Morgunblaðið - 19.02.1989, Síða 26
26 C
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1989
SÍGILD TÓYÍUST/Hvad ersvona
erfitt vib ab spila Messiaen?
Frá gljúfrum
til stjarna
ÞÁ FER að líða að lokum „Myrkra músíkdaga". í dag klukkan
16.00 verða tónleikar í Norræna húsinu. Alan Mandel, sem er
píanóleikari og kennari við píanódeild American University í
Washington D.C. og listrænn stjórnandi Washington Music En-
semble, leikur bandaríska tónlist. Mandel er þekktastur fyrir
þróttmikinn flutning á óvenjulegri tónlist og hefúr undanfarin
ár haldið tónleika í Bandaríkjunum, Evrópu, Asíu, Ástralíu, Sov-
étríkjunum, Austurlöndum nær og Afríku.
og sérstætt tónskáld, fæddist í
Avignon 1908 og ólst upp í París.
Tónlist Evrópu á miðöldum,
klassísk grísk ljóðagerð og aust-
ræn tónlist hafa haft mikil áhrif
á hann og eftir miðja öldina er
fuglasöngur mjög áberandi í tón-
list hans. Messiaen er mikill nátt-
úruunnandi og ferðaðist mikið
m.a. um skóga Frakklands til að
skrá niður fuglasöng. í fuglun-
um, sagði hann, má heyra hvem-
ig lífsorkan brýst fram í ást og
gleði sem nær langt út fyrir
mörk tíma og rúms. Á meðan
jörðin er til munu fuglar syngja
og finni fólk þörf hjá sér til að
taka undir þann söng, lifir
mannsaldurinn.
Lokatónleikar hátíðarinnar
verða svo fímmtudagskvöldið
en þá verður frumflutt verk eftir
Olivier Messiaen, Des Canyons
aux Étoiles („Frá gljúfrum til
stjarnanna“) fyr-
ir píanó og hljóm-
sveit. Tónleikam-
ir verða í Lang-
holtskirkju og
hefjast klukkan
20.30. Kammer-
sveit Reykjavíkur
leikur undir
stjóm Paul Zu-
kofsky og einleikari á tónleikun-
um er Anna Guðný Guðmunds-
dóttir.
Olivier Messiaen, áhrifamikið
effir Jóhönnu
Þórhallsdóttur
Smá sýnishorn
úr verki Messiaen; takið eftir fuglalýsingunum.
lokastiginu en ætli megi ekki
segja að uppúr áramótum hafi
þetta farið að glæðast. Verkið
er hrikalega erfitt tæknilega og
allt mjög nákvæmlega skrifað,
það er nánast nýr taktboði í
hveijum takti með nýjum hraða,
hreinar tækniþrautir."
— Þú verður að beita þig mikl-
um sjálfsaga?
„Já, og þijósku hreinlega og
svo auðvitað þegar maður sér
frammúr þessum þrautum þá fer
maður líka að njóta verksins og
ég er alveg staðráðin í að hafa
gaman af þessu.“
— Hvað er það sem er svona
ólíkt og Mozart t.d.?
„Ja, ef við tökum Mozart þá
er tónlistin þannig skrifuð að
Anna Guðný
Guðmundsdóttir
píanóleikari
spilar á fímmtudags-
kvöldið; „Hrikalega
erfítt tæknilega ...“
,.l*v . J ll< pUi I<w|-
?"h'’
.# :--W
, ft. i .» S ------------------------------
ÍSSpí5** fi/ÍP
^ dí i 9 '
yt'
'UU/ [$$
r\ \j* ^
kí * tfp i
• -b/j 1 r,J
s Ji" »<» »u»l.
.í*: x i
t, r * *
’h,—^ !■
fU'&.í
®
’TfÓjBoátf.t »
VI
1
(•
3
16
• t ________» , : '
\
---
U — rtííí'ijj,
ru. w.
Meðal nemenda hans má nefna
Stockhausen, Boulez, Nono, Xen-
akis, Ton de Leeuw, og Rodney-
Bennett. Anna Guðný Guð-
mundsdóttir hefur áður unnið
með Zukovsky en hún hefur aldr-
ei spilað verk eftir Messiaen áð-
ur. Við áttum okkur hádegisfund
á Á næstu grösum og mér lék
forvitni á að vita hvemig æfingar
hefðu gengið hjá henni.
„Ég komst ekki almennilega í
gang með verkið fyrr en í haust
því ég var að spila á tónleikum
í nóvember (Silungakvintettinn í
Gerðubergi sælla minninga,
innsk. JÞ) Og þetta er náttúru-
lega allt öðruvísi en að spila Schu-
bert eða Mozart. Fyrstu stigin á
æfingatímanum eru mjög erfið,
mikið puð og tímafrek. Ég hélt
stundum að eg myndi aldrei ná
maður spilar hana jafnvel beint
af blaðinu en getur síðan verið
langan tíma að móta verkið mú-
síkalskt, ná hraðanum og mýkt-
inni en í Messiaen tekur langan
tíma að fá verkið „inní fing-
urna“, en hraðinn kemur svo
hægt og sígandi, sagði Anna að
lokum.
Við sjáumst svo bara á tónleik-
unum.
KVIKNIYYÍDIR/Gefur hann kost á
öbruvísi myndum?
Þrír menn
og einn Grímur
Karl-
menn.
