Morgunblaðið - 19.02.1989, Blaðsíða 23
FÓLK
í fjölmiðlum
BREYTINGAR verða nú á útgáfii
timaritsins Heimsmy ndar frá og
með mars nk. og mun það í
framtíðinni koma mánaðarlega
út í stað sex til sjö sinnum á ári
eins og verið hefur. Tímaritið
verður áfram í svipuðu formi og
áður og stærð þess yfir 100 síður,
en meiri áhersla verður nú lögð
á fréttatengt
efiii. „Með því
móti getum við
fjallað meira
um þá hluti sem
efst eru á
baugi, hvort
sem um er að
ræða stjórnmál eða önnur þjóð-
þrifamál," segir Herdís Þor-
geirsdóttir ritsfjóri blaðsins.
Efiiistök verða að öðru leyti
óbreytt og enn lögð áhersla á
viðtöl og greinar af ýmsum toga.
Sagði Herdís að þessar breyting-
ar hefðu lengi staðið til, því „með
mánaðarriti skapast vettvangur
til virkari þátttöku blaðsins í
þjóðfélagsumræðunni, auk þess
sem hér er um rekstrarlega ha-
græðingu að ræða“. Tveir nýir
blaðamenn hafa verið ráðnir að
Heimsmynd, þau Ólafiir Hannib-
alsson og Inga Huld Hákonar-
dóttir.
NÝTT útgáfiifyrirtæki í
Reykjavík er að líta dagsins ljós
þessa dagana. Eigendur eru Aug-
lýsingaþjónustan GBB, einstakl-
ingar sem standa að því fyrir-
tæki og þrír fréttamenn, Guðjón
Arngrímsson og Helga Guðrún
Johnson af Stöð 2, og Ómar
Valdimarsson. Fyrirtækið hefiir
alhliða útgáfii og fjölmiðlun á
stefnuskránni, en mun ekki liefja
fiilla starfsemi
fyrr en síðar á
árinu. Þau Guð-
jón og Helga
Guðrún munu
þó áfram starfa
á Stöð 2.
FURÐUHEIMAR
FJÖLMIÐLANIMA
Augljósra staðreyndadeild
■ „Teikningar Krisfjáns eru þó
ekki teikningar í hefðbundnum
skilningi, heldur verður með-
höndlun hans á efiiinu að eins-
konar heimspekilegum vanga-
veltum um teikninguna og listina
sem miðil, þar sem efiiið sem
slíkt verður um leið viðfangsefiii
myndarinnar eða burðarafl.
Segja má að í myndum sínum
hafi Kristján Guðmundsson
dregið myndlistina niður á núll-
punktinn um leið og hann leggur
með áleitnum hætti fyrir okkur
spurninguna um inntak listarinn-
ar.“
— óle. Þióðv. 21.1.
68ei SAöJiaa'í .er suaAauwnug fMjamuðn. aiöAJSVfuoaoM
MORGUNBLAÐIÐ FJOLMIÐLAR SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1989
0|__SS
C 23
Listaskáldin vondu í Sjónvarpið
Hilmar Oddsson kvikmyndagerð-
armaður hefiir nýlega hafist
handa við gerð sjónvarpsmyndar
um Listaskáldin vondu. Það var
hópur ungra skálda sem flutti
ljóð og prósa fyrir troðfullu Há-
skólabíói í janúar 1976 og hélt
síðan út á land með dagskrána.
Hvorki eru til hljóð- né myndupp-
tökur frá henni og því mun Hilm-
ar leita annarra leiða við að end-
urvekja dagskrána, m.a. ræðir
hann við öll skáldin sem við sögu
komu.
Dagskrá Listaskáldanna vondu
átti rót sína að rekja til skálda-
vöku sem haldin var í Norræna
húsinu ári fyrr. Alls voru skáldin
átta, þau Birgir Svan Símonarson,
Guðbergur Bergsson, Hrafn Gunn-
laugsson, Megas, Pétur Gunnars-
son, Sigurður Pálsson, Steinunn
Sigurðardóttir og Þórarinn Eldjárn.
Hilmar segir þetta vissulega hafa
orðið öllum átta til framdráttar og
í raun vendipunktur fyrir flest
þeirra.
Hilmar Oddsson
Þátturinn er gerður fyrir Sjón-
varpið en hugmyndina að gerð hans
átti Hilmar sjálfur og segir hann
hana vera frá síðasta ári. „Mér
þykir gaman að gera þætti um ljóð-
list og mér finnst þeir eiga erindi
í sjónvarp. Ég mun gefa mér góðan
tíma til að vinna þáttinn. Hann
verður viðamikill og raunar hefur
ekki enn verið ákveðið hvort um
einn eða tvo þætti verður að ræða.“
Með spariskírteinum ríkissjóðs
getur þú tvöfaldað
sparifé þitt að raungildi
á aðeins 10 árum
Fyrir utan traust og öryggi ber sparifé þitt
einnig ríkulega ávöxtun með spariskírteinum ríkis-
sjóðs.
Þau eru verðtryggð og raunvextir eru 7,0% til
fimm ára og 6,8% til átta ára. Þú getur á öruggan
hátt tvöfaldað raungildi sparifjár þíns á aðeins 10
árum með spariskírteinum ríkissjóðs.
Það vegur enn meira þegar tekið er tillit til
þess að spariskírteinin eru tekju- og eignaskatts-
frjáls séu þau umfram skuldir eins og á við
um innstæður í innlánsstofnunum.
Þótt lánstíminn sé ekki liðinn getur
þú selt sparisldrteinin með mjög stutt-
um fyrirvara fyrir milligöngu yfír 100
afgreiðslustaða banka, sparisjóða og
annarra verðbréfamiðlara. Og um
öryggi þeirra leikur
enginn vafí.
Að baki spariskír-
teinunum stendur
ríkissjóður og þú getur því verið viss
um fulla endurgreiðslu sparifjár þíns, ásamt
vöxtum, á gjalddaga.
Þú færð spariskírteini ríkissjóðs í bönkum,
sþarisjóðum og pósthúsum um land allt og hjá
helstu verðbréfámiðlurum, svo og í Seðlabanka
A.GjlCiyÞ'v Islands. Einnig er hægt að panta þau í
síma 91-699600, greiða með C-gíróseðli
og fá þau síðan send í ábyrgðarpósti.
Spariskírteini ríkissjóðs
^(3^ — ÞÍkuleg ávöxtunarleið.
RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS
CtNTRt REGISTER