Morgunblaðið - 19.02.1989, Síða 17

Morgunblaðið - 19.02.1989, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1989 0c 17 Ég vona að ég sé ekki búinn að brynja mig það mikið fyrir gagnrýni, að ég sé farinn að lifa öðru lífi inni í brynjunni lýði, en okkur var kappsmál að fá fólk til að trúa því að íslenskt sjónvarp gæti staðið því á sporði og auk þess hlyti það eðli síns vegna að höfða meira til íslendinga. Þú ætlaðir að segja mér hvenærþú byijaðir að stússa í útgáfumálum. Það var í Laugamesskó- lanum. Hjá Skeggja Ásbjam- arsyni, kennara. Hann var einstakur maður. Fórnaði sér fyrir kennsluna og nemendur í orðsins fyllstu merkingu. Hann fitjaði upp á alls konar nýjungum í kennslu og var langt á undan sinni samtíð. Utan kennslustunda var hann önnum kafinn að útbúa og fjölrita kennslugögn, sem var ekki mikið gert af þá. Svo var hann að þýða leik- rit, stjóma þeim og mála leikmyndir. Hann keypti seg- ulbandstæki og leyfði okkur að tala inn á þau. Hann var með bamatímann og fór með okkur krakkana í upptökur og lét okkur leika hjá sér eða lesa upp. Hann hafði örvandi áhrif á alla sína nemendur. Hann vakti þennan áhuga á að tjá sig í skrifuðu máli og á leiksviði. Ég fór að snúast í útgáfu skólablaðs og stjóm- aði því. Ég var bara smá- polli, en fór og ræddi við forsvarsmenn fyrirtækja um prís á auglýsingum. Ég bjó út blekfjölritara eftir kokka- bók Skeggja, matarlím og glusserín, svo var þessi hrær- ingur settur í box og síðan var hægt að nota grautinn sem fjölritara. Ég var svo langt leiddur að sumartíð þegar ég var sendill hjá Flug- félagi íslands ellefu áragam- all, ég fór að gefa út starfs- mannablað. Þaðvarekki minnimáttarkenndin að baga mann. En þetta var upphafíð og þróaðist smátt og smátt. Auðvitað var það svo tíma- mótaákvörðun, þegar ég réðst til starfa við Sjónvarp- ið. En upp frá því hef ég líka verið fastur í netinu. Og líkar það harla vel. Hvaða fólk leitar eftir vinnu í sjónvarpi og hvers vegna? Þörfín fyrir að láta á sér bera? Ta, ég get aðeins svarað íyrir mig. Það getur vel verið að sálfræðingur myndi komast að þeirri niðurstöðu að allt mitt brölt í bemsku, leik- listaráhugi og hvaðeina hafi verið dulin löngun til að láta á mér bera. En eftir á að hyggja hafði ég ekki þessa tilfinningu í sjónvarpinu. Við vomm tveir á hvorri vakt og allir unnu eins og vitfírringar eins og ég sagði. Aðalmálið var vinnsla frétta og að lesa sjálfir fréttirnar var eðlilegur endir á tólf tíma vakt. Auð- vitað varð ég strax var við það að maður varð mjög fljótt eins konar almennings- eign. Allir vildu skeggræða við mann, einkum ef menn vom komnir í glas á skemmtfstöðum. Þetta varð þetta óneitanlega þreytandi til lengdar. Sérstaklega þetta §as um meintar óléttur kvenþulanna af völdum ein- hverra okkar á fréttastof- unni, ævintýralegar þvælur um fjöllyndi nánustu kollega út um borg og bý. Og nú að liðnum meira en 20 ámm hefur áhugi á sjónvarpsfólki ekki dvínað. Þann hálftíma á hverjum degi sem fréttirn- ar standa yfír er athyglin á Össum einstaklingum. Um- lið vill stundum snúast meira um að nú hafí þessi verið með ný gleraugu eða í fallegum/ljótum fötum en um fréttimar sjálfar. Þetta verður