eyjólfsson saman íjögurra þátta dagskrá fyrir Ríkisútvarpið, sem samanstóð af gömlum og nýjum upptökum af verkum skáldsins. Þá gerði Baldvin sjón- varpsmynd í samvinnu við Jón Þórarinsson, þáverandi dag- skrárstjóra Sjónvarpsins, eftir smásögu Halldórs, Jón í Brauð- húsum, með Vali Gíslasyni og Þorsteini Ö. Stephensen í aðalhlutverkum. Um kvikmyndina Kristnihald undir Jökli sagði Baldvin að lokum:„Það var mér mikil ánægja að taka þátt í þessari kvikmynd, og alveg sérstaklega að vinna með með svona ungum, góðum og gáfuðum leikstjóra eins og henni Guðnýju." MARGRK I I IKI.CA JÓIIAWSDÓ11IR Forréttíndi að fá að leika persónur eftir Laxness „ VINNAN VIÐ þessa kvikmynd var ein sú skemmtileg- asta sem ég hef fengist við,“ sagði Margrét Helga Jó- hannsdóttir, sem leikur hina leyndardómsfúllu Úu. Nafii hennar gengur eins og rauður þráður í gegnum verkið, en sjálf kemur hún ekki fram nema rétt í lokin og að sögn Margrétar Helgu er hlutur hennar styttur í kvik- myndinni frá því sem er í skáldverkinu. E n engu að síður var mjög gaman að fást við þetta hlut- verk, hvernig svo sem útkoman hefur orðið, en um það verða aðrir að dæma,“ sagði Margrét Helga. Hún sagði að það hefði komið sér á óvart þegar Guðný Halldórsdóttir hafði samband við sig vegna þessa hlutverks. „Mér fannst ég ekki alveg vera rétta konan miðað við lýsinguna á þess- ari glæsikonu í sögunni. Annars á sú lýsing í rauninni ekki við neinn ef út í það er farið.“ Úa er sjöunda kvenpersónan eftir Halldór Laxness sem Margrét Helga leikur. Hinar eru Ugla í Atómstöðinni í upp- færslu Leikfélags Reykjavíkur, Gæja Kaldan í Straumrofi í uppfæ^slu LR, Sigurlína í Sölku Völku f uppfærslu JJt, Cloe í sjónvarpsmyndinni um Brekkukotsannál, Matráðskonan í kvikmyndinni Atómstöðin og Vinnukonan í sjónvarpsmynd- inni Veiðitúr í óbyggðum. „Mér hefur alltaf líkað vel að leika kvenpersónur eftir Halldór Laxness enda er ég sammála Marquez um að Kiljan sé einn af mestu rithöfundum þessarar aldar í heiminum. Hann er minn uppáhaldshöfuiidur og það eru forréttindi að fá að leika persónur úr skáldverkum hans,“ sagði Margrét Helga Jóhannsdóttir leikkona.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.