Rosa
Luxem-
burg.
Orðið kvikmyndaklúbbur rímar
sjálfsagt við orðið leiðindi í
hugum fiestra þeirra sem sælq'a
sér afþreyingu í kvikmyndahúsin
hér og eru á aldrinum fjórtán til
tuttugu og fimm
— það er stærsti
hópurinn. í kvik-
myndaklúbbi fá
menn verk í rass-
inn sitjandi undir
mynd sem ekki
er í einn einasti
bflaeltingaleikur,
aðalleikarinn
heitir eitthvað sem hljómar eins
og ungverskt hakk, allir tala und-
arlegt mál, ekkert ókei eða bæbæ,
engir skotbardagar við geimverur,
stundum er eins og atriðin ætli
aldrei að taka enda — hvað þá
myndin — og aaarrrg . . . hún
er svart/hvít eins og í ríkissjón-
varpinu.
Sumir bara þola þetta ekki og
flýta sér á Die Hard. Aðrir vildu
helst ekki hafa það öðruvísi og
rölta í rólegheitunum á Gestaboð
Babette. Þannig gengur það.
Þrír ungir menn með áhuga
fyrir kvikmyndinni sem listgrein
en ekki lögregluaðgerð, stofnuðu
fyrir ekki löngu kvikmyndasam-
tökin Grím sem hafði það að
eftir Arnald
Indriðason
markmiði að
sýna myndir sem
að öðrum kosti
eiga ekki upp á
pallboðið í kvik-
myndahúsunum;
þeir ætluðu t.d.
að sýna á undan
hverri mynd
íslenska stutt-
mynd og kynna
þannig það sem
væri að gerast
neðanjarðar í
íslenskri kvik-
myndagerð. Þeir
höfðu samband
við fyrirtæki í
London, sem þeir
ætluðu að leigja myndir hjá. „Við
vorum tilbúnir með dagskrá
ætluðum af stað,“ sagði einn þre
menninganna, Þorkell Harðarson,
í stuttu spjalli, „en þá varð allt
stopp og fyrirtækið hætti við.“
Þeir sneru sér til Kvikmynda-
safns íslands þar sem þeim var
sagt frá því að nefnd um stofnun
kvikmyndaklúbbs hefði verið
starfandi á vegum safnsins fyrir
tveimur áium en lognast útaf.
Stofnuð var ný nefnd og í hana
settust fulltrúar frá Kvikmynda-
safni íslands, Félagi kvikmynda-
Astfangna
konan.
o-erðarmanna, Kvik-
nyndasamtökunum
Grími, Félagi kvik-
myndaáhugamanna
við Háskóla íslands
og Listafélagi
Menntaskólans í
Reykjavík.
„Við vorum orðn-
ir leíðir á kvikmynd-
aúrvalinu í bíóhús-
unum, sem er ein-
hæft nema í Regnboganum," seg-
ir Þorkell. „Við vildum fá að sjí
góðar, frægar myndir kvikmynda-
unyndaklúbbs (slands
S.frbrúar li) J.april
0 og 19.febrúar U. 15.00
MTWMm
23. febrúar U. 21.00 og 23.00 og 25.febrúar U. 153)0
2. mars U. 21.00 og 23.00 og Amars U 15.00
6-mars U. 21.00, 223)0 og 23.00
IMkMiMt i«aa Vl^
9. mars U. 2I3M og 23.00 og 1 l.mars U. 15.00
TrylWrWTTM
irwnvt w r—•)
unaitrt. i—i-iCiiirs
16. mars U. 21.00 og 233)0 og 1«. mars U. 15.00
1 U. 213» og 23.00 og 25.mars U. 15.00
30.mars U. 21.00 og 233)0 og 1 jpríl U. 15.00
uJEíu.
sögunnar og evr-
ópskar myndir.“
Kvikmyndaá-
hugi þremenn-
inganna er nú
orðinn að nýjum
kvikmynda-
klúbbi, sem_ hef-
ur starfsemi sína
um þessa helgi
með sýningu á
frönsku mynd-
inni Le Lieu du
Crime (Vett-
vangur glæps)
eftir André Tec-
hine í Regnbog-
anum (sjá lista
yfír myndimar).
Kvikmynda-
klúbbur íslands skal hann heita
og áætlað er að sýna eina mynd
þrisvar í viku, á fimmtudagskvöld-
um klukkan 21.00 og 23.00 í ein-
um af litlu sölum Regnbogans og
klukkan 15.00 á laugardögum í
A-salnum. Ráðgert er að sýning-
amar standi fram í apríl en þá
verður gert hlé óg sýningar hefj-
ast aftur í ágúst.
Guðbrandur Gíslason, forstöðu-
maður Kvikmyndasafnsins, lýsti
yfir ánægju sinni með framtakið
og segjast aðstar.dendur klúbbs-
ins hafa orðið varir við mikinn
áhuga meðal fólks en enginn kvik-
myndaklúbbur af þessu tæi hefur
starfað síðan Fjalakötturinn dó
drottni sínum fyrir um áratug
(hann var endurvakinn, í anda
a.m.k., hjá Stöð 2 með góðum
árangri). Aðeins meðlimir klúbbs-
ins fá aðgang að myndum hans.
Er ástæða til að fagna sérstak-
lega þessari viðbót í bíólífið og
óska klúbbnum langra lífdaga.