Morgunblaðið - 19.02.1989, Síða 10

Morgunblaðið - 19.02.1989, Síða 10
MORGUNBIiAÐIB MAININLÍFSSTRAUMAR suNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1989 10 ;c *l/ié-áeíýum Clarins Clinique Estee Lauder Lancome Ellen Betrix Margret Astor Snyrtivöruverslunin G u 1 1 b r á, Nóatúni 17, s. 624217. Sendum ípóstkröfu. Til sölu er m/s BALDUR frá Stykkis- hólmi, skipaskrárnúmer994. Skipið selst í því ástandi sem það er í dag. M/s BALDUR er smíðaður 1966,196 brúttó tonn, með tveimur aðalvélum, samtals 640 hestöfl. Skipið afhendist í sumar eftir að ný ferja tekur við áætlun yfir Breiðafjörð. Allar upplýsingar verða fúslega veittar af fram- kvæmdastjóra bréflega eða í síma 93-81120. Tilboð sendist stjórn Flóabátsins Baldurs hf., Stykkishólmi, fyrir 31. mars 1989. Námskeið Sjálfsþekking - Sjálf söryggi Á námskeiöinu kynnast þátttakendur: • Hvaða persónulegan stíl þeir hafa í samskiptum • Hvemig má greina og skilja samskipti • Hvernig ráða má við gagnrýni • Hvernig finna má lausnir í árekstrum • Hvernig læra má samskipti sem auka sjálfsöryggi Leiðbeinendur eru sálfræðingarnir Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal. Innritun og nánari upplýsingar í símum Sálfræðistöðvarinnar: 62 30 75 og 21110 kl. 11-12. LÖGFRÆÐI/Er ofmikid „vesen “ aó skilja? Þrmnn Sigfusson og Þórhildur skáldkona Öllu fyrirhafnarminna var að slíta hjónabandi á tímum Gunnars og Hallgerðar Stundum er kvartað yfir því að það sé svo mikið „vesen“ að skilja. Fólk þurfi að hlauþa út og suður um allan bæ til að redda pappírum, tala við prest og síðan panta tíma hjá ein- hveijum kerfis- þræli sem spyiji um alls kyns hiuti sem hann varðar ekkert um. Eftir þetta allt saman fæst svo aðeins skilnaður að borði og sæng sem þýðir að það þarf að endurtaka alla vit- leysuna eftir eitt ár til þess að fá lögskilnað. Ekki verður um það dæmt hér hvort reglur þær sem gilda um meðferð skilnaðarmála eru óþarf- lega flóknar og geri fólki erfítt fyr- ir. Sjálfsagt eru þær ekki fullkomn- ar frekar en önnur mannanna verk. í ljósi þeirra réttaráhrif sem hjú- skaparstofnun hefur í för með sér verður þó tæplega hjá því komist að fylgt sé ákveðnum reglum þegar hjúskap er slitið. Ekki er ætlunin að skýra þessar reglur ítarlega hér, en segja má að kjaminn í þeim sé sá að hjúskap verði ekki löglega slitið nema með opinberu leyfí yfir- valda, sem þó fæst ekki löglega slitið nema með opinberu leyfi yfír- valda, sem þó fæst ekki nema að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Skilyrðin eru að náðst hafí sam- komulag um forsjá bama, meðlags- greiðslur, umgengnisrétt og skipt- ingu eigna og skulda. Ef ekki næst samkomulag verður að vísa ágrein- ingi til þar til bærra aðila til úr- . lausnar. Á þessu stigi er þó aðeins hægt að fá skilnað að borði og sæng, nema í sérstökum tilfellum. Lögskilnaður fæst síðan yfírleitt ekki fyrr en skilnaður að borði og sæng hefur staðið í tiltekinn tíma. Ef marka má frásögn Njálu af brúðkaupi Gunnars og Hallgerðar var öllu fyrirhafnarminna í þá daga' að slíta hjónabandi en nú er. A.m.k. þegar maðurinn vildi losna við kon- una. Það er fróðlegt að riíja þessa frásögn upp til samanburðar.