eins konar árátta. Ef þulur mismælir sig eða á flutningi em einhveijir minniháttar hnökrar, verður það tilefni líflegra umræðna víðsvegar um land. Fóik verður að sætta sig við þetta ef það vinnur í sjónvarpi og sjálfsagt fer þetta í taugam- ar á sumum. En öðram er kannski gefín sú náttúra að fá eitthvað út úr þessu, vill helst vera milli tannanna á fólki og nýtur þess. Sam- starfsmaður minn einn hefur þá kenningu, að löngun sumra til að komast í sjón- varpið sé svo takmarkalaus að það megi svo sem byija á að ráða sig í ræstingar og uppvask í þeirri von að enda fyrir framan myndavélina. Kannski hefur það líka gerst. Samt fínnst mér þetta að sumu leyti einum of. Ég verð að viðurkenna það. En svo fórstu frá Sjón- varpinu og í borgarstjóm. Hvað kom til? Um þetta leyti var Sjálf- stæðisflokkurinn að fara af stað með prófkjör og í til- raunaskyni. Mér lék hugur á að prófa mátt Sjónvarpsins. Og svo var mikið verið að ræða framboð yngri manna og endurnýjun. Það lá til gmndvallar hjá mér í upp- hafí. Þetta var 1970 og í rauninni hefði verið eðlilegra að aðrir hefðu komist inn en ég, menn semhöfðu unnið miklu markvissara að því að komast á lista. En ég lét á þetta reyna og get fullyrt að borgarmálefni vöktu áíiuga minn strax og ég fór að kynna mérþau. Samstarfið og vinnan í borgarstjóm var mjög lærdómsríkt. Ég sinnti fróðlegum málaflokkum, fræðslumálumum, félags- málum og æskulýðsmálum. Ég skýt því að þér, svona í framhjáhlaupi, að þessi mál em nefnd mjúku málin, ef þú skyldir viija draga ein- hveija ályktun af þessu áhugasviði mínu... Hvernig leið metnaðar- giminni? Stefndirðu ekki að því að verða borgarstjóri? Nú var til dæmis örmjótt á munum milli ykkar Davíðs Oddssonar í síðasta prófkjör- inu sem þú tókst þátt í? Nei, segir hann og virðist hreinskilinn. Ég hafði ekki metnað í að verða atvinnu- pólitíkus í borgarstjóm og fínnst að menn ættu ekki að sitja þar mörg kjörtímabil. Það gegnir öðm með starf borgarstjóra. En ég hafði líka komist að þeirri niður- stöðu að Davíð væri snjall stjórnandi, hæfari stjóm- málamaður, bardagaglaðari og vopnfimari en ég. Réttur maður á réttum stað á rétt- um tíma, eins og hefur verið með fleiri borgarstjóra Sjálf- stæðisflokksins. En eins og ég sagði kynntist maður málum á alveg nýjan hátt með því að vinna að borgar- málefnum og nýjum hliðum samfélagsins sem var þro- skandi. Mér fannst skemmti- legt að vinna í þessum mála- flokkum en stundum gat ég ekki að því gert að hugsa þegar yfír stóðu langir fund- ir og oft auðvitað mál tekin fyrir sem ég hafði lítinn eða takmarkaðan áhuga á, að ég gæti aldrei verið sá talsmað- ur sem borgarstjóri þyrfti að vera, vel heimai öllum mál- um og áhugasamur um þau öll. Þessi tími varð mér mik- ill skóli skóli, en ég veit að álagið á fjölskyldunni minni var oft mikið á þessum ámm og fýrr og síðar raunar. Ég er sannarlega ekki mjúkur maður að því leyti, að ég geti stært mig af að hafa tekið þátt í uppeldi bama minna. Það hefur lent á kon- unni minni. Markús og Steinunn kona hans byijuðu að vera saman í MR. Þau eiga tvö böm, dóttur, 23ja ára, og 18 ára son. Markús segir að nú orð- ið sé hann farinn að stfla upp á að geta