Morgunblaðið - 19.02.1989, Side 32
32 C
MORGUNBLAÐH) SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1989
III MðlESMÍH HERMAHHS HiniMSSnUR í HAHUIIfWfl
Talið frá vinstri:
Módel Hermanns af Bjarna
riddara.
Líkanið af Bjama riddara
kemur siglandi í
kvöldhúminu.
Bjarni riddari miðskips.
Otrúlega natni þarf við
módelsmíðina og handlagni.
Skiltið með nafni togarans
er handskorið.
Togarinn Coot, fyrsti togari
íslendinga.
Búnaðurinn á þilfari Coot
eins og annað er svo
sannarlega af smæstu gerð
því líkanið er ekki nema um
30 sm á lengd.
í brúnni á Coot, en inni i
brúnni em tæki á sínum
stað, stýrið og fleira.
Línuveiðarinn Málmey, áður
Leó frá Vestmannaeyjum,
með báta nótabátanna í
davíðum, minnir á flugvél á
hafinu.
Séð ofan á þilfar módelsins
af Málmey, sem Hermann
reri á til síldveiða um árabil.
Hermann Guðmundsson við
líkanið af Bjama riddara,
en það líkan er langstærst.
VBITL
eftir Árna Johnsen / myndir Ragnor Axelsson og Árni Johnsen
ÓTRÚLEGA MIKIL VINNA liggnr að baki allri módelsmíði, en
sérstaklega þeirri smíði þar sem módelsmiðurinn handsmíðar hvern
einasta hlut og eftir því sem módelið er minna er handavinnan þeim
mun erfiðari. Á sýningu í Hafnarborg í Hafnarfirði þar sem haldið var
upp á 80 ára afmæli Hafnarfjarðarhafnar með yfirgripsmikilli og
fallegri sýningu í glæsilegu húsi, voru 3 skipslíkön eftir Hermann Guðmundsson í Hafnarfirði,
fyrrverandi alþingismann og verkalýðsleiðtoga. Þessi þrjú líkön hefur Hermann smíðað á nokkrum
áratugum í ígripum. Á elsta líkaninu byijaði hann 1946, en það yngsta lauk hann við skömmu
fyrir jól. Auk þessara þriggja skipslíkana, sem eru einstök listasmíð og tvö þeirra aðeins um 30
sm löng, þá hefur Hermann einnig smíðað víkingaskip, útfært eftir hans eigin hugmynd.
Morgunblaðið ræddi við Hermann um módelsmíði hans.