Morgunblaðið - 19.02.1989, Side 33

Morgunblaðið - 19.02.1989, Side 33
• cBOx íiAúíina? ex híjqaoiiwmub jjiQAjawuQflOM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1989 ) Éfj. 0 33 Eg byijaði þessa áráttu með því að leggja í að smíða Bjama riddara áður en hann kom til landsins árið 1947, og reyndar var eng- inn nýsköpunartogaranna kominn til landsins. Bjami riddari var fyrsti nýsköp- unartogarinn sem kom til Hafnar- fjarðar, en sá fyrsti sem kom til landsins var Ingólfur Amarson og mér var boðið að skoða hann sem þáverandi alþingismanni. Ég sá þá að mörgu þurfti að breyta í módel- inu frá því sem ég hafði gert og gerði það. Síðar seldi ég líkanið eigendum Bjama riddara, en þegar Bjami riddari var seldur úr landi til Grikklands árið 1964, þá af- hentu eigendur Bjama mér líkanið og sögðu að ég mætti hafa það svo lengi sem ég tórði. Það er nú geymt á Sjóminjasafninu. Bjami riddari var notaður til farþega- og héðan til botnvörpuveiða og leggja hér upp aflann, aðallega, ýmist til sölu í soðið eða til verkunar.“ Þriðja módelið er af línuveiðaran- um Málmey. Það kom til Vest- mannaeyja frá Noregi árið 1902 og hlaut þá nafnið Leó, en var keypt til Hafnarfjarðar 1931. Þetta var 255 metra langt skip, 775 lest- ir, 5,70 m á breidd og með 100 hestafla vél.Ég hafði sérstakan áhuga á þessu skipi, því ég var sjómaður á því í nokkur sumur á síldveiðum. I öðra lagi er ekkert líkan til af gömlum línuveiðara, það er þessum gömlu norsku línu- veiðuram sem vora keyptir hingað til lands á sínum tíma, en að minnsta kosti fjórir slíkir vora gerðir út frá Hafnarfirði. Vegna vera minnar á skipinu á síldveiðum er líkanið smíðað með nótabátana uppi, í daviðunum, en ég lauk við módelið rétt fyrir jólin. Við eldhúsborðiö heima hjá sér hefur Hermann smíðað módelin að stærstum hluta. Þama er hann með víkingaskip sem hann tálgaði úr heilu og útfærði að eigin smekk. vöraflutninga í Grikklandi og af honum veit ég ekki meir, en þar hlaut hann nafnið Nicklas. Næsta skip sem ég smíðaði var togarinn Coot sem íslendingar eignuðust og er upphafið að tog- araútgerð á íslandi. Coot kom til landsins 1905 og var keyptur af Einari Þorgilssyni og fleiram. Coot var gerður út frá Hafnarfirði á meðan hann var við lýði, en hann varð fyrir því óhappi að stranda og verða til þegar hann var að draga kútter í skipalægi við Hafn- arfjörð. Stroffa á milli skipanna fór í skrúfuna á Coot en bæði Coot og kútterinn strönduðu við Keilisnes og sigldu aldrei meir. Ketillinn úr Coot er til og tilheyrir Sjóminjasafni Islands og stýrið einnig. Coot smíðai ég eftir teikn- ingu sem Einar Olgeirsson í Grims- by útvegaði mér af samskonar skipi. Ég var að dunda við módelsmíð- ina í mörg ár, greip í þetta af og til því annir i félagsmálastarfi réðu ferðinni fyrst og fremst, en þegar ákveðið var að opna Sjóminjasafn- ið á Sjómannadaginn 1986, setti ég kapp í að klára líkanið og við hjónin gáfum það til minningar um feður okkar beggja, sem báðir höfðu drakknað og um son okkar sem einnig hafði drakknað." Coot kom til Hafnarfjarðar 5. mars 1905 og i blaðinu ísafold segir svo daginn eftir: „Hingað kom í gær frá Aberdeen eftir fjög- urra og hálfs dags ferð botnvörpu- skipið Coot (Blesönd), um 140 smálestir brúttó, keypt af Arnbirni Ólafssyni vitaverði til handa þeim félögum, honum og Bimi kaup- manni Kristjánssyni, Einari kaup- manni Þorgilssyni Oseyri, Indriða skipstjóra Gottsveinssyni og Guð- mundi trésmiði Þórðarsyni frá Hálsi. Skipinu fylgja 3 botnvörpur. Það siglir 10 mílur á vöku með 4 hestafla vél. Því á að halda út Litlu módelin eru erfiðari, en fallegri Jú,ég hef valið þá leið að smíða módelin mjög lítil, en mér fínnst þau fallegri þannig. Ég hef einnig fengist við stærri módel, unnið að endurbyggingu skemmdra módela fyrir Sjóminjasafnið, m.a. gufuvél og einn stóran árabát byggði ég upp að nýju. Það er óhemju nostur við módelsmíðina, maður þarf að gera hluti aftur og aftur. Smíðaverkstæðið mitt hefur verið eldhúsborðið hjá konunni minni og stundum hefur hún verið hrædd um að fá málmsvarf í matinn, en allt hefur þetta sloppið. Það skemmtilegasta við módelsmíðina er sköpunin, að fínna ákveðinn hlut mótast í höndunum á manni. Það er sagt að skip séu einu hlutimir sem fólk líti á eins og mannverar og vissulega finnur maður til með skipum. Ég