verið í fríi um helg- ar. Sá lúxus hefur ekki alltaf verið í boði. Hann hefur ekki tekið sér neitt venjulegt fri síðan hann byijaði í starfí útvarpsstjóra. En segist þurfa að skreppa á aðalfundi sambands evrópskra út- varpsstöðva sem em haldnir árlega í hinum ýmsu aðildarl- öndum. Þá fer Steinunn með og þau bregða sér í kærkom- ið frí í nokkra daga. Heldurðu að þú verðir út- varpsstjóri eftir tíu ár? Eða hvað heldurðu að þú verðir að gera? Eg er æviráðinn hér. En er þó þeirrar skoðunar að slíkar ráðningar þurfi að taka til endurskoðunar og hafa þær tímamarkaðri, hvort sem um er að ræða þetta starf eða önnur. Það er langtum eðlilegra í nútímaþjóðfélagi. Þar með er ekki sagt að ég vilji fara héðan í bráð. Margt bíður úrlausnar og fyrirsjáanlegt að viðfangsefni næstu ára verða óþijótandi og það em forréttindi að fá að taka þátt í þessari uppbyggingu. Ertu áhugamaður um menningameyslu? Hannjátarþví. „Ég hef mín áhugasvið hvað það snertir, þótt ég hafi aldrei verið neitt sérlega liðtækur í umræðum um menningar- mál. Ég hef ánægju af tón- list, fer á tónleika þegar ég kém því við, myndlist og sæki málverkasýningar eftir því sem á stendur og sama gegnir með leikhús. Þegar ég fer vegna starfsins á fundi í útlöndum nota ég gjaman frítíma til að fara á söfn, í leikhús og á tónleika eða að sjá splúnkunýjar bíómyndir. En ég geri þetta einsamall, bara fyrir mig. Ég hef sem sagt ánægju af þessu án þess að vera beinlínis að flíka því. Auðvitað hef ég eins og aðrir gaman af að lesa. En í starfínu mínu fylgir mikil yfirlega yfír skýrslum og fagtímaritum sem getur allt verið upplýsandi og gagn- legt. En bóklestur situr þar með á hakanum, nema helst þegar ég kemst í burtu. Ég hef gaman af ævisögum stjórnmálamanna og alls konar sagnfræðiritum. Og svona til afþreyingar em njósnasögur mitt uppáhald. Þú hefur fengið þinn skammt af gagnrýni. Ertu viðkvæmur fyrir henni? Hann hugsar sig um. „Já, ég var það í það minnsta. Alveg áreiðanlega. Ætli það sé ekki svo með velflesta. En með ámnum hef ég fund- ið að þetta hefur ekki jafn mikil áhrif og áður. Ég reyni að leiða hana hjá mér, en sortéra þó úr hvað er mál- efnalegt og hvað er skítkast og skætingur. Ég vona hins vegar að ég sé ekki búinn að brynja mig það mikið fyr- ir gagnrýni og umtali, að ég sé farinn að lifa öðm lífi inni í brynjunni. Adalfundur Nemendasambands MAverður haldinn þriðjudaginn 28. febrúar nk. kl. 17.00 á Lækjarbrekku. Dagská: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. H^SKÓLL^SLANDS mÉkmm félagviðskiptafræðinga Endurmenntunarnefnd ■ ■ ■ og hagfræðinga HELSTU BREYTIIMGAR l' REIKIMIIMGS HALDI OG SKATTAMÁLUM ÁRIÐ 1988 NÁMSKEIÐ ÆTLAÐ VIÐSKIPTA- OG LEIÐBEIIMANDI: HAGFRÆÐINGUM, en opið öðrum er Árni Tómasson, löggiltur endurskoðandi áhuga hafa. hjá Löggiltum endurskoðendum hf. og stundakennari við viðskiptaeild H.í. EpNI: TÍMI OG VERÐ: Fráviksaðferð - leigukaupasamningur - 22.-23. febrúarkl. 16.30-19.00. Þátttöku- rekstrarforsenda (Going concern) - gjald kr. 3.000,- breytingar á skattalögum og viðmiðunar- Skráning og nánari upplýsingar í símum reglum á árinu 1988. 694925 og 694924.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.