Morgunblaðið - 19.02.1989, Síða 11
og mikill virðingarmaður. Eigin-
kona hans var Þórhildur skáldkona.
Um hann segir „hún var orðgífur
mikið og fór með flimtan; Þráinn
unni henni lítið“. Þorgerður dóttir
Hallgerðar var í brúðkaupinu og
þótti kvenna fríðust. Þráni Sigfús-
syni varð starsýnt á Þorgerði og
reiddist Þórhildur skáldkona, sem
þótti Þráinn stara heldur flírulega
á Þorgerði, og kvað:
Era gapriplar góðir
gægr er þér í augum,
Eftir frásögninni að dæma voru
viðbrögð Þráins skjót: „Hann sté
þegar fram yfir borðið og nefndi
sér tvo votta og sagði skilið við
hana — „vil ég eigi hafa flimtan
hennar né fáryrði yfír mér“. Og svo
var hann kappsamur um þetta, að
hann vildi eigi vera að veislunni
nema hún væri í braut rekin; og
það varð, að hún var í braut. Og
sátu menn hver í sínu rúmi og
drukku og voru kátir.“ Ekki lét
Þráinn þar við sitja og fastnaði
hann sér Þorgerði, dóttur Hallgerð-
ar, áður en veislunni lauk. Ekkert_
„vesen" þar á bæ!
Af frásögninni og öðrum heimild-
um verður ekki annað ráðið en að
Þráinn hafí með þessu slitið hjú-
skapnum með lögmætum hætti,
enda verður ekki séð að nokkur
eftirmáli hafi orðið af þessu uppá-
tæki hans. Ekkert skal um það full-
yrt hvort það var jafn einfalt fyrir
konuna að losna við bóndann. Þó
hygg ég að svo hafí ekki verið,
enda átti bóndinn konuna en ekki
öfugt.
Ekki er að efa að mörgum þykir
eftirsjá í þessu, enda var þetta
bæði einfaldara og fljótlegra en þær
aðferðir sem viðhafðar eru nú á
dögum. Menn gætu kannski haft
frásögn þessa til hliðsjónar við end-
urskoðun núgildandi laga um stofn-
un og slit hjúskapar.
íláti, í öðru bjór, sem hann átti
bestan, mjöð í því þriðja, í hinu
fjórða brennivín og mjólk í hinu
fimmta; öllu þessu blönduðu þau
og helltu saman í eina könnu og
drukku okkur til; en þegar þau sáu
og komust að því, að þessi drykkur
var okkur ekki skapfelldur, drukku
þau af honum ein, við fengum svo
aðeins bjór og vín sitt í hvoru lagi,
og féllumst við á það með miklum
fögnuði."
Einn sit ég yfir drykkju ...
Nú er að bíða og sjá hvort bjór-
inn eykur uppsölur'og urr manna
á meðal og/eða einsemd að hætti
eins viðmælanda Pressunnar sem á
dögunum bað nokkra einstaklinga
að lýsa bjórútópíu sinni:
„Eg ætla að fá mér bjór og snafs
og drekka það til skiptis við barinn.
Þegar kemur bjór. Ég ætla að
drekka það hratt og vera einn og
fara svo út, heim að sofa. Þetta
mun ég gera á hveiju kvöldi...“
Auðvitað ber enga nauðsyn til
að drekka bjórinn. Það má láta
hann eiga sig, hella honum niður
egMODRGÚNBIiAÐIÐ MANNUFSSTRAÖMRRfeSt/m/btiffA Æ9QKHBRÚÆHUa89
DC 011
LÆKNISFRÆDI /Kebjur eba klasarf
Heimakoma og
sogæðabólga
Keðjusýklar og blóðkorn.
nálægt hjartanu, og þar með er
sogæðavessinn kominn í bland við
blóðið.