í brúð- kaupinu var staddur Þráinn Sigfús- son frá Gijótá í Fljótshlíð. Hann var frændi Gunnars á Hlíðarenda eftir Davíð Þór Björgvins son MATUR OG DRYKKUR /Hvaóa áhrifhefur hinn langþráói bjórf Urrf uppsölur eða einsemd 1. mars, bjórdagurinn mikli, er nokkuð svo fyrirkvíðanlegur. Ég mun út af fyrir sig fagna því að fá fleiri búllur — maður á þá fleiri kosta völ þegar grípur mann löngun til að halla höfði sínu upp að vegg og/eða hafa upp á fólki sem er reiðubúið að ganga með manni í hamarinn. Hins vegar óttast ég að margir umturnist við að öðlast loks hinn forboðna drykk og ekki verði líft í miðbænum fyrir spýjum og íslensku afbrigði af þýskum kráarsöng sem maður fékk frem- ur ógeðfelld sýnishorn af á bjórferlíkisárunum. Hókípókíog aðrir eyrnaskelfar. Einmenningnr og sleitulaus sveitardrykkja Allt getur gerst þar sem bjór- menning íslendinga hefur síður en svo verið sleitulaus og allt eins viðbúið að umgengnisvenjur okkar við ölið verði því með svipuðum hætti og Egils Skallagrímssonar og sveitunga hans: drekkum fyrst ein- menning, hvert full í botn til heið- urs þeim er skálað eftir Jóhönnu ~ er fyrir; drekkum Sveinsdóttur síðan fii bálfs þar til við gerumst allkát; þar næst sveitardrykkju, en er á líður kvöldið við sleitur með orðahnippingum, fúkyrðum og upp- sölum: „Ekki er að hallmæla mér um, þótt ég geri sem bóndi gerir, spýr hann af öllu afli, eigi síður en ég-“ Hingað mun streyma fjöldi er- lendra fréttamanna til að fylgjast með hinu langþráða öli renna niður um, kverkar landsmanna (og upp úr þeim aftur). í gömlum ferðasög- um frá íslandi er þess víða getið að þar láti menn ekki af drykkju meðan eitthvað er til á könnunni og enn í dag er vaskleiki landans við þessa iðju erlendum gestum undrunarefni. Og mun svo verða 1. mars. Urrandi eins og bimir og hundar í ferðasögu Göries Peerse, út- gerðarmanns frá Hamborg, sem hingað kom líklega 1554, er m.a. að fínna eftirfarandi bjórþambslýs- ingu: „Og ef bjór flyst þangað með skipum, þá drekka menn af kappi, meðan hann endist. Þeir láta það þó ekki standa yfír lengur en í átta daga því þá kynni sætt að snúast upp í súrt. . . Og þar gengur eng- inn undan borðum sem þarf að kasta af sér vatni, trúið mér vel um það. Húsfreyjan verður að rétta mönnum næturgagnið, og víkur hún sér ekki frá, en verður að taka við því aftur, þegar hann er búinn að ljúka sér af. Ekki blygðast hann sín fyrir þetta. Hún verður síðan í hljóði að skvetta úr koppnum, það er háttur og siður þar í landi. Þeir sitja og urra eins og birnir og hund- ar, og þegar bjórinn er þrotinn þurrka þeir sér um munninn. Síðan ganga gestimir heim til sinna húsa, en húsbóndinn verður að vera eftir hjá Iúsum sínum.“ Þessi ófagra lýsing gekk aftur lítt breytt í öðrum ferðabókum út- íendum, svo sem Hollendingsins Ditmars Blefkens. Bók Tékkans Daniels Vetters sem var hér á landi 1612 eða 1613 hefur þótt áreiðan- legust þessara þriggja bóka. Eins og fyrirrennarar hans gerir hann það að umtalsefni að Islendingar drekki allt jafnharðan, láti ölið aldr- ei súma í kauptíðinni heldur ljúki því fljótt en snúi svo aftur til hvers- dagslegri lífshátta. , Geistleg morgfunbolla Daniel Vetter lýsir m.a. veislu hjá Oddi biskupi Einarssyni í Skál- holti. Hann vildi gera sérlega vel við gesti sína morguninn sem þeir voru á fömm. Drykkjusiðimir í þessari geistlegu morgunbollu komu nokkuð flatt upp á Vetter og félaga: „Hann lét elda góðan morgun- verð og snæddi hann með okkur ásamt sinni ektakvinnu, bömum og öðmm vinum, sem þar vom í heim- sókn, og til að heiðra okkur að lok- um lét hann bera fram vín í einu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.