hef alltaf haft áhuga á skipum frá blautu barnsbeini, enda sjómannssonur og alinn upp við sjó. Það hefur verið mér hrein lífsnautn að sjá þessi skip mótast og verða til. Það erfiðasta í þessu er að vinna smástykkin, blakkir, spilin og allt þetta smæsta, en ég hef smfðað allt í skipunum við heldur framstæð skilyrði. Að vísu lét ég renna fyrir mig í kopar möstrin í litlu módelin, sá mér ekki annað fært i svona litlum módelum, því trémöstur hefðu verið svo brothætt í þessari stærð, en allt annað hef ég smíðað. Hvað næst? Ég geri eitthvað og líklega fer ég út í það að smíða módel af franskri skonnortu, eins og þeim sem reru frá Normandí. í þessa iðju mína hef ég gripið í gegn um tíðina inn á milli anna við störf að félagsmálum, nema á lokasprettunum þegar ég hef hnykkt á með samfelldari vinnu, en þær era ófáar ánægjustundimar sem ég hef átt við skipasmíðina.“ Neftid skipuð til að endur- skoða út- varpslögin MenntamAlaráðherra hefíir skipað nefiid til þess að endur- skoða núgildandi útvarpslög og er þess óskað að nefndin skili tillögum sinum í frumvarps- formi ásamt greinargerð. Er nefndinni falið að taka í starfí sínu tillit til lokaálits útvarpslaganefndar dags. 8. októ- ber og þeirrar reynslu sem fengist hefur aJf þeirri nýskipan fjölmiðla- mála sem núgildandi útvarpslög fela í sér. Formaður nefndarinnar er Ög- mmundur Jónasson en aðrir nefnd- armenn era Eiður Guðnason al- þingismaður, Hörður Vilhjálmsson Úármálastjóri Ríkisútvarpsins, Ema Indriðadóttir deildarstjóri, Jón Óttar Rágnarsson sjónvarps- stjóri, Helgi Guðmundsson fulltrúi í Útvarpsréttamefnd, Magdalena Schram blaðamaður, Þorgeir Ást- valdsson útvarpsstjóri og Amþrúð- ur Karlsdóttir sem jafnframt er ritari nefndarinnar. Þá starfa með nefndinni þau Þórhallur Arason skrifstofustjóri í fjármálaráðu- neytinu og Þórann J. Hafstein deildarstjóri í menntamálaráðu- neytinu. Aka einung- is á innan- bæjartaxta LIMOUSINE-þjónustan hef- ur tekið upp þá nýbreytni að aka á innanbæj artaxta hvert sem farið er um landið. Ef t.d. ferðinni er heitið til Keflavíkur frá Reykjavík, er greitt fyrir 50 km vega- lengd, en ekki rakkað um gjaldið til baka með tóman bíl. Afgreiðslan er opin frá klukkan 7.00 til klukkan 23.30. alla daga. Lámousine- þjónustan hefur á boðstólum 5—9 farþega bfla og getur jafnframt útvegað ýmsar stærðir hópferðarbifreiða ef óskað er. (Úr fréttatilkynningu.) Siglufiörður: Vaka mót- mælir sölu áSR Á FUNDI stjómar Verkalýðs- félagsins Vöku á Siglufirði 17. janúar sl. var eftirfarandi álykt- un samþykkt samhljóða: Stjóm Verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufírði lýsir fullri and- stöðu við aliar hugmjmdir um end- urvakningu sjóðakerfis í sjávarút- vegi. Stjómin mótmælir harðlega hugmyndum sjávarútvegsráð- herra um að selja einkaaðilum Síldarverksmiðjur ríkisins og bendir á slæma reynslu af sölu ríkisins á lagmetisiðjunni Sigló- síld. Stjómin skorar á ráðherra að beita sér heldur fyrir því að Sfldar- verksmiðjum ríkisins verði gert kleyft að eiga og gera út eigin skip, en sú tilhögun myndi bæta rekstraraðstöðu fyrirtækisins verulega". LOKAÐ vegna breytinga frá mánud. 20. febrúar til föstud. 24. febrúar. í dag, sunnudag kl. 15.00-17.00 BARNA- 06 FJÖLSKYLDUBALL MEB PETER „JACKSON" Ekkert aldurstakmark - Kr. 400.- K&É CUBA BORGARTÚNI 32 SÍMI 35355 MICHAEL JACKSON HÁTÍÐ MEÐ PETER „JACKSON" FRÁ HOLLANDI '/L ISLANDSMEISTARAREPPNII ROKKDANSI 1980 í kvöld verður keppt til úrslita í Rokkdansi í flokki atvinnumanna. Aðalsteinn Ásgrímsson, Herborg Bemdsen Rokkmeistarar 1982 Sigurvegarar hljóta glæsileg verðlaun: 3 viknaferb tilBenidorm meb Ferbaskrifttofu Reykjavtkur. Pörsem lenda í 2. - 3. sceti hljóta ab launum helgarferbir meb Flugleibum. Viðar Völundarson, Hafdís Jónsdóttir danskennarar Sæmundur Pálsson - eða bara Sæmi Rokk ráða úrslitum um það hvaða par hlýtur titilinn: ÍSLANDSMEISTARAR í ROKKDANSI Auk þess verður boðið upp á skemmtilega dans- sýningu ásamt því að íslandsmeistarar í flokki 13 - 16 ára sýna sigurlotuna. Keppni í þeim flokki fer fram að deginum til kl. 15:00. Mætum öll og hvetjum pörin til dáða, ekki hvað síst unglingana. Húsið opnað kl. 21:00. verð kr. 300, og í kvöld, verð kr. 500. jeHOLUWOOD d 5 s 1 t 5=3 œ ! to FLUGLEIÐIR REYKjAVIKUR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.