Á þessari löngu leið fara sogæð-
amar gegnum hreinsunarstöðvar
eða síur þar sem ýmis efni og agn-
ir úr æðavökvanum verðá eftir en
annað slæst í för í staðinn. Síumar
em eitlar sem hversdagslega láta
lítið á sér bera en stækka og verða
aumir viðkomu þegar sýking nær
til þeirra. Eitlar em oft margir sam-
an í þyrpingu, t.d. í nára, holhendi
og svæðinu undir kjálkabarði.
Þegar sumir sýklar, til að mynda
klasakokkar, laumast inn í kroppinn
gegnum sár breiða þeir ekki úr sér
í húðinni eins og keðjukokkar
heimakomunnar heldur ryðjjast inn
í sogæðamar, berast með straumn-
um til næstu eitla og valda um leið
bólgu í næfurþunnum veggjum
æðanna. Þá kemur í ljós rauð rák
frá sárinu hálfa eða alla leið til
næstu eitla. Hún sýnir og sannar
að sogæðabólga er á ferðinni; ekki
blóðeitmn, eins og stundum er
ranglega talað um. Blóðeitmn ,er
miklu alvarlegri sjúkdómsmynd en
getur siglt í kjölfar sogæðabólgu
ef sýklamir komast gegnum síuna
og alla leið inn í hringrás blóðsins.
Stækkunarglerið svipti blæju af
ýmsum furðum í ríki náttúrann-
ar sem huldar vom bemm augum.
Og þegar mönnum svo hugkvæmd-
ist að raða mörgum gleijum saman
í sjónauka og smá-
sjá vom þeir eins
og Óðinn alfaðir
sestir í hásæti það-
an sem sá „of alla
heima“. Fjarlægar
himinstjörnur,
eftir Þórarin smávemr í vatninu
Guónason sem draup af þak-
inu — allt var
skoðað, allt var þeim framandi og
forvitnilegt og svo bættust sýklarn-
ir í hópinn.
Smám saman lærðist brautryðj-
endum fræðanna að flokka sýkla
eftir útliti og eiginleikum. Sumir
em langir og mjóir eins og prik og
kallaðir stafír eða stafbakteríur,
aðrir kúlulaga og nefndir kokkar
(gríska orðið kokkos þýðir ber eða
fræ). Eftir því hvernig kokkamir
raða sér fengu þeir nöfn: Klasasýkl-
ar, ef þeir safnast í óreglulegar
hrúgur og minna þannig á beija-
klasa, eða keðjusýklar ef þeir skipa
sér í halarófur (sjá mynd). Bæði
klasa- og keðjusýídar valda ígerðar-
bólgum, með öðram orðum em
graftarsýklar, en geta líka orsakað
annars konar kvilla, ekki síst keðju-
sýklamir, og má þar til nefna
heimakomu og skarlatssótt. Hún
var lengi einna skæðust þeirra út-
brotasótta sem koma í faröldram
og leggjast helst á ungu kynslóð-
ina; hinar em mislingar, hlaupabóla
og rauðir hundar. Skarlatssóttin
féll að mestu í dá og gleymsku eft-
ir að penisillínið og skyld lyf rejmd-
ust stöðva framgang hennar fljótt
og vel.
Heimakoma, öðm nafni áma eða
ámusótt, er bólga í húðinni tilkomin
vegna innrásar keðjukokka gegnum
sár sem stundum er svo lítið að
sjúklingurinn hefur ekki orðið þess
var og veit ekki hvemig á því stend-
ur. Skráma eða fleiður í andliti,
lítilsháttar hælsæri eða spmnga
milli táa af völdum húðsveppa; allt
þetta getur boðið sýklum upp á að
gera svo vel og ganga í bæinn og
þá er ekki að sökum að spyija.
Húðin bólgnar og roðnar skammt
frá sárinu, bólgan breiðist um
næsta nágrenni og verður sérkenni-
lega skærrauð svo að varla vefst
fyrir neinum hvað á seyði er. Þrot-
inn og roðinn er skarpt afmarkaður
frá umhverfinu og ef ekkert er að
gert er líklegast að bólgan færi enn
út kvíarnar og valdi kláða, sviða
og verkjum og jafnframt aukast
almenn sjúkdómseinkenni; hiti,
slappleiki, lystarleysi, jafnvel ógleði
og uppköst.
Penisillín og ýmis önnur sýklalyf
draga brátt úr roða og þrota og
ásamt hvíld (rúmlegu ef bólgan er
í fæti) vinna þau bug á sjúkómnum.
Fyrir daga fúkkalyfja var heima-
koman hættuleg uppákoma, einkum
fyrir börn og gamalmenni og aðra
þá sem reiddu ekki lífsþróttinn í
þverpokum. Það sem er einkenni-
legt. við heimakomuna og gerir hana
auðþekkta er sterki roðinn í húð-
inni, skörpu litarmörkin milli bólg-
unnar og hins heilbrigða umhverfis
og loks það hve sjúkdómurinn er
ákveðið bundinn við húðina en nær
ekki — eða sjaldan — niður í fítulag-
ið undir henni. Það gera aftur á
móti sýkingar af öðmm toga svo
sem kýli, fíngurmein og fleiri ígerð-
ir sem oft valda sogæðabólgu ef
lyf em ekki gefín í tæka tíð.
Sogæðar, stundum nefndar
úræðar eða vessaæðar, em örfínar
þunnveggjaðar pípur sem kvíslast
um allan líkamann og sjúga upp
og flytja litlausan vessa sem vætlað
hefur út um gisna veggi háræð-
anna, þó ekki svo gisna að blóðkorn
sleppi í gegn. Þessar smágerðu
leiðslur renna að lokum saman í
fáar en stórar sogæðar eins og
lækir sem fálla í fljót og fljótin
stefna síðan að einum ósi sem í
þessari dæmisögu er stór bláæð
eða elda úr honum. í bjórbeltum
Evrópu er hann t.d. notaður í súp-
ur, brauð, fondue og pönnukökur
eins og eftirfarandi uppskriftir bera
með sér.
Frönsk bjórsúpa
Afskaplega auðlöguð súpa handa
sex. Borin fram með ristúðu brauði.
IV2 1 ljós bjór (ekki fílabjór!)
3 msk. hveiti
50 g smjör
100 g sýrður ijómi
■1 tsk. sykur
salt, pipar og kanell að bragði
Bræðið smjörið í potti við miðl-
ungshita. Hrærið smjörið saman
við. Hellið bjórnum út í, hægt svo
ekki myndist yfírgengileg froða, og
bragðbætið með sykri, salti, pipar
og kanel. Hrærið í þar til suðan
kemur upp og látið svo malla í tíu
mínútur og hrærið í af og til. Tak-
ið súpuna af hellunni, hrærið sýrða
ijómanum saman við og berið fram.
Bjór eða pilsner gerir pönnu-
kökudeig sérlega létt og meðfæri-
legt. Þótt hér sé gert ráð fyrir
spínatfyllingu má að sjálfsögðu út-
búa þessar pönnukökur með annars
konar fyllingum, sætum jafnt sem
söltum.
Deigið:
125 g hveiti
2 dl ljós bjór eða pilsner
2 dl mjólk
4 egg
örlítið af rifnu múskati og salti
Þeytið fyrst saman eggin, hrærið
svo hveitið saman við, þá vökva og
kryddið að lokum.
Fylling:
u.þ.b. 400 g niðursoðið spínat
150-200 g kotasæla
75-100 g ijómaostur
salt, pipar 0g rifið múskat
Hrærið öllum hráefnunum sam-
an. Haga má hlutföllunum eftir
smekk. Þá er bara að baka pönnu-
kökumar, smyija á þær fyllingunni
og rúlla þeim upp eða brjóta þær
saman, leggja í eldfast mót og
pensla með ögn af bj-æddu smjöri,
strá parmesan-osti yfir og baka í
ofninum þar til osturinn hefur tekið
fallegan lit.
2,6 m
Óvirkur dempari getur
aukið stöðvunarvega-
lengd um 2,6 m.
VELDU ¥MOKROEW
naust
BORGARTUNI 26. SIMI 